Morgunblaðið - 11.03.2011, Page 28

Morgunblaðið - 11.03.2011, Page 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2011 ✝ Katrín Kolkafæddist á Sauð- árkróki 29. sept- ember 1982. Hún lést 27. febrúar 2011. Foreldrar hennar eru Jón Bjarnason, áður bóndi í Bjarn- arhöfn, skólastjóri á Hólum í Hjaltadal og síðar þingmaður og ráðherra, f. í Asparvík 1943, og Ingibjörg Sól- veig Kolka Bergsteinsdóttir, þroskaþjálfi og húsfreyja, f. á Blönduósi 1947. Systkini Katr- ínar eru: 1) Bjarni, f. 1966, fiski- fræðingur. Dóttir Kristín Kolka, f. 1994. Fyrrv. sambýliskona og barnsmóðir Guðrún Þóra Gunn- arsdóttir. 2) Ásgeir, f. 1970, hag- fræðingur, kvæntur Gerði Bolla- dóttur. Börn Sólveig Kolka, f. 1993, Þórir Kolka, f. 2000, og Kjartan Kolka, f. 2005. 3) Ingi- björg Kolka, f. 1972, íslensku- fræðingur, gift Guðmundi Sæ- mundssyni. 4) Laufey Erla, f. 1978, stjórnmálafræðingur, unn- usti Mikhail Timofeev. 5) Páll V. Kolka, f. 1983, jarðvegsfræð- ingur, unnusta Sandra Sif Ein- arsdóttir. Eiginmaður Katrínar Kolku er Eiríkur Valdimarsson þjóð- fræðingur, f. 1982. Þau Eiríkur giftu sig á heimili sínu 25. febrúar 2011, á fjög- urra ára trúlofunar- afmæli sínu. For- eldrar Eiríks eru Valdimar Eiríksson og Selma Guðjóns- dóttir, bændur í Vallanesi, Skaga- firði. Saman eiga Katrín og Eiríkur soninn Valdimar Kolka, f. 2006. Katrín ólst upp á Hólum í Hjaltadal. Hún tók stúdentspróf á náttúrufræðibraut frá Mennta- skólanum á Akureyri og kynntist þar Eiríki, eiginmanni sínum. Eftir útskriftina var Katrín skiptinemi í Toscana á Ítalíu en eftir það hófu þau Eiríkur há- skólanám og sambúð. Þau eign- uðust Valdimar Kolka þremur árum síðar. Katrín hóf nám í hjúkrunarfræði við HÍ og út- skrifaðist vorið 2010. Hún starf- aði m.a. á vökudeild Landspít- alans og lokaritgerðin fjallaði um nýbura í áhættumati. Katrín hugði á framhaldsnám í ljósmóð- urfræðum. Útför Katrínar Kolku fer fram frá Hallgrímskirkju í dag, 11. mars 2011, og hefst athöfnin kl. 13. Við erum komin á þann stað sem ég hélt að við myndum aldrei ferðast til. Eftir allar okkar ferðir um náttúru Íslands, þangað sem við sóttum orku, styrk og ró, er- um við komin að krossgötum. Það er komið að kveðjustund þar sem þú þarft að halda áfram ein. Eftir standa ljúfsárar minningar. Und- anfarin misseri hafa verið erfið, það var erfitt að horfa á kraft- mikla eiginkonu, móður og sálu- félaga veikjast, missa þrek og lík- amlega orku. Þá verður maður svo lítill, vanmáttugur og hissa yf- ir lundarfari þess sem öllu ræður. Við Katrín ákváðum að skuld- binda okkur hæfilega mikið, tók- um engin lán heldur litum á lífið sem lán. Eignuðumst son okkar hann Valdimar í miðju háskóla- námi, en það dró ekki úr ham- ingju okkar. Framtíðin var líka okkar. Við vorum með þetta allt á hreinu, enda ung og rétt að byrja að feta fjárgötur lífsins. Við höfð- um stór plön, væntingar og áttum mikla ást. Í lok árs 2008 hófst nýr kafli í lífi okkar. Hnútur í brjósti varð að krabbameini. Hnútur í maga varð að hafsjó af áhyggjum. En við fór- um í ferðalög og nutum samvista. Við, litla fjölskyldan. Katrín styrkti sig á sál og líkama, borð- aði hollt, stundaði líkamsrækt, jóga, sótti myndlistartíma. Var skapandi, elskandi og kraftmikil í senn. Síðan greindist krabba- meinið aftur. Og þvílíkt áfall, eftir alla þá þrotlausu vinnu sem fer í að finna sitt heilbrigði eftir erfið veikindi. Um haustið missti Katr- ín mátt í fótum, sjónin varð slæm og margt fleira hrjáði hana síð- ustu mánuðina. Allan þann tíma stóðum við saman, gengum í takt og veittum hvort öðru þá nánd sem við bæði þörfnuðumst. Og með tímanum tókst að hnika sjúkdómnum spölkorn til hliðar. Þær vonir brustu síðan aftur í febrúar síðastliðnum. Eftir það var erfitt að blása glóð í bjartsýn- ina og baráttuna. En Katrín var ekki hætt. Hennar staðfesta og lífsspeki fann sér nýjan farveg, að sætta sig við orðinn hlut og klára þetta verkefni reisulega. Saman náðum við að ræða um dauðann nokkrum sólarhringum fyrir and- látið. Þar urðum við sammála um að minning hennar myndi alltaf lifa með syni okkar honum Valdi- mari. Og næstu sólarhringar liðu hratt og atburðirnir stórir. Við giftum okkur heima á Aragötu föstudaginn 25. febrúar, en þann dag áttum við fjögurra ára trúlof- unarafmæli. Katrín safnaði sam- an allri sinni takmörkuðu orku, og við nutum stundarinnar til fullnustu. Þennan eftirmiðdag naut hún lífsins betur en nokkur heilbrigð manneskja getur gert. Um kvöldið var Katrín þreytt, en ég vissi ekki að einum og hálfum sólarhring síðar myndi ég kveðja hana í hinsta sinn. Ég trúi því ekki að þú sért far- in, að ég hafi horft á eftir þér hverfa mér úr augsýn. En ég veit að ég á ýmis ferðalög eftir ófarin, áður en ég fer á eftir þér. Við eig- um eftir að hittast aftur. Kannski við kyrrlátt heiðarvatn undir ein- um af hinum unaðslegu kvöldroð- um vorsins þar sem augu okkar munu mætast aftur. Við vatnið sem roðann lýsir, við nálgumst nú bakkana tvo. Tvær álftir á vatninu miðju snertast og sofna svo. Vornóttin færist loks yfir, friðsæl og löng. Ég og þú. Eiríkur Valdimarsson. Katrín ólst upp á stóru heimili á Hólum í Hjaltadal í sólbjartri æsku. Þar undi hún á sumrum við skógræktina, móttöku gesta og leiðsögn um Hólastað, en útivera, fjallgöngur og náttúruskoðun voru ætíð hennar helstu áhuga- mál. Katrín okkar geislaði af per- sónulegum þokka sem heillaði alla. Hún var ákaflega lífsglöð og hláturmild stúlka og samvisku- söm með allt sem hún tók sér fyr- ir hendur, hvort sem það tengdist því að læra heima eða laga til í herberginu sínu. En verkum sín- um, í lífi og starfi, sinnti hún ætíð með alúð og nákvæmni og skilaði með óaðfinnanlegum hætti. Katr- ínu var mjög umhugað um fólkið sitt, kærleiksrík fjölskyldumann- eskja. Þess fengu systkinin að njóta. Margar stundirnar áttu þau saman Katrín og Páll yngsti bróðir hennar í skógræktinni á Hólum en þar átti hún sér einkar kæra staði. Katrín kynntist Eiríki, eigin- manni sínum, á námsárunum í MA. Eftir dvöl Katrínar sem skiptinemi á Ítalíu hófu þau Ei- ríkur háskólanám og sambúð. Þau eignuðust Valdimar Kolka 3 árum síðar. Katrín valdi hjúkrun- arfræði við Háskóla Íslands því hugurinn stóð til að geta unnið sem nánast með fólki og sinnt því af alúð og umhyggjusemi. Námið gekk vel en brjóstakrabbamein tafði hana eitt ár. Það var því mik- il gleðistund þegar því var fagnað að hún hefði bæði sigrast á sjúk- dómnum og lokið hjúkrunar- fræðináminu. Í starfsnámi var Katrín á vökudeild Landspítalans og fann hún sig vel í því hlutverki og hugði Katrín á framhaldsnám í ljósmóðurfræðum. Síðsumars 2010 var ljóst að krabbameinið hafði tekið sig upp og við tók erfið barátta. Katrín var full lífsvilja þó sjúkdómurinn lamaði líkamlegan mátt. Hún þráði að safna kröftum til að geta gengið og orðið sjálf- bjarga á ný. Sú orrusta var háð nánast til síðasta dags. Sú ein- beitni kom vel fram í þeim dug og krafti sem hún beindi í endurhæf- ingu samhliða baráttu við þau mein sem hrjáðu hana. Þegar ljóst var að hinn illvígi sjúkdómur hafði náð endanlegu taki, mætti Katrín því af einstakri hugprýði og trúartrausti. Hún skildi aldrei við sig þá miklu reisn sem ein- kenndi hana allt hennar líf. Þau Eiríkur giftu sig á heimili sínu föstudaginn 25. febrúar, á fjögurra ára trúlofunarafmæli sínu. „Ég hef ekki séð augu þín svo skær og glöð lengi,“ sagði sr. Hildur Eir Bolladóttir er gaf þau saman. „Já, er það ekki bara róm- antíkin,“ svaraði Katrín að bragði. Hún lagði allt sitt í að njóta brúðkaupsins og samvista með allri fjölskyldunni. Katrín lést í faðmi fjölskyldunnar rúm- um hálfum öðrum sólarhring síð- ar, en þá hafði hún fullvissað sig um að eiginmaðurinn, foreldrar, öll systkinin og mágfólk hennar væru mætt í hringinn við sæng- ina. Nokkrum stundum fyrr hafði hún átt fallega kveðjustund með Valdimari sínum, sem sagði henni að krókusarnir í garðinum hefðu gægst upp úr moldinni þann dag. Katrín sveif inn í vorið sem hún hafði þráð svo heitt. Við fjölskylda Katrínar erum þakklát fyrir þau hamingjuríku ár sem við höfum átt með Katrínu og hún lifir áfram í hjörtum okk- ar. F.h fjölskyldu Katrínar Kolku, Bjarni Jónsson. Katrín systir mín Litli sólargeislinn með ljósu lokkana og björtu aug- un sem hlustaði á lóuna á vorin syngja til sín einnar: „Kat-rín! Kat-rín!“ Lítil stúlka æfði sig að krossleggja fætur og vera fullorðin … tveggja ára. Lítil stúlka vildi læra að elda hafragraut og vera reiðubúin fyrir framtíðina … þriggja ára. Krókusinn sem springur út snemma að vori og boðar von og væntingar eftir sumrinu. Fyrsta blóm vorsins hverfur áður en grasið grænkar og lóan kemur ungunum á legg. Stór stúlka, stolt og umhyggjusöm móðir, ástfangin eiginkona. Stór stúlka vinkona og stoð stóru systur. Bar með sér sumarið en fór að áliðnum vetri. Hún þráði vorið en vorið var ekki tilbúið. Samt beið hún söngs lóunnar því hún fann að fyrir utan gluggann gægðust krókusarnir upp úr moldinni, krókusarnir sem hún gróðursetti í garðinum. Brátt kemur vorið og senn kemur lóan, minnist sólargeislans ljúfa og syngur til hennar einnar: „Kat-rín! Kat-rín!“ Ingibjörg Jónsdóttir Kolka. Ég varð bæði reiður og rauna- lega örvæntingarfullur við að missa litlu systur mína. Að horfa eftir henni í klær sjúkdóms sem með undarlegri skilvirkni svipti hana líkamlegum mætti, en göngugrindin, hjólastóllinn, sjúkrarúmið standa nú eftir sem testament um þær þrautir er voru lagðar á hana. Já, hún Katrín litla systir mín hlaut grimm örlög. Og ég vikna þegar ég hugsa um hvernig draumar þessarar ungu stúlku voru slökktir. En mér er nú samt efst í huga þakklæti fyrir hana, fremur en reiði fyrir að hafa misst hana frá mér. Hennar líf var ham- ingja, ekki harmleikur. Það er ekki aðeins hún hafi sjálf verið hamingjusöm þau ár sem henni voru gefin, heldur stafaði ham- ingju af henni fram á síðasta dag. Sumt geta sjúkdómar og dauði ekki tekið frá fólki. Þrátt fyrir krabbameinið var hún ávallt heil- brigð stúlka. Það er hin mesta hilling nútímans að við getum ávallt haft stjórn á lífi okkar. Þannig hættir okkur til þess að taka lífið sem eitthvað fast og jafnvel hversdagslegt. En lífið er gjöf sem við öll þurfum að skila aftur á einhverjum tímapunkti, við bara vitum ekki hvenær, og við getum aðeins verið þakklát fyrir þann tíma sem okkur er gef- inn. Já, ég fékk það þakkarverða hlutverk að vera annar af eldri bræðrum Katrínar. Og mér hlýn- ar um hjartarætur í hvert skipti er ég hugsa til kvikrar stúlku með ljósa lokka og hvella rödd sem ég leiddi við hönd mér á Hólastað til þess að skoða kýr og kindur bændaskólans. Þetta var lítil systir sem ráðskaðist með bróður sinn og neitaði að fara aftur heim fyrr en hún hafði skoðað sína lyst. Og þá lét hún hann ávallt bera sig aftur heim á staðinn, upp fjósa- brekkuna. Ég hélt raunar á Katr- ínu yfir allt Ísland og hálf Norð- urlönd þar sem faðir minn ferðaðist um á eyðimerkurbrún- um Subaru með fimm börn í aft- ursætinu og eldri systkinin sátu undir hinum yngri. Það kom því í minn hlut af hafa ofan af fyrir henni á löngum bílferðum sem hafa án efa reynt á þolrif okkar beggja. En í minningunni voru þetta ákaflega góðar stundir þar sem Katrín var strax á unga aldri ákaflega skemmtilegur félagi. Ég fór hins vegar suður í nám og síð- ar vestur um haf til Bandaríkj- anna til enn frekara náms, og missti því eiginlega af unglings- árum hennar. Þess vegna má segja að ég hafi síðan kynnst henni upp á nýtt sem ungri full- orðinni konu með eigin fjöl- skyldu, en hún var enn ákaflega skemmtilegur félagi. Í veikindum hennar má segja að ég hafi kynnst henni í þriðja skiptið. Já, hún Katrín tók þroska heillar mannsævi í veikindum sín- um. Og ég dáist að henni þegar ég hugsa um með hve miklum styrk hún tók á móti örlögum sínum. Hún tók þá ákvörðun að gifta sig þegar hún horfði í mót dauða sín- um og það brúðkaup er ein falleg- asta stund sem ég hef lifað. Ein- um og hálfum sólarhring síðar kvaddi hún með systkini sín og foreldra sitjandi í kringum sæng sína sem er ein áhrifamesta stund er ég hef lifað. Undir lokin hafði litla systir mín snúið hlutverkum okkar við og leitt mig við hönd sér og kynnt mig fyrir lífinu á nýjan leik. Guð blessi Katrínu, litlu systur mína. Ásgeir Jónsson. Mig dreymdi Katrínu ekki alls fyrir löngu, hún kom til mín skæl- brosandi með síða, ljósa hárið sitt, stóð svona í dyragættinni og var bara býsna ánægð með sig. Hún geislaði öll af gleði og heil- brigði, hló og kleip létt í „maga- spikið“ og sagðist hafa fitnað. Ég varð svo glöð, kraftaverkið hafði loks átt sér stað – hún hafði vakn- að heilbrigð. En m.a.s. draumur- inn gat ekki blekkt mig, ég vissi að þetta gat ekki verið raunveru- legt. Samt var það skrýtin tilfinn- ing að vakna og vita af henni heima hjá sér jafn veikri og áður. Það er svo einkennilegt þegar raunveruleikinn breytist í mar- tröð og næturnar reynast skjólið fyrir draumana sem eiga að ræt- ast. Mér fannst Katrín ekki mikið fyrir augað þegar ég sá hana fyrst á fæðingardeildinni á Króknum, öll bólgin í framan. Ég hafði hlakkað svo mikið til að sjá litlu systur og varð fyrir miklum von- brigðum en Katrín tók fljótt að fríkka og var afskaplega fallegt barn. Mér gramdist sérlega að hún skyldi alltaf vera höfuðstærri en ég og stundaði reglulegar mælingar með málbandi til að bera saman. Hún og Palli bróðir voru nánast óaðskiljanleg og á ég þeim að þakka að ég get sofið af mér alls kyns hávaða. Stundum var herbergishurðin mín fótbolta- mark eða ærslafullir leikir áttu sér stað – einmitt fyrir utan her- bergið mitt. Þau brölluðu ýmis- legt saman og lögðu á ráðin um málefni fjölskyldunnar, s.s. áframhaldandi barneignir móður okkar og leit að kvonfangi fyrir Bjarna bróður. Mig grunar að Katrín hafi yfirleitt verið leiðandi í þessum uppátækjum þó hún hefði einstakt lag á að sýnast sak- leysið uppmálað. Þegar ég fékk lánaðar skólabækur til að kenna þeim að lesa og skrifa með mikl- um einræðistilburðum sat Katrín kyrr og lærði allt, hlýðin og sam- viskusöm. Enda renndi hún sér ljúflega í gegnum allt nám á lífs- leiðinni. Ég naut þess vel að geta átt margar skemmtilegar samveru- stundir með litlu fjölskyldunni hennar Katrínar. Lífið er safn af minningum og af þeim á ég gnótt – ekki síst allar skemmtilegu gönguferðirnar með Valdimar á bakinu. Katrín var einstaklega natin móðir og hugsaði vel um fal- lega heimilið sitt. Nærvera henn- ar var sterk, hlýleg og björt. Sam- skiptin einkenndust af hispursleysi og góðum skammti af fyndni, enginn hafði eins gott lag á að segja okkur systkinunum til og Katrín. Hún átti einstaklega gott með að skilja hismið frá kjarnanum. Ég er óskaplega þakklát fyrir hana Katrínu systur mína og sakna hennar sárt. Hafið kallar hana alltaf til mín, sæt angan af þaranum, öldurnar taktfastar en sterkar, formfagrar en þó svo kraftmiklar að stundum gusast upp úr þeim. Sjórinn heldur alltaf sínum staðfasta andardrætti en undir niðri kraumar ólga og ferskleiki. Hefði ég aðeins helm- ing af þeim styrk og krafti sem Katrínu var gefinn teldi ég mig ósigrandi. Katrín var og verður alltaf djúpalónsperlan í lífi okkar allra, uppfull af taumlausri orku og sprengikrafti en þó svo traust og skynsöm. Ég hætti trúlega aldrei að ræða við Katrínu í huganum um ýmis mál og hver veit nema ein- hver sé að hlusta. Laufey Erla Jónsdóttir. Lífið er undarlegt. Stundum leikur það við mann og brosir, en stundum er það hart og miskunn- arlaust. Þessar hugsanir koma upp í hugann við minningu frænku minnar, Katrínar Kolka. Hún var ljúf og létt í skapi, með góða kímnigáfu og fallegt bros. Nærvera hennar var hlý og létt- lyndi hennar smitaði út frá sér. Katrín var góðum gáfum gædd og var allur lærdómur henni auð- veldur. Eftir stúdentspróf frá MA lá leið hennar í hjúkrunarfræði, sem hún lauk síðastliðið vor með barnahjúkrun sem sérgrein. Sú grein átti vel við natna og sam- viskusama manneskju eins og Katrínu. Katrín var búin að finna traustan lífsförunaut, Eirík Valdimarsson og saman áttu þau soninn Valdimar Kolka. Lífið virtist svo sannarlega brosa við Katrínu uns miskunn- arleysi þess tók völdin er hún greindist með krabbamein sem dró hana til dauða. Í þessum erf- iðleikum stóð Eiríkur sem klettur við hlið konu sinnar og Valdimar litli var henni einnig hvatning í baráttunni. Á kveðjustund er efst í huga þakklæti fyrir allar góðu minn- ingarnar um hana. Sérstaklega rifjast upp barnæska hennar, en á milli okkar þróaðist einlæg vin- átta. Hún tók alltaf á móti frænda sínum með bros á vör, bað um að koma í fangið, stundum litla stund en líka gat hún tekið sér þar dálítinn lúr. Ég bið guð að styrkja son hennar og eiginmann, foreldra og systkini, sem og aðra nána ætt- ingja, missir þeirra er mikill. Valgeir Bjarnason. Það er sorg og tóm í huga okk- ar allra nú þegar við kveðjum Katrínu okkar Kolka eftir alltof of stutta samveru. Hennar er sárt saknað. En það væri ekki í anda Katrínar að fallast hendur og drúpa höfði í uppgjöf. Katrín var baráttukona sem kom vel í ljós í veikindum hennar. Katrín var ekki há í loftinu þegar ég hitti hana fyrst en hún og Palli áttu þegar í stað sérstakan sess í hjarta mér og eiga enn. Katrín á líka sérstakan sess í hjarta dóttur minnar, hún var svo sannarlega mikil uppáhaldsfrænka. Katrínu fylgdi enda alla tíð mikil hlýja og lífsgleði sem smitaði út frá sér. Ég votta foreldrum Katrínar, systkinum hennar og þeim feðg- um, Eiríki og Valdimar, mína dýpstu samúð, missir þeirra er mikill en megi minning um ást- kæra dóttur, systur, eiginkonu og móður lýsa þeim og ylja um ókomna framtíð. Guðrún Þóra. Kveðja frá Hólum í Hjaltadal Katrín Kolka Jónsdóttir var Hólastelpa. Hún sleit hér barnsskónum og fetaði inn í heim hinna fullorðnu. Í ást- ríkri fjölskyldu, þéttu sam- félagi, umkringd háum fjöllum og fegurð náttúrunnar ólst hún upp. Æskan slær tóninn fyrir það sem á eftir kemur. Birta, gleði og dugnaður ein- kenndu Katrínu þá og ávallt. Við sem myndum samfélag Hólafólks fyrr og nú erum harmi slegin yfir andláti Katr- ínar Kolku og vottum fólkinu hennar öllu okkar dýpstu samúð. F.h. íbúa og starfsfólks á Hólum, Skúli og Sólrún. Katrín Kolka Jónsdóttir Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgun- blaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á forsíðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.