Morgunblaðið - 11.03.2011, Page 12
Sala áfengis í lítrum talið
400.000
350.000
300.000
250.000
200.000
150.000
100.000
50.000
0
Lí
tr
ar
Ró
sav
ín
Fre
yði
vín
Sty
rkt
vín
Áv
axt
aví
n
Bra
nd
í
Áv
axt
abr
and
í
Vis
kí
Ro
mm
Teq
uila
og
Me
zca
l
Ók
r. b
ren
niv
ín
og
vod
ka
Gin
& s
éní
ver
Sn
afs
Lík
jör
Bitt
era
r,kr
ydd
v.,
ape
rití
far
Bla
nd
aði
r
dry
kki
r Ö
l
Að
rar
bjó
r-
teg
un
dir
2008 2009 2010
16.000.000
14.000.000
12.000.000
10.000.000
8.000.000
6.000.000
4.000.000
2.000.000
0
Ra
uð
vín
Hv
ítv
ín
Lag
erb
jór
82
.3
59
76
.3
28
69
.1
18
11
6.
19
7
94
.2
44
98
.1
29
51
.7
58
46
.2
55
39
.9
55 58
.9
30
45
.3
52 70
.9
12
59
.8
43
49
.1
83
44
.0
61
99
.1
70
90
.3
33
78
.1
88
71
.1
81
63
.8
54
54
.5
10
4.
64
0
3.
86
0
3.
45
5
37
6.
19
9
33
0.
66
4
26
5.
22
1
69
.0
32
67
.8
96
61
.5
61
45
.7
82
43
.6
02
38
.8
20
89
.7
35
73
.4
17
60
.0
20
61
.4
09
59
.4
59
49
.7
10
32
0.
97
9
20
2.
58
7
14
6.
55
3
11
1.4
02
10
7.4
62
10
3.
95
9
24
.5
45
22
.5
02
37
.4
21
1.
90
4.
85
8
1.
83
1.
97
9
1.
76
8.
50
7
1.
08
5.
87
4
1.
12
5.
87
6
1.
12
4.
48
8
15
.7
52
.7
23
15
.6
21
.4
91
14
.8
26
.8
03
72
9
78
7
71
9
Heildarsala 2008: 20.381.345 lítrar (Breyting frá 2007: 4,22%)
Heildarsala 2009: 19.957.130 lítrar (Breyting frá 2008: -2,08%)
Heildarsala 2010; 18.942.110 lítar (Breyting frá 2009: - 5,09%)
FRÉTTASKÝRING
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Sala á áfengi hjá ÁTVR heldur
áfram að dragast saman á fyrstu
mánuðum ársins, einkum sterkar
áfengistegundir. Allt frá því kreppan
hóf innreið sína á árinu 2008 hefur
sala áfengis hjá ÁTVR dregist mikið
saman eða um rúm 7% milli áranna
2008 og 2010, skv. yfirliti yfir söluna
á seinustu þremur árum, sem Morg-
unblaðið fékk hjá ÁTVR.
Þannig hefur heildarsalan minnk-
að úr 20.387 þúsund lítrum á árinu
2008 í 18.942.þúsund lítra í fyrra.
Samdrátturinn er tæplega ein og
hálf milljón lítra.
Ef litið er á þróunina á hverju ári
um sig kemur í ljós að 2008 jókst sala
á áfengi um 4,22% frá árinu á undan
en síðan hófst samdráttarskeiðið.
2009 minnkaði áfengissalan um
2,08% miðað við árið á undan og í
fyrra dróst hún saman um 5,09%.
Samdrátturinn er mjög mismun-
andi eftir styrkleika og tegundum.
Þannig minnkaði sala á léttvínum og
áfengi undir 22% að styrkleika um
4,29% í fyrra. Sala á sterku áfengi
minnkaði um 16,3% á árinu 2009 og
um 9,9% í fyrra. Sala á bjór minnkaði
um tæp 5% á seinasta ári.
Á þessu tímabili hefur verð á
áfengi hækkað verulega og álögur
ríkisins aukist. Áfengisgjaldið hefur
verið hækkað fjórum sinnum á þessu
tímabili, nú síðast um 4% um áramót
á léttvíni og bjór og um 10% í fyrra. Í
fyrsta skrefinu hækkaði áfengis-
gjaldið um 12,5% og þvínæst um
15%. Auk þessa hefur svo virðis-
aukaskatturinn hækkað um eitt pró-
sentustig (í 25,5% í janúar 2010).
Enginn velkist í vafa um samheng-
ið á milli minnkandi áfengiskaupa og
verðhækkana og aukinnar skatt-
lagningar á áfengið á umliðnum
misserum. Það vekur þá spurningu
hvort áfengisneysla Íslendinga hefur
minnkað að sama skapi eða þeir
brugðist við með meiri áfengiskaup-
um í ferðum til útlanda og hvort
heimabruggun hefur færst í aukana.
Emil B. Karlsson, forstöðumaður
Rannsóknaseturs verslunarinn-
ar, hefur reiknað raunveltu í
áfengissölu frá janúar 2008
og til janúar á þessu ári á
föstu verðlagi. Hefur
hún minnkað á þessu
tímabili um 16,7%.
Frá því haustið
2008 hefur veltan
minnkað stöðugt.
Emil bendir á
að á þessu sama
tímabili hefur
velta áfengis að
nafnvirði (þ.e. í
krónum talið) auk-
ist um 29,5%.
„Þannig að þó við
höfum varið
29,5% fleiri krón-
um til áfengis-
kaupa í janúar
2011 en í janúar
2008 höfum við fengið
16,7% minna magn fyrir
peninginn.“
Minni áfengissala ár frá ári
1,5 milljónum lítra minni sala í fyrra en 2008 29,5% fleiri krónum varið til
áfengiskaupa í janúar sl. en í janúar 2008 en 16,7% minna magn fékkst fyrir peninginn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í vínbúð 21 þúsund færri lítrar af viskíi voru seldir í fyrra en á árinu 2008. Sala freyðivíns var 18 þús. lítrum minni.
Litlu hærri fjárhæð
» ÁTVR seldi áfengi í fyrra fyr-
ir 21.363 milljónir kr. með
virðisaukaskatti. Er þetta litlu
hærri upphæð en árið 2009,
þegar áfengi var selt fyrir
21.133 milljónir.
» Salan í fyrra án virðis-
aukaskatts nam rúmum 17
milljörðum, samanborið við
16,9 á árinu 2009 og 14,3 millj-
arða á árinu 2008 reiknað á
verðlagi hvers árs.
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2011
Áfram dregur úr
sölu á áfengi í
verslunum
ÁTVR það sem
af er þessu ári.
Sala áfengis í
febrúar var 0,3%
minni en í febr-
úar í fyrra, sam-
kvæmt tölum frá
ÁTVR.
Í frétt ÁTVR
kemur fram að
sala á léttu víni
hafi þó aukist á milli ára, um 6% í
rauðvíni og 12% í hvítvíni. Sala á
rauðvíni jókst einnig lítillega í jan-
úar miðað við sama mánuð 2010 og
eru þetta nokkur umskipti því á
umliðnum þremur árum hefur sala
á rauðvíni í lítrum talið farið
minnkandi.
Sala á brennivíni og vodka hélt
áfram að dragast saman í seinasta
mánuði og hefur minnkað um 10,6%
miðað við sama mánuð í fyrra. Sala
á lagerbjór minnkaði um um
1,6%.
Í janúar var sala
áfengis 5,6% minni en
í janúar í fyrra eins
og fram hefur
komið. Sölubreyt-
ingin var þó mjög
mismunandi eftir
flokkum og vakti
athygli að hvít-
vín seldist mun
betur nú í árs-
byrjun en í jan-
úar í fyrra en lag-
erbjórssalan dróst
mikið saman eða
um 6,4% og brenni-
vín og vodka snarféll í
sölu eða um 16%. Sama
þróun hélt svo áfram í
febrúar samkvæmt nýjustu
tölum ÁTVR.
Minni sala
í febrúar
Er rauðvínið að
rétta úr kútnum?
„Hátíðin hefur mikið gildi. Fólkið fær tækifæri
til að fara á veitingastað og njótar matar hjá
erlendum kokkum sem vinna með íslenskt hrá-
efni,“ segir Páll Hjálmarsson, veitingastjóri á
Vox Hilton Reykjavík Nordica. Hátíðarmat-
seðillinn verður í boði á Vox í viku til viðbótar.
Hin árlega menningar- og matarhátíð Food
and Fun hófst í gær. Hún er nú haldin í tíunda
sinn. Hátíðin stendur fram á sunnudag.
Fjölmargir erlendir matreiðslumeistarar
koma til landsins af þessu tilefni og elda á veit-
ingastöðunum við hlið íslensku kokkanna. Þeir
erlendu keppa á laugardag um titilinn Food
and Fun-kokkur ársins.
Í boði eru fjögurra rétta máltíðir á mörgum
af helstu veitingastöðum borgarinnar.
Vox hefur tekið þátt í Food and Fun-hátíð-
inni frá því staðurinn var opnaður. Páll segir að
hátíðin gefi fólki sérstakt tækifæri til að fara út
að borða. Hann segir að fólk notfæri sér það
því fullbókað er á Vox meðan á hátíðinni stend-
ur. „Til þess að fleiri geti nýtt sér þetta erum
við með sama matseðil og á sama verði alla
næstu viku,“ segir Páll en tekur fram að er-
lendi gestakokkurinn fari á sunnudag. Sá sem
vinnur með starfsfólki Vox heitir Matti Jämsen
og er ungur finnskur meistarakokkur.
helgi@mbl.is
Fjöldi erlendra matreiðslu-
meistara á Food and Fun
Morgunblaðið/Eggert
Matur Páll Hjaltason og samstarfsfólk hefur nóg að gera á Food and fun.
Aukavika á matarhátíðinni hjá Vox á Hiltonhótelinu
Þú greiðir f.símanr. og að
ra n
otk
un
skv
. v
er
ðs
kr
á
á
si
m
in
n.
is
Dagurinn kostar aðeins 25 kr.
(5 MB innifalin), engin
skuldbinding. Prófaðu og fáðu
nýjustu fréttir beint í símann.
Netið í
símanum er ódýrara
en þú heldur