Morgunblaðið - 14.03.2011, Side 2
Gestum Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í Laug-
ardal, jafnt ungum sem öldnum, gafst í gær tæki-
færi til að fylgjast með þegar Guðmundur Hall-
grímsson rúði sauðfé garðsins. Útskýrði hann
fyrir gestum það sem fyrir augu bar. Þegar rúið
er á þessum tíma árs er snoðið tekið en það er
reyfið kallað þegar það er ekki orðið fullvaxið.
Einnig voru síðustu forvöð í gær að sjá framandi
skriðdýr og froskdýr í garðinum.
Ungir og aldnir fjölmenntu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í gær
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rífandi stemning yfir rúningi
BAKSVIÐ
Hjalti Geir Erlendsson
hjaltigeir@mbl.is
Fyrrverandi framkvæmdastjóri
tækni- og umhverfissviðs Seltjarnar-
nesbæjar krefst þess að bæjarstjórn
víki Ásgerði Halldórsdóttur, bæjar-
stjóra bæjarins, úr starfi vegna ólög-
mætrar háttsemi í hans garð. Fram-
kvæmdastjórinn fyrrverandi hefur
sakað bæjarstjórann um að hafa lagt
sig í einelti en hann hefur verið frá
störfum samkvæmt læknisráði vegna
eineltisins síðan í janúar 2010. Nið-
urstaða dómkvaddra matsmanna
staðfestir að um einelti hafi verið að
ræða. Lögmaður brotaþola hefur
veitt bæjaryfirvöldum 20 daga frest
til að taka afgerandi afstöðu til máls-
ins og bæta brotaþola það tjón sem
hann hefur orðið fyrir. Að öðrum
kosti verði leitað til dómstóla.
Munu bregðast við kröfunum
„Þetta er alvarlegt og erfitt mál
sem við erum að fara yfir og skoða og
við munum bregðast við þessu á ein-
hvern hátt,“ segir Guðmundur Magn-
ússon, forseti bæjarstjórnar Sel-
tjarnarness. Bæjarstjórn hafi þó enn
ekki fundað sérstaklega um málið.
„Ég harma mjög það sem brotaþoli
hefur þurft að ganga í gegnum. Það
er ljóst að það þarf að taka á þessu
máli og tryggja að svona lagað gerist
ekki aftur,“ segir Margrét Lind
Ólafsdóttir, fulltrúi Samfylkingarinn-
ar í bæjarstjórn. Framkvæmdastjór-
inn fyrrverandi hefur sjálfur þurft að
standa í því að sanna eineltisásakan-
irnar þrátt fyrir að reglur bæjarins
geri ráð fyrir að slík rannsókn skuli
hvíla á herðum atvinnurekanda.
Hleypur á milljónum
Jóhann H. Hafstein, lögmaður
brotaþola, segir að sig gruni að bæj-
arstjórinn hafi vísvitandi reynt að
koma í veg fyrir að málið yrði rann-
sakað með eðlilegum hætti. „Sam-
kvæmt reglunum ber atvinnurek-
anda að rannsaka ásakanir um
einelti á vinnustað, í þessu til-
viki bæjarstjórn, það hefur
verið hundsað algjörlega frá
upphafi,“ segir Jóhann.
Hann segir kostnað við
rannsókn málsins hlaupa á
milljónum sem brotaþoli
hafi hingað til þurft að
standa undir.
Hundsaði eineltisásakanir
Kröfur uppi um að bæjarstjórn Seltjarnarness víki bæjarstjóranum úr starfi
Fórnarlamb eineltis þurfti sjálft að standa undir kostnaði við rannsókn á málinu
Grótta Bæjarstjórn skoðar einelti.
Morgunblaðið/ÞÖK
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
„Það að flytja sorpgerði er ekki eitt-
hvað sem gerist bara si-svona. Það
þarf víða nýjar teikningar sem fag-
fólk þarf að fara yfir og annað slíkt.
Þannig að þetta er einfaldlega meira
mál en látið er að liggja,“ segir Júl-
íus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
Frá og með 1. apríl nk. verða
sorptunnur í Reykjavík aðeins sótt-
ar 15 metra frá sorphirðubíl. Þar
sem fjarlægðin er meiri er íbúum
gefinn kostur á að flytja tunnurnar
nær sorphirðubílum þegar sorp er
tekið, greiða fyrir viðbótarþjónustu
eða færa gerði fyrir sorptunnur sem
getur kallað á nýtt byggingarleyfi.
Júlíus bendir á að ekki sé nóg með
að mikil fyrirhöfn og tilkostnaður
geti fylgt því að færa gerði fyrir
sorptunnur, ekki síst ef þau eru inn-
byggð í hús, heldur geti fólk ekki
flutt tunnur sínar nær sorphirðubíl-
um ef það er fjarverandi t.d. vegna
sumarleyfa. Þá geti tunnur fólks
þurft að standa úti við götu á sorp-
hirðudögum þar til það komi heim úr
vinnu og geti flutt þær til baka.
Reynsla erlendis
Páll Hjaltason, formaður skipu-
lagsráðs Reykjavíkurborgar, bendir
á að reynsla sé af þessu erlendis og
að þar hafi fólk einfaldlega orðið að
finna út úr hlutunum.
„Langtímaafleiðingin er sú að
smám saman færist sorpið nær göt-
unum og heildarhagræðing fæst fyr-
ir alla,“ segir Páll.
Meira mál en Reykja-
víkurborg lætur að liggja
Markmiðið að sorpið færist smám saman nær götunum
Ný staðsetning sorpgerða þarfnast leyfis
Sorphirða Reykjavíkur hefur gefið upp þrenns konar kosti ef
fjarlægðin frá gangstétt að sorptunnu er meira en 15 metrar:
Að íbúar flytji
tunnurnar nær bílum
á sorphirðudögum
Að íbúar kaupi
viðbótarþjónustu
Að íbúar færi
sorpgerðin
1 2 3
15 m frá gangstétt
G
an
gs
té
tt
Sorptunna í gerði
18 m frá gangstétt
Þrír metrar
Ef íbúar þessa húss vilja hvorki flytja
tunnuna á sorphirðudögum né kaupa
viðbótarþjónustu geta þeir flutt tunnuna
og gerðið um þrjá metra.
Til þess þarf að sækja um byggingarleyfi
fyrir framkvæmdum til byggingafulltrúa.
Íbúðarhús
Úkraínski stór-
meistarinn Yuriy
Kuzubov er efst-
ur með 5,5 vinn-
inga eftir sjöttu
umferð MP
Reykjavíkur-
skákmótsins.
Fjórir stórmeist-
arar hafa fimm
vinninga, þeir
Robert Hess,
Luke McShane, Simon Williams og
Stelios Halkias. Henrik Danielsen
er efstur Íslendinga með 4,5 vinn-
inga en Hannes Hlífar Stefánsson,
Björn Þorfinnsson og Sigurður
Daði Sigfússon næstir með fjóra
vinninga. Sjöunda umferð skák-
mótsins fer fram í dag.
Kuzubov efstur
eftir sex umferðir
Yuriy
Kuzubov
Ásgerður Halldórsdóttir, bæj-
arstjóri Seltjarnarness, neitar
ásökunum um að hafa lagt
starfsmann í einelti. Hún segist
hafa átt gott samstarf við um-
ræddan starfsmann og sagðist
koma af fjöllum þegar blaðamað-
ur spurði út í ásakanir um einelti
af hennar hálfu.
„Ég hóf störf hjá bænum 1. júlí
2009 á mjög erfiðum um-
brotatímum, eins og voru hjá öll-
um bæjarfélögum, og taldi mig
eiga gott samstarf við hann í
þá sex mánuði sem við unn-
um saman,“ segir Ásgerður.
Hún segist ekki ætla að tjá
sig frekar um málið fyrr en
matsgerð hafi borist til
hennar frá dómkvöddum
matsmönnum.
„Áttum gott
samstarf“
NEITAR ÁSÖKUNUM
Ásgerður
Halldórsdóttir
Lögreglunni á Hvolsvelli barst ný-
verið tilkynning vegna grunsemda
um að skotið hefði verið á sumar-
bústað í Fljótshlíðinni. Eigandi bú-
staðarins tilkynnti um málið og
kúlugat eftir skot úr 30 kalibera
riffli reyndist vera á bústaðnum.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni bendir ekkert til þess að
um hafi verið að ræða tilræði við
einhvern í bústaðnum. Talið er
sennilegt að um óviljaverk hafi ver-
ið að ræða en lögreglan lítur málið
engu að síður alvarlegum augum
þar sem skot úr rifflum eins og
þessum draga mjög langt, jafnvel
nokkra kílómetra.
Skotið á sumarbú-
stað í Fljótshlíðinni