Morgunblaðið - 04.02.2011, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 04.02.2011, Blaðsíða 36
FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 35. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318 1. Fannst látinn í Sandgerði 2. Fékk raflost í baðinu 3. Æskuvinur gerði sér upp meiðsli 4. Torres gæti séð eftir skiptunum »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  „Hið holdlega er áberandi út í gegn í myndinni, ýmist kynferðislegt eða sársaukafullt,“ segir m.a annars í fimm stjörnu dómi um kvikmyndina Black Swan. »31 Black Swan fær fullt hús stiga í dómi  Alþjóðlega myndbanda- og tilrauna- kvikmyndahátíðin 700IS Hreindýra- land verður haldin í sjötta sinn á Eg- ilsstöðum í mars. Þema hátíðar- innar í ár er gagn- virk list og verða fimm slík verk sett upp í Slátur- húsinu. Sigrún Harðardóttir úr listaháskólanum mun ennfremur halda fyrirlestur um efnið. 700IS Hreindýraland fer fram í mars  Meistari Mugison hefur hlaðið upp nýju lagi, „Haglél“, á vefsíðu sína mugison.com. Mugison vinn- ur nú að tveimur plötum en síðasta hljóðversplata hans, Mugiboogie, kom út 2007 og vakti mikla athygli, féll í góðan jarveg hjá rýnum jafnt sem leik- mönnum. Mugison gefur nýtt lag á síðu sinni Á laugardag Suðlæg eða breytileg átt, 5-10 m/s, hægari vindur síðdegis. Dálítil snjó- koma eða él um s- og vestanvert landið, en bjartviðri norðaustantil. Frost 0 til 10 stig. Á sunnudag og mánudag Hæg norðlæg eða breytileg átt með éljum víða um land. Áfram kalt í veðri. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg átt, víða 5-13. Él eða snjókoma með köflum um s- og vestanvert landið, en skýjað og úrkomulítið NA- og austanlands. Frost 0 til 10 stig. VEÐUR Akureyringar náðu fjögurra stiga forskoti í úrvalsdeild karla í handboltanum í gær- kvöldi þegar þeir lögðu Vals- menn að velli fyrir norðan, 28:26. Framarar þurftu á meðan að sætta sig við jafn- tefli gegn FH á heimavelli, 26:26, eftir geysilega tvísýna baráttu. HK komst upp fyrir Hauka og í fjórða sætið með sigri á Aftureldingu, 26:23, en Selfoss tók óvænt stig af Haukum, 25:25. »1-3 Akureyri jók for- skotið á toppnum Tíu af þeim strákum sem hafa spilað með hinu sigursæla 21 árs landsliði Íslands í knattspyrnu und- anfarin ár, verða áfram gjald- gengir með því næstu tvö ár- in. Dregið var til nýrrar Evrópu- keppni í gær og þar leikur Ísland við England, Belgíu, Nor- eg og Aserbaíd- sjan. »1 Tíu gjaldgengir áfram með 21 árs liðinu ÍR-ingar gerðu sér lítið fyrir og unnu stórsigur á Grindvíkingum í úrvals- deild karla í körfuboltanum í gær- kvöld. Fyrir vikið náðu Íslandsmeist- arar Snæfells tveggja stiga forystu með því að sigra Tindastól. KR-ingar unnu góðan sigur á Keflvíkingum og nú er útlit fyrir að Snæfell, KR og Grindavík berjist um efsta sæti deild- arinnar á lokasprettinum. »4 Óvæntur stórsigur ÍR- inga gegn Grindavík ÍÞRÓTTIR Una Sighvatsdóttir una@mbl.is „Hún hefur verið sterk kona og ákveðin. Konur áttu helst alltaf að gera eins og þeim var sagt en hún fékk nóg af karlaveldinu og þess vegna fór hún til Íslands!“ – „Hefði hún ekki verið svona sjálfstæð og ákveðin væri líka engin saga að segja frá.“ – „Þetta er svolítil kvennasaga, ein af fáum frá þessum tíma þar sem konur fá að njóta sín.“ – „Svo er þetta nú ástarsaga líka. Það er þessi ástarþríhyrningur sem er alltaf svo vinsæll.“ – „Jah, hann er nú aldrei vinsæll hjá öllum …“ Sú sem um ræðir er landnáms- konan Auður, nefnd djúpúðga. Sam- nefnd bók eftir Vilborgu Davíðs- dóttur var viðfangsefni þessa viku í sameiginlegum bókaklúbbi íslensku- nema við Háskóla Íslands og eldri borgara í Félagsmiðstöðinni Afla- granda. Líflegar umræður sköp- uðust á fundinum í gær og voru við- staddir almennt á sama máli um að bókin um Auði væri góð lesning. Áhugamálið spyr ekki um aldur „Mér finnst ég þurfa að lesa hana aftur og ég er byrjuð að lesa hana í annað sinn,“ segir Anna Þorsteins- dóttir sem var að mæta á sinn fyrsta bókaklúbbsfund. Hún segist alltaf hafa haft mikinn áhuga á bók- menntum og er líka meðlimur í öðr- um leshring sem hittist einu sinni í mánuði, en það dugði ekki til. Annar nýliði er í hópnum, en það er Kristín Guðnadótt- ir sem mætti á sinn annan fund í gær. „Mér fannst spennandi að koma hingað og fá þessar ungu stúlkur til að spjalla með okkur. Það er frábært og kom mér svolítið á óvart hvað fullorðna og unga fólkið sameinast vel. En það er ekki að spyrja að því þegar áhugamálin eru þau sömu, þá skiptir aldurinn engu máli.“ Lillý Ása Kjartansdóttir tek- ur undir með Kristínu og segir gam- an hvernig kynslóðirnar sameinast yfir bókmenntunum. „Við fáum meiri innsýn í bæk- urnar með því að fá þessa nema úr háskólanum til að hjálpa okkur. Þau kannski lesa annað út úr þeim en við og gefa allt aðra sýn. En það er sama á hvaða aldri við erum, þetta er bara mjög skemmtilegt og ég er hissa að ekki skuli vera fleiri í klúbbnum, því hann er öllum op- inn.“ Bókin brúar kynslóðabilið  Nemar og eldri borgarar hittast vikulega í leshring Morgunblaðið/Ómar Rökrætt Töluverðar umræður spunnust um átökin milli kristni og heiðni á landnámstímanum og fannst sumum Auður taka kristni furðufljótt. „Ætli það hafi ekki verið þetta ofbeldi í ásatrúnni sem hún vildi flýja,“ sagði önnur. „Við tókum við starfinu síðasta haust, en það var annar hópur ís- lenskunema sem byrjaði á þessu fyrir nokkrum árum,“ segir Védís Ragnheiðardóttir, einn íslensku- nema sem standa fyrir bók- menntaklúbbnum. Hópurinn velur í sameiningu 4 bækur í upphafi mánaðar og hittist svo einu sinni í viku, á fimmtudögum kl. 13.15, til að ræða hverja bók og fær jafnvel höfund- inn í heimsókn. Aðgangsgjald á fundi er 500 kr. Klúbburinn er knúinn af einlæg- um áhuga á báða bóga og er hrein viðbót við nám háskólanemanna, þ.e. ekki metinn til eininga. „Okkur finnst þetta bara skemmtilegt og líka fínt að heyra þeirra sjónarmið. Þau birta okkur sem erum yngri oft nýja sýn á bækurnar þannig að ég held að allir græði á þessu.“ Gefur nýja sýn á bækurnar FUNDIR EINU SINNI Í VIKU OG ALLIR VELKOMNIR Védís Ragnheiðardóttir MMeira á mbl.is | Sjónvarp

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.