Morgunblaðið - 04.02.2011, Page 22

Morgunblaðið - 04.02.2011, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2011 ✝ Matthías BjarkiGuðmundsson, byggingatæknifræð- ingur, fæddist á Flúðum í Hruna- mannahreppi 25. apr- íl 1967. Hann lést á heimili sínu í Kópa- vogi 26. janúar 2011. Foreldrar hans eru Anna Björk Matthías- dóttir, f. 29.6. 1944, frá Múlakoti í Lundarreykjadal og Guðmundur G. Magn- ússon, f. 8.9. 1937, frá Bryðjuholti í Hrunamanna- hreppi. Bræður Bjarka eru: Magn- ús Víðir Guðmundsson, f. 15.9. 1970, eiginkona hans er Kristín Karólína Ólafsdóttir, eiga þau 3 börn og eru búsett á Flúðum, Ágúst Hlynur Guðmundsson, f. 21.1. 1973, eiginkona hans er Kristín Valdemarsdóttir, þau eiga 2 börn og eru búsett í Mosfellsbæ. Eiginkona Bjarka er Björg Ragna Erlingsdóttir, endurskoð- andi, f. 9.11. 1967 í Reykjavík. For- eldrar hennar eru Erlingur Lúð- víksson, f. 6.6. 1939, frá Reykjavík og Jakobína Ingadóttir, f. 1.2. 1942, frá Sauðárkróki. Bræður Bjargar eru Ingi Einar Erlingsson, f. 8.5. 1963, og Elvar Örn Erlings- son, f. 28.6. 1965. Börn Bjarka og Bjargar eru: Lúðvík Már, f. 2.9. 1996, Máni, f. 19.5. 1999, og Mark- ús Ingi, f. 25.2. 2001. Bjarki ólst upp á Flúðum og fór í Menntaskólann að Laugarvatni og lauk stúdentsprófi þaðan 1987. Fór í framhaldi af því í Íþróttakenn- araskólann að Laug- arvatni og útskrif- aðist þaðan 1989. Hann útskrifaðist sem húsasmiður frá Selfossi 1991 og byggingatæknifræð- ingur og húsasmíða- meistari úr Tækni- skóla Íslands árið 1995. Hann kenndi íþróttir við Flúða- skóla 1990-1991 ásamt því að kenna við Íþróttakennaraskólann að Laugarvatni og nema húsasmíði á Selfossi í kvöldskóla. Hann vann sem byggingatæknifræðingur hjá VSÓ frá 1995 og kenndi stunda- kennslu við tækni- og verk- fræðideild HR. Sem ungur dreng- ur varði Bjarki sumrunum í sveit hjá ömmu sinni og afa í Múlakoti í Lundarreykjadal. Hann vann síðar við smíðar hjá föður sínum í skólafríum. Bjarki var mikill fjöl- skyldumaður og til fyrirmyndar á því sviði sem öðrum, hann var mjög duglegur, samviskusamur og sannur vinur. Hann var mikill íþróttamaður og vann til margra verðlauna á því sviði. Hann var landsliðsmaður í blaki og kjörinn blakmaður ársins 1992. Einnig þjálfaði hann m.a. landslið karla í blaki. Hann var fulltrúi foreldra í skólaráði Digranesskóla. Útför Bjarka fer fram frá Hjallakirkju í dag, 4. febrúar 2011, og hefst athöfnin kl. 11. Elsku Bjarki okkar. Mér finnst ótrúlegt að hugsa til þess að það séu tæp 20 ár síðan við kynntumst. Við kynntumst í tengslum við blakíþróttina. Samband okkar þróaðist hægt (að mínu mati a.m.k.) en sú leið reyndist happa- drjúg því seinna lærðist mér að einn af svo mörgum kostum þínum var jú vandvirkni, í öllu því sem þú tókst þér fyrir hendur. Val á lífsförunaut var því skiljanlega ekki undanskilið. Ég man líka þegar annar bróðir minn spurði mig hvort ekkert væri að frétta og ég sagði honum frá þér, þá voru viðbrögðin á þá leið að pottþétt- ara eintak væri ekki að finna þarna úti en hann hafði kynnst þér í ÍKÍ. Þetta reyndust orð að sönnu. Hlýja brosið þitt, endalaus ást, umhyggja og einstakt lundarfar voru kostir sem ég mat strax mikils í fari þínu. Seinna bættust svo bara við fleiri kostir. Þú varst t.d. einstaklega duglegur og ráðagóður smiður. Þér fannst líka mjög gaman að smíða. Heimili okkar ber þess merki að innan sem utan hve vandvirkur og duglegur þú varst. Við keyptum rúmlega fokhelt hús og þú græjaðir það bara ásamt því að sinna þinni vinnu. Það vafðist ekkert fyrir þér. Þú settir upp veggi, loft, gólfefni, smíðaðir stiga o.s.frv. Það var spennandi að sjá framtíðarheim- ilið taka á sig mynd og mikill spenn- ingur að flytja í húsið sem við og gerðum á Þorláksmessu árið 1998. Þetta voru þó okkar veraldlegu gæði sem eru ekkert í samanburði við gull- molana okkar þrjá. Ótrúlega flottir guttar, að innan sem utan, og þú varst hreinlega besti pabbi sem hægt var að hugsa sér. Glaðlyndur, þolin- móður og ljúfur en jafnframt ákveð- inn á þinn hátt. Þú varst duglegur að kenna þeim og þér var umhugað um að þeim þætti vænt um dýr og sagðir þeim gjarnan frá þeim tíma sem þú varst hjá afa þínum og ömmu í Múla- koti. Þú varst góð fyrirmynd, fyrir- mynd sem lifir áfram hjá þeim og mun hjálpa þeim í gegnum lífið. Þú varst stoltur af drengjunum okkar og duglegur að hrósa þeim. Það var áfall þegar þú greindist með krabbamein fyrir nokkrum ár- um. Baráttan litaði þó ekki okkar daglega líf af veikindunum. Þú stund- aðir allan tímann þína vinnu og lagðir nú ekki í vana þinn að kvarta. Það getur að sjálfsögðu verið gott og slæmt en ég veit að þú varst að hugsa um mig og strákana í öllum þessum veikindum og vildir að við hefðum sem minnstar áhyggjurnar. Þér fannst gaman að ferðast og fræðast um borgir og menningu ann- arra landa. Við höfum farið í nokkur ferðalögin innanlands og utan og not- ið lífsins öll fjölskyldan saman og einnig bara við tvö. Yndislegar minn- ingar með einstökum manni eigum við öll og þær munu lifa áfram. Við trúum því að þú verndir okkur áfram og verðir með okkur þó við getum ekki snert þig. Skrítið stundum hvernig lífið er. Björg, Lúðvík, Máni og Markús. Matthías Bjarki Guðmundsson okkar besti og eini tengdasonur er látinn langt um aldur fram aðeins 43 ára. Við sáum hann fyrst sumarið 1994 er dóttir okkar Björg Ragna kynnti hann fyrir okkur er þau komu í heimsókn í sumarbústaðinn til okk- ar í Biskupstungum. Við sáum strax hvað þetta var ljúfur og fallegur mað- ur, hávaxinn, grannur og herðabreið- ur með svo bjart og blítt bros. Þau hófu búskap og eignuðust 3 yndislega syni, þá Lúðvík Má, Mána og Markús Inga og sýndi Bjarki og sannaði hversu yndislegur og góður faðir hann var. Hann gerði allt af mikilli vandvirkni og alltaf var hægt að leita ráða hjá honum. Í fyrra stóð til að hressa upp á bústaðinn og stækka svo öll fjölskyldan gæti notið góðra stunda þar saman og hann teiknaði og skipulagði og blés áhuga í okkur öll hin svo að nú er þetta á góðri leið og ég veit að hann stendur við bakið á okkur og gefur okkur styrk til að halda áfram við það verk og önnur. Allar góðu minningarnar um hann og fjölskylduna munum við alltaf eiga og við þökkum innilega fyrir og mun- um geyma í hugum okkar.Við biðjum góðan Guð að styrkja Björgu og drengina og alla aðra aðstandendur. Jakobína Ingadóttir og Erlingur Lúðvíksson. Gull af manni er það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar við minn- umst Bjarka. Við hjónin kynntumst Bjarka fyrst árið 1987 þegar hann hóf nám við Íþróttakennaraskólann á Laugarvatni ári á eftir okkur. Við sem stunduðum nám með Bjarka sáum fljótlega að þarna var á ferðinni mikill íþrótta- og námsmaður og góð- ur drengur. Bjarki stundaði blak af kappi, var góður blakmaður og lágu leiðir okkar aftur saman árið 1994 þegar hann kynntist Björgu litlu systur sem einnig var í blaki. Öll verk sem Bjarki vann gerði hann einstaklega vel og þar á meðal byggingu heimilis fjölskyldunnar að Blikahjalla 9. Þar var allt gert af hag- sýni og metnaði og þar leið þeim best. Líf Bjarka og Bjargar hefur alltaf snúist mikið um að sinna og hugsa um drengina sína þrjá hvort sem huga þurfti að lærdómi, tómstund- um, starfi fyrir skólann eða íþrótta- félagið. Það hefur skilað sér í sóma- piltum sem án efa eiga eftir að heiðra minningu föður síns, hver á sinn máta. Stíll Bjarka var gjarnan að tala minna og framkvæma meira og las hann gjarnan leiðarvísinn áður en lengra var haldið og mældi alltaf spýtuna tvisvar áður en hann sagaði. Það var aldrei komið að tómum kof- unum hjá Bjarka hvort sem talið beindist að þjóðfélagsumræðunni, tæknimálum eða bílum sem hann hafði mikinn áhuga á. Við geymum í huga okkar góðar stundir sem við áttum á hinum ýmsu mannamótum fjölskyldunnar, svo sem útilegum, ættarmótum, sum- arbústaðarferðum og sunnudags- matarboðunum sem ávallt var beðið eftir með mikilli eftirvæntingu hjá börnunum. Bjarki tókst á við veikindi sín af slíku æðruleysi að fáir gerðu sér raunverulega grein fyrir því hversu veikur hann var orðinn. Eitt af síð- ustu verkum hans var að teikna og hanna nýjan sumarbústað fjölskyld- unnar í Úthlíð sem hann gerði af mik- illi nákvæmni eins og annað sem hann tók sér fyrir hendur. Elsku Björg, Lúlli, Máni og Mark- ús, systkini og foreldrar, minning um frábæran mann lifir í hjörtum okkar og verður okkur styrkur við að takast á við erfiða tíma. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem) Elvar, Sólveig, Kara og Marín. Við kveðjum Bjarka frænda minn í dag. Það er sárt og okkur finnst það ósanngjarnt að hann skuli hverfa frá okkur svo fljótt. En því fáum við ekki breytt. Ég mun ekki lýsa mannkostum hans sérstaklega hér. Ég býst við að allir sem kynntust honum hafi þekkt drenglyndi hans, vandvirkni og yfir- vegun. Ég þakka honum kynnin og sam- veruna. Fyrir bílferðir á Laugarvatn á fyrri tíð, samvistir þar og samvinnu í skólastofum. Einnig fyrir alla að- stoð og ráðgjöf í seinni tíð, hvort sem það var varðandi bílgeymslu, glugga- viðgerðir, pallsmíði eða músavarnir. Ekki skal heldur gleyma afbragðs- góðum afmælisboðum á Blikahjalla. Okkar er nú að halda áfram, fram á veginn. Við eigum minningarnar og ef við lendum á hindrun eða í pytti þá gætum við spurt okkur: Hvernig hefði Bjarki brugðist við hér? Hvað hefði hann lagt til? Og við myndum kannski finna svarið. Við Magga vottum Björgu, Lúð- vík, Mána, Markúsi og öðrum að- standendum og vinum okkar dýpstu samúð. Steinar Matthíasson. Mig langar í fáum orðum að minn- ast Bjarka frænda míns sem lést 26. janúar síðastliðinn, langt fyrir aldur fram, aðeins 43 ára að aldri. Bjarki var elstur þriggja bræðra í Steinahlíð á Flúðum. Ég hef alla tíð átt mikil og góð samskipti við fjölskylduna í Steinahlíð og hef því fylgst með Bjarka alveg frá því hann fæddist. Bjarki var strax hinn efnilegasti pilt- ur og greinilegt að háttvísi var hon- um í blóð borin. Þegar Bjarki var að alast upp voru Flúðir lítið en vaxandi sveitaþorp og góður uppeldisstaður fyrir börn og unglinga. Bjarki lék sér mikið við Ey- dísi frænku sína sem var árinu eldri og bjó í næsta húsi en ekki síður við Örn Kristján sem var hans besti vin- ur og félagi. Bjarki var á þessum tíma hógvær, yfirvegaður og traust- ur drengur. Ég held að þessir eig- inleikar hafi fylgt honum allt lífið. Bjarki gekk í grunnskólann á Flúðum, enda ekki langt að fara. Um tíma kenndi ég við skólann og var Bjarki einn af nemendum mínum í líffræði í 5. bekk. Man ég að þessi bekkur var einstaklega áhugasamur um námið. Ákveðið var að fara í sér- staka rannsóknar- og veiðiferð þar sem líf í fersku vatni skyldi kannað. Börnin smíðuðu sjálf sérstaka háfa til veiða í handavinnutímum hjá Guð- mundi föður Bjarka. Þau voru því vel útbúin þegar lagt var af stað. Það var kalt í veðri og eina íslausa vatnið í ná- grenninu var gamla sundlaugin í Hvammi. Veiðin var frekar dræm; veiddum þó vatnaflær en þó mest þörunga. Þetta skoðuðu krakkarnir af miklum áhuga heima í skólastofu. Var ég hálft í hvoru að vonast til að Bjarki myndi leggja fyrir sig líffræði, svo varð þó ekki. Sennilega hafði hann meiri áhuga á háfasmíðinni en því sem veiddist, enda varð hann bæði smiður og tæknifræðingur þeg- ar tímar liðu. Bjarki var hávaxinn og grannur, bjartur yfirlitum og íþróttamanns- lega vaxinn. Hann fékk líka fljótt mikinn áhuga á íþróttum og náði góð- um árangri bæði í frjálsum íþróttum og þó einkum í blaki. Var hann um tíma í landsliði Íslands og var kjörinn blakmaður ársins 1992. Bjarki var sérstaklega góður námsmaður og stóð sig ætíð með prýði í skóla og vinnu. Hann var snyrtilegur, vandvirkur og fór vel með alla hluti. Öll tæki og tól sem hann átti eða notaði báru þess merki. Bjarki var einstaklega góður bílstjóri og hafði gaman af að keyra hratt. Um þetta vissu reyndar fáir og vafalaust hefði hann getað orðið góður rallbíl- stjóri. Bjarki kvæntist Björgu Erlings- dóttur og höfðu þau búið sér vistlegt og hlýlegt heimili í Kópavoginum. Hann var sérlega góður heimilisfaðir og lét sér mjög annt um synina sína þrjá, enda er ég viss um að hann var þeim góð fyrirmynd. Fyrir tæpum fimm árum kenndi Bjarki sér fyrst þess meins sem nú hefur dregið hann til dauða. Hann gekk í gegnum margs konar meðferðir og margar aðgerðir sem hann tókst á við með jafnaðargeði og æðruleysi. Við hlið hans stóð Björg sem hvatti hann og studdi á hverju sem gekk, hæglát og sterk. Með Bjarka er genginn góður drengur. Björgu, sonunum og öllum ástvinum hans færi ég mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Sigurður H. Magnússon. Það eru þung spor að stíga, að setj- ast niður og skrifa nokkrar línur til minningar um Bjarka. Æskuvin, fermingarbróður og skólafélaga. Við vorum ekki stór hópur, sem hóf skólagöngu í Flúðaskóla, 7 ára göm- ul, á sínum tíma. Við vorum ekki nema sjö. Þar hófust kynni okkar Bjarka og urðum við brátt bestu vinir og urðum síðan samferða í gegnum okkar grunnskólagöngu. Það er margs að minnast, bæði gleðistunda og annarra stunda. Við höfðum báðir sama áhuga á stærðfræði og keppt- um hvor við annan um að vera fyrst- Matthías Bjarki Guðmundsson ✝ Sendum hjartans þakkir öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför ást- kærrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, HAFDÍSAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Miðvangi 16, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks á St. Jósefsspítala Hafnarfirði. Hilmar Ægir Arnórsson, Kristín Halla Hilmarsdóttir, Fróði Jónsson, Ásthildur Hilmarsdóttir, Anders Egriell, Guðmundur Hilmarsson, Sigríður Kristjánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls sambýlismanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, SKÚLA H. NORÐDAHL arkitekts, Víðimel 55, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunar- heimilinu Skjóli. Björg Valgeirsdóttir, Guðrún Valgerður Skúladóttir, Logi Jónsson, Guðbjörg Astrid Skúladóttir, Ingibjörg Lára Skúladóttir, Jón Þrándur Steinsson, Valgerður Hrund Skúladóttir, Elías Skúli Skúlason, Sigrún Faulk, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur vináttu og kærleik í gegnum veikindi og andlát okkar ástkæra GEIRS HLÍÐBERGS GUÐMUNDSSONAR, Löngumýri 2, Garðabæ. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Margrét Guðmundsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.