Morgunblaðið - 04.02.2011, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2011
Á sunnudag nk. verður Dagur leik-
skólans. Dagurinn verður haldinn
hátíðlegur í dag, föstudag, í leik-
skólum landsins. Leikskólakenn-
arar og annað starfsfólk leikskóla
hafa á undanförnum árum, ásamt
börnunum, gert sér dagamun á
margan hátt og verður engin breyt-
ing þar á í ár.
Í tilefni dagsins verður haldin
stuttmyndasýning í Bíó Paradís við
Hverfisgötu í dag kl. 13. Þar verða
sýndar myndir sem sendar voru inn
í stuttmyndakeppni undir þemanu
„Leikskólinn minn.“ Leikskóla-
kennarar og annað starfsfólk var
duglegt að taka upp myndir og
senda inn og verða veitt vegleg
verðlaun fyrir bestu myndina.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rauðhóll Leikskóli Norðlingaholti.
Dagur leikskólans
Í dag, föstudag, standa Jafnréttis-
stofa og velferðarráðherrra fyrir
Jafnréttisþingi. Þingið fer fram á
Nordica Hilton Reykjavík og stend-
ur kl. 9:00-16:00. Þingið er öllum
opið og ókeypis.
Á þinginu munu fjölmargir fyrir-
lesarar, bæði erlendir og íslenskir,
taka til máls. M.a. verður fjallað um
kynbundið ofbeldi, mansal, jafn-
rétti í stjórnarskránni, framlag
karla til jafnréttisbaráttu og Evr-
ópusambandið og íslenskt jafnrétti.
Þá mun Guðbjartur Hannesson, vel-
ferðarráðherra, flytja skýrslu um
stöðu og þróun í jafnréttismálum.
Þar verður einnig kynnt tillaga til
ályktunar Alþingis um fram-
kvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í
jafnréttismálum.
Þróun jafnréttis
rædd á Hiltonhóteli
Fimmta verðlaunahátíð IMFR til
heiðurs iðngreinum og nýsveinum
sem lokið hafa sveinsprófi með af-
burðaárangri fer fram á morgun,
laugardag, kl. 16 í Tjarnarsal Ráð-
húss Reykjavíkur.
Á hátíðinni verða, auk afhend-
ingar nýsköpunarverðlauna, heiðr-
aðir 21 nýsveinar úr 13 löggiltum
iðngreinum frá 8 starfsmenntaskól-
um á landsvísu, auk þess sem Heið-
ursiðnaðarmaður ársins 2011 verð-
ur útnefndur. Þá fá meistarar
nýsveinanna viðurkenningarskjal.
Verðlaunahátíð
STUTT
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Fari fram sem horfir verða 49 leigu-
íbúðir í Reykjanesbæ boðnar upp
mánudaginn 14. febrúar. Í sumum
þeirra er búið en öðrum ekki.
Íbúðirnar eru í eigu Norðurkletts
en í flestum tilvikum eru það Íbúða-
lánasjóður og Tryggingamiðstöðin
sem fara fram á nauðungarupp-
boðin.
Flestar eru íbúðirnar í fjölbýlis-
húsinu við Hringbraut 129 eða tólf
talsins og átta eru við Mávabraut 9.
Samkvæmt upplýsingum frá
Íbúðalánasjóði fékk Norðurklettur
lánin vegna leiguíbúða á árinu 2007
eða þar um kring. Þær eru allar full-
búnar.
Ekki er hægt að slá því föstu að
Íbúðalánasjóður eignist þessar 49
íbúðir á uppboðinu. Hugsanlega
verður samið um skuldirnar áður, en
jafnvel þótt uppboðið fari fram og
eignirnar verði slegnar Íbúðalána-
sjóði, tekur við samþykkisfrestur
sem nota má til að ná samningum við
lánardrottna.
Framhaldsuppboð fara að jafnaði
fram í þeim íbúðum eða húsum sem
verið er að bjóða upp. Það virðist
ekki standa til að þessu sinni því
uppboðin eru öll tímasett á sama
tíma í hverju húsi, jafnvel þó bjóða
eigi upp tylft íbúða.
Leiguíbúðir á leið undir hamarinn
49 leiguíbúðir fasteignafélags í Reykjanesbæ verða boðnar upp 14. febrúar
Íbúum verður boðið að leigja íbúðirnar áfram, eignist Íbúðalánasjóður þær
Slegið Frá uppboði í Vindakór 2-8 í Kópa-
vogi en þá eignaðist ÍLS tvær blokkir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fari svo að Íbúðalánasjóður eign-
ist leiguíbúðirnar 49 í Reykja-
nesbæ verður leigjendum boðið
að halda áfram að leigja þær,
skv. tilkynningu frá sjóðnum.
Uppboðin á íbúðunum 49 voru
auglýst í Morgunblaðinu í gær
ásamt uppboðum á 46 öðrum
íbúðum í Reykjanesbæ. Í 28 til-
fellum krefst Íbúðalánasjóður
uppboðs, ýmist einn eða með
öðrum. Flestar íbúðanna eru í
eigu fasteignafélaga en 16 eru í
eigu einstaklinga.
Áfram í leigu
MIKIÐ UM UPPBOÐ