Morgunblaðið - 14.03.2011, Page 29

Morgunblaðið - 14.03.2011, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2011 Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Avril Lavigne (fædd 1984) var sautján ára þegar plata hennar Let Go (2002) kom út. Þar sló hún í gegn með lögum eins og „Sk8er Boi“ og „Complicated“, unglingur að syngja um tilvistarleg vand- ræði unglinga. Fullkomið! Ég verð að viðurkenna að þrátt fyrir að vera orðinn háaldraður fílaði ég Avril og það sem hún hafði fram að leggja í poppflóruna. Andstætt hinum uppdúkkuðu gell- um var hér um að ræða kjaftforan stelpustrák; í rifnum gallabuxum og strigaskóm, með hjólabretti í annarri og gaddaól í hinni. Tón- listin var vel poppað pönk, líkt og búið væri að splæsa saman Blink 182/Green Day og Britney Spears og þaulgrípandi þegar allt gekk upp. Myndböndin voru þá skemmtileg og hver stenst þessar stórkostlegu byrjunarlínur í „Sk8er Boi“: „He was a boy/She was a girl/Can I make it anymore obvious?/He was a punk/And she did ballet/What more can I say?“ Snilld! En líkt og með allar barnastjörnur varð stóra spurn- Engla hafa sumir augum litið  Fjórða plata kanadísku pönkpoppsprinsessunnar Avril Lavigne, Goodbye Lullaby, kemur út í dag Eiga unglingastjörnur sér framhaldslíf eða ekki? Engill? Avril Lavigne hefur nú gefið út fjórðu plötu sína. Þó að myndin gefi kannski annað til kynna er hún nokkuð trú trukkandi popppönki sínu. ingin brátt þessi: Var hægt að við- halda vinsældum er hún yrði eldri? Hvað væri hægt að mjólka margar plötur úr þessu dæmi? Athygli vakti að Avril samdi eða átti a.m.k. hlut í lögunum á frumburðinum. Ætti hún jafnvel möguleika á að hrista af sér nýjabrumið og stand- setja sig sem gild- andi lista- mann? Litla systir Alanis Mor- issette? Menn biðu all- tént ekki boðanna og tveimur árum síð- ar kom platan Under My Skin út. Umslagið bar það með sér að hér væri um „þroskaða“ verkið að ræða; svart/hvít mynd, sæmi- lega gotnesk og fullorðinsleg. Allt var þetta þó með fín- legum hætti, breytingum var mjakað í gegn smekklega, það var ekki svo að innihaldið væri þunglamalegt svarta- gallsraus manneskju sem væri orðin fullorðin fyrir aldur fram. Platan seldist von úr viti og það tókst að viðhalda vinsældum, Lavigne og markaðs- hákörlum til mikillar gleði. En jafnvægislistin er mikil í svona málum, verið er að reyna að halda í upprunalegu aðdáendurna um leið og reynt er að laða nýja og eldri að. Í einum dóminum var hún sögð eins og litla systir Al- anis Morissette. Dramatík Maður hefði haldið að bensínið væri búið en Lavigne hélt upp- teknum hætti á The Best Damn Thing (2007) og seldi eins og brjáluð. Það er því engin tilviljun að fjórða platan er komin út, og engin tilviljun heldur að formúlan er nokkuð svipuð og á síðustu plötum, þó að Avril skelli sér í dramatískan kjól á umslaginu, klæðnaður sem pönkkrakkinn hefði aldrei látið sjá sig í. Sig- urformúlum á ekki að breyta eða eins og Mike Love sagði við Brian Wilson þegar hann fór að vinna að súrara efni en áður: „Don’t fuck with the formula.“ Heilræði sem Lavigne virðist hafa gert að sínu og nú er bara að sjá hvort einhver er enn að hlusta. Lavigne vakti mikla athygli árið 2002 þegar fyrsta plata hennar kom út. Stúlkur tóku í hrönn- um upp tísku hennar og stuttbolir, rönd- óttir sokkar og Con- verse-skór urðu móðins á einni nóttu. Platan Let Go seldist í milljónum ein- taka, sem og síð- ari plötur hennar og hún hefur selt alls 30 milljónir platna frá upphafi. þegar Avril- æðið brast á UNGLINGUR Ung Avril í upphafi ferils síns. Paul Di’Anno, sem er frægastur fyrir að hafa sungið með Iron Maid- en í upphafi, þar á meðal á fyrstu tveimur breiðskífunum, er kominn á bak við lás og slá. Mun hann sitja inni í níu mánuði þar sem hann sveik út örorkubætur. Þær hefur hann þegið síðan 2002 en þó haldið áfram að koma fram á sviði, þrátt fyrir að staðhæfa að það gæti hann ekki. Di’Anno sagðist hafa fengið lítið fé fyrir þessar uppákomur sínar og hann væri eingöngu að reyna að metta svanga munna en á það var ekki hlustað. Dómarinn skammaði hann fyrir græðgi en upphæðin sem hann hefur fengið er 45.000 pund. Græðgi já … Fyrrverandi söngvari Maiden í steininn Di’Anno Svona er kappinn í dag. Frægasta „týnda“ plata rokksög- unnar, Smile með Beach Boys, kem- ur loksins opinberlega út, rúmum fjörutíu árum eftir að sturlaður Brian Wilson gekk frá hálfköruðu verki. Sjóræningjaútgafur hafa verið til lengi en nú mun Capitol gefa þetta efni út sem The Smile Sessions. Platan kemur út sem tvö- faldur geisladiskur, niðurhal og svo sem kassi, með fjórum geisla- diskum, tveimur vínylplötum og 60 síðna bók, sem er skrifuð af Dom- inic Priore, Beach Boys-fræðingi. Smile Beach Boys kemur loksins út Snillingur Brian Wilson GAGNRÝNENDUR OG ÁHORFENDUR UM ALLAN HEIM ERU SAMMÁLA UM AÐ THE KING'S SPEECH SÉ EIN BESTA OG SKEMMTILEGASTA MYND SEM KOMIÐ HEFUR Í ÁRARAÐIR ATH. NÚMERUÐ SÆ TI Í KRINGLUNNI „MYNDIN ER ÍALLA STAÐI STÓRBROTIN OG STEN- DUR FYLLILEGA UNDIR LOFINU SEM Á HANA HEFURVERIÐ BORIÐ.“ - H.S. - MBL.IS HHHHH „ÓGLEYMANLEG MYND SEM ÆTTIAÐ GETA HÖFÐAÐTIL ALLRA.BJÓDDU ÖMMU OG AFA MEÐ,OG UNGLINGNUM LÍKA.“ - H.V.A. - FBL. HHHHH „EIN BESTA MYND ÞEIRRA COEN BRÆÐRA“ - EMPIRE „MYNDIN BÝÐUR ÞVÍ UPP Á ENDURTEKIÐ ÁHORF OG ÓGLEYMANLEGA SKEMMTUN.“ - H.S. - MBL 7 BAFTAVERÐLAUN SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI FRÁBÆR NÝ ÞRÍVÍDDAR TEIKNIMYND FRÁ ÞEIM SAMA OG FÆRÐI OKKUR SHREK MYNDIRNAR ANTHONY HOPKINS SÝNIR STJÖRNULEIK Í ÞESSARI ÓGNVÆNLEGU SPENNUMYND BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM „ÉG DÁIST AF THE RITE SÖKUM ÞESS AÐ ÞAÐ SKILAR ÞVÍ SEM ÉG VIL MEINA AÐ SÉ ÓGNVEKJANDI, ANDRÚMSLOFTIÐ, KVIKMYNDA- TAKAN ER ÓHUGNALEG EN HEILLANDI OG LEIKARARNIR GERA ALLT RÉTT.“ HVERNIG VARÐ SAKLAUS STRÁKUR FRÁ KANADA EINN ÁSTÆLASTI TÓNLISTARMAÐUR Í HEIMINUM Í DAG? „NÝ FRÁBÆR MYND SEM SÝNIR SJARMANN HANS JUSTIN BIEBERS Í RÉTTU LJÓSI.“ - NEWYORK MAGAZINE „HEILLANDI TÓNLISTARMYND.“ - HOLLYWOOD REPORTER HE IMI LD AR MY ND UM LÍF JU ST IN BIE BE RS , ST ÚT FU LL AF TÓ NL IST I I Í I I , I ATH! MYNDIN ER ÓTEXTUÐ Í 3D SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI BESTI LEIKSTJÓRI - TOM HOOPER BESTI LEIKARI - COLIN FIRTH BESTA HANDRIT4 ÓSKARSVERÐLAUN BESTA MYND SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL SPRENGHLÆGILEG GAMANMYND SEM Á EFTIR AÐ FÁ ÞIG TIL AÐ GRENJA ÚR HLÁTRI - T.V. - KVIKMYNDIR.IS SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL FÓR BEINT Á TO PPINN Í USA - ROGER EBERT HHHH COLIN FARRELL OG ED HARRIS ERU STÓRKOSTLEGIR SEM STROKUFANGAR Í SÍÐARI HEIMSSTYRJÖLDINNI VAR TILNEFND TIL ÓSKARSVERÐLAUNA EKKERT GETUR UNDIRBÚIÐ ÞIG FYRIR ÞAÐ SEM GERIST NÆST MÖGNUÐ STÓRMYND SEM BEÐIÐ HEFUR VERIÐ EFTIR MEÐ EFTIRVÆNTINGU SÝND Í EGILSHÖLL SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL ATH. NÚMERUÐ SÆ TI Í KRINGLUNNI www.sambio.is 17.mars kl.19:00 Leikstjóri: Danny Boyle Leikarar: Benedict Cumberbatch, Jonny Lee Miller, William Nye, Mark Armstrong   í Beinni útsendingu MIÐASALA Á WWW.SAMBIO.IS THE WAY BACK kl. 5:30 - 8 - 10:40 12 HALL PASS kl. 5:40 - 8 - 10:20 12 HALL PASS kl. 8 - 10:20 VIP RANGO ísl. tal kl. 5:50 L JUSTIN BIEBER kl. 5:40 - 8 L THE RITE kl. 10:30 16 I AM NUMBER FOUR kl. 10:30 12 TRUE GRIT kl. 5:40VIP - 8 - 10:20 16 THE KING'S SPEECH kl. 5:30 - 8 L / ÁLFABAKKA BATTLE: LOS ANGELES kl. 5:20 - 8 - 10:30 12 HALL PASS kl. 8 - 10:30 12 JUSTIN BIEBER 3D ótextuð kl. 5:40 - 8 L I AM NUMBER FOUR kl. 10:30 12 THE KING'S SPEECH kl. 5:30 - 8 L RANGO ísl. tal kl. 5:30 L TRUE GRIT kl. 10:20 16 THE WAY BACK kl. 8 - 10:40 12 HALL PASS kl. 8 - 10:20 12 THE KING'S SPEECH kl. 5:30 - 8 - 10:30 nr. sæti L GEIMAPARNIR 2 ísl. tal kl. 6 L YOGI BEAR 3D ísl. tal kl. 6 L THE WAY BACK kl. 8 - 10:30 12 HALL PASS kl. 8 - 10:10 12 THE KING'S SPEECH kl. 5:40 L GEIMAPARNIR 2 ísl. tal kl. 6 L THE ROOMMATE kl. 8 - 10 14 THE BLACK SWAN kl. 8 16 THE MECHANIC kl. 10:10 16 / EGILSHÖLL / KRINGLUNNI / AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI NÆSTI SÝNINGARD. ÞRIÐJUDAGUR ][ FRÁ FARRELLY BRÆÐRUM, ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR SOMETHING ABOUT MARY OG DUMB AND DUMBER!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.