Morgunblaðið - 11.03.2011, Page 10
Nóg er um að vera í tískuheiminum um þessar mundir víða um heim.
Nýverið fór fram tískusýning í Mexíkó á vegum Mercedez Benz sem kallast
Mercedez Benz DFashion. Þar sýndu ýmsir hönnuðir nýjasta nýtt úr smiðju sinni.
Meðal þeirra voru kólumbíski hönnuðurinn Jorge Duque Velez. Hann notar óhefð-
bundin efni til að hanna fallegan fatnað sem er klassískur en sker sig um leið úr.
Einnig gaf þar að líta haust- og vetrarlínu hönnuðana Jesus Ibarra og Bertholdo
Espinoza sem hanna meðal annars rómantíska kjóla í ljúfum litum.
Tíska
Nýjasta nýtt sýnt í Mexíkó
R
eu
te
rs
Litrík flóra Ýmsir hönnuðir tóku þátt í tískusýningu í Mexíkó.
Smart
Klæðnaður
úr smiðju
Jorge Duque
Velez.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2011
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir
ben@mbl.is
Á
huginn á því að komast í
vinnu úti hefur aukist
mikið frá haustinu
2008 og vorið 2009 varð
ákveðin sprenging í
umsóknum,“ segir Stefán Vilbergs-
son, verkefnisstjóri Nordjobb á Ís-
landi. „Þótt fólk sé kannski búið að
jafna sig á mesta sjokkinu eftir
hrunið er enn talsvert mikil aðsókn í
vinnu í gegnum okkur.“
Nordjobb-verkefnið, sem er
styrkt af Norrænu ráðherranefnd-
inni, var sett á fót 1985 til að gefa
ungu fólki á aldrinum 18-28 ára
tækifæri til að vinna og búa í nor-
rænu landi yfir sumarmánuðina. At-
vinnumiðlunin er ókeypis og um-
sóknartímabilið fyrir næsta sumar
stendur nú sem hæst. „Umsóknar-
fresturinn rennur út 31. maí, en við
ráðum jafnt og þétt í störfin sem
bjóðast á öllu tímabilinu. Svo því
fyrr sem umsóknin er komin inn í
kerfið hjá okkur, því meiri eru lík-
urnar,“ segir Stefán.
Hann bætir því við að mesta að-
sóknin í sumarstörf á Norð-
urlöndum sé meðal ungmenna á
aldrinum 18-24 ára. „Við höfum sent
um hundrað manns út á hverju
sumri. Þeir starfa þar frá fjórum
vikum og allt upp í fimm mánuði en
Nordjobb-tímabilið er frá 1. maí til
30. september. Fólk getur sótt um
að vinna hvenær sem er innan þess
tíma, t.d. ef viðkomandi losnar 10.
júní og getur unnið til 10. ágúst, þá
getur hann tilgreint það. Vinnuveit-
endur eru líka að leita að fólki á mis-
munandi tíma svo þessu öllu þarf
svo að púsla saman.“
Ævintýrin bíða
á Norðurlöndum
Þegar fátt er um fína drætti í atvinnuleit hér heima er ekki dónalegt fyrir unga
fólkið að geta sótt um vinnu hjá frændum okkar á Norðurlöndum. Mikil aukning
hefur verið í umsóknum um Nordjobb-sumarvinnu eftir að skórinn tók að kreppa
hér heima.
Ljósmynd/Nordjobb
Upplifun Ýmis ævintýri bíða þeirra sem fara til Norðurlanda að vinna.
Morgunblaðið/Ómar
Sumarvinna „Við höfum sent um hundrað manns út á hverju sumri. Þeir
starfa þar frá fjórum vikum og allt upp í fimm mánuði,“ segir Stefán Vil-
bergsson, verkefnisstjóri Nordjobb á Íslandi.
Það þarf ekki endilega að vera neitt
sérstakt tilefni til þess að kaupa sér
blóm. Né heldur að bíða þurfi eftir því
að einhver kaupi þau handa manni. Ef
þú vilt gera dálítið vel við þig fyrir
helgina, því ekki að kaupa sér fal-
legan blómvönd? Blóm setja fallegan
svip á heimilið og ilma líka svo vel.
Eftir helgartiltektina er því t.d. til-
valið að kaupa sér vönd og gera
heimilið enn fallegra. Líka um að gera
að nota þessa fallegu blómavasa sem
híma oftast inni í skáp eða á hillunni.
Annaðhvort má nota minni vasa og
dreifa einu og einu blómi hér og þar
um íbúðina. Stofuna, eldhúsið og
ekki gleyma svefnherberginu, þar er
frískandi og fallegt að hafa blóm. Nú
eða bara kaupa einn góðan blómvönd
til að hafa á stofuborðinu. Um helgar
eru oft góð tilboð í verslunum og
blómabúðum og hægt að kaupa t.d.
rósir og túlipana á ágætis verði.
Njóttu þess endilega að hafa litrík og
falleg blóm í kringum þig eins oft og
hægt er.
Endilega…
Ilmandi Túlipanar eru fallegir og minna mann á sumarið.
…kaupið ykkur blóm
Fyrir þá sem vilja fylgjast vel með öllu
því heitasta, ferskasta og nýjasta í
breskri tísku er vefsíðan thecoolfas-
hion.com rétti staðurinn. Þar má fylgj-
ast með breskri tísku bæði í heima-
landinu svo og víðar um heiminn.
Öllum hliðum tískunnar er gefið rúm á
síðunni, hversdagsklæðnaði, hátísk-
unni og notuðum klæðnaði.
Þar má lesa nýjustu fréttir um það
sem er að gerast í breska tískuheim-
inum, bæði viðburði og þegar eitthvað
nýtt og flott kemur í verslanir.
Nú má meðal annars lesa á síðunni
greinar um G-Star-tískusýninguna á
tískuviku í New York, nýjasta nýtt í
skó- og buxnatísku karlmanna og
FashionMist-tískusýninguna sem
haldin verður í London í lok mánaðar-
ins. Á tískusýningunni verða afrískir
fatahönnuðir kynntir til sögunnar og
miðar sýningin að því koma Afríku á
kortið. En hönnuðir frá Gana verða í
aðalhlutverki að þessu sinni. Það var
Christina Daniels sem stofnaði vefsíð-
una síðastliðið vor en einnig er hægt
að fylgjast með nýjustu fréttum bæði
á Twitter og Facebook. Skemmtileg
lesning fyrir alla tískuaðdáendur sem
vilja vera með puttann á púlsinum.
Vefsíðan www.thecoolfashion.com
Heitast og ferskast
Tískusýning Fatnaður frá Diva Delicious verður sýndur í London.
Sími 555 2992 og 698 7999
VERIÐ VIÐBÚIN
VETRINUM
Hóstastillandi
og mýkjandi
hóstasaft frá
Ölpunum
NÁTTÚRUAFURÐ
úr selgraslaufum