Morgunblaðið - 11.03.2011, Side 11

Morgunblaðið - 11.03.2011, Side 11
Ljósmynd/Nordjobb Í blíðunni „Flestir vilja bara fá tækifæri til að komast út og upplifa sumarið annars staðar.“ Áhugi á Noregi að aukast Inntur eftir því, hverju ungt fólk sækist helst eftir með því að óska eft- ir sumarstarfi á Norðurlöndum, segir Stefán nýja upplifun efsta á blaði. „Flestir vilja bara fá tækifæri til að komast út og upplifa sumarið annars staðar og finnst kannski ekki skipta svo miklu máli hvað þeir gera. Dan- mörk hefur alltaf verið vinsælust hjá Íslendingum – það er eins og hún sé hliðið að heiminum fyrir okkur, en þetta hefur þó mikið verið að breytast og ég hef séð aðrar áherslur eftir hrunið. Núorðið er mikil ásókn í að komast til Noregs og sömuleiðis sækjast æ fleiri eftir því að komast í vinnu í Svíþjóð, Finnlandi og víðar.“ Aðspurður segir Stefán oftast um almenn þjónustu- og verka- mannastörf að ræða, s.s. við ræst- ingar, umönnun, afgreiðslu, lag- ervinnu o.s.frv. „Flestir sem sækja um eru í menntaskóla eða hafa ekki sérslega mikla menntun. Hins vegar erum við líka með störf sem krefjast ákveðinnar menntunar og reynslu. Til dæmis erum við núna að leita að meiraprófsbílstjórum en ráðningar- fundur vegna þeirra starfa verður föstudaginn 18. mars. Eins erum við að leita að fólki sem hefur einhverja kokka- og framreiðslumenntun, þannig að það eru alltaf af og til sér- hæfðari störf í boði.“ Þeir sem fá svo vinnu ytra fá ákveðinn aukaávinning í því að ná tökum á norrænu tungumáli í leið- inni. „Oftast kemur það sjálfkrafa,“ segir Stefán. „Menn hafa þennan dönskugrunn og þá er svo auðvelt að koma sér inn í öll Norðurlandamálin. Það skiptir líka miklu máli.“ Heppnin spilar inn í Sem fyrr segir fara um 100 manns héðan til starfa á hinum Norðurlöndunum í gegnum verkefnið en þegar hafa um 140 manns skilað inn fullbúnum umsóknum um starf. „Talsvert fleiri hafa skráð sig inn á síðuna án þess að vera tilbúnir með umsókn. Á hinn bóginn eru alltaf ein- hverjir sem hætta við; þeir fá kannski vinnu hér heima eða eitthvað slíkt, svo ég myndi segja að líkurnar séu ágætar.“ Ýmislegt getur ráðið því hvort umsækjanda er boðin vinna eða ekki. „Það getur farið eftir því hvenær hann getur unnið, hvað hann er tilbú- inn að vinna við, það getur farið eftir áhugamáli og reynslu og tungumála- kunnáttan getur líka spilað inn í. Svo fer þetta líka töluvert eftir heppni.“ Og sé heppnin ekki með um- sækjendunum í eitt sinn má alltaf sækja um á ný að ári. „Maður sér iðu- lega sama fólkið sækja um aftur og aftur, bæði þá sem hafa fengið Nor- djobb áður og líka þá sem komust ekki að í fyrra og vilja reyna aftur.“ DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2011 Það er um að gera að vera dálítið djarfur þegar kemur að því að farða sig fyrir næturlífið. Áberandi augn- förðun er góð hugmynd og um að gera að leita að flottum hugmyndum á netinu eða í tímaritum. Síðan er bara að æfa sig með dálitlum fyrir- vara enda er ekki skemmtilegt ef allt fer á versta veg klukkutíma áður en gestirnir mæta í partíið. Prófaðu þig áfram, t.d. með gylltum augnblýanti eða blýanti í æpandi neonlit. Svo er líka um að gera að prófa sig áfram með gerviaugnhár af ýmsum gerðum. Löng augnhár og skygging í augnförðun eru klassík sem passar vel í kvöldförðun. Hafðu þessi aðal- atriði í huga en prófaðu þig síðan áfram með liti og leyfðu sköp- unargleðinni að ráða ferðinni. Fyrst og fremst skaltu þó farða þig eftir því sem þér fer best. Förðun Litagleði Prófaðu þig smátt og smátt áfram með djarfa augnförðun. Fallegri og meira áberandi augu Selleríbúnt er gott að eiga í ísskápn- um. Það er fullt af kalíum og trefjum og brakandi ferskt og hollt. Sellerí er til ýmissa hluta nytsamlegt en það er t.d. mjög gott að nota í safapressuna með tómötum og spínati eða gulrót- um eða epli. Slíkur safi er góður í magann fyrst á morgnana og gefur líkamanum fullt af vítamínum og orku. Sumum finnst gott að narta í sellerí á milli mála og það má líka nota í salat eða annan mat. Ef þú átt bæði safavél og blandara er gott að nota þetta tvennt saman. Búðu til safa úr gulrótum, selleríi og epli og settu hann í blandarann með frosnum ávöxtum, banana og AB- mjólk eða skyri. Blandaðu líka saman við haframjöli undir lokin og þá er tilbúinn orkuríkur og fyllandi drykkur sem þú getur fengið þér í morgunmat eða tekið með þér út í daginn. Það er auðvitað líka gott að borða bara ávexti og grænmeti en á þennan hátt nær maður að innbyrða mikið magn af nauðsynlegum og góðum efnum í bara einu glasi. Hollusta Stórt glas af hollustu Kokteill Með hollum hristingi má líkja eftir frægum drykk. Stefán leggur áherslu á hversu mikilvæg umsóknin sjálf er. „Þegar margir umsækjendur eru um störf þurfa þeir að leggja dálitla vinnu í að koma sér rétt á framfæri. Þar sem vinnuveitandinn getur ekki hitt um- sækjandann augliti til auglitis þarf hann að hugsa fyrir því að umsókn- arbréfið sé heildstæð kynning á því hvernig hann sér sjálfan sig. Hann kynnir sig til leiks, segir hver hann er, hvað hann hefur verið að gera, fjallar aðeins um áhugamál, hvernig hann er sem starfsmaður og reynir almennt að koma vel fyrir.“ Umsóknarbréfinu er skilað inn rafrænt í gegnum heimasíðuna www.nordjobb.net, ásamt umsóknareyðublaði sem þar er að finna. Fylla þarf út ferilskrá með helstu upplýsingum, s.s. nafni, hvað viðkomandi hefur lært og unnið við áður, hvert hann vill fara, hversu lengi hann vill vinna o.þ.h. „Oft vill brenna við að fólk skrifar ekki nógu mikið þannig að maður hefur lítið sem ekkert í höndunum,“ segir Stefán og bendir á að á netinu sé hægt að finna leiðbeiningar og sýnishorn af góðum umsóknum. „Næsta miðvikudag verð ég svo með stutt námskeið fyrir þá sem hafa skráð sig á síðuna okkar þar sem ég fer í gegnum umsóknina, útskýri eyðublaðið og bendi fólki á hvernig er best að koma sér á framfæri.“ Mikilvægt að vanda umsóknina UMSÆKJENDUR Ég á ekki til eitt aukatekið orð. Landanum ríð-ur ógurleg ófreskja sem vinnur að því aðgrafa undan sjálfstæðri hugsun ungdómsins.Já, þú giskaðir rétt. Þetta er afþreyingarvef- urinn litursemégvilekkinefna.is, þar sem ég tek ekki þátt í breiða út slíkan heilaþvott og mannskemmandi boðskap. Ég tel þennan vef svartan blett á samfélagi okkar. Á tímum þar sem hitamálin eru Icesave og nið- urskurður í skólamálum, sem er svo gífurlegur að kom- andi kynslóðir eiga sér enga von, þykir mér gráu bætt ofan á svart í þessum svokölluðu afþreyingarmálum. Konur eiga að raka andlitshár sín til að fá mjúka húð. Það er víst nýjasta trendið í Hollívúdd og allar anó-fyrirsæturnar hafa víst tileinkað sér þennan ósið (enda veldur anórexía verulegum hárvexti). Konur mega ekki hafa neina útlitslega, fé- lagslega né persónulega galla til að vera samboðnar einhverjum rapparapatta úr ,,efra Breiðholtinu“. Þvílíka kvenfyrirlitn- ingu hef ég sjaldan rekist á, hvað þá í dul- argervi jafnréttisbaráttu. Þó ég rekist á svona alhæfingarpistla er ekki þar með sagt að ég rjúki inn á bað með rak- vélina á lofti og fjarlægi hvert hálmstrá af andliti mínu. Mér er sama hvort þeir eru skrifaðir í gríni eða alvöru, ungdómurinn er mismóttækilegur fyrir kald- hæðni … Ég er viss um að einhver fjórtán ára stúlku- kind hefur rokið inn á bað- herbergi með rakvélina á lofti. Þarna rakst ég líka á undarlega uppskrift að andlitsmaska, en hún var eitthvað á þessa leið: gúrk- ur, tómatar, egg og hafra- grautur. Þegar við erum farnar að maka matnum framan í okkur er ég bara ald- eilis hissa á að við séum ekki farnar að borða hrukku- kremin okkar! Farganið af upplýsingum um það hvernig konur eigi að líta út, borða, hreyfa sig, haga sér, klæða sig o.s.frv. er orðið svo svakalegt að það myndi eflaust fylla upp í Atlantshaf, Kyrrahaf og Indlandshaf. Ég verð þó að viðurkenna að krassandi fyrirsagnirnar gera mig oft forvitna, en ég berst við hvötina til að kíkja. Þá minni ég sjálfa mig á það að af biturri reynslu veit ég að lesturinn gerir mig vonsvikna, hneykslaða og kemur mér í vont skap. Þess vegna bíð ég iðulega eftir því að það sem bitastætt er birtist í alvöru fjölmiðlum. Vinur minn deildi með mér þeirri speki sinni um daginn, að karlar og konur hugsi nákvæmlega eins. Ég er kannski ekki alveg sammála, en inntakið er gott. Það er alls ekki hægt að segja að konur hugsi á einn hátt og karlmenn á annan. Við erum öll sjálfstæðir einstaklingar með einstaka hugsun. Ef kynin hugsa á einhvern hátt ólíkt er það vegna þess að samfélagið og umhverfið hefur reynt að temja okkur hugsun sem við gleypum við án þess að horfa á samhengið með gagnrýnum aug- um. Ég bið þig, lesandi góður, að hafa í huga næst þegar þú rekst á pistil um það hvernig sam- skipti kynjanna eiga að ganga fyrir sig að lesa með gagnrýnum augum og ekki gleypa allt sem troðið er ofan í þig. | Rebekka Líf Albertsdóttir rebekka@mbl.is »Þegar við erum farnar að makamatnum framan í okkur er ég bara aldeilis hissa á að við séum ekki farnar að borða hrukkukremin okkar Heimur Rebekku Lífar DÖMU & HERRA SMÁRALIND s:555 2900 / HERRA KRINGLAN s:581 1944 buxur síð ullarpeysa 9.900kr. 8.500kr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.