Morgunblaðið - 21.03.2011, Blaðsíða 11
leit að samstarfsaðilum erlendis. Í
svoleiðis samstarf stoðar íslensk við-
skipaáætlun lítið. Upplýsingar og
kynning verða í máli og myndum á
veftímariti sem Brandit gefur út,
fagtímariti um viðskiptahugmyndir
sem dreift er víða um lönd. Keilir er
því í útrás,“ sagði Hulda.
Hulda hefur verið í samstarfi
við ýmsa aðila varðandi þróunina og
markaðssetninguna á Keili, m.a.
Heilsuhótel Íslands, Svefn og heilsu,
saumastofuna H-nál og Raven De-
sign, sem er handverksfyrirtæki
hennar og eiginmannsins, Hrafns
Jónssonar. Svefn og heilsa selur
heilsukoddann Keili í sínum versl-
unum en það var í gegnum framleið-
anda fyrirtækisins sem fyrstu 500
koddarnir voru framleiddir. Raven
Design fjármagnar verkefnið,
saumastofan H-nál í Reykjanesbæ
ætlar að sauma sérhannað koddaver
utan um koddann og selja sæng-
urver í stíl. „Ég hef svo verið að
kynna Keili fyrir gestum Heilsuhót-
elsins og bið þá um að taka þátt í
könnun sem varðar notkun og
reynslu þeirra á koddanum. Það er
mjög mikilvægt að hlusta eftir við-
brögðum viðskiptavina á þennan
hátt, því það gefur mér möguleika á
að bæta hönnun Keilis enn frekar,“
sagði Hulda að lokum.
EUWIIN stendur fyrir Euro-
pean Women Inventors and Inn-
ovators Network og er með aðsetur í
London. Bola Olabisi sem stofnaði
Alþjóðasamtök kvenna í nýsköpun,
GWIIN, 1998, sá að það þurfti að
þjappa konum í nýsköpun í Evrópu
betur saman og stofnaði EUWIIN
2007. Alls hafa 13 íslenskar konur
fengið viðurkenningu frá GWIIN/
EUWIIN, þar af hefur ein fengið
gullverðlaun og ein silfurverðlaun.
Þetta er í þriðja sinn sem
EUWIIN-hátíðin er haldin. Hún
verður fyrsta alþjóðlega ráðstefnan í
Hörpunni 25.-26. maí næstkomandi,
þar verður einnig sýning á verk-
efnum og vörum þeirra sem eru til-
nefndar. Viðurkenningarathöfn og
hátíðarkvöldverður verður í Bláa
lóninu að kvöldi 26. maí. Nánari upp-
lýsingar og skráning er á
www.kvenn.net
Óskað er eftir tilnefningum fyr-
ir 25. mars, um konur í nýsköpun og
getur Hulda veitt nánari upplýs-
ingar um það.
Morgunblaðið/Ellert Grétarsson
Keilir og Keilir Nafn koddans er sótt í fjallið fagra á Suðurnesjum enda
minnir lögun hliðarpúða vissulega á það.
Prófað og styrkt
» Keilir hefur verið prófaður
af fjölmörgum aðilum og við
rannsókn á koddanum naut
Hulda aðstoðar Nönnu Guð-
nýjar Sigurðardóttur löggilts
sjúkraþjálfara.
» Hulda hefur fengið styrki
frá Nýsköpunarmiðstöð Ís-
lands í tengslum við verkefnið,
m.a. „Átak til nýsköpunar“ og
frá Vinnumálastofnun innan
verkefnisins „Atvinnumál
kvenna“.
» Hulda er félagi í KVENN,
sem er félag kvenna í nýsköp-
un innan EUWIIN Evrópusam-
takanna. Hulda er einnig með-
limur í FKA sem er félag
kvenna í atvinnurekstri.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MARS 2011
Löngum hafa pönnukökur verið bak-
aðar hér á landi. Bæði hversdags og
þegar gesti ber að garði. Eitt það
besta við pönnukökur er að upp-
skriftin er einföld og tiltölulega auð-
velt er að baka þær. Ja, í það minnsta
þegar búið er að æfa sig svolítið.
Valhnetur eða banani
Hráefnið er yfirleitt til í ísskápn-
um, mjólk og egg og þurrefnin líka
uppi í skáp. Það vill líka svo vel til að
pönnukökur þurfa alls ekki að vera
fitandi fyrir þá sem eru að passa lín-
urnar. Þú getur vel notað minna feita
mjólk og ekki svo mikinn sykur eða
önnur sætuefni að vild. Um að gera
að prófa sig bara áfram. Pönnukök-
urnar sjálfar eru alls ekkert slæmar
en auðvitað er mjög misjafnt hvað við
setjum ofan á þær. Það er raunveru-
lega það sem mestu skiptir fyrir holl-
ustuna. Öðru hverju er ósköp gott að
fá sér banana og súkkulaðismjör en
svo getur verið gott að sleppa stund-
um súkkulaðinu og bæta frekar
nokkrum ósöltuðum hnetum við. T.d.
pekan- eða valhnetum og hella smá
agavesírópi yfir ef þér finnst blandan
vera of þurr. Ósaltaðar hnetur eru
gott snarl og líka rúsínur svo það er
um að gera að prófa sig áfram með
að fylla pönnukökuna af hollustu.
Sumir hafa vanist því að kreista sí-
trónu yfir pönnukökur og það getur
farið vel saman með berjablöndu.
Blandaðu saman bláberjum, banana
og hindberjum og kreistu sítrónu yfir.
Settu síðan blönduna inn í pönnukök-
una en smyrðu hana fyrst með grískri
jógúrt. Svo er bara að setja smá síróp
yfir ef þetta þykir of súrt. Svona má
búa sér til hollustubombu úr pönnu-
köku og daginn eftir má fylla þær
með grænmetisfyllingu og dálitlum
osti, í anda franskrar matargerðar.
Hollustubomba
Girnilegt Pönnukökur má í raun fylla með hverju því sem fólki dettur í hug.
Fylltu pönnu-
kökurnar með
ávöxtum
á sérstöku eyðublaði sem heit-
ir Umsókn um lífeyri frá öðru
EES-ríki. Starfsfólk
Tryggingastofnunar
sendir því næst umsókn-
ina til viðkomandi EES-
ríkis og gildir hún jafnt
sem umsókn um greiðslu
lífeyris almannatrygginga
og um greiðslur úr lífeyris-
sjóðum.
Hvað ef viðkomandi býr ekki á Ís-
landi?
Einstaklingur sem er búsettur er-
lendis og sækir um ellilífeyri hér á
landi á að snúa sér til trygginga-
stofnunar í búsetulandi sínu. Við-
komandi stofnun sér síðan um að
senda umsóknina til Trygginga-
stofnunar á Íslandi.
Hvað fleira er gott að hafa í
huga?
Greiðslur úr erlendum
lífeyrissjóðum hafa áhrif
til lækkunar á lífeyris-
greiðslum frá Trygginga-
stofnun, á sama hátt og
greiðslur úr íslenskum líf-
eyrissjóðum. Ennfremur þarf
að hafa í huga að lífeyrisaldur
er mismunandi eftir löndum.
Á vef Tryggingastofnunar
www.tr.is er hægt að finna ítarleg-
ar upplýsingar um hvaðeina er
snertir almannatryggingar. Enn-
fremur veitir starfsfólk þjónustu-
miðstöðvar Tryggingastofnunar
og umboða um land allt fúslega
upplýsingar og ráðgjöf.
Dagskrá
9:30-12:00
FUNDIR FAGHÓPA
• Afþreyingarfyrirtæki
Áætlun ferðamennsku á hálendi Íslands
• Bílaleigur
Hættulegustu staðir vegakerfisins utan höfuðborgarsvæðisins – hvað er til ráða?
• Ferðaskrifstofur
Markaðsáætlun ársins og framtíðarsýn Íslandsstofu
• Flugfélög
Málefni Akureyrarflugvallar
• Gististaðir
Ert þú að missa af mikilvægum markhópi?
Starfsleyfi veitinga- og gististaða og eftirlit með þeim
• Hópbifreiðafyrirtæki
Þróun íslenskrar repjuolíu. Hvernig og hvenær getur hún nýst hópbifreiðafyrirtækjumu?
• Veitingastaðir
Tækifærin á Norðurlandi í hótel- og veitingarekstri – vetrarferðamennska
kl. 12:00 Hádegishlé13:00-15:15
kl. 13:00 Aðalfundur settur: Árni Gunnarsson, formaður SAF
kl. 13:15 Ávarp: Katrín Júlíusdóttir, ráðherra ferðamála
kl. 13:30 Vetrarferðaþjónusta
Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri SAF
Verkefnisstjórar: Hermann Ottósson Íslandsstofu og Karl Friðriksson NMÍ
Helgi Már Björgvinsson, framkv.stjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair
Ásbjörn Björgvinsson, framkv.stjóri Markaðsstofu Norðurlands
Kl. 14:10 Gæða- og umhverfiskerfið VAKINN
Elías Gíslason, Ferðamálastofu
Kl. 14:25 Áherslur SAF til framtíðar – raddir félagsmanna
Áslaug Alfreðsdóttir, Hótel Ísafirði
Guðmundur K. Tryggvason, veitingamaður Bautanum
Arngrímur Viðar Ásgeirsson, Ferðaskrifstofa Austurlands
Bjarnheiður Hallsdóttir, Katla Travel
Umræður
Afhending verðlauna SAF og RMF til lokaverkefna háskólanema
kl. 15:15 Kaffi
kl. 15:45 ALMENN AÐALFUNDARSTÖRF
kl. 19:30 Kvöldverðarhóf á Hótel Kea
Munið að skrá þátttöku
www.saf.is
Samtök ferðaþjónustunnar
Húsi atvinnulífsins
Borgartúni 35
Sími 511 8000
AÐALFUNDUR
SAMTAKA FERÐAÞJÓNUSTUNNAR
24. mars 2011 - Akureyri
Samtök ferðaþjónustunnar SAF eru málsvari og
sameiginlegur vettvangur íslenskra fyrirtækja sem
stunda rekstur á sviði ferðaþjónustu. Aðild að SAF
er heimil öllum sem telja sig til ferðaþjónustufyrirtækja.