Morgunblaðið - 11.03.2011, Síða 35
DAGBÓK 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG VIL AÐ ÞÚ
KLÓFESTIR MÚSINA!
ÉG VIL AÐ ÞÚ
NÁIR HENNI NÚNA!
HVAÐ ERT ÞÚ
AÐ GLOTTA!!!
ÉG
ELSKA
ÞESSA
ÍÞRÓTT!
NÁÐU Í
INNISKÓNA MÍNA!
ERTU BÚINN AÐ VERA AÐ NAGA ÞÁ
ENN EINA FERÐINA!
PABBI
ÞINN LEGGST
ALLTAF Í DVALA
ÞEGAR ÞAÐ FER
AÐ NÁLGAST
VORHREIN-
GERNINGARNAR
ÉG ER SVO ÓTRÚLEGA
ÓSÁTT VIÐ AÐ HAFA TEKIÐ AÐ
MÉR SKJÓLSTÆÐINGA
VINNUFÉLAGA MINNA, Í FRÍINU
MAMMA
ER ÞETTA EKKI
SÍMINN ÞINN?!
ÞETTA
VAR EKKI
MJÖG
ERFITT!
NÚNA GET ÉG
NOTAÐ HANN Í EITT-
HVAÐ GAGNLEGT
HAFÐU
ÞETTA
DR. OCTOPUS
ÉG VÍK MÉR
LÉTTILEGA
UNDAN ÞESSU!
EN KANNSKI
VERÐ ÉG HEPPIN,
KANNSKI HRINGIR
ENGINN ÞEIRRA
Gott að búa í
Hveragerði
Ég fluttist til Hvera-
gerðis fyrir fimm ár-
um, áður bjó ég í
Reykjavík þar sem
dóttir mín varð fyrir
einelti í skóla. Vel var
tekið á móti henni í
skólanum hér og henni
hefur vegnað mjög vel
hér í bæ.
Gunnar Sigurðsson.
Lyklakippa
tapaðist
Lyklakippa (á hangir
lítill Eiffel-turn) tapaðist á leiðinni
Álftamýrarskóli/MH sl. þriðjudag, 8.
mars. Ef þið finnið hana hringið vin-
samlega í síma
6614101.
Pennavinir
óskast
Vitus óskar eftir að
eignast pennavini, en
hann er mikill áhuga-
maður um Ísland.
Hann biður um að
skrifað sé á ensku eða
þýsku. Heimilisfangið
er:
Vitus Castelberg
Aspermontstr. 19
CH-7000 Chur
Switzerland
Ást er…
… að vera til staðar
hvort fyrir annað, sama
hvað framtíðin ber í
skauti sér.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, bingó
kl. 13.30.
Árskógar 4 | Smíði/útskurður kl. 9.
Bingó kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Kertanámskeið kl.
9, handavinna. Leikfimi fellur niður.
Dalbraut 18-20 | Söngstund kl. 14 í
umsjón Lýðs.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8,
botsía kl. 10.45.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Gleðigjafarnir í Gullsmára föstud. 11.
mars kl. 14. Sturla Guðbjarnason
stjórnar. Harmonikuleikararnir Guðni
Stefánsson, Gunnlaugur Valtýsson og
Sigurður Hannesson leika undir.
Félagsheimilið Boðinn | Sam-
verustund með prestum kl. 13.30.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofa, botsía kl. 9.30/13, málm-
og silfursmíði kl. 9.30/13, jóga kl.
10.50, félagsvist kl. 20.30. Gaman í
Góu kl. 14. Dagskrá ljóðahóps Gjábakka
flytur áður óbirt ljóð, kaffi og kleinur á
boðstólum.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn-
aður kl. 9, jóga kl. 9.15, ganga kl. 10,
leikfimi kl. 10.30. Gleðigjafarnir syngja
kl. 14.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 9.15, málun kl. 10, leð-
ursaumur/félagsvist kl. 13, skrán. á
Vorhátíð í boði Oddfellow 24. mars, tak-
markaður sætafjöldi. Lokað í Jónshúsi
alla næstu viku vegna vinnu við gólf.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur,
m.a. bókband kl. 9. Prjónakaffi kl. 10.
Stafganga kl. 10.30. Spilasalur frá há-
degi. Fyrsta skóflustunga að íbúðum f.
aldraða Hólabergi 84 kl. 16 og kynning
á framkvæmdum.
Félagsstarf eldri borgara í Mos-
fellsbæ | Miðar á Nei ráðherra, 7. apríl,
til sölu á skrifst. í Eirhömrum, fáir mið-
ar eftir. S. 5868014 e.h.
Háteigskirkja - starf eldri borgara |
Eldri konur hittast kl. 13 og liðka sig í
brids.
Hraunbær 105 | Bingó kl. 13.30.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, leikfimi
kl. 11.30, brids kl. 12,30, næsti dans-
leikur er 18. mars, Þorvaldur Hall-
dórsson leikur, biljardstofa og pílukast
alla virka daga kl. 9-16.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30/
9.30/10.30. Vinnustofa kl. 9 án leið-
beinanda. Námskeið í myndlist kl. 13.
Sýning á hekluðum dúkum.
Hæðargarður 31 | Leiðbein. á tölvur
mán. kl. 13.15. Fjölbreytt félagsstarf;
thachi, hláturjóga, postulínsmálun,
skapandi skrif, skrautskrift, spænska,
veðurhópur, bókmenntahópur, bíóhópur,
tónlistarhópur, skartgripagerð, afahorn,
þegar amma var ung, félagsvist, fram-
sagnarhópur o.fl.
Íþróttafélagið Glóð | Botsía í Gjá-
bakka kl. 13. Hringdansar (byrjendur) í
Kópavogsskóla kl. 14.40.
Norðurbrún 1 | Myndlist og útskurður
kl. 9. Bingó kl. 14.
Vesturgata 7 | Skartgripagerð/
kortagerð, enska kl. 9, tölvukennsla kl.
12, sungið v/flygil kl. 13.30, dansað í
aðalsal kl. 14.30.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja og
leirmótun kl. 9, handavinnustofa kl. 9,
morgunstund kl. 9.30, bingó kl. 13.30.
Kristján Eiríksson hefur árumsaman unnið að óðfræðivef
sem nefnist Bragi – óðfræðivefur
og er hýstur á heimasíðu Stofn-
unar Árna Magnússonar með öðr-
um vefnaði hennar undir „Gagna-
söfn“.
Þar má finna efnisflokkana
ljóðasafn og lausavísur. En í ljóða-
safnið eru færð ljóð ort á tíma-
bilinu 1400 til 1800 og reyndar
var og er meiningin að leggja
einnig mesta áherslu á það tímabil
í lausavísum. Þó er stefnt að því
að fá einnig inn í þær breitt úrval
eftir 1800 og taka þar fyrst og
fremst góðar vísur eða sérkenni-
legar á einhvern hátt.
Nú langar Kristján til að kemba
landið, ef svo má að orði komast,
og þætti vænt um að heyra um
góða hagyrðinga eða sérkennilega
á einhvern hátt sem ort hafa eftir
1800 en eru nú látnir. Þá þætti
honum gott að fá þeirra bestu vís-
ur og heimildir fyrir þeim og
einnig hvar best er að nálgast
heimildir um höfundana.
Netfang Kristjáns er
kriseir@hi.is. og til að hafa ekki
þessa auglýsingu hans vísulausa
setur hann inn grafskrift Þór-
bergs Þórðarsonar sem hann orti
sjálfur á esperanto en Ólafur
Briem á Laugarvatni sneri svo á
íslensku:
Þórbergs hér hvílir hold,
hulið í jarðar mold.
Í volaðra veröld bjó,
í vitlausra heimi dó.
Og fyrst minnst er á sérkenni-
legar vísur. Í Íslenskum aðli Þór-
bergs rifjar hann upp nokkrar vís-
ur eftir Sólon Guðmundsson, þar á
meðal þessa sem hann kastaði eitt
sinn fram um Guðmund G. Krist-
jánsson, bæjarverkfræðing á Ísa-
firði:
Undur er að slíkum manni
sem sagar járn og lóðar rör.
Dvergar hafa ugglaust blásið
feiknavizku í nasastofurnar.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af ljóðum og lausavísum
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is