Morgunblaðið - 04.02.2011, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2011
✝ Vivan Signe Au-rora Holm var
fædd að Haga, Upp-
land, í Svíþjóð 25.
desember 1910. Hún
lést á Landspít-
alanum í Fossvogi 21.
janúar 2011.
Hún var yngst átta
barna hjónanna Am-
anda og Otto Holm,
stórbónda þar. Öllum
systkinum hennar
gafst tækifæri til
mennta, sem á þeim
tíma var óvenjulegt.
Öll syktkini hennar eru nú látin í
hárri elli. Vivan lauk stúdentsprófi
18 ára gömul frá Magdeburg
menntaskólanum í Uppsala. Eftir
það fluttist hún til Stokkhólms, þar
sem hún lauk prófi sem sjúkra-
þjálfari og íþróttakennari frá GSI
vorið 1932. Í námi sínu kynntist
hún verðandi eiginmanni sínum,
Íslendingnum Benedikt Jakobssyni
sem einnig var við nám í þeim
skóla. Þessi kynni urðu örlagarík
hinni ungu konu. Í september
sama ár (1932) sigldi hún til Ís-
lands sem varð land hennar upp
kenndi hún sænsku við Kvenna-
skólann í Reykjavík. Einnig sinnti
hún kennslu í þýsku við sama
skóla. Á stríðsárunum var hún
jafnframt starfsmaður Sænska
konsúlatsins í Reykjavík (sendi-
ráðsins sem síðar varð) og sinnti
þar störfum fyrir B-deild, sem
einkum sá um málefni Þjóðverja,
þar eð Svíþjóð var þá hlutlaust ríki
í þeim hildarleik, og naut þar frá-
bærrar þekkingar sinnar á þeirri
tungu. Frá árinu 1949 starfaði
Vivan óslitið við fag sitt, Sjúkra-
þjálfun á læknastofu Kristjáns
Hannessonar, fyrst að Miðstræti,
síðan að Miklubraut. Störfum þess-
um sinnti hún af alhug og mikilli
þekkingu allt fram að starfslokum
árið 1979. Félagsmál voru henni
afar hugleikin. Var meðal annars
formaður sjúkraþjálfarafélags Ís-
lands og aðalhvatamaður þess að
nám í þeim fræðum yrðu tekin á
námsskrá Háskóla Íslands, einnig
var hún formaður Kvenfélags
Laugarneskirkju um langt árabil.
Einnig formaður Islands-
svenskorna, sem er/var fé-
lagsskapur sænskra kvenna á Ís-
landi. Var frumkvöðull um
margvísleg málefni um baráttu
kvenna til jafnréttis. Frú Vivan
talaði alla tíð lýtalausa íslensku.
Útför Vivan fer fram frá Laug-
arneskirkju í dag, 4. febrúar 2011,
og hefst athöfnin kl. 15. Jarðsett
verður í Gufuneskirkjugarði.
frá því. Þau Benedikt
gengu í hjónaband
þann 1. október 1932.
Þeim varð fjögurra
barna auðið. Þau eru:
1) Ingunn Brynhild-
ur, f. 21. ágúst 1934,
gift Franzén og eiga
þau tvö börn, öll bú-
sett í Svíþjóð. 2) Elín
Sólveig, f. 19. júní
1937, ekkja Guð-
mundar Jónssonar. Í
fyrri hjónaböndum
eignaðist Elín Sól-
veig fjögur börn og
eru þrjú þeirra á lífi. 3) Gunnar, f.
2. október 1941, kvæntur Söru
Benediktsson og eru börn þeirra
tvö. Öll búsett í Svíþjóð. 4) Hall-
grímur, f. 8. ágúst 1946, kvæntur
Guðrúnu Jörundsdóttur. Þeirra
börn eru fjögur. Öll búsett í Kan-
ada. Þau Vivan og Benedikt slitu
samvistum árið 1949.
Þann 19. júlí 1952 giftist Vivan
Garðari Svavarssyni sóknarpresti
Laugarneskirkju, d. 9. maí 1984.
Starfsferill Vivan var langur og
giftusamlegur. Hún kenndi leik-
fimi við Landakotsskóla. Jafnfram
Með Vivan Svavarsson er gengin
glæsileg mannkostakona með
sterkan persónuleika.
Síðustu sex prestskaparár sr.
Garðars Svavarssonar var ég for-
maður sóknarnefndar Laugarnes-
safnaðar. Þá kom ég oft á heimili
þeirra hjóna og drakk þar margan
kaffisopann. Frá þessum tíma á ég
margar ljúfar minningar. Það
leyndi sér ekki að Vivan og Garðar
voru mjög samhent hjón og hjóna-
band þeirra einkenndist af ástúð
og umhyggju.
Það var ánægjulegt og þrosk-
andi að ræða við þau um lífið og
tilveruna, m.a. trúmál sem að
sjálfsögðu var oft fjallað um. Vivan
var trúuð kona, fluggáfuð og víð-
sýn.
Vivan vann mikið að kirkjumál-
um og lét sig miklu varða málefni
Laugarnessafnaðar og Laugarnes-
kirkju. Ég veit að hún var manni
sínum mikil stoð og stytta í hans
kirkjulega starfi. Ég held hún hafi
verið við allar helgiathafnir í kirkj-
unni. Kvenfélagskonur höfðu orð á
því hvað Vivan hugsaði af mikilli
nákvæmni um fermingabörnin,
gerði allt til þess að þeim liði sem
best.
Ekki má gleyma Kvenfélagi
Laugarnessafnaðar. Mörg heilla-
drjúg störf hefur það leyst af
hendi. Vivan var formaður félags-
ins frá 1965-1977. Á þessum árum
var félagið fjölmennt og starfaði af
miklum krafti. Þar var Vivan
sterkur foringi. Kvenfélagið var
mjög duglegt við að safna fyrir
ýmsum dýrgripum kirkjunnar. Það
hélt uppi starfi fyrir aldraða í
sókninni með fótsnyrtingu, hár-
greiðslu og margt fleira mætti
nefna.
Mér er efst í huga safnaðar-
heimilið, sem var mikið áhuga- og
baráttumál á þessum tíma. Margir
lögðu hönd á plóginn til að koma
upp safnaðarheimilinu. Ég fullyrði
að þar er hlutur kvenfélagsins
stærstur. Hinn mikli áhugi og bar-
áttuandi kvennanna undir forystu
Vivan skipti sköpum.
Ég vil, sem fyrrverandi formað-
ur sóknarnefndar Laugarnessafn-
aðar, þakka Vivan fyrir hennar
fórnfúsu, ómetanlegu störf í Laug-
arnessókn.
Vivan var kvenskörungur sem
ég kveð með virðingu og þökk.
Blessuð sé minning hennar.
Börnum og öðru venslafólki
sendi ég samúðarkveðjur.
Fyrrverandi formaður sóknar-
nefndar Laugarnessafnaðar,
Þorsteinn Ólafsson.
Vivan Svavarsson hefur haft
samneyti við sendiráð Svíþjóðar
lengur en nokkur annar maður.
Hún starfaði í sendiráðinu á
stríðsárunum og á þeim tíma sem
fyrsti Svíinn með stöðu sendi-
herra, Claes Otto Johansson,
starfaði á Íslandi. Hún sagði mér,
núverandi sendiherra, frá þessu
starfi, glaðvær og með glampa í
augum – meira en 70 árum eftir að
hún tók til starfa hjá sendiráðinu.
Vivan Svavarsson var mjög vel
metin fyrir starf sitt á Íslandi. Á
sínum viðburðaríka lífstíma gerði
hún einnig margt fyrir samskipti
Svíþjóðar og Íslands. Full stolts
gátum við alla tíð fylgst með
henni, ekki bara sem manneskju
sem lifði innihaldsríku lífi sem Ís-
lendingur, heldur einnig sem
glæsilegum fulltrúa Svíþjóðar.
Við erum þakklát fyrir allt það
sem Vivan Svavarsson hefur gert í
þágu Íslands og Svíþjóðar.
Anders Ljunggren, sendi-
herra Svíþjóðar á Íslandi.
Kveðja frá Félagi íslenskra
sjúkraþjálfara
Frumkvöðull, dugleg og glæsi-
leg kona, Vivan Svavarsson, er
fallin frá. Á 100 ára afmælinu í lok
árs 2010 tók hún á móti veislugest-
um, fylgdist með og spjallaði,
áhugasöm að vanda. Þetta var ein-
mitt það sem einkenndi Vivan, hún
fylgdist alltaf vel með öllu, hafði
skoðun á málum, áhugasöm og ung
í anda. Vivan fæddist í Uppsala í
Svíþjóð. Hún lauk prófi í sjúkra-
þjálfun frá Kungliga Gymnastiska
Central-Instituttet árið 1932 og
sama ár fluttist hún til Íslands.
Hún starfaði fyrstu árin sem
sjúkraþjálfari við Landakotsskóla
þar sem hún kenndi leikfimi,
fylgdist með læknisskoðun skóla-
barnanna og tók sérstaklega að
sér þjálfun barna með hrygg-
skekkju. Árið 1948 hóf Vivan störf
sem sjúkraþjálfari á stofu Krist-
jáns Hannessonar gigtarlæknis
þar sem hún starfaði til ársins
1978. Vivan fylgdist alla tíð mjög
vel með nýjungum og þróun
sjúkraþjálfunar og tileinkaði sér
m.a. snemma notkun raförvunar
við þjálfun lamaðra sjúklinga.
Segja má að hún hafi verið langt á
undan sinni samtíð því að enn í
dag eru sjúkraþjálfarar að berjast
fyrir því að koma til starfa við for-
varnir í skólum landsins og raf-
örvun er með breyttri tækni enn
að ryðja sér til rúms sem öflugt
meðferðarform í kjölfar lömunar.
Vivan var framsýn og alla tíð lagði
hún áherslu á mikilvægi framþró-
unar í sjúkraþjálfun og að sjúkra-
þjálfarar svöruðu ávallt kröfum
samfélagsins á hverjum tíma. Hún
varð fljótt virk í Félagi íslenskra
sjúkraþjálfara og varð formaður
félagsins árið 1955. Gegndi hún því
embætti í 12 ár.
Hún sá mikilvægi þess að ís-
lenskir sjúkraþjálfarar yrðu virkir
þátttakendur í alþjóðlegu sam-
félagi sjúkraþjálfara. Til þess að
félagið gæti orðið aðili að Heims-
sambandi sjúkraþjálfara þurfti
sjúkraþjálfun á Íslandi að verða
löggilt fagstétt. Vivan ásamt fé-
lögum sínum hóf því baráttu fyrir
því að lög yrðu sett um sjúkra-
þjálfun og voru fyrstu lögin sam-
þykkt árið 1962.
Strax árið eftir fékk félagið inn-
göngu í Heimssamband sjúkra-
þjálfara. Allt til æviloka fylgdist
Vivan með störfum félagsins, var
áhugasöm um málefni þess og bar
hag þess fyrir brjósti. Vivan var
kjörin heiðursfélagi félagsins árið
1980.
Félagar í Félagi íslenskra
sjúkraþjálfara þakka af alhug fyrir
allt sem Vivan hefur lagt af mörk-
um fyrir félagið og fagið. Við
þökkum framsýni hennar, elju og
dugnað. Síðast en ekki síst þökk-
um við viðkynningu við glæsilega
og góða konu, sem var okkur öflug
fyrirmynd. Aðstandendum Vivan
vottum við innilega samúð.
Ferð þín er hafin.
Fjarlægjast heimatún.
Nú fylgir þú vötnum
sem falla til nýrra staða.
Og sjónhringar nýir
sindra þér fyrir augum.
En alnýjum degi
fær þú aldrei kynnst.
Í lind reynslunnar
fellur ljós hverrar stundar
og birtist þar
slungið blikandi speglun
alls þess sem áður var.
(Hannes Pétursson)
Sigrún Knútsdóttir og
Kalla Malmquist.
Kveðja frá kvenfélagi
Laugarnessóknar
Það er svo stutt síðan þú varst
hyllt á 100 ára afmælinu þínu. Þú
varst heiðursfélagi í kvenfélagi
Laugarnessóknar. Við vorum
hreyknar af þér. Við kvenfélags-
konur eigum þér margt að þakka.
Í þinni formannstíð hélst þú uppi
menningarstarfi sem aldrei verður
fullþakkað. Það var gott fyrir ung-
ar konur að kynnast störfum þín-
um. Þú varst svo vel undirbúin og
vakandi yfir störfum okkar. Að
gera öðrum gott og hlúa að öldr-
uðum í sókninni. Þú komst á fóta-
aðgerðum og hárgreiðslu einu
sinni í viku í kirkjukjallaranum
gegn vægu gjaldi fyrir eldri borg-
ara. Það var vel til fundið. Seinna
tók Reykjavíkurborg að sér þessa
þjónustu.
Þú varst hvatamanneskja að
skemmtunum og námskeiðum ým-
iskonar sem drógu að sér konur í
félagið. Haustið 1974 var haldið
upp á 1100 ára afmæli landnáms
með sýningu. Við kvenfélagskonur
klæddum okkur upp sem fólk frá
landnámi til 18. aldar. Þú, Vivan,
samdir texta og fékkst lánaða bún-
inga frá leikhúsum borgarinnar
svo sýningin varð glæsileg og
ógleymanleg fyrir okkur sem tók-
um þátt. Það er margs að minnast,
Vivan. Við biðjum góðan guð að
taka nú á móti þér. Hafðu þökk
fyrir allt. Guð blessi þig.
F.h. kvenfélags Laugarnessókn-
ar,
Erla Kristjánsdóttir.
Vivan Signe Aurora
Svavarsson
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins.
Smellt á reitinn Senda inn efni á for-
síðu mbl.is og viðeigandi efnisliður
valinn.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi
tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög.
Minningargreinar
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Labrador Retriever svartir
Erum orðnir 6 mánaða og húsvanir.
Ættbókarfærðir HRFÍ. Sprautaðir.
Örmerktir. Nótt á kr. 190 þús. og
Mökkur og Nóri á kr. 160 þús.
Uppl. í síma 695 9597 og 482 4010.
Gisting
Þú átt skilið að komast í hvíld!
Í Minniborgum bjóðum við upp á
ódýra gistingu í notalegum frístunda-
húsum. Þú færð 3 nætur á verði 2.
Fyrirtækjahópar, óvissuhópar,
ættarmót. Heitir pottar og grill.
Opið allt árið.
Minniborgir.is
Gisting á góðum stað.
Upplýsingar í síma 868 3592.
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratugareynsla.
Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig
á hinum ýmsu byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Hestar
HELLUSKEIFUR - HELLUSKEIFUR
- HELLUSKEIFUR
Verð á vetrarskeifum, ópottaður
gangur 1680 kr., pottaður 1850 kr.
skaflar 65 kr. st. ÍSLENSK FRAM-
LEIÐSLA. Sendum um allt land, Hellu-
skeifur Stykkishólmi, s: 893 7050.
Til sölu
Canon Eos 550D 120 þús. afsláttur
Pakki að verðm. 401 þ. fæst á 280 þ.
Nýleg en í ábyrgð Canon 550D
18 megapixla + Canon EF-S 15-85mm
IS USM macro linsa + húdd + 3 filter-
ar + 16GB minniskort + aukarafhlaða
+ afsmellari. Myndavélin er með HD
video. Áramótaskaupið var tekið upp
á svona vél. Uppl. um vél:
http://www.dpreview.com/previ-
ews/canoneos550d/
Uppl. í síma 895 4060.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Bókhald
Bókhaldsstofan ehf., Reykja-
víkurv. 60, Hf. Færsla á bókhaldi,
launaútr., vsk-uppgjör, skattframtöl,
stofnun fyrirtækja. Magnús Waage,
viðurkenndur bókari, s. 863 2275,
www.bokhaldsstofan.is.
Þjónusta
ERFÐASKRÁR
Ég, Hilmar Þorsteinsson, meistara-
nemi í lögfræði, tek að mér
samningu erfðaskráa, þannig að
öllum lagaskilyrðum sé fullnægt.
Hóflegt verð — persónuleg
þjónusta. Sími: 696 8442,
netfang: hth56@hi.is
Bílaþjónusta
Hjólhýsi
WILK S3 490KM KOJUHJÓLHÝSI
7 manna, með gólfhita, fortjaldi, WC,
sjón-varpsloftneti og öllu tilheyrandi.
Áhv. 2,2 millj. Verð 3.490 þús. Tilboð
óskast.
Allar nánari upplýsingar í s. 867-
4183.
Húsviðhald
Þak og
utanhússklæðningar,
gler og gluggaskipti.
og allt húsaviðhald
Ragnar V Sigurðsson ehf
Sími 892 8647.
Ertu að leita þér að vinnu?
Vantar þig starfskraft?
Farðu inn á mbl.is/atvinna