Morgunblaðið - 25.01.2011, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 25.01.2011, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2011 Þúsundir manna söfnuðust saman í miðborg Túnis- borgar í gær og kröfðust þess að Mohammed Ghanno- uchi forsætisráðherra segði af sér eftir að Zine El- Abidine Ben Ali hrökklaðist frá völdum. Yfirmaður hersins, Rachid Ammar, ávarpaði mannfjöldann og hét því að virða stjórnarskrá landsins. „Herinn mun standa vörð um byltinguna og vernda þjóðina,“ sagði Ammar. Hann varaði við því að „valdatómarúm“ gæti leitt til einræðis að nýju í landinu. Mótmælendur ganga hér í áttina að forsætisráðuneytinu í Túnisborg. Yfirmaður hersins í Túnis heitir því að vernda þjóðina Reuters Lofar að standa vörð um byltinguna Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Danmörk er í efsta sæti á lista yfir lönd þar sem flestir greinast með krabbamein. Á ári hverju eru 326 Danir á hverja 100.000 íbúa greindir með krabbamein, skv. rannsókn vís- indamanna við Alþjóðlega krabba- meinsrannsóknasjóðinn, WCRF. Ísland er í 15. sæti á lista sem nær yfir bæði kynin, með 282 krabbameinstilfelli á hverja 100.000 íbúa. Ísland er í 11. sæti á lista sem nær aðeins til kvenna, með 266 til- felli á hver 100.000. Ísland er hins vegar í 24. sæti á lista yfir tíðni krabbameins meðal karla, með 306 tilfelli á hver 100.000. Ísland er því neðar á þeim lista þótt krabbameins- tilfellin séu fleiri meðal karla. Frakkland og Ástralía eru í efstu sætunum á listanum sem nær aðeins til karla, með 361 krabba- meinstilfelli á hverja 100.000 íbúa. Danmörk er í 10. sæti á karlalist- anum, með 335 tilfelli á hver 100.000, en í efsta sæti á listanum sem nær aðeins til kvenna, með 325 tilfelli á hver 100.000. Ekki óhjákvæmilegt Rannsóknarmennirnir taka fram að ein af ástæðum þess að Dan- mörk er í efsta sætinu á heildarlist- anum kunni að vera sú að danskir læknar standi sig betur í því að greina krabbamein en læknar í öðr- um löndum. Þeir segja hins vegar að ýmsir lífsstílsþættir hafi einnig áhrif á niðurstöðurnar. Þeir benda meðal annars á að hlutfall kvenna sem reykja er óvenjuhátt í Danmörku, auk þess sem mikil áfengisneysla getur stuðlað að krabbameini. Í efstu sætum heildarlistans eru lönd þar sem tekjur eru almennt há- ar. Einu löndin utan Evrópu í 20 efstu sætunum eru Ástralía, Nýja- Sjáland, Bandaríkin, Kanada, Ísrael, Franska Pólýnesía og Úrúgvæ. Er þetta einkum rakið til þess að íbúar velmegunarríkja eru lík- legri til að vera of feitir, drekka of mikið og hreyfa sig of lítið. Martin Wiseman, prófessor og vísindaráðgjafi WCRF, leggur áherslu á að há tíðni krabbameins sé ekki óhjákvæmileg í velmeg- unarlöndum. Fólk geti minnkað verulega líkurnar á því að það fái krabbamein með því að reykja ekki, hreyfa sig nóg og borða hollan mat. Krabbamein algengast í Danmörku  Ísland í 15. sæti á lista yfir lönd þar sem flestir greinast með krabbamein  Hátt hlutfall kvenna sem reykja talið stuðla að hárri tíðni krabbameins í Danmörku  Velmegunarríki í efstu sætunum Tíðni krabbameins Tilfelli á hverja Land 100.000 íbúa 1. Danmörk 326 2. Írland 317 3. Ástralía 314 4. Nýja-Sjáland 309 5. Belgía 307 6.-7. Frakkland 300 6.-7. Bandaríkin 300 8. Noregur 299 9. Kanada 297 10. Tékkland 295 15. Ísland 282Svæla Reykingar stuðla að hárri tíðni krabbameins meðal Dana. Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Samningamenn Palestínumanna buðu miklar tilslakanir í friðarvið- ræðum við Ísraela, ef marka má skjöl sem sjónvarpsstöðin Al-- Jazeera segist hafa undir höndum. Leiðtogar Palestínumanna reiddust fréttaflutningi stöðvarinnar. Saeb Erakat, aðalsamningamaður palest- ínsku heimastjórnarinnar, sagði fréttaflutning Al-Jazeera einkennast af „rangfærslum“, „fölsunum“ og „lygum“. Mahmud Abbas, forseti Palestínumanna, sakaði sjónvarps- stöðina um hafa ruglað saman tilboð- um Ísraela og Palestínumanna af ásettu ráði til að rugla fólk í ríminu. Al-Jazeera segist hafa undir hönd- um 1.600 skjöl og tölvupósta í tengslum við viðræður samninga- manna Palestínumanna, Ísraels og Bandaríkjanna á síðustu tíu árum. Breska dagblaðið The Guardian hef- ur einnig fengið gögnin. Tilboðinu hafnað Í skjölunum segir m.a. að samn- ingamenn Palestínumanna, Erakat og Ahmad Qorei, fyrrverandi for- sætisráðherra, hafi lagt til á fundi með utanríkisráðherrum Ísraels og Bandaríkjanna að Ísraelar héldu öll- um byggðum gyðinga í austurhluta Jerúsalem, að einni undanskilinni. Ísraelar eru sagðir hafa hafnað til- boðinu og sagt að palestínsku samn- ingamennirnir þyrftu að fallast á meiri tilslakanir. Erakat er einnig sagður hafa lagt til málamiðlun í deilunni um Palest- ínumenn sem flúðu heimkynni sín þegar Ísraelsríki var stofnað 1948. Samkvæmt tilboði Erakats áttu að- eins 100.000 flóttamannanna að fá að snúa aftur til fyrri heimkynna sinna á tíu árum, ef marka má skjölin. Flóttamennirnir og afkomendur þeirra eru um fimm milljónir. Leiðtogar Hamas-samtakanna á Gaza-svæðinu sögðu að skjölin sýndu „hið ljóta andlit“ leiðtoga pal- estínsku heimastjórnarinnar í Ram- allah og „samvinnu hennar við her- námsliðið“. Stjórnvöld í Ísrael sögðu ekkert um hvort Palestínumenn hefðu boðið þessar tilslakanir. Fréttaskýrandi breska ríkisút- varpsins sagði líklegast að einhver palestínskur keppinautur Abbas hefði lekið skjölunum til að koma höggi á hann. Sagðir hafa boðið miklar tilslakanir  Palestínska heimastjórnin sakar Al-Jazeera um lygar Dauðahaf Jerúsalem Hebron Nablus Ramallah Betlehem MEINT TILBOÐ PALESTÍNUMANNA Heimild: Al Jazeera Samningamenn heimastjórnar Palestínumanna eru sagðir hafa lagt til í friðarviðræðum árið 2008 að allar byggðir gyðinga í Jerúsalem nema ein yrðu innlimaðar í Ísrael 20 km V E S T U R B A K K I N N Gyðingabyggðir sem átti að leggja niður Byggðir gyðinga ÍSRAEL Svæði sem áttu að heyra undir Ísrael skv. tilboðinu Svæði sem átti að færa undir yfirráð Palestínumanna „Græna línan” (vopnahléslína frá 1949) Har Homa Eina gyðinga- byggðin í Jerúsalem sem átti ekki að innlima í Ísrael EG YP TA L. JÓ RD AN ÍA GAZA- SVÆÐIÐ Miðjarðarhaf EGYPTALAND ÍSRAEL Gaza Rafah MEGINATRIÐI TILBOÐSINS Að minnsta kosti 35 manns biðu bana og yfir 140 særðust í sprengju- tilræði á alþjóðaflugvellinum Domo- dedovo í Moskvu í gær. Fregnir hermdu að sprengja hefði sprungið við farangursfæriband á komusvæði flugvallarins. „Rann- sókn hefur þegar verið hafin á hryðjuverkinu,“ sagði talsmaður nefndar sem rannsakar slík tilræði. Sjónarvottar sögðu að skaðbrennt og alblóðugt fólk hefði hlaupið um flugstöðina eftir sprenginguna. Lík voru flutt út í börum og tugir sjúkra- bíla voru sendir á flugvöllinn. Dmítrí Medvedev, forseti Rúss- lands, stjórnaði skyndifundi æðstu embættismanna landsins í sam- göngu- og öryggismálum skömmu eftir sprenginguna. Hann fyrirskip- aði aukinn öryggisviðbúnað á öllum helstu flugvöllum og lestastöðvum landsins. Hann sagði tilræðið sýna að því færi fjarri að lögum, sem sett hafa verið í baráttunni gegn hryðju- verkum, væri framfylgt nógu vel. Fréttastofan Interfax sagði að tal- ið væri að tilræðismaðurinn hefði komið frá einhverju Norður- Kákasushéraðanna og hann hefði beðið bana í sprengingunni. Nokkrar mannskæðar sprengju- árásir hafa verið gerðar í Moskvu á síðustu árum. Um 40 manns biðu bana í sprengjutilræðum tveggja kvenna frá Dagestan í jarðlesta- stöðvum í Moskvu 29. mars á liðnu ári. Domodedovo er stærsti flugvöllur Rússlands í farþegaflugi og um hann fara um 55.000 farþegar á dag. Blóðbað á flug- velli í Moskvu  Tugir manna létu lífið í sjálfsmorðsárás Reuters Hryðjuverk Særður maður fluttur á sjúkrahús eftir tilræðið í Moskvu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.