Morgunblaðið - 04.02.2011, Blaðsíða 26
26 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2011
Sudoku
Frumstig
5 9
9 8 6 7
2 6 3 9
7 1
3 5 7 1
5 2
7 6 3
9 8 2
8 2
4 5 8 7
2 9 5 4
8 9
7 4 1 5
3 4 7
5 7 2 8
8
4 3 2
1 9
6
9 4 1 6
8 5 3
8 7 5
5
1 2 4 7
6 4
2
5 3 2 1
5 8 2 4 3 1 9 6 7
7 1 3 6 2 9 4 8 5
6 9 4 5 8 7 2 1 3
4 3 9 8 5 6 1 7 2
2 6 5 1 7 3 8 4 9
1 7 8 9 4 2 5 3 6
9 5 1 7 6 4 3 2 8
3 4 7 2 9 8 6 5 1
8 2 6 3 1 5 7 9 4
2 7 6 1 9 3 8 4 5
9 8 3 4 5 7 1 6 2
4 5 1 2 6 8 3 7 9
1 3 5 8 7 6 9 2 4
6 2 9 3 4 5 7 8 1
7 4 8 9 1 2 6 5 3
3 1 2 7 8 4 5 9 6
8 6 4 5 3 9 2 1 7
5 9 7 6 2 1 4 3 8
1 8 9 3 6 4 5 2 7
3 5 2 9 7 1 6 8 4
6 7 4 5 2 8 9 3 1
2 9 6 7 4 3 1 5 8
8 4 3 2 1 5 7 6 9
7 1 5 6 8 9 2 4 3
9 3 1 4 5 6 8 7 2
5 2 8 1 3 7 4 9 6
4 6 7 8 9 2 3 1 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 4. febrúar, 35. dagur
ársins 2011
Orð dagsins: Þú hefur elskað réttlæti
og hatað ranglæti. Því hefur Guð,
þinn Guð, smurt þig gleðinnar olíu
fram yfir þína jafningja. (Hebr. 1, 9.)
Rétt í þessu borgaði Víkverji fyrrihluta bifreiðaskattsins í heima-
bankanum. Tæplega 20 þúsund krón-
ur með 10 - 20% hækkun frá fyrra ári.
Væntanlega á að borga seinni hlutann
í ágúst. Tæplega 40 þúsund fyrir átta
ára gamlan fimm manna bíl. Á þessum
tímum vekur það ekki furðu heldur að
gjaldið skuli ekki vera 40 þúsund á
mánuði. En það verður það örugglega
fljótlega eigi skattaparadísin að standa
undir nafni.
x x x
Stjórnvöldum gremst eðlilega aðfólk skuli komast leiðar sinnar í
bílum. Það gengur ekki að almenn-
ingur getið ekið í og úr vinnu, heimsótt
sjúka, keypt í matinn eða náð í börnin í
bíl. Farið gangandi eða hjólandi. Það
eru örugglega í undirbúningi nokkrir
skattar sem enginn á að taka eftir
vegna þess að þeir dreifast rétt eins og
skítaskatturinn og leggjast á alla sem
eru með minna en hálfa milljón á mán-
uði.
x x x
Fyrstan skal nefna 10% tilveruskattaf launum og hann skýrir sig
sjálfur. Síðan kemur 10% gönguskatt-
ur til að vega upp á móti sliti á göngu-
stígum. Svo 10% götuskattur til að við-
halda götum. Ennfremur 10%
skóskattur vegna aukinnar notkunar á
skófatnaði. Síðan bætist við 10% hjóla-
skattur og 10% skattur á hjólreiðaföt.
Sérstakur stjórnlagaþingsskattur
verður 20% til að vega upp á móti mis-
tökum stjórnvalda og nýr 20% skattur
á að gulltryggja að fólk reyni ekki að
trufla stjórnvöld á einhvern hátt við
skattlagningu sína. Með fyrirliggjandi
sköttum er skattgreiðslan orðin hátt í
200% af launum og þannig má ná
sparnaði almúgans til baka jafnt og
þétt.
x x x
Bifreiðaskatturinn er því bara bauní bala og Víkverji borgaði hann
með bros á vör. Rétt eins og hann væri
að styrkja strákana okkar eða börnin
okkar eða vini okkar eða foreldrana
okkar eða frændur okkar eða frænkur
okkar eða það sem öllu skiptir – þjóð-
ina okkar. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 kaldur, 4 pen-
ingur, 7 andinn, 8 pytturinn,
9 nudda, 11 svelgurinn,13
kolla, 14 tré, 15 vers, 17 dýr,
20 bókstafur, 22 fuglar, 23
eldstæði, 24 rýma, 25 svar-
ar.
Lóðrétt | 1 vistir, 2 drengja,
3 heimili, 4 sjóða, 5 storm-
urinn, 6 talar um, 10 yf-
irhöfnin, 12 tók, 13 sómi, 15
yrkir, 16 meðalið, 18 þyngd-
areiningar, 19 lélegar, 20
espa, 21 brúka.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 góðglaður, 8 stórt, 9 æfing, 10 læt, 11 rotta, 13 agnar,
15 beinn, 18 stóll, 21 æst, 22 farið, 23 afurð, 24 griðlands.
Lóðrétt: 2 ómótt, 3 gutla, 4 alæta, 5 uxinn, 6 ósar, 7 agar, 12 tin,
14 get, 15 bifa, 16 iðrar, 17 næðið, 18 staka, 19 ólund, 20 liða.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. Bg5
dxe4 5. Rxe4 Be7 6. Bxf6 gxf6 7. Rf3
f5 8. Rc3 a6 9. De2 b5 10. 0-0-0 b4 11.
Ra4 Dd5 12. Kb1 Rd7 13. De3 Bb7 14.
b3 Hg8 15. Hg1 0-0-0 16. Bc4 Dd6 17.
h3 h5 18. De2 Bf6 19. g3 h4 20. gxh4
Hxg1 21. Hxg1 Kb8 22. Hd1 Df4 23.
Rg5 Rb6 24. Rxb6 cxb6 25. De3 Dxh4
26. Rxf7
Staðan kom upp í B-flokki Tata
Steel-skákhátíðarinnar sem lauk fyrir
skömmu í Wijk aan Zee í Hollandi.
Wesley So (2.673) frá Filippseyjum er
17 ára stórmeistari og á meðal efni-
legustu skákmanna heims. Hér hafði
hann svart gegn indverska stórmeist-
aranum Shekhar Surya Ganguly
(2.651). 26. … Dh5! 27. f3 Dxf7 28.
Bxe6 De7 29. Df4+ Ka7 30. Bxf5 og
hvítur gafst upp um leið enda taflið
gjörtapað eftir 30. … Bxd4.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Langur tími. S-AV.
Norður
♠G
♥K10642
♦D109652
♣D
Vestur Austur
♠KD732 ♠654
♥G85 ♥9
♦KG8 ♦73
♣KG ♣Á1098653
Suður
♠Á1098
♥ÁD73
♦Á4
♣742
Suður spilar 4♥ dobluð.
Úlfur Árnason, vísindamaður í
Lundi, er vanur að fást við stóra tíma-
kvarða. Hann segir að hvalir hafi
misst klaufir sínar fyrir 60 milljónum
ára, og að leiðir manns og simpansa
hafi skilið fyrir 10 milljónum ára.
Sjálfur hefur Úlfur beðið í 40 ár eftir
tækifærinu sem hann fékk nú loks á
Bridshátíð.
Úlfur var í norður. Makker hans,
David Probert, vakti á 1♥ og austur
sagði 1♠. „Loksins,“ hugsaði Úlfur og
„setti upp þann græna“. Sagði sem
sagt PASS! Andstæðingarnir melda
svo fram og aftur um stund, en þegar
rétta tækifærið gefst „leggur Úlfur
fram 4♥“.
AV stukku á 4♥ eins og hungraðir
úlfar, en +690 dugði þó ekki til að
„jafna borðið“, því hinum megin fóru
sveitarfélagar Úlfs 1100 niður í 4♠.
4. febrúar 1898
Staðfest voru „lög um að-
greining holdsveikra frá öðr-
um mönnum og flutning
þeirra á opinberan spítala“.
Samkvæmt lögunum áttu
holdsveikir að „hafa borð-
búnað hvers konar er þeir ein-
ir noti“ og máttu ekki „að
nauðsynjalausu fara á aðra
bæi eða taka á móti gestum“.
4. febrúar 1947
Ríkisstjórn Stefáns Jóhanns
Stefánssonar tók við völdum
og sat fram í desember 1949.
4. febrúar 1956
Verslunarbanki Íslands var
stofnaður. Hann varð hluti af
Íslandsbanka árið 1990.
4. febrúar 1968
Fárviðri gekk yfir Vestfirði og
var verst á Ísafjarðardjúpi.
Heiðrún II frá Bolungarvík
fórst með sex mönnum. Varð-
skipið Óðinn bjargaði átján
manna áhöfn breska togarans
Notts County sem strandaði
við Snæfjallaströnd. Annar
breskur togari, Ross Cleve-
land, sökk og fórust nítján
manns en einn, Harry Eddom,
fannst á lífi eftir hrakninga í
hálfan annan sólarhring.
4. febrúar 2003
Listasafn Háskóla Íslands
fékk 894 verk eftir Þorvald
Skúlason listmálara að gjöf úr
dánarbúi Sverris Sigurðs-
sonar, skissur, teikningar,
vatnslitamyndir o.fl. Áður
höfðu Sverrir og Ingibjörg
Guðmundsdóttir kona hans
gefið Háskólanum 140 lista-
verk.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Þetta lítur út fyrir að hafa verið valið með mig í
huga en er nú alls ekki,“ segir Marta Dögg Sigurð-
ardóttir, formaður Félags leikskólakennara, sem
fagnar 40 ára afmæli sínu í dag, sama dag og hald-
ið er upp á dag leikskólans hér á landi. Reyndar er
sá dagur 6. febrúar hvert ár, er fyrsta félag leik-
skólakennara var stofnað, en þar sem hann er á
sunnudegi að þessu sinni var ákveðið að halda upp
á daginn í dag. Verður Marta ásamt starfsfélögum
sínum viðstödd hátíð í Bíó Paradís (áður Regnbog-
anum) kl. 13 í dag, er hún afhendir verðlaun í
stuttmyndasamkeppni allra leikskóla í landinu.
Alls bárust 54 myndir í keppnina og fimm þeirra voru tilnefndar til
verðlauna. Marta segir að með þessu sé verið að vekja athygli á öllu
því jákvæða sem er að gerast í leikskólum landsins. Ekki veiti nú af í
bölmóði dagsins. Hún segist vera hæstánægð með þátttökuna en við-
burðurinn í Bíó Paradís er öllum opinn.
Að degi loknum ætlar eiginmaður Mörtu, Sigurður Óli Kolbeinsson,
að vera búinn að elda og bjóða nánustu stórfjölskyldu þeirra í mat.
„Nánari hátíðarhöld verða ákveðin síðar,“ segir hún og er víst búin að
lofa vinum sínum einhverjum veisluhöldum. bjb@mbl.is
Marta Dögg Sigurðardóttir leikskólakennari
Fertug á degi leikskólans
Flóðogfjara
4. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 1.06 0,4 7.17 4,0 13.32 0,4 19.32 3,8 9.59 17.25
Ísafjörður 3.09 0,3 9.11 2,1 15.39 0,2 21.27 1,8 10.20 17.14
Siglufjörður 5.24 0,2 11.40 1,2 17.57 0,1 10.03 16.57
Djúpivogur 4.32 2,0 10.42 0,3 16.37 1,8 22.48 0,1 9.33 16.50
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Samræður við einhvern þér eldri
geta komið þér að gagni í dag eða þá að þú
færð tækifæri til að miðla visku þinni til ein-
hvers.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það er ástæða fyrir því að ástarengill-
inn er á leið til þín. Ekki bíða eftir að þú fáir
tilboð, gerðu tilboð sjálf/ur.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Hláturinn lengir lífið og það er mikil
guðsgjöf að geta séð spaugilegu hliðar tilver-
unnar. Eitt reiðiaugnablik, sem vel er haldið
á, getur komið í veg fyrir áralanga eftirsjá í
framtíðinni.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Dagurinn í dag er kjörinn til þess að
auka tekjurnar með fulltingi fjölskyldu-
meðlima, maka eða með fasteigna-
viðskiptum. Fyrirhyggjulaus eyðsla verður
þér bara til bölvunar.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Ef þú ætlar að fara í ferðalag á næst-
unni er þér ráðlagt að fara á stað sem þú
hefur komið á áður.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þetta getur orðið mjög skemmtilegur
dagur. Láttu aðstæður ekki verða til þess að
þú gerir eitthvað í flýti.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Vitneskjan er það atriði sem nú skiptir
sköpum um flesta ef ekki alla hluti. Reyndu
að fara fram af varkárni.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú ert reiðubúin/n til að leggja
þig fram við að bæta afkomu þína með nýj-
um hætti. Hvíldu þig seinni partinn.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú nýtur mikillar athygli þessa
dagana og ættir að geta komist í góð sam-
bönd. Biddu aðra um að segja þér stuttu út-
gáfuna, grundvallaratriðin og kjarna málsins.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Ef þú sýnir öðrum samstarfsvilja
muntu koma ótrúlega miklu í verk. Vertu því
þolinmóð/ur og leggðu mál til hliðar þar til
sameiginleg niðurstaða liggur fyrir.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Ýmsar nýjungar eru á döfinni hjá
þér og þú ert ágætlega í stakk búin/n til að
fást við þær. Vinur er til í að fyrirgefa og
gleyma.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Láttu alla sektarkennd lönd og leið
þótt reynt sé að kenna þér um hvernig kom-
ið er í viðkvæmu vandamáli.
Stjörnuspá
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is