Morgunblaðið - 04.02.2011, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 04.02.2011, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Kristinn Í starfsnámi Nicola Pittaway við skrifborðið sitt hjá KOM. möguleika þess; bloggið, heimasíð- ur, Facebook og annað en fyrirtæki hér eru minna í því,“ segir Nicola. Hún hefur notið þess að vinna á KOM þrátt fyrir að tala enga ís- lensku. „Fólkið hefur verið mjög vinalegt og alltaf útskýrt fyrir mér hvað er verið að segja eða þýtt fyrir mig svo ég geti verið með á nót- unum, það tala allir hér líka svo góða ensku. Ég get skilið pínulítið núna í íslenskunni og áttað mig á því hvað er verið að fjalla um í fjölmiðlum.“ Netið er áhugasvið Nicola og segist hún hafa mikinn áhuga á að fylgjast með því hvernig það þróast og er notað í almannatengslum. Það þarf því ekki að koma á óvart að hún heldur úti bloggsíðu þar sem hún fjallar um námið og áhugamál sitt, kvikmyndir. „Ég er mikil kvikmyndaáhuga- manneskja og blogga mikið um það áhugamál mitt en ég er með BA- gráðu í kvikmyndafræðum. Draumastarfið væri að vinna innan kvikmyndaiðnaðarins, í almanna- tengslum hjá framleiðslufyrirtæki. Ég útskrifast í september og áætl- unin er að fara strax á eftir í ferða- lag um Asíu og Ástralíu. Þegar ég kem heim úr því fer ég að huga að því að fá mér vinnu við almanna- tengsl,“ segir Nicola og bætir við að einn af hverjum þremur sem útskrifast úr háskóla í Bretlandi fari í einhverskonar almanna- tengsl. Forsetinn og handboltinn Margt hefur drifið á daga Nicola hér á landi en hún fékk meðal ann- ars að hitta Ólaf Ragnar Grímsson forseta út af verkefn- inu Ár skóga 2011. „Ég trúði því ekki að það væri hægt að komast svona nálægt honum, við keyrðum bara beint upp að húsinu og svo var ég kynnt fyrir honum. Það var góð reynsla og skemmtileg. Enginn ann- ar í bekknum hefur fengið að hitta forsetann í því landi þar sem þeir eru í verknámi,“ segir hún og hlær. Hún heyrði líka í fyrsta skipti um íþróttina handbolta hér á landi. „Ég hafði aldrei heyrt um hand- bolta áður. Ég horfði á einn hand- boltaleik á öldurhúsi og það var í fyrsta skipti sem ég sá slíkan leik, ég er vön því að horfa á fótbolta. Þetta var allt í lagi, ég skildi ekki allar reglurnar en fólkið á staðnum skemmti sér vel yfir leiknum og það var góð stemning.“ Nicola, sem er 23 ára, dvaldist á gesthúsi í miðbænum og nýtti frítím- ann í að fara út að skemmta sér með þremur ungum Frökkum sem bjuggu á sama stað, fara á söfn og í sund. Hún er einnig mikil áhuga- manneskja um ljósmyndun og notaði tækifærið til að mynda í kirkjum og við sjávarsíðuna. „Þetta hefur liðið mjög hratt. Ég hélt að ég yrði einangraðri enda bjóst ég ekki við að fólk talaði svona góða ensku og svo hafa allir verið svo vinalegir, Íslendingar eru vina- legasta fólk sem ég hef hitt, svo ég sé hreinskilin. KOM hefur verið skemmtilegur vinnustaður og þau hafa aðeins sýnt mér af Íslandi og farið með mig hingað og þangað,“ segir Nicola sem ætlaði að nýta síðustu vikuna sína hér á landi til að ferðast aðeins utan höfuðborgarsvæðis- ins. „Ég er þegar farin að plana að koma aftur til Ís- lands í sumar, ég bjóst ekki við neinu þegar ég kom hingað en hef virkilega notið þess. Ég hef skemmt mér vel og vil koma aftur og sjá land- ið yfir sumartímann.“ Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Lokkandi Eldgosið í Eyjafjallajökli vakti athygli Nicola á Íslandi. Forsetinn Nicola fannst mikið til þess koma hversu auðvelt var að hitta Ólaf Ragnar. Þunguð Vera Farmiga í kjól með fallegu hálsmáli. Ég hef aldrei verið svo vit-laus að trúa á ást viðfyrstu sýn, konsept semer svo gjörsamlega út í hött að það er efni í heila bók, en losti við fyrstu sýn er annað mál. Ja … fyrstu sýn, fyrsta þef, jafnvel fyrsta tón. Eins og það getur verið grátbölvanlegt að verða ástfangin þá er fátt eins skemmtilegt eins og að verða lostfangin. Og það er alls ekki svo langt síðan ég upplifði þessa til- finningu síðast, þegar ég sat eitt kvöldið og fylgdist með fáránlega myndarlegum djasstónlistarmanni kitla hljóðfærið sitt af mikilli list. Mér var heitt í fjóra daga á eftir. Tælandi tónlistarmenn voru því ekki fjarri huga mínum þegar löngu tímabær umræða um málefni tón- listarskólanna fór loks að líta dags- ins ljós en þeir hafa mátt mæta mikl- um niðurskurði og jafnvel verri er sú óvissa sem ríkir um tilhögun náms- ins í kjölfar aðhaldsaðgerðanna. Þetta er stórt mál og merkilegt og mikilvægt að ræða. En ein er sú hlið málsins sem fólki hefur yfirsést í hita leiksins og rann upp fyrir mér á dögunum: ef minni rækt verður lögð við tónlistarnám í land- inu verður óneitanlega minna af tónlistarfólki í landinu og þar af leiðandi færri gríðarlega sjarm- erandi og myndarlegir tón- listarmenn til að verða lostfangin af. Þetta gefur auga leið. Ef hætt verður að borga með námi 24 ára og eldri til dæmis, er hætt við því að fólki í söngnámi snar- fækki. Snoppufríðra ten- óra, stimamjúkra barrí- tóna og brúnaþungra bassa verður sárt saknað. Þegar söngskólunum verður lokað einum af öðrum leita þeir sem á annað borð hafa efni á því, út fyrir landsteinana í nám, og koma ekki heim nema til að syngja á Donizetti-hátíð í Skálholti. Á fremsta bekk mun sitja Katinka, rússneska kærastan sem þeir kynnt- ust í óperustúdíóinu í Vín. Þar hafði hún afnot af bókasafninu til að afla sér upplýsinga fyrir mastersritgerð um tengsl ruggustóla og Niflunga- hrings Wagners. Hún borðar bara grænan mat og er ómótstæðilega leyndardómsfull. Við íslensku sveitastelpurnar eigum ekki séns. Söngvararnir verða ekki einir; „senan“ verður ónýt og allir munu flykkjast til útlanda. Sinfónían mun heyra sögunni til. Í stað þess að finna testosterónþrungna tóna flæða yfir sig í nýju tónlistarhúsi verður stærsti salur Hörpu bók- aður af Dale Carnegie spek- ingum og módelkeppnishöld- urum. Ég bið ríki og Reykjavík að hafa þetta í huga í yfirstandandi spegúler- ingum. »Á fremsta bekk mun sitja Katinka, rússneska kærastan sem þeir kynntust í óperu- stúdíóinu í Vín. HeimurHófíar Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Tíska Fjólublá Christina Applegate á frumsýningu í Hollywood í ágúst. Flottust Natalie Portman er kas- ólétt en mætir samt í flottasta kjólnum á hverja verðlaunahátíðina á eftir annarri. Glæsileg Jane Krakowski á nýafstaðinni Golden Globe hátíð. Óléttar og æðislegar Það fer ekki endilega saman að vera ólétt og hallæris- leg, það þarf ekki að fórna tískuvitinu í níu mánuði þó ekki sé hægt að nota allt í hinum hefðbundna fataskáp. Nú er tími árshátíða og þorrablóta og óléttar konur þurfa ekki að sitja heima vegna ummálsins, glæsilegir kjólar fara nefnilega fáum jafn vel og þunguðum konum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Á lokasprettinum Amy Adams í bláum síðkjól sem fór vel við bumbuna. Reuters DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2011 Þverslaufur hafa verið vinsælar síð- astliðið ár og þar hefur engin breyt- ing orðið á. Hún er frábær fylgi- hlutur fyrir stráka og í staðinn fyrir að hún sé notuð við hátíðleg tæki- færi eins og brúðkaup, þá hefur hún færst yfir í hversdagslegri notkun. Í upphafi þjónaði þverslaufan þeim tilgangi að vera sá hlutur sem lok- aði skyrtum karlmanna að ofan en þá voru engar tölur hafðar efst á skyrtum þeirra. Hægt er að fá slaufur sem búið er að binda, en hver herramaður ætti að reyna að binda sína eigin slaufu enda eru þær fallegastar þegar þær eru svolítið óreglulegar. Þá passa þær fullkomlega við kraga skyrtunnar og heildarútlitið. Prófaðu mynstraðar og öðruvísi þverslaufur. Jafnvel slaufur í bjart- ari litum og grófari efnum. Þú veist að það verður eftir þér tekið. Tíska Heitt Þverslaufur hafa slegið í gegn. Þverslaufan enn vinsæl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.