Morgunblaðið - 21.03.2011, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MARS 2011
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Frá kr. 119.900 með „öllu inniföldu“
Verð kr. 119.900
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli
í 9 nætur með öllu inniföldu á Hotel
Griego Mar ***.
Costa del Sol
6. maí í 9 nætur
Heimsferðir bjóða frábæra 9 nátta ferð til Costa del
Sol í vor. Í boði er frábært sértilboð, með “öllu inniföl-
du” á Griego Mar hótelinu sem var mjög vinsælt meðal
farþega Heimsferða í fyrra. Ath. mjög takmarkaður
fjöldi herbergja í boði á þessum kjörum.
Gríptu þetta frábæra
tækifæri og njóttu lífsins
í vor á Costa del Sol á
ótrúlegum kjörum.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Mikil þátttaka er í undirskriftasöfnun
þar sem skorað er á borgarstjórn
Reykjavíkur að falla frá sameiningar-
og breytingaráformum í leik- og
grunnskólum sem og frístundaheim-
ilum borgarinnar. Hreyfing foreldra-
og hverfafélaga og annarra stendur
að söfnun undirskriftanna, sem
stendur til næstkomandi fimmtudags,
24. mars, þegar þær verða afhentar
forystumönnum borgarinnar í Ráð-
húsinu við Tjörnina.
Vefur þar sem undirskriftum er
safnað var opnaður formlega á blaða-
mannafundi í gær á þaki fjölbýlis-
hússins í Æsufelli 4, á sama stað og
Besti flokkurinn og Samfylking
kynntu meirihlutasamstarf sitt í
borgarstjórn sl. vor.
Jarðvegurinn er frjór
„Við höfum svo sem ekki sett okkur
markmið um hvað við viljum ná mörg-
um undirskriftum. Sé hins vegar tek-
ið mið af viðbrögðum væntum við
þess að borgarbúar taki fljótt við sér
og skrái sig á listann. Jarðvegurinn er
frjór og andstaðan gegn áformum um
sameiningu skólanna í borginni er
mjög almenn. Við höfum hvergi fund-
ið pólitískar línur í þessu máli – aðeins
að fólk vill börnunum sínum allt það
besta,“ segir Ásbjörn Kristinsson,
einn þeirra sem standa að undir-
skriftasöfnuninni.
Að mati þeirra sem undirskriftun-
um safna er ávinningur af sameiningu
skólastofnana sýnd veiði en ekki gef-
in. Agnar Már Jónsson, einn þeirra
sem að verkefninu koma, segir að
þegar búið er að vinda ofan af sparn-
aðaráætluninni sem telur rúmlega 3,1
milljarð kr. á fjórum árum þá standi
aðeins um 150 millj. kr. eftir á ári sem
væntur rekstrarsparnaður af samein-
ingarverkefni sem snertir yfir 8.000
aðila. Sá sparnaður sé aðeins 0,3% af
samanlögðum rekstrarkostnaði borg-
arinnar á ári – sú upphæð sé langt frá
því að vera ásættanleg til þess að farið
sé af stað með jafnviðamikið verkefni.
„Ætlum við að reyna að spara 150
milljónir á ári og eiga það á hættu að
heilu árgangarnir fái óviðunandi
kennslu vegna gæluverkefnis núver-
andi meirihluta? Ætlum við að fara í
stærsta sameiningarverkefni Íslands-
sögunnar og leggja skólastarfið und-
ir?“ spurði Agnar, sem lagði áherslu á
að fólk hefði skilning á stöðu borg-
arinnar.
Samstarf frekar en sundrungu
En rétt eins og íbúarnir skilja stöð-
una er, segir Agnar Már, mikilvægt
að meirihlutinn í borgarstjórn komi
til móts við foreldra og óskir þeirra
um samráð í sameiningarmálum
skóla. „Foreldrar og kennarar sætta
sig ekki á neinn hátt við það að illa
ígrunduðu sameiningarferli sem eng-
um ávinningi mun skila sé nánast
troðið ofan í kokið á þeim. Nú er bolt-
inn hjá borgarfulltrúum meirihlutans
og ef menn á þeim bæ stíga það skref
og efna til samstarfs frekar en sundr-
ungar verði það metið sem styrkur,“
sagði Agnar Már.
Morgunblaðið/hag
Upphaf Söfnun undirskrifta þar sem niðurskurði í skólamálum er mótmælt hófst á blaðamannafundi í Æsufelli í gær. Þær verða afhentar í Ráðhúsinu nk.
fimmtudag. Við tölvuna standa, frá vinstri talið, Guðrún Valdimarsdóttir, formaður Samfoks, Tómas Hafliðason og Sveinn G. Gunnarsson.
Hvergi pólitískar línur
Foreldra- og íbúafélög í Reykjavík mótmæla niðurskurði í skólamálum og safna
undirskriftum Óljós ávinningur og ekkert samráð haft við foreldrana
Fundur foreldra grunnskólabarna í
Melaskóla, Vesturbæjarskóla og
Grandaskóla á laugardag, skorar á
borgarstjórn Reykjavíkur að falla
frá fyrirhuguðum sameiningar- og
breytingaráformum er varða fram-
angreinda skóla. Fundurinn telur
að hugmyndirnar séu byggðar á
hæpnum, illa ígrunduðum og illa
rökstuddum forsendum.
„Foreldrar setja sig ekki upp á
móti hagræðingaráformum sem
unnin eru á faglegum forsendum í
nánu samstarfi við foreldra, starfs-
fólk og stjórnendur viðkomandi
skóla og sýnt er fram á að breyt-
ingar hafi í för með sér vel rök-
studdan sparnað og þess gætt að
faglegu starfi sé ekki stefnt í voða.
Þessir þættir hafa ekki verið
tryggðir í þeim tillögum sem liggja
fyrir,“ segir í ályktun fundarins.
Illa ígrundað
og illa rökstutt
„Við höfnum framkomnum tillögum
um breytingar á skólastarfi í ljósi
þess bráðræðis og fums sem einkennt
hefur allan aðdraganda þessa máls,“
segir í ályktun fjölmenns fundar með
foreldrum leik- og grunnskólabarna í
Laugardal, Háaleiti og Bústaðahverfi
í Réttarholtsskóla á laugardag. Skor-
að er á borgarstjórn Reykjavíkur að
endurskoða fyrirhuguð sameiningar-
og breytingaráform.
„Að okkar mati er fjárhagslegur
ávinningur af breytingunum alltof lít-
ill og óljós miðað við þá röskun á
skólastarfi sem búast má við í kjölfar-
ið. Ekkert samráð né samstarf hefur
verið haft við foreldra og foreldra-
félög skólanna við gerð þessara til-
lagna. Foreldrar vilja heilshugar setj-
ast niður með fulltrúum borgarinnar
í góðu tómi og komast að sameig-
inlegri niðurstöðu sem er góð fyrir
fjárhag borgarinnar, nærsamfélög
skólanna, faglegt starf þeirra og síð-
ast en ekki síst börnin okkar,“ segir í
ályktuninni.
Einkennist af
bráðræði og fumi
„Hugsanlega verða einhver atriði tillagna meirihlutans
endurskoðuð eftir fundi helgarinnar, en ég get ekkert
sagt um það að svo stöddu,“ segir Hjálmar Sveinsson
varaborgarfulltrúi um fundi, sem haldnir voru með for-
eldrum í Reykjavík um fyrirhugaðar breytingar í skóla-
málum borgarinnar.
„Við höfum farið í heilmikla greiningu og vinnu á
ástandinu í skólamálum og okkur þykir ennþá réttlátast
að sparnaður náist á stjórnendastigi í stað þess að skera
niður í þjónustu, en kannski hefur okkur ekki tekist sem
skyldi að koma þeim skilaboðum áleiðis til foreldra. Ein-
hvern veginn verður að spara þetta fé og margir for-
eldrar viðurkenna þá nauðsyn. Hins vegar eru börn og
skólamál viðkvæmt efni og ég held að margir óttist
breytingar. Gagnrýnin og óánægjan, sem komið hefur
fram, er skiljanleg, en við höfum hins vegar ekki heyrt
neinar raunhæfar gagntillögur. Einhverjir foreldrar hafa
spurt af hverju við hækkum ekki bara gjaldskrár. Það
getur verið að einhverjir geti staðið undir slíkum hækk-
unum, en það á alls ekki við um alla,“ segir Hjálmar.
„Undanfarin ár hefur verið búið hér til flókið og stórt
kerfi með stjórnendavæðingu, líklega vegna þess að til að
fá sæmileg laun þurfti fólk að komast á stjórnendastig.
Slíkt kerfi er mjög auðvelt að búa til, en það er erfiðara
að vinda ofan af því.“ bjarni@mbl.is
Réttlátast að skera
niður á stjórnendastigi
Hugsanlega verða gerðar breytingar á tillögum meirihluta
Morgunblaðið/Ómar
Borg Dagur B. Eggertsson, Oddný Sturludóttir og Jón
Gnarr við kynningu á nýjum borgarmeirihluta. Ekki
náðist í neitt þeirra við vinnslu fréttarinnar í gær.
Til fundarins í gær boðuðu for-
eldrar alla borgarfulltrúa í Reykja-
vík, en aðeins þrír fulltrúar minni-
hlutans sáu sér fært að mæta.
„Tillögur um sameiningu leik- og
grunnskóla eru illa ígrundaðar,“
sagði Kjartan Magnússon borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokks. Hann
telur miður að ekki hafi verið haft
samráð við foreldra og skólafólk.
Meirihlutinn hafi daufheyrst við
tillögum sjálfstæðismanna þar um
og fyrir vikið séu skólamál í upp-
námi.
„Séu foreldrar ekki tilbúnir að
leggja upp í þá vegferð sem sam-
eining skóla er, verður hún ekki
farin,“ segir Sóley Tómasdóttir,
borgarfulltrúi VG. Hún segir að í
niðurskurði hjá borginni sé eðli-
legt að byrja í stjórnkerfinu og
hörðu málunum svonefndu en nið-
urskurð í skólamálum eigi að forð-
ast í lengstu lög.
Skólamálin í uppnámi
AÐEINS BORGARFULLTRÚAR MINNIHLUTANS MÆTTU
Jón Gnarr borgarstjóri fékk ekki
vilja sínum framgengt um fund-
arstjóra á fundi með foreldrum í
Réttarholtsskóla. Ætlun borgar-
stjóra var að Hjálmar Sveinsson
varaborgarfulltrúi stýrði fundi en
íbúarnir kusu Svala Björgvinsson
sem fundarstjóra. Hjálmar fékk að-
eins eitt atkvæði, aðeins borgar-
stjórinn studdi hann til starfsins.
Hjálmar Sveinsson sagði við
mbl.is á laugardag að hann hefði
ekki tekið þetta nærri sér, ljóst hefði
verið að margir þyrftu að fá útrás
fyrir reiði.
Fékk aðeins atkvæði
borgarstjórans
Skannaðu kóðann til
að lesa nýjustu frétt-
irnar um skólamál í
Reykjavík.