Morgunblaðið - 11.03.2011, Page 1

Morgunblaðið - 11.03.2011, Page 1
F Ö S T U D A G U R 1 1. M A R S 2 0 1 1  Stofnað 1913  59. tölublað  99. árgangur  BARNASTARFIÐ Á ÍSLANDI TIL FYRIRMYNDAR UMSÓKNUM UM SUMARSTÖRF STÓRFJÖLGAÐI TVEIR LEIKARAR Í ALLS TÍU HLUTVERKUM NORDJOBB 10 FARSÆLL FARSI 38STYRKTARÞJÁLFARI ÍÞRÓTTIR  Velta í áfengissölu ÁTVR minnk- aði um 16,7%, reiknað á föstu verð- lagi, frá janúar 2008 til sama mán- aðar á þessu ári, samkvæmt útreikningum Rannsóknaseturs verslunarinnar. Sala áfengis hjá ÁTVR var 1,5 milljónum lítra minni í fyrra en á árinu 2008 samkvæmt yfirliti sem fékkst hjá ÁTVR. Á þessu tímabili hefur verð á áfengi hækkað veru- lega og áfengisgjaldið hækkað fjór- um sinnum, auk þess sem virðis- aukaskattur hækkaði um eitt prósentustig í fyrra. Minna magn fyrir peninginn Emil B. Karlsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar, bendir á að á seinustu þremur árum hefur velta áfengisverslunar aukist að nafnvirði, þ.e.a.s. í krónum, um 29,5%. „Þannig að þó við höfum varið 29,5% fleiri krónum til áfeng- iskaupa í janúar 2011 en í janúar 2008 höfum við fengið 16,7% minna magn fyrir peninginn.“ »12 Velta í áfengissölu minnkaði um 16,7% á þremur árum Velta áfengis Fast verðlag, árstíðaleiðrétt 115 110 105 100 95 90 85 80 75 100 85,69 Jan. 2008 Jan. 2011 Gengisvísitala krónunnar, sem Seðlabanki Íslands skráir, var í gær á svipuðum slóðum og í upphafi árs 2009. Gengissveiflurnar á tímabilinu hafa þó verið nokkrar, þrátt fyrir að fjármagnsflutningum og gjaldeyris- viðskiptum á Íslandi sé nánast alfar- ið stjórnað af Seðlabankanum. Í upphafi árs 2009 stóð gengis- vísitala krónunnar í rúmlega 216 stigum en í gær var hún skráð ríf- lega 217 stig. Á því 26 mánaða tíma- bili sem um ræðir hafa sveiflurnar þó verið talsverðar. Sínu veikasta gildi á tímabilinu náði krónan um miðbik janúar 2010, þegar gengis- vísitalan nálgaðist 235 stig. Var þar um að ræða tæplega 9% veikingu á einu ári. Styrking varð síðan það sem eftir lifði árs. Krónan hefur nú í upphafi árs 2011 gefið eftir á ný. Frá áramótum svarar veiking krónunnar til fjögurra prósentustiga, sé miðað við gengisskráningu gærdagsins. Á ársgrundvelli er sú veiking yfir 13%. Í greinargerð frumvarps með Ice- save-III-lögunum er í mesta lagi gert ráð fyrir 3% árlegri veikingu, umfram gengisspá Seðlabanka Ís- lands. »16 Talsverðar sveiflur  Krónugengi svipað og í byrjun 2009 Bílarnir streyma eftir umferðaræðunum sem teygja sig vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið. Umhverfis- og samgönguráð Reykjavíkur hef- ur samþykkt tillögu um að lækka hámarkshraða á hluta Miklubrautar, milli Stakkahlíðar og Snorrabrautar, úr 60 km á klst í 50 km á klst. »4 Bílarnir streyma um umferðaræðarnar Morgunblaðið/Ómar  „Mér sýnist að það sé allavega hálf öld síðan menn byrjuðu að hafa afskipti af staðsetningu sorpíláta hér í höfuðborginni,“ segir Magnús Sædal Svav- arsson, bygg- ingafulltrúi Reykjavíkurborgar, sem hefur nú 15 metra regluna um sorptunnur til umsagnar. Hann mun næstu daga yfirfara reglur sem snerta sorp- tunnur allt aftur til 1960. »6 Kann að stangast á við eldri reglugerðir Sorphirða Flóknari en við fyrstu sýn.  Meirihluti Samfylkingar og Besta flokksins virðist ætla að afgreiða sameiningar skóla og breytingar á skólastarfi fyrir mánaðamót svo hægt verði að segja skólastjórn- endum upp fyrir 1. apríl. Borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins furða sig á þessum mikla hraða og Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi flokksins, bendir á að borgarstjóri verði ekki á landinu þegar fundir með foreldrum eiga að fara fram. »6 Hraðferð meirihluta vegna uppsagna Guðni Einarsson Ágúst Ingi Jónsson Alls verður 34.825 tonnum af makríl- kvóta ársins ráðstafað sérstaklega til frystitogara sem vinna afla um borð. Aflanum verður skipt í hlutfalli við heildarafkastavísitölu skipa og munu skip sem afkasta meira en 85 tonnum á sólarhring fá tvöfalt meira en þau sem afkasta minna. Þetta er gert til að nýta afkastagetu þessara skipa við vinnslu makríls, að sögn Jóhanns Guðmundssonar, skrifstofustjóra í sjávarútvegsráðuneytinu. Nú verður 112.000 tonnum ráðstaf- að til hefðbundinna uppsjávarskipa sem veitt hafa makríl í flottroll og nót síðustu ár og er hlutur þessara skipa óbreyttur á milli ára. Aflinn skiptist hlutfallslega miðað við aflareynslu skipanna á árunum 2007-2009. Þessi flokkur skipa fær því ekki aukningu á aflahlutdeild í samræmi við aukinn heildarafla um nærri 20%. Átta þús- und tonnum er ráðstafað til annarra skipa. Skylt verður að ráðstafa mán- aðarlega 70% af makrílafla einstakra skipa til vinnslu, þ.e. til manneldis, samkvæmt reglugerð um stjórn mak- rílveiða íslenskra fiskiskipa árið 2011 sem birt var í Stjórnartíðindum í gær. Makrílkvótinn verður alls 154.825 lestir á þessu ári, en þar af eru 8.007 tonn sem voru óveidd frá í fyrra. Ýmsar breytingar eru gerðar á fyr- irkomulagi veiðanna frá fyrra ári auk fyrrgreindrar nýjungar. Leyft verður að flytja allt að 10% af ónýttum makrílkvóta skipa á þessu ári til næsta árs. Hverju skipi verður leyft að veiða allt að 10% umfram afla- heimildir í makríl á þessu ári og mun umframaflinn dragast frá aflaheim- ildum skipsins á næsta ári. Aukning fer á frystitogara  Skylt verður að ráðstafa 70% af makrílaflanum til vinnslu  Heimildum frystitogara skipt í hlutfalli við afkastavísitölu Skylt verður að hirða og koma með að landi hausa og allan af- skurð sem fellur til við vinnslu á makríl á vinnsluskipum, sam- kvæmt breytingu á reglugerð. Sama gildir um allan afskurð sem fellur til við vinnslu á ís- lenskri sumargotssíld. Eins er skylt að koma með öll þorsk- og ufsahrogn í land og allan af- skurð af þorsk-, ýsu- og ufsa- flökum frá vinnsluskipum. Allt hirt BETRI NÝTING SJÁVARAFLA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.