Morgunblaðið - 11.03.2011, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 11.03.2011, Qupperneq 16
Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Gengisvísitala krónunnar hefur sveiflast talsvert síðastliðin tvö ár, þrátt fyrir að gjaldeyrishöft hafi verið við lýði allan þann tíma. Í byrjun árs 2009 var gengisvísital- an 216,1 stig, skráð gengisvísitala Seðlabanka Íslands var 217,2. Breytingin á þessu 26 mánaða tímabili er aðeins 0,5%. Sveiflan á genginu á tímabilinu hefur hins vegar verið nokkur, eins og sjá má á meðfylgjandi línuriti. Krónan hefur veikst um tæplega 4,1% frá áramótum, mest gagnvart evru, sem er veigamesta myntin í utanríkisviðskiptum Íslands. En veikingin gagnvart evru frá ára- mótum nemur ríflega 5%, ein evra kostaði í gær um 161,3 íslenskar krónur. Veiking krónunnar sam- kvæmt gengisvísitölunni miðað við eignayfirlit skilanefndar Lands- bankans frá 30. september 2010 nemur síðan um 4,8%. Í forsendum Icesave-frumvarpsins, sem sam- þykkt var sem lög frá Alþingi í síð- asta mánuði og er nú á leið í þjóð- aratkvæðagreiðslu, var í versta falli gert ráð fyrir 3% árlegri veik- ingu krónunnar, umfram spá Seðlabankans. Veiking krónunnar á ársgrundvelli í ár nemur þó yfir 13%. Krónan sveiflast mikið á tveimur árum  Gengisvísitalan nú á svipuðum stað og í byrjun árs 2009 16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2011 Tilkynning frá Samtökum eigenda sjávarjarða Samtök eigenda sjávarjarða tilkynna hér með að allar veiðar og önnur atvinnustarfsemi innan netlaga sjávarjarða þar með taldar hrognkelsaveiðar eru bannaðar án leyfis eigenda viðkomandi jarða. Miða skal við fjarlægðarregluna 60 faðma (115 metrar) og dýptar- viðmiðið 12 álnir eða 4 faðma (6,88 metrar) dýpi á stórstraumsfjöru varðandi fiskveiðar. Innan þessara marka er um svæði í einkaeign að ræða og geta þeir sem virða það ekki átt von á því að verða kærðir. Samtök eigenda sjávarjarða - www.ses.is STUTTAR FRÉTTIR ● Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,34 prósent í viðskiptum gær- dagsins í dag og var lokagildi hennar 202,57 stig. Hinn verðtryggði hluti vísi- tölunnar lækkaði um 0,42 prósent og sá óverðtryggði um 0,15 prósent. Velta á skuldabréfamarkaði í gær nam um 7,2 milljörðum króna. Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands lækkaði um 1,24 prósent í gær og end- aði í 1004,4 stigum. Bréf Atlantic Petro- leum lækkuðu um ein 6,55 prósent í gær og bréf Össurar lækkuðu um 1,5 prósent. Icelandair hækkaði hins vegar um 0,90 prósent. bjarni@mbl.is Lækkanir á mörkuðum ● Bandaríski bankarisinn Bank of America ætlar að skipta húsnæð- islánum sínum í tvo flokka og setja þau lán, sem bank- inn telur „slæm“, í sérstakan banka. Athygli vekur að af þeim 13,9 millj- ónum húsnæðis- lána, sem bankinn er með á bókum sín- um, telst helmingur slæmur, þ.e. lán sem illa gengur að fá greidd eða mikil áhætta telst vera falin í, og er það ekki merki um að bandarískur húsnæðis- lánamarkaður sé að ná heilsu á ný. bjarni@mbl.is Helmingur húsnæðis- lána telst slæmur Banki Við útibú BoA í New York. ● Pimco, stærsti skuldabréfasjóður heims, hefur losað sig við allar stöður í bandarískum ríkisskuldabréfum. Þetta er í fyrsta sinn síðan í ársbyrjun 2008 sem sjóðurinn situr ekki á neinum eign- um í bandarískum ríkisskuldabréfum. Ástæðan er sú að sérfræðingar búast við lækkun á verði bandarískra rík- isskuldabréfa þegar bandaríski seðla- bankinn hættir beinum kaupum á þeim í sumar. Losar sig við bandarísk ríkisskuldabréf Moody’s lækkaði lánshæfiseinkunn spænska ríkisins í gær. Einkunnin var lækkuð í Aa2 og eru horfurnar metnar neikvæðar. Er þetta í annað skipti á þremur mánuðum sem Moody’s lækkar lánshæfiseinkunn Spánar. Ástæðan fyrir lækkuninni er sögð vanmat stjórnvalda í Madríd á kostnaðinum við endurfjármögnun bankakerfis landsins og skuldasöfn- un lægri stjórnsýslustiga. Spænsk stjórnvöld telja að kostn- aðurinn við endurfjármögnunina muni nema um 20 milljörðum evra en Moody’s metur endanlegan kostnað á bilinu 40 til 50 milljarðar evra og mun sá kostnaður því vega þungt í skuldabyrði spænskra stjórnvalda og endurfjármögnunar- þörf. Titrings gætti á evrópskum fjár- málamörkuðum í kjölfar lækkunar- innar. Gengi evrunnar veiktist og áhættuálag á ríkisskuldabréf verst stöddu evruríkjanna hækkaði enn frekar. Áhættuálagið á spænsk ríkis- skuldabréf fór í 5,5% í gær. ornarnar@mbl.is  Moody’s lækkar matið í annað sinn á stuttum tíma Lánshæfismat Spánar lækkar Lánshæfismat Spánar » Lánshæfiseinkunn Spánar var fyrir ekki alls löngu í hæsta flokki. Mat Moody’s er nú Aa2. » Áframhaldandi hækkun olíu- verðs auk annarra þátta gæti grafið frekar undan lánshæfinu. Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Íslendingar eru auðug smáþjóð, sem hefur alla burði til að geta lif- að góðu og frjóu lífi án atvinnuleys- is og örbirgðar, en nýtir ekki tæki- færin, að sögn Helga Magnússonar, formanns Samtaka iðnaðarins. Í ávarpi sínu á Iðnþingi samtakanna sagði hann að röng efnahagsstefna og heft hugarfar hömluðu gegn þessu, en við svo búið mætti ekki standa lengur. „Týnum ekki fleiri árum úr end- urreisn Íslands eftir hrun. Við leys- um engan vanda með því að horfa sífellt í baksýnisspegilinn og kenna hvert öðru um. Réttarkerfið sér um það sem þarf. Við eigum ekki öll að taka að okkur dómarastörfin. Horf- um fram á veginn og nýtum ríki- dæmi þjóðarinnar rétt. Notum náttúruauðlindirnar með yfirveg- uðum og öflugum hætti.“ Þá sagði Helgi að Íslendingar þyrftu að hætta að verða sér til minnkunar á alþjóðavettvangi með því að hóta þjóðnýtingu lögmætra erlendra fjárfestinga. „Látum af skattastefnu dauðans sem núver- andi ríkisstjórn hefur innleitt á síð- ustu 2 árum. Afnemum gjaldeyris- höftin eins fljótt og frekast er unnt. Og kveðum niður Icesavedraug- inn.“ Helgi sagði þversagnir einkenna veruleika Íslendinga um þessar mundir. „Það vantar djarfa efna- hagsstefnu sem gengur út á að nýta tækifæri okkar í stað þess að hækka skattprósentur á minnkandi skattstofna sem gerir ekki annað en að dýpka kreppuna að óþörfu. Við getum ekki unað við að þjóðin sé hneppt í skattfangelsi og festist í fátæktargildrum. Við verðum að rífa okkur út úr þessu ástandi með nýrri stefnumörkun.“ Katrín Júlíusdóttir, iðnaðar- ráðherra, sagði í sínu erindi að stöðugleiki í íslensku efnahagslífi eða trúverðugleiki þess yrði ekki tryggður nema með nýrri mynt. Katrín sagði að þótt Ísland gæti ekki tekið upp evru samstundis þegar og ef aðild að ESB yrði sam- þykkt, myndi samþykktin hins veg- ar skjóta fótum undir íslenska pen- ingamálastefnu og auka trúverðugleika hennar. Ráðherrann sagðist hafa fundið fyrir áhyggjum íslenskra fyrir- tækja af gjaldeyrishöftunum, en þeim yrði ekki aflétt með einu pennastriki. Hins vegar yrði að fara sem fyrst í að sníða af hafta- kerfinu þá agnúa sem mestum skaða yllu. Höftunum hefði verið ætlað að bregðast við þeim vanda sem af mikilli krónueign erlendra aðila stafaði, en höftin mættu hins vegar ekki kyrkja íslenskan iðnað. Þjóðin nýtir ekki tækifærin Morgunblaðið/Sigurgeir S Iðnþing Meðal ræðumanna á Iðnþingi voru þau Orri Hauksson, fram- kvæmdastjóri samtakanna, og Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra.  Formaður SI vill að Íslendingar horfi til framtíðar Úlfurinn byggingavöruverslun, sem var meðal þeirra fyrirtækja sem Samkeppniseftirlitið fram- kvæmdi húsleit hjá í vikunni, er svo gott sem hætt starfsemi. Þetta seg- ir Guðmundur Þór Jóhannesson, stjórnarformaður Úlfsins, sem hef- ur nú breytt um nafn og heitir í dag Byggingavörur Dúdda. Hann segir að fyrirtækið hafi verið stofnað í upphafi árs 2007. „Þetta var stofn- að í kringum innflutning á móta- borðum, sem eru notuð við steypu- uppslátt. Síðan bættist við kross- viður, gifsplötur og kambstál,“ segir hann, og bætir því við að Úlf- urinn hafi rétt náð í lokin á upp- sveiflunni á fasteignamarkaði. Í dag sé starfsemin lítil sem engin. Guðmundur segist ekki átta sig á hvers vegna Úlfurinn sé hluti af rannsókn Samkeppniseftirlitsins. thg@mbl.is Morgunblaðið/RAX Nýbygging Starfsemi Úlfsins, nú Dúdda, er meira og minna hætt. Úlfurinn er hættur                                          !"# $% " &'( )* '$* ++,-., +//-01 ++2-33 .+-4, .0-30+ +/-.5/ +.5-4. +-50+ +/.-4. +,0-/1 ++,-45 +//-52 +.0-+. .+-,.1 .0-3,. +/-10+ +.5-/3 +-504+ +/1-0, +,+-./ .+3-.1/3 ++,-/. +//-24 +.0-53 .+-,/, .0-/.1 +/-145 +.4-.. +-502. +/1-, +,+-31 ● Norski fjárfestingabankinn ABG Sundal Collier mælir nú með að fjárfestar selji sín bréf í Össuri. Í greiningunni segir að Össur hafi öfluga viðskiptaáætlun til langs tíma og góða markaðsstöðu, sem gefi tilefni til ákveðinnar bjartsýni. Hins vegar sé samkeppni á mörkuðum Össurar að aukast mikið, einkum og sér í lagi í Evrópu. Mælir með sölu bréfa í Össuri Skannaðu kóðann til að lesa ítarlega fréttaskýringu um áhættuþætti vegna Icesave. Skannaðu kóðann og fáðu gengið eins og það er núna á mbl.is. Skannaðu kóðann til að lesa frekari fréttir af Iðnþingi Samtaka iðnaðar- ins í gær á mbl.is. Gengi krónunnar Frá ársbyrjun 2009 fram til dagsins í dag 250 240 230 220 210 200 190 180 *Því hærri sem gengisvísitalan er, því veikari er krónan.2. janúar 2009 10.mars 2011

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.