Morgunblaðið - 21.03.2011, Page 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MARS 2011
F
A
B
R
IK
A
N
OSTAVEISLA FRÁ MS
Gullostur
Hvítmygluostur.Hvítmyglanereinnig
inni í ostinum. Áhugaverður ostur
með mildu bragði sem gott er að
njóta í lok góðrar máltíðar. Þessi
ostur er einn af flaggskipunum í
ostafjölskylduni frá MS.
Heilbakaður Gullostur
með timjan og hvítlauk
Vefjið smjörpappír utan um ostinn, pikkið átta göt ofan í
ostinn og stingið ögn af timjan ásamt þunnum sneiðum
af hvítlauk ofan í götin. Dreypið örlítilli ólífuolíu yfir.
Pakkið ostinum aftur inn í bréfið sem var utan um hann
og bakið hann í 30 mínútur við 160°C. Berið ostinn
fram með grilluðu hvítlauksbrauði.
Osta er hægt að bera fram með ýmsum hætti, það
má t.d. borða Gullostinn með góðu ávaxtamauki, eða
með hnetum og hella síðan góðu hunangi yfir eða setja
í hann fyllingu úr þurrkuðum ávöxtum s.s. apríkósum
og fíkjum og skreyta hann að ofan með þurrkuðum
trönuberjum og hlynsírópi. Búa til litlar og fallegar
ostasamlokur eða ostasnittur.
Kynntu þér fleiri góðar hugmyndir og
uppskriftir á heimasíðunni: www.ostur.is
Ostabakki
- antipasti
Grillaðar paprikur, sól- eða ofn-
þurrkaðir tómatar, grillað eggaldin,
hráskinka og þurrkaðar pylsur.
Gullostur, gráðaostur með ferskri
peru, blár Kastali.
Steyptur villisveppaostur skorinn
út í litla hringi. Maribóostur með
kúmeni. Kryddað apríkósumauk.
Baguette-brauð.
Uppskriftina að kryddaða apríkósu-
maukinu má finna á vefnum www.ostur.is
Stór stund var í lífi um 40
ungmenna og aðstandenda
þeirra við tvær fermingar í
Grafarvogskirkju í gær.
Prestar safnaðarins, Vigfús
Þór Árnason, Lena Rós
Matthíasdóttir og Guðrún
Karlsdóttir önnuðust at-
höfnina. Fermingar hafa
oft verið tengdar páskum,
en í ár eru þeir ekki fyrr
en síðari hluta aprílmán-
aðar.
Stór stund
við fermingu
í Grafarvogi
Morgunblaðið/hag
Líðan manns,
sem fluttur var
með sjúkrabíl til
Reykjavíkur í
gær eftir alvar-
legt bílslys nærri
Hvolsvelli, var
þokkaleg í gær-
kvöldi. Ekki
höfðu fundist
lífshættulegir áverkar og bjóst
læknir við því að jafnvel yrði hægt
að útskrifa manninn í dag.
Slysið bar til með þeim hætti að
einn bíll ók í hliðina á öðrum. Öku-
maður annars bílsins var einn í hon-
um og var fluttur til Reykjavíkur,
en tveir voru í hinum bílnum og
virðast hafa sloppið ómeiddir.
Býst við útskrift
hins slasaða í dag
Grásleppuveiðar
fara mun hægar
af stað en í
fyrra. Þegar
staðan var tekin
sl. föstudag var
veiðin innan við
fimmtungur
þess sem komið
var á land á
sama tíma á síðasta ári, sagði Örn
Pálsson framkvæmdastjóri Lands-
sambands smábátaeigenda.
Örn sagði að minna virtist vera
af grásleppu nú en í fyrra og væri
það í samræmi við það sem búast
hefði mátt við því nánast ekkert
hefði orðið vart við hana í þorska-
net áður en vertíðin hófst. Hins
vegar teldu grásleppukarlar meira
vera af þorski nú og drægi það úr
því að grásleppan kæmi í netin.
Margir grásleppukarlar hefðu
ákveðið að bíða með að hefja veið-
ar þar sem þeir teldu að það verð
sem boðið væri fyrir hrognin ætti
eftir að hækka. Það ætti við um
þá sem ekki hefðu tök á að salta
og bíða með tunnurnar þar til
verð yrði ásættan- legt að þeirra
mati.
„Það er þó ekkert uppgjaf-
arhljóð í mönnum, grásleppukarl-
ar með áratuga reynslu af veið-
unum benda á að sú gráa sé
óútreiknanleg og því engin ástæða
til að gefa það út að vertíðin í ár
verði léleg,“ sagði Örn Pálsson.
Mikil fjölgun grásleppuleyfa
Grásleppuveiðileyfum fjölgaði
stórlega á síðasta ári, þriðja árið í
röð, og er það talið helgast af góð-
um markaðsaðstæðum síðustu ár.
Á fimm árum hefur fjöldi slíkra
leyfa meira en tvöfaldast. Vorið
2006 voru þau 163, fækkaði síðan í
139 árið á eftir. Leyfin voru 222
vorið 2008, en aftur fjölgaði þeim
mjög árið 2009 er þau voru orðin
279 og síðan 350 á síðasta vori.
aij@mbl.is
Róleg byrj-
un á grá-
sleppunni
Telja að hrogna-
verð muni hækka
Maður var fluttur á gjörgæslu í
gærmorgun með mikla reykeitrun
eftir að eldur kom upp á bifreiða-
verkstæði við Smiðjuveg í Kópa-
vogi. Var allt tiltækt lið Slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins kallað út en
mikinn reyk lagði frá húsnæðinu.
Eldur logaði í bíl þar inni og bár-
ust logarnir upp í þakklæðningu,
svo tjón varð töluvert. Voru reyk-
kafarar fljótir að finna manninn og
var hann fluttur á Landspítala þar
sem hann fékk meðhöndlun á gjör-
gæsludeild vegna reykeitrunar-
innar. Er gert ráð fyrir að þaðan
verði hann útskrifaður í dag.
Fluttur á gjörgæslu
vegna reykeitrunar