Morgunblaðið - 04.02.2011, Blaðsíða 30
Sigurður Óli Pálmason, fyrrum
leiðtogi hinnar keflvísku Texas Jes-
ús, er kominn til landsins með sveit
sína Croisztans, en hún gerir út frá
Kaupmannahöfn þar sem Sigurður
eða Siggi býr. Sveitin er öflug
gleðisveit og kallar ekki allt ömmu
sína á sviðinu, er þekkt fyrir líflega
sviðsframkomu. Hér á landi hefur
hún ekki spilað síðan í nóvember
2008 en á tónseðlinum er austur-
evrópskt þjóðlagapönk, eða „vodk-
arokk“ eins og meðlimir kalla það í
kerskni. Það er því vel við hæfi að
sveitin leiki á Bakkusi í kvöld.
Sveitin var annars stofnuð fyrir
heilum fjórtán árum en innanborðs
eru fjórir Baunar en aðeins tveir
mörlandar.
Croisztans spilar
á Bakkusi í kvöld
Geturðu lýst þér í fimm orðum?
Bara frekar léttur á því.
Hefur þú borðað hor eftir tvítugt?
(spyr síðasti aðalsmaður, Sverre Jakobsson)
Já.
Erum við ekki öll alltaf að leika?
Jú, við breytum um karakter eftir
því hver er í kringum okkur en við
mættum leika okkur meira.
Áttu þér leyndan hæfileika?
Já, ég get pantað kók á kínversku
og beðið svo um í glasi og svo um
klaka í glasið.
Nú hefur heyrst að þú sért öfl-
ugur á dansgólfinu, hvernig
myndir þú lýsa dansstíl þín-
um?
Svolítið villtur sökum lítillar
menntunar og svolítið sjálfs-
elskur ef ég gleymi mér alveg.
Hvað er best á morgnana?
Að vera uppi í sveit.
Gætirðu hugsað þér að starfa sem aðstoðarmaður
ráðherra?
Nei, mér finnst svo leiðinlegt að tala í símann. En
ég talaði við nokkra aðstoðarmenn um daginn og
þau bóka helst ekki fundi því það kemur alltaf eitt-
hvað upp á, þau þurfa að vera í góðu sambandi við
ráðherrann, ráðuneytið og fjölmiðla og multitaska
allan daginn. Þetta er heljarinnar aksjón.
Eru allir leikarar uppfullir af sjálfum sér?
Nei, alls ekki. Sena er aldrei betri en það sem gerist
á milli leikaranna.
Ertu hjátrúarfullur fyrir sýningar?
Ég tók mjög meðvitaða ákvörðun um að koma mér
ekki upp einhverri ákveðinni hjátrúarrútínu fyrir
sýningar og það er eiginlega orðin hjátrú hjá mér
að vera ekki hjátrúarfullur.
Í hvernig nærbuxum ertu?
Litaglöðum.
Er eitthvert Evróvisjónlag í uppáhaldi hjá þér?
Diggiloo diggiley.
Hvað fær þig til að skella upp úr?
Hissa fólk.
Hvaða leikara í sögunni værirðu helst til í að leika á
móti?
Shaquille O’Neill.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór?
Kaupmaður, eins og afar mínir og pabbi.
Hvernig er best að slappa af?
Fara út á land og slökkva á símanum.
Með hvaða liði heldurðu í enska boltanum og
af hverju?
Liverpool af því að pabbi og mamma gáfu mér Liv-
erpool-búning þegar ég var tveggja ára.
Hvers viltu spyrja næsta aðalsmann?
Hefurðu raunverulega yfir einhverju að kvarta?
Hjátrú að vera ekki hjátrúarfullur
Hilmar Guðjónsson stendur í stífum æfingum fyrir leikritið Nei, ráðherra! sem frumsýnt verður 18. febrúar.
Hann tók sér örstutt hlé frá því að vera aðstoðarmaður ráðherra og gerðist aðalsmaður vikunnar í stutta stund.
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2011
Eyrún Eva Haraldsdóttir
eeh2@hi.is
Stúdentaleikhúsið, áhugamannaleik-
félag Háskóla Íslands, setur upp
verkið DNA eftir Dennis Kelley á
vorönn. Búið er að velja ellefu manna
leikarahóp og æfingar komnar á fullt
skrið. Leikstjórn er í höndum Söru
Marti Guðmundsdóttur og verður
leikritið frumsýnt um miðjan mars í
Norðurpólnum á Seltjarnarnesi.
Einbeita sér að spennu textans
„Verkið fjallar um hóp ungmenna
sem gera hræðilegan hlut og eiga í
mestu vandræðum að bæta fyrir það
sem þau gerðu, einfaldlega vegna
þess að þessi hræðilegi hlutur hefur
þjappað þeim saman,“ segir Sara
Marti, leikstjóri verksins, en hún út-
skrifaðist í desember af leikstjórnar-
braut frá Central School of Speech
and Drama í London. „Dennis Kelley
er mjög flott leikritaskáld og verkin
hans eru spennandi og vekja sið-
ferðilegar spurningar.“
Sara segir þau hafa valið verkið af
sérstökum ástæðum. „Undanfarin ár
hafa leikarar Stúdentaleikhússins
unnið mikið með verk sem þeir hafa
skapað frá grunni. Þau langaði því að
vinna meira með textann sjálfan.
Verk Kelley er hentugt því það er
krefjandi og mjög góð áskorun fyrir
unga leikara. Við ætlum að reyna að
einbeita okkur að því að gera áhorf-
andann spenntan.“
Þreytan gleymist
Stúdentaleikhúsið gefur upprenn-
andi listamönnum tækifæri á að sýna
sig og sanna og í upphafi hverrar
annar stendur leikfélagið fyrir nám-
skeiði sem allir geta sótt.
„Námskeiðið endaði á áheyrnar-
prufum þar sem fólk las texta og fékk
að spreyta sig á persónum verksins. Í
kjölfarið var leikarahópurinn valinn.“
Æfingar eru komnar á fullt skrið
og æfir leikhópurinn fjóra daga í
viku. Hver æfing stendur yfir í fjóra
tíma á dag, frá mánudegi til fimmtu-
dags. Sara segir æfingarnar vera
mjög stífar. „Krakkarnir eru flestir í
vinnu og skóla og mæta svo á æfing-
ar sem standa langt fram á kvöld.
Þetta er rosalega stíft en leikara-
hópurinn er svo ótrúlega jákvæður
að þreytan gleymist. Þráin er svo
mikil.“
Morgunblaðið/Kristinn
Stjórinn Sara Marti leikstýrir sýningunni en hún útskrifaðist í desember af leikstjórnarbraut frá Central School of Speech and Drama í London.
„Þráin er
svo mikil …“
Stúdentaleikhúsið setur upp í vor
Gaman Sara segir einlæga ástríðu og gleði fyrir efninu stýra fólki.
Grúskað Verk Dennis Kelley er krefjandi og vekur upp áleitnar spurningar.
Höfundur er meistaranemi í blaða-
og fréttamennsku.
Hin ógurlega sveit Muck ætlar
að halda styrktartónleika á Fakt-
orý í kvöld til að fjármagna
væntanlega breiðskífu sína. Það
verða Mammút, Muck, Sudden
Weather Change, Swords of Cha-
os & Me, The Slumbering Napo-
leon sem koma fram. Sveitin hef-
ur lengi verið í forvígi
öfgarokksins hérlendis og spilar
tilraunakenndan bræðing af því
tónlistarformi. Plata hennar,
Vultures, kom út í mars 2009 á
vegum Molestin Records. „Að
horfa á hljómsveit leggja í eitt-
hvert lag sem einn maður væri,
týnd í einhverjum „fílíng“ sem
bindur allt saman, er gæsahúðar-
myndandi, eins og allir þeir sem
hafa sótt vel heppnaða tónleika
þekkja,“ sagði Arnar Eggert ein-
hverju sinni um bandið.
Muckfest 2011
á Faktorý í kvöld