Morgunblaðið - 04.02.2011, Page 23
ur að læra það sem fyrir okkur var
lagt í þeim efnum og helst að vera
skrefi á undan hvor öðrum. Síðan
fermdumst við saman ásamt skóla-
systkinum okkar og við tóku ung-
lingsárin og þá stærri bekkir þar
sem jafnaldrar okkar úr nágranna-
sveitunum sóttu einnig skóla á Flúð-
um. Þegar kom að því að velja fram-
haldsskóla fór Bjarki að Laugarvatni
í skóla en ég valdi að fara á Selfoss.
Smátt og smátt urðu samverustund-
irnar færri og færri og fjarlægðirnar
á milli okkar lengri. En alltaf vissum
við af hvor öðrum og hvað var að ger-
ast hjá okkur. Framhaldsnám,
vinnustaðir, stofnun fjölskyldu
o.s.frv.
Með þessum fátæklegu orðum vil
ég þakka Bjarka fyrir samfylgdina
og vinskapinn þessa alltof stuttu ævi
sem hann lifði. Fjölskyldu hans sendi
ég mínar innilegustu samúðarkveðj-
ur og bið góðan Guð að hugga og
styrkja þau í sorg sinni.
Helgi Sigurður Haraldsson.
Segja má að við Bjarki höfum ver-
ið vinir frá fæðingu. Mæður okkar
lágu sængurleguna saman á Selfossi
í lok apríl 1967. Við ólumst báðir upp
á Flúðum og var stutt á milli heimila
okkar. Um leið og okkur var treyst-
andi til að ganga hvor til annars lék-
um við okkur saman. Það var ým-
islegt brallað eins og að smíða, hjóla
og farið í ýmsa leiki með krökkunum
í hverfinu. Snemma fengum við
áhuga á allskyns íþróttum og keppt-
um víða um Árnessýslu. Sund, borð-
tennis, frjálsar íþróttir, blak og
körfubolti voru allt íþróttir sem áttu
hug okkar.
Alla okkar skólagöngu í Flúða-
skóla vorum við í sama bekk. Bjarki
varð snemma afburða námsmaður.
Það er mér minnisstætt þegar við
vorum í samræmdu enskuprófi og
prófdómarinn (séra Sveinbjörn) vissi
ekki alveg hvernig hann gæti aðstoð-
að mig. Þá sagði hann „Ég ætla að-
eins að kíkja hjá honum Matthíasi
Bjarka“.
Eftir Flúðaskóla lá leið okkar í
Menntaskólann að Laugarvatni. Í
ML æfðum við blak af kappi og
kepptum marga spennandi leiki með
HSK. Eftirminnilegasti leikur okkar
beggja á ML-árunum var líklegast
úrslitaleikurinn á Landsmóti UMFÍ
í Keflavík – Njarðvík 1984. Hann
stóð í tæpar þrjár klukkustundir og
unnum við ævintýralegan sigur. Á
Landsmótinu á Húsavík 1987 endur-
tókum við svo leikinn. Eftir Mennta-
skólann fórum við báðir í Íþrótta-
kennaraskólann (ÍKÍ) og vorum þar
herbergisfélagar. Bjarki var alltaf
skipulagðari en við flest og hugsaði
vel um heilsuna. Bjarki dúxaði í ÍKÍ
og kom það engum á óvart. Það sem
meira var, sama vor tók hann sveins-
próf í trésmíði með glæsibrag. Bjarki
var mjög laginn í höndunum líkt og
faðir hans og gat snemma tekist á við
mjög krefjandi verkefni. Bjarki
kenndi íþróttir eitt ár á Flúðum.
Þann vetur ók hann til Reykjavíkur
4-5 sinnum í viku á blakæfingar hjá
Þrótti. Við æfðum með Þrótti í nokk-
ur ár saman og gekk vel. Við vorum
báðir í landsliðinu í blaki. Þar var
Bjarki einn sá traustasti á vellinum.
Bjarki bætti við sig námi í bygging-
artæknifræði. Hann vann við það síð-
ustu ár. Eftir að við stofnuðum fjöl-
skyldur minnkaði samgangur okkar
mikið en við töluðum reglulega sam-
an og fylgdumst með hvor öðrum.
Bjarki var heiðarlegur, traustur,
staðfastur og ráðagóður vinur. Hans
verður sárt saknað.
Við Edda vottum Björgu, sonum
þeirra og fjölskyldu okkar dýpstu
samúð. Blessuð sé minning hans.
Örn Kristján Arnarson.
Kveðja frá Álfhólsskóla
Í vikunni barst okkur fregn um að
Matthías Bjarki væri látinn. Við er-
um slegin og hugur okkar dvelur hjá
drengjunum þremur Lúðvík, Mána
og Markúsi Inga sem nú hafa misst
einstakan föður. Matthías Bjarki
hafði lengi glímt við erfið veikindi en
svo oft haft sigur að við vonuðum svo
heitt að svo yrði áfram.
Matthías Bjarki var mikill fjöl-
skyldumaður og einstaklega áhuga-
samur um nám og tómstundir
drengjanna sinna. Hann var í for-
eldra- og síðar skólaráði Digranes-
skóla og sat í starfshópi um endur-
nýjun húsnæðis skólans. Hann
reyndist einstaklega traustur í starfi
skólaráðs í undirbúningsvinnu að
stofnun Álfhólsskóla og var öryggi
nemenda honum alltaf sérstaklega
hugleikið.
Við kveðjum Matthías Bjarka með
söknuði og virðingu. Skólastjórnend-
ur og starfsmenn skólans þakka hon-
um samfylgdina og senda Björgu,
Lúðvík, Mána og Markúsi Inga sínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Fyrir hönd Álfhólsskóla,
Magnea Einarsdóttir
skólastjóri.
Í dag kveðjum við hann Bjarka,
góðan vin og vinnufélaga, sem fallinn
er frá langt fyrir aldur fram eftir erf-
ið veikindi. Hans verður sárt saknað.
Hugur okkar er hjá Björgu, Lúð-
vík Má, Mána, Markúsi Inga og fjöl-
skyldu þeirra á þessum erfiðu tím-
um.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Vinakveðja.
F.h. stelpnanna hjá VSÓ Ráðgjöf,
Þóra Harðardóttir.
Kveðja frá Blakdeild Þróttar
Kynni okkar af Bjarka hófust fyrir
alvöru þegar hann kom til liðs við
blaklið Þróttar haustið 1990. Allir
vissum við að hann var mjög góður
leikmaður sem hafði staðið sig vel
með blakliði HSK. Ekki leið þó á
löngu þar til í ljós kom hvílík himna-
sending hann var fyrir Þrótt.
Ábyggilegri og traustari mann var
varla hægt að hugsa sér, jafnt utan
vallar sem innan. Bjarki gaf sig alltaf
af fullu í alla leiki og barðist um
hvern bolta en skipti þó aldrei skapi.
Hann náði hæstu hæðum sem leik-
maður, lék 24 landsleiki fyrir Ísland,
var valinn blakmaður ársins 1992,
auk þess varð hann margfaldur Ís-
lands- og bikarmeistari með Þrótti.
Einnig tók Bjarki að sér formennsku
blakdeildar Þróttar og sá alfarið um
rekstur hennar um hríð. Fyrir utan
þetta þá tók hann að sér þjálfun fyrir
Þrótt og um tíma var hann þjálfari
karlalandsliðsins. Bjarki var einn af
burðarásunum í hinu sigursæla liði
Þróttar í lok síðustu aldar.
Sem dæmi um samviskusemi
Bjarka má nefna að fyrsta veturinn
sem hann lék með Þrótti bjó hann á
Flúðum og ók mörgum sinnum í viku
á æfingar og í leiki til Reykjavíkur og
mætti manna best og oftast fyrstur
en það þótti honum ekkert tiltöku-
mál. Um leið og við kveðjum góðan
liðsmann og félaga viljum við senda
öllum aðstandendum okkar dýpstu
samúðarkveðjur.
Fyrir hönd Þróttara,
Leifur og Jason.
Það voru fagnaðarfundir þegar við
gömlu skólafélagarnir úr útskriftar-
árgangi 8́7 frá Menntaskólanum að
Laugarvatni hittumst í nóvember sl.
Óvenjumargir mættu og mikið var
spjallað og hlegið. Þegar ungmenni
búa saman á heimavist myndast náin
tengsl og eftir því sem árin líða finn-
um við hversu mikils virði þau eru.
Nú er stórt skarð höggvið í hópinn
við fráfall Bjarka. Hann var traustur
félagi, heiðarlegur, hófsamur og hóg-
vær. Sagði ekki margt en hugsaði
þeim mun meira. Alltaf var hægt að
leita til hans með hvers kyns vanda-
mál, hvort sem um var að ræða nám-
ið eða greiða af einhverju tagi.
Bjarki var einn af fáum á mennta-
skólaárunum sem áttu sinn eigin bíl
og var það óspart misnotað af okkur
félögunum. Þannig var hann alltaf til
í að skutlast með okkur á „pusjón-
um“ og taldi það ekki eftir sér frekar
en annað.
Bjarki var ávallt jákvæður og með
allt sitt á hreinu, meðvitaður um heil-
brigt líferni og hvikaði hvergi frá því.
Hans helstu áhugamál voru íþrótt-
irnar; hann var sjálfur mikill íþrótta-
maður og var afburða góður í blaki.
Bjarki var afbragðs námsmaður –
var einfaldlega góður í öllu sem hann
tók sér fyrir hendur. Þó flíkaði hann
ekki afrekum sínum. Til dæmis viss-
um við ekki fyrr en eftir á að hann
lauk trésmíðanámi meðfram náminu
á Laugarvatni.
Það var okkur mikils virði að hitta
Bjarka í vetur. Hann sagði okkur
stoltur frá strákunum sínum og
ræddi um glímuna við þann skæða
sjúkdóm sem hafði sett mark sitt á
hann. Hann vissi hvert stefndi en
virtist samt njóta þessarar kvöld-
stundar með okkur gömlu félögun-
um. Fyrir þá samveru erum við
þakklát í dag. Nú er hugur okkar hjá
eiginkonu hans, börnum og fjölskyld-
unni allri. Guð blessi minninguna um
góðan dreng.
Bekkjarfélagar úr ML,
Jónína Kristinsdóttir,
Eiríkur Svanur Sigfússon,
María Guðmundsdóttir,
Einar Hilmarsson og Eygló
Ingadóttir.
Kveðja frá VSÓ Ráðgjöf
Matthías Bjarki gekk til liðs við
VSÓ árið 1995, þá nýútskrifaður
tæknifræðingur. Í hönd fór ríflega
fimmtán ára farsælt samstarf og allt
frá upphafi var hann einn af okkar
tryggustu starfsmönnum.
Bjarki bjó yfir góðri faglegri þekk-
ingu, heilbrigðri skynsemi, verksviti,
léttri lund og miklu jafnaðargeði. Það
var ekki fyrirgangurinn í honum
Bjarka en það var sama hvaða við-
fangsefni honum voru fengin í hend-
ur, stórt og smátt leysti hann af
stakri prýði. Hann lét verkin tala og
það var innistæða fyrir öllu sem hann
sagði og gerði. Það er ómetanlegt
hverjum vinnustað að hafa innan-
borðs félaga eins og hann, bæði í leik
og starfi.
Einhvern veginn var það svo
ósanngjarnt að Bjarki skyldi grein-
ast með krabbamein fyrir tæpum
fimm árum, þessi reglusami íþrótta-
maður, heilbrigð sál í hraustum lík-
ama. Síðan hafa skipst á skin og
skúrir, baráttan óvægin á köflum en
alltaf stóð Bjarki sína vakt með sóma,
haggaðist aldrei og skilaði sínum
verkum sem fyrr.
Það er þyngra en tárum taki að sjá
á bak góðum félaga á besta aldri en
okkar huggun harmi gegn er tær
minning um góða dreng. Við hjá VSÓ
Ráðgjöf minnumst Matthíasar
Bjarka með mikilli virðingu og þakk-
læti og sendum Björgu, strákunum
og fjölskyldunni allri innilegar sam-
úðarkveðjur.
Grímur Jónasson.
Góður samstarfsmaður og vinur er
fallinn frá langt fyrir aldur fram.
Bjarki var góður drengur, hæglátur
og heilsteyptur persónuleiki. Hann
vann störf sín af vandvirkni og alúð
og kom sínum málum í höfn í sátt við
þá sem hann starfaði með.
Það var honum mikilvægt að geta
sinnt starfi sínu á VSÓ þrátt fyrir að
veikindin settu strik í reikninginn á
síðustu árum. Vinnuveitendur okkar
sýndu það í verki að þeim er annt um
sitt fólk og studdu Bjarka eins og
hægt var.
Bjarki tók veikindum sínum af
æðruleysi og bar höfuðið hátt fram á
síðasta vinnudag. Hann sýndi mikið
baráttuþrek og bar ekki veikindi sín
á borð fyrir aðra.
Bjarki var menntaður tæknifræð-
ingur og gerði það að ævistarfi sínu.
Hann státaði þó einnig af íþrótta-
kennararéttindum og lagði sig fram
við að miðla öðrum af þeirri þekkingu
sinni af sama áhuga og í störfum sín-
um hjá VSÓ.
Við sendum Björgu og drengjun-
um innilegar samúðarkveðjur.
Bjarka er sárt saknað á VSÓ.
Kristinn Alexandersson
Marteinn Jónsson
Ólafur Hermannsson.
Fleiri minningargreinar um Matt-
hías Bjarka Guðmundsson bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2011
Við þökkum af alhug öllum sem minntust mömmu
minnar, dóttur okkar, systur, mágkonu og frænku,
BERGÞÓRU JÓNSDÓTTUR
blaðamanns,
f. 24.09.’58, d. 10.01.’11.
Við þökkum þeim, sem önnuðust hana í erfiðum
veikindum. Við þökkum sérstaklega samferðafólki
hennar sem heiðraði hana við útför í minningar-
orðum, söng og hljóðfæraleik.
Úlfhildur Flosadóttir,
Kristín Ólafsdóttir, Jón Hallsson,
Sigríður Jónsdóttir, Þórir Bragason,
Ólöf Jónsdóttir,
Íma Þöll Jónsdóttir, David Zoffer,
Þórhildur Halla Jónsdóttir, Jóhann Eggert Matthíasson
og fjölskyldur.
V i n n i n g a s k r á
40. útdráttur 3. febrúar 2011
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 3.000.000 kr. 6.000.000 (tvöfaldur)
3 2 5 9 6
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
1 8 4 9 2 3 9 2 1 2 5 4 3 0 0 8 2 4 0 4 6 0 5 0 1 3 8 6 1 5 7 7 7 1 8 6 3
2 1 0 9 3 3 6 2 1 2 7 2 3 0 1 0 9 4 1 0 1 2 5 0 1 5 3 6 2 0 7 7 7 2 5 5 5
3 0 9 9 4 0 7 2 1 4 1 2 3 0 1 5 6 4 1 3 3 9 5 0 6 3 8 6 2 3 7 8 7 2 5 6 4
4 8 8 9 6 7 8 2 1 4 1 3 3 0 4 8 2 4 1 6 1 7 5 0 7 8 9 6 2 6 1 0 7 3 1 3 2
8 0 6 1 0 5 8 7 2 1 5 9 6 3 0 6 3 8 4 2 3 4 0 5 1 4 0 3 6 2 8 1 7 7 3 4 3 9
1 1 6 0 1 2 0 7 4 2 1 6 6 2 3 1 2 4 4 4 2 4 0 9 5 1 7 6 0 6 3 4 4 0 7 3 5 3 6
1 4 7 4 1 2 4 8 9 2 1 7 4 8 3 1 2 6 9 4 2 5 3 2 5 2 7 9 8 6 3 5 4 6 7 4 0 1 5
2 7 0 6 1 2 7 3 7 2 1 7 6 1 3 1 4 5 5 4 3 5 1 9 5 2 9 9 1 6 3 9 9 2 7 4 4 2 6
2 8 4 4 1 2 9 7 6 2 1 9 8 8 3 2 3 0 5 4 3 5 2 6 5 3 0 5 8 6 4 1 9 8 7 4 5 5 7
3 1 6 0 1 3 5 9 8 2 2 6 2 1 3 2 5 2 5 4 3 9 2 8 5 3 5 1 2 6 4 5 1 5 7 4 8 3 0
3 2 1 5 1 3 6 2 1 2 2 7 2 0 3 2 5 8 8 4 4 0 5 5 5 3 9 0 4 6 4 6 4 7 7 5 1 8 5
3 5 0 1 1 3 9 6 6 2 2 7 5 8 3 2 7 2 7 4 4 0 8 7 5 4 0 2 6 6 4 7 4 4 7 6 1 2 3
3 6 2 0 1 4 4 6 0 2 2 9 9 9 3 2 8 6 0 4 4 3 3 0 5 4 8 8 1 6 4 8 8 3 7 6 3 6 2
3 7 6 5 1 4 7 1 9 2 3 0 0 6 3 3 5 7 7 4 4 4 5 0 5 5 0 6 1 6 5 2 7 5 7 7 0 9 5
4 2 7 9 1 6 1 1 4 2 3 2 3 7 3 3 9 8 8 4 4 9 7 3 5 5 2 1 5 6 5 3 0 2 7 7 1 9 2
4 4 6 3 1 6 1 1 9 2 3 3 8 6 3 4 2 9 9 4 5 0 4 3 5 5 7 3 2 6 5 7 5 5 7 8 1 5 3
4 5 9 7 1 6 1 8 8 2 3 5 6 8 3 5 1 7 1 4 5 0 7 5 5 6 4 7 3 6 5 9 0 0 7 8 3 7 9
4 9 9 1 1 6 2 5 6 2 3 8 7 2 3 5 5 7 2 4 5 7 8 8 5 6 8 7 7 6 6 0 1 0 7 8 6 2 4
5 5 1 0 1 6 6 7 1 2 4 0 6 2 3 6 1 5 7 4 6 1 1 7 5 6 8 9 8 6 7 0 9 9 7 8 6 5 9
5 9 8 0 1 6 6 7 7 2 4 3 8 5 3 6 5 7 0 4 6 4 4 1 5 7 3 6 4 6 7 2 0 0 7 9 1 4 9
6 0 0 9 1 6 6 8 4 2 5 8 6 0 3 6 8 3 7 4 6 5 1 5 5 7 6 0 6 6 7 5 8 6 7 9 2 9 3
6 2 0 9 1 6 6 8 5 2 6 1 8 0 3 6 9 5 3 4 7 6 6 5 5 7 7 6 3 6 8 0 1 6 7 9 3 0 9
7 7 6 5 1 7 1 5 5 2 6 3 2 5 3 7 0 8 6 4 7 8 5 9 5 8 4 2 9 6 8 2 6 6 7 9 3 3 2
7 7 8 3 1 7 5 2 2 2 6 8 0 3 3 7 7 0 7 4 8 4 5 6 5 9 0 0 6 6 9 0 9 0 7 9 4 6 6
8 0 5 6 1 8 1 7 7 2 7 2 4 7 3 8 0 2 1 4 8 5 1 8 5 9 5 1 3 6 9 5 0 1 7 9 5 8 1
8 1 7 1 1 8 2 0 1 2 7 7 7 2 3 8 3 5 6 4 8 6 2 5 5 9 6 1 6 6 9 6 0 2 7 9 7 0 2
8 3 1 7 1 8 9 9 0 2 7 8 4 7 3 8 3 9 6 4 9 0 6 6 5 9 9 1 3 6 9 9 5 1
8 4 7 6 1 9 3 5 5 2 8 2 8 6 3 8 8 4 9 4 9 1 0 8 6 0 7 7 1 7 0 7 5 8
8 4 9 4 1 9 3 7 4 2 8 3 5 7 3 9 3 3 3 4 9 2 5 5 6 0 8 0 9 7 1 0 5 7
8 8 1 2 1 9 4 8 9 2 8 4 2 9 3 9 3 4 2 4 9 5 8 0 6 0 8 7 1 7 1 0 9 0
9 0 5 0 2 0 0 4 3 2 8 7 3 2 4 0 3 3 7 4 9 9 4 3 6 1 3 1 0 7 1 3 9 8
9 1 3 3 2 1 2 3 4 2 8 8 4 7 4 0 4 1 2 5 0 1 2 8 6 1 3 6 9 7 1 7 5 7
Næstu útdrættir fara fram 10. feb, 17. feb & 24. feb 2011
Heimasíða á Interneti: www.das.is
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
3 1 5 6 4 6 4 5 3 5 7 1 1 7 5 7 2 3 5 0
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
7715 18503 24406 70009 72113 74007
12876 22359 54940 71543 72852 77784
V i n n i n g u r
Kr. 15.000 Kr. 30.000 (tvöfaldur)
1 0 2 7 2 4 1 1 3 9 3 0 2 8 7 1 4 4 2 0 3 4 4 8 0 0 9 5 5 1 0 4 6 6 5 3 5
2 4 9 8 9 3 2 7 1 4 7 3 7 2 9 9 0 0 4 3 1 4 7 4 8 6 8 7 5 7 7 1 6 6 6 9 2 9
2 6 0 8 9 7 6 3 1 6 0 4 3 3 1 6 8 3 4 4 0 8 2 5 0 9 2 1 5 8 1 9 5 6 9 8 5 2
2 8 2 0 1 0 6 0 0 1 6 5 8 5 3 3 1 6 7 4 4 7 5 4 5 2 2 6 7 5 8 3 6 5 6 9 9 9 7
3 0 7 4 1 1 0 0 6 1 6 6 5 5 3 8 0 2 9 4 5 1 9 8 5 2 7 7 9 5 9 7 4 2 7 2 3 6 3
3 1 4 3 1 1 9 4 5 2 0 4 5 3 3 8 2 8 6 4 5 3 0 6 5 3 4 7 2 5 9 8 0 5 7 2 5 4 8
3 1 4 6 1 3 1 7 2 2 0 5 0 6 3 9 6 5 1 4 7 2 5 5 5 4 0 1 7 6 0 3 1 1 7 2 9 2 2
4 0 6 8 1 3 2 9 7 2 0 6 4 9 4 0 7 4 8 4 7 2 6 4 5 4 2 8 4 6 0 5 1 0 7 6 1 0 3
4 7 9 7 1 3 5 1 9 2 2 1 7 5 4 1 5 5 3 4 7 2 8 5 5 4 6 8 9 6 1 5 4 4 7 8 0 4 8
6 9 3 5 1 3 6 0 3 2 3 0 8 9 4 1 9 9 3 4 7 3 8 7 5 5 0 0 4 6 3 2 7 6 7 8 7 9 8