Morgunblaðið - 04.02.2011, Page 14
FRÉTTASKÝRING
Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
Samkvæmt tölum írska seðlabank-
ans voru innistæður fyrir um 40
milljarða evra teknar út úr írska
bankakerfinu í desember. Um er að
ræða gríðarlega aukningu miðað við
þróunina mánuðina á undan en sam-
kvæmt írska seðlabankanum minnk-
uðu innistæður í viðskiptabönkum
landsins um 110 milljarða evra í
fyrra.
Þetta þýðir að innistæður voru
teknar út úr írskum bönkum fyrir
sem svarar 60% af landsframleiðsl-
unni. Samkvæmt umfjöllun írska
blaðsins The Independent voru það
innistæðueigendur utan Írlands sem
tóku stærsta hlutann út í fyrra eða
um 90 milljarða evra. Samkvæmt
blaðinu er um að ræða innistæður
erlendra fyrirtækja með starfsemi á
Írlandi auk innistæðna erlendra
fjárfestingasjóða og lífeyrissjóða.
Írskir innistæðueigendur tóku því
út um 19 milljarða evra úr írskum
bönkum í fyrra og er fyrst og fremst
um að ræða úttektir einstaklinga og
einkafyrirtækja.
Þessar miklu úttektir skýrast
augljóslega af slæmri stöðu írsku
bankanna. Segja má að írska banka-
kerfið hafi haldið sér á floti undan-
anfarin misseri með líflínu sem er
strengd frá höfuðstöðvum Evrópska
seðlabankans. Þannig var fjórðung-
ur allra útistandandi veðlána Evr-
ópska seðlabankans veittur til
írskra banka í nóvember í vetur. Við
árslok minnkuðu þessi veðlán en að
sama skapi jukust veðlánaviðskipti
írskra banka við írska seðlabankann
á sama tíma um 51 milljarð evra.
Viðskiptin falla undir sérstaka áætl-
un stjórnvalda vegna fjármála-
kreppunnar og veðin sem eru tæk til
þeirra myndu ekki fullnægja kröf-
um í veðlánaviðskiptum við Evr-
ópska seðlabankann.
Eins og fram kemur í umfjöllun
The Independent um málið þá er
um að ræða peningaprentun á Ír-
landi sem er þó framkvæmd með
fullu samþykki Evrópska seðla-
bankans.
Vilja endursemja um neyðarlán
Allar líkur eru á því að flótti inni-
stæðueigenda frá írska bankakerf-
inu muni halda áfram. Sem kunnugt
er fer hluti af 90 milljarða neyðarl-
áni Evrópusambandsins og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins til Írlands í end-
urfjármögnun bankakerfisins. Hins
vegar verður gengið til þingkosn-
inga síðar í þessum mánuði og hefur
stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn,
Fine Gael, sett endurskoðun og end-
urupptöku á forsendum neyðarláns-
ins á oddinn í kosningabaráttunni.
Komist flokkurinn til valda eftir
kosningarnar, eins og útlit er fyrir,
gæti það því skapað óvissu um
greiðslur af neyðarláninu sem svo
myndi grafa frekar undan stöðu
bankakerfisins í landinu.
Innistæðueigendur
flýja írska banka
Úttektir í fyrra námu um 60% af landsframleiðslu Írlands
Reuters
Erfiðir tímar Írskir skattgreiðendur þurfa sennilega að bera þungar byrðar
vegna fjármálakreppunnar sem geisað hefur undanfarin misseri.
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2011
–– Meira fyrir lesendur
.
Morgunblaðið gefur út ÍMARK sérblað
fimmtudaginn 3.mars og er tileinkað
Íslenska markaðsdeginum sem ÍMARK
stendur fyrir en hann verður haldinn
hátíðlegur 4. mars.
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, fimtudaginn 24. febrúar.
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
ÍMARK íslenski
markaðsdagurinn
S
É
R
B
L
A
Ð
MEÐAL EFNIS:
Viðtöl við fyrirlesara ráðstefnunnar
Viðtal við formann Ímark
Saga og þróun auglýsinga
hér á landi
Neytendur og auglýsingar
Nám í markaðsfræði
Góð ráð fyrir markaðsfólk
Tilnefningar til verðlauna
Hverjir keppa um
Lúðurinn
Viðtöl við fólkið á bak
við tjöldin
Ásamt fullt af öðru
spennandi efni
STUTTAR FRÉTTIR
● Skuldabréfavísitala GAMMA hækk-
aði um 0,6% í gær, eftir að hafa lækk-
að um 0,8% í 26 milljarða viðskiptum í
fyrradag, í kjölfar ákvörðunar Seðla-
bankans um að lækka stýrivexti um
0,25%. Velta í gær var einnig mikil,
eða 21,3 milljarðar, og hækkaði gengi
verðtryggðra bréfa um 0,8% í 12,2
milljarða veltu, en óverðtryggð bréf
hækkuðu um 0,1% í 8,8 milljarða
króna viðskiptum.
Skuldabréf upp á ný
● Laun og launatengd gjöld útgerð-
arfyrirtækisins Ramma hækkuðu um
222 milljónir króna á árinu 2010. Þar
af runnu 158 milljónir til ríkissjóðs, að
því er kemur fram á vef fyrirtækisins,
rammi.is.
Starfsmenn hafa fengið 15% af þess-
um auknu launaútgjöldum og lífeyr-
issjóðir 14%. „Er nema vona að fjár-
málaráðherra hæli sé af vel heppnaðri
skattkerfisbreytingu, þar sem hann
hirðir svo til alla launahækkunina?“ er
svo spurt á síðu fyrirtækisins.
71% af auknum launa-
gjöldum í ríkissjóð
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
Stefnt verður að því að endur-
greiðsluferill ríkisskuldabréfa verði
sem jafnastur í framtíðinni, og dreg-
ið úr endurfjármögnunaráhættu
með því að skilgreina efri mörk
stærðar stakra skuldabréfaflokka.
Jafnframt er stefnt að því að með-
allánstími verði í það minnsta 4 ár.
Sá tími er nú vel yfir því viðmiði, en
var á árunum fyrir hrun töluvert
undir. Þetta er á meðal þess sem
fram kom í kynningu fjármálaráðu-
neytisins á stefnu í lánamálum rík-
isins til og með árinu 2014, sem hald-
in var sl. miðvikudag. Auk Ingvars
H. Ragnarssonar, sérfræðings á
fjárreiðu- og eignaskrifstofu fjár-
málaráðuneytisins, sátu fulltrúar
Seðlabanka Íslands fyrir svörum.
Lengi býr að fyrstu gerð
Í desember nam hlutfall skulda
ríkissjóðs í erlendum myntum 27%
af heildarskuldum. Að undanskild-
um lánum til eflingar gjaldeyris-
forða er sama hlutfall 6%. Mikill
meirihluti skulda í íslenskum krón-
um er óverðtryggður, og verður
áherslan áfram á útgáfu óverð-
tryggðra bréfa.
Erlend lán verða fyrst og fremst
tekin til eflingar gjaldeyrisforða, en
einnig til endurfjármögnunar úti-
standandi skuldbindinga til endur-
greiðslu lána í tengslum við efna-
hagsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins. Reglubundin alþjóðleg útgáfa sé
einnig til þess fallin að tryggja og
viðhalda aðgengi ríkisins að erlendu
lánsfé. Næstu 15 mánuðina falla er-
lendar skuldbindingar að andvirði
rúmlega 900 milljónir evra í gjald-
daga, en sú upphæð hefur lækkað
umtalsvert vegna endurkaupa ríkis-
sjóðs í fyrra, fyrir rúmlega 600 millj-
ónir evra.
Ljóst er, bæði af fyrirspurnum
fundarmanna, sem flestir voru
markaðsaðilar, og eins á máli ráðu-
neytis- og seðlabankamanna að mik-
ið veltur á fyrstu alþjóðlegu útgáf-
unni. Árangurinn af henni gefur
tóninn fyrir það sem koma skal, og
þá ekki síður fyrir aðra íslenska að-
ila sem gætu hugsað sér að koma í
kjölfarið. Mikilvægt sé að tímasetja
útgáfuna vel, og eins að taka mið af
þróun lánshæfismats og horfa mats-
fyrirtækjanna.
Fíllinn í herberginu
Undanfarna mánuði hafa erlendir
aðilar í auknum mæli keypt ríkis-
bréf, en þeir keyptu um 70% af seldu
magni tveggja ára ríkisbréfa. Vonir
standa til þess að erlendir fjárfestar
sjái sér hag í því að binda fjármagn
sitt, sem legið hefur á óbundnum
innlánsreikningum, í ríkisbréfum, en
það er eitt af markmiðum lánamála-
stefnunnar. Með því móti sé hægt að
bræða „snjóhengjuna“ frekar en
sprengja, en með því er vísað til þess
mikla fjármagns í eigu erlendra að-
ila sem fast er hér á landi vegna
gjaldeyrishafta. Talsmenn Seðla-
bankans og ráðuneytis fóru þó var-
lega í umræðu um gjaldeyrishöftin,
og orðalagið um snjóhengjuna er
ekki þeirra. Einn fundarmanna
komst þannig að orði að höftin væru
„fíllinn í herberginu“ sem öllu máli
skipti en ekki mætti ræða. Öllum er
þó ljóst að gríðarlegt útflæði fjár-
magns úr landinu, í kjölfar afnáms
gjaldeyrishafta, hefði skaðlegar af-
leiðingar fyrir íslenskt efnahagslíf.
Skýrslu um afnám haftanna er að
vænta um næstu mánaðamót.
Morgunblaðið/Golli
Tímasetning Innreið íslenska ríkisins á alþjóðlega fjármagnsmarkaði hefur
ekki verið tímasett. Mikilvægt er að fyrsta útgáfa heppnist vel.
Mikilvægt að byrja vel
Stefna í lánamálum ríkissjóðs kynnt í vikunni Lengja meðaltíma lána og setja
þak á stærð stakra flokka Erlend lán fyrst og fremst tekin til styrkingar forða
!"# $% " &'( )* '$*
++,-..
+./-,/
++/-00
1+-1+/
12-2,3
+4-.+1
+1+-//
+-,230
+.2-0/
+3.-+5
++3-+3
+./-5+
++/-/4
1+-14.
12-+2,
+4-./,
+11
+-,25,
+.2-5
+3.-/0
1+,-2+0,
++3-,1
+.4-0/
++4-2+
1+-0,
12-+/0
+4-5+/
+11-0,
+-,+03
+.+-,,
+35-24