Morgunblaðið - 31.05.2011, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2011
✝ HallgerðurValsdóttir
fæddist á Horna-
firði, 15.11. 1967.
Hún lést á Land-
spítala í Fossvogi
20. maí 2011.
Foreldrar henn-
ar eru Kolbrún
Benediktsdóttir frá
Miðskeri í Nesja-
sveit, f. 21.5. 1944
og Valur Pálsson,
f. 4.12. 1944 á Siglufirði. Hall-
gerður á 4 systkini: Benedikt
Örn Valsson, f. 28.11. 1966.
Gyða Steinunn Valsdóttir, f.
8.5. 1972. Sævar Þór Valsson f.
19.4. 1973, d.
25.10. 1985. Guð-
laugur Helgi Vals-
son, f. 2.12. 1980.
Börn Hallgerðar
eru: 1) Ævar Þór,
f. 28.10. 1986. 2)
Ragnhildur, f.
21.10. 1987. 3)
Kristján Valur, f.
1.1. 1993. 4) Guð-
mundur Rúnar. f.
22.10. 1994. Mað-
urinn hennar er Ólafur Donald
Helgason.
Útför Hallgerðar fer fram í
Bjarnaneskirkju í dag, 31. maí,
kl.14.
Elsku Hallgerður dóttir mín,
mikið sakna ég þín sárt. Ég er
bara ekki búin að meðtaka það að
ég eigi ekki eftir að sjá þig eða
heyra í þér oftar í þessu lífi. En
ég veit það í hjarta mínu að þú ert
komin á góðan og fallegan stað
þar sem ástvinir okkar taka á
móti þér og englar guðs vaka yfir
þér og hjálpa mér að takast á við
sorgina.
Hvíl þú í friði, elsku dóttir mín
yndislega, fallega og góða.
Allt er hljótt um aftanstund.
Yfir hlíð og mýrarsund
lengjast skuggar, nóttin nálgast.
Nú er allt að festa blund.
Litla barnið blundar rótt.
Býður mamma góða nótt.
Eflir dagsins grát og gleði
gefur svefninn nýjan þrótt.
(Magnús Jóel Jóhannsson)
Þín einlæg,
mamma.
Til stóru elskulegu systur
minnar.
Sárt verður þín saknað og
verður nú eins og stórt skarð hafi
myndast, ég á rosalega erfitt með
að kveðja þig. Þú varst svo miklu
meira en stóra systir mín, þú
varst líka besti vinur minn. Ótrú-
legt hvað lífið getur verið ósann-
gjarnt, á tímum sem þessum gat
ég alltaf leitað til þín en núna þá
mun ég samt leita til þín bara á
öðruvísi hátt, t.d. mun ég leita til
minninganna sem ég átti alltaf
með þér, hvort sem var á góðum
stundum eða erfiðum, en ég
hugga mig við það að ég mun
hitta þig aftur.
Ég vil bara kveðja þig í bili og
mun ég varðveita allt sem við átt-
um saman, allar minningar okkar
og allt sem við gerðum. Þú varst
prakkari í þér en þess á milli mín
stoð og stytta, þú varst stóra
systir, besti vinur og bara allt
sem bróðir eða systir gat eignast.
Ég elska þig og sakna alveg
hreint ótrúlega mikið.
Þinn litli brósi kveður með
kossi og knúsi.
Guðlaugur Helgi.
Elsku fallega systir mín, ég
trúi því vart ennþá að þú sért far-
in, að ég eigi ekki eftir að sjá þig
né heyra þig hlæja meir. En nú
hvílir þú á góðum stað, elsku
systir, söknuðurinn er mikill, en
minninguna um góða systur á ég
alltaf.
Farðu í friði og guð geymi þig.
Í kvöldsins mjúku mildu ró,
er mánans silfur skín,
og breiðist yfir djúpan dal
hið daufa rökkurlín,
þá nýtur friðar sérhver sál
og sorgin hverfur skjótt,
en jörðin blessar börnin sín
og býður góða nótt.
(Magnús Jóel Jóhannsson.)
Þín systir,
Gyða Steinunn.
1978 í götu sem þá var kölluð
Mánagarður voru nýbyggð hús,
hálfkláruð hús, tómir húsgrunn-
ar, moldarhaugar og malarbing-
ir, draumaveröld allra krakka.
Þarna voru líka margir krakk-
ar, gatan hefði allt eins getað
heitið Ólátagarður. Húsin okkar
Höllu stóðu hlið við hlið og mynd-
uðust fljótt sterk vinabönd á milli
hennar og mín.
Halla var há og grönn með
dökkt glansandi hár niður á bak
sem hún hugsaði alltaf mjög vel
um og gat eytt miklum tíma í að
greiða sér og flétta, stundum
kom það meira að segja fyrir að
við komum of seint í skólan af því
við þurftum að bíða eftir henni á
meðan hún var að raða hárunum í
rétta röð í taglið.
Hún var samviskusöm, vand-
virk, passasöm á sitt og vildi hafa
alla hluti fullkomna. Engan hef
ég þekkt fyrr né síðar sem hefur
átt svörtu Nokia-stígvélin sín
glansandi hrein og fín í margar
vikur bara af því hún tímdi ekki
að vaða í þeim í drullupollunum.
Halla var feimin og í stórum
hóp dró hún sig oftast í hlé, en
svo þegar við vorum þrjá saman
þá kom glaðlega og fjöruga stelp-
an fram og mörg hlátursköstin
gæti ég rifjað upp þegar við vor-
um að passa litlu krakkana í
hverfinu, þegar við héngum með
þau niður við Laxá eða að drus-
last með þau upp á Meðalfellið á
meðan mömmurnar sátu
áhyggjulausar í kaffi.
„13. Gangið inn um þrönga hliðið.
Því að vítt er hliðið og vegurinn
breiður sem liggur til glötunar og
margir þeir sem þar fara inn. 14.
Hve þröngt er það hlið og mjór sá
vegur er liggur til lífsins og fáir þeir
sem finna hann.“
(Matt 7:14)
En lífið er ekki alltaf svona
áhyggjulaust og einfalt, margar
skuggahliðar lífsins áttu eftir að
mæta Höllu og týndum við fal-
legu vinkonu okkar í heim fíkni-
efna, heim sem er best að lýsa
sem helvíti á jörðu og þangað
ætti enginn að rata.
Alla tíð bar ég þá von í hjarta
mínu að Höllu tækist með Guðs
hjálp að vinna þetta stríð og alltaf
héldum við sambandi. Og Guð er
góður og fyrir tveimur og hálfu
ári leiddi hann okkur saman aft-
ur, Halla mín hafði fundið ástina
sína, hamingjuna og gert sér fal-
legt heimili. Hún barðist við óvin-
inn eins og hún hafði þrek til, ætl-
aði að sigrast á þessu. Og hún
stóð sig vel, oftar og oftar sá ég
glitta í Höllu mína sem ég lék
mér við. Dásamlegast var að
gleðjast með henni á brúðkaups-
daginn 1. maí síðastliðinn, hún
geislaði af hamingju og leit björt-
um augum á framtíðina.
Föstudaginn 13. maí töluðum
við saman í síma, röbbuðum um
daginn og veginn, brúðkaupsdag-
inn hennar og hvenær við ætluð-
um að hittast næst. Ég veit að við
eigum eftir að hittast og hlæja
saman á himnum, þar getur hún
verið í svörtu Nokia-stígvélunum
sínum og þau munu alltaf glansa,
það eru engir drullupollar í
himnaríki.
Nú er baráttu hennar lokið og
hún hvílir örugg í traustum faðmi
föðurins á himnum. Ég er ríkari
að hafa átt Höllu sem vinkonu,
takk fyrir allt og allt.
Elsku Kolla mín, megi Guð
styrkja ykkur öll og varðveita á
þessum erfiðu tímum.
Samúðarkveðja,
Margrét Einarsdóttir.
Hallgerður
Valsdóttir
✝ Alice Julia Sig-urðsson fædd-
ist í Sacramento í
Kaliforníu 25. des-
ember 1921. Hún
lést á Sjúkrahúsinu
á Akureyri 18. maí
2011. Foreldrar
hennar voru Annie
Emma Soll, fædd
Conrad 29. febrúar
1892, dáin 14. nóv-
ember 1984 og
Henry Peter Soll, fæddur á Jót-
landi 25. ágúst 1877, dáinn 25.
febrúar 1952. Systur hennar
voru Agnes, fædd 16. mars 1911,
dáin 6. júní 1997 og Mary Jane,
fædd 1924.
Hinn 25. ágúst 1945 giftist
Alice Aðalsteini Sigurðssyni,
menntaskólakennara á Ak-
ureyri, fæddum 18. ágúst 1921.
Sonur þeirra er Sigurður, yf-
irflugstjóri hjá Flugfélagi Ís-
lands, fæddur 1. desember 1947,
kvæntur Helenu Dejak, fæddri í
Slóveníu 18. ágúst 1946.
Alice ólst upp við Lake
Tahoe, í Sierra Nevadafjöllum í
Kaliforníu. Hún útskrifaðist frá
California College
of Arts and Crafts í
Oakland 1944 með
BA-próf í grafískri
hönnun og með
kennararéttindi í
myndlist að auki.
Hún vann eitt ár við
auglýsingateiknun
í San Francisco þar
til hún giftist og
fluttist til Íslands
haustið 1945. Auk
húsmóðurstarfa sinnti hún ým-
iss konar grafískum verkefnum
fyrir einstaklinga, félög og fyr-
irtæki á Akureyri, einkum
Prentverk Odds Björnssonar.
Margir kannast við jólamerki
kvenfélagsins Framtíðarinnar,
sem Alice teiknaði um árabil.
Einnig fékkst hún við málara-
list, einkum vatnsliti og tók þátt
í mörgum málverkasýningum.
Þekktust er hún sennilega fyrir
fuglamyndir sínar. Alice hlotn-
aðist heiðursviðurkenning frá
Akureyrarbæ fyrir framlag sitt
til menningarmála í bænum.
Jarðarför Alice Juliu var
gerð í kyrrþey.
Hann er kunnari en frá þurfi
að segja, áhugi ungra manna á
vopnum. Reyni foreldrar að
koma í veg fyrir þá þróun, eru
vandamálin leyst með því að
nota það sem hendi er næst,
búa sér til sverð úr timbri og
jafnvel byssur úr sviðakjömm-
um, finnist ekkert hentugra.
Þegar sá sem þetta skrifar
var ungur að árum og á þessu
skeiði, heyrði hann sér eldri
menn ræða af lotningu um hóp
manna sem stundaði markskot-
fimi í Íþróttaskemmunni á Ak-
ureyri. Þar á meðal var kona
komin á miðjan aldur, sem æfði
þar ásamt syni sínum og hafði í
fullu tré við karlpeninginn og
til að krydda söguna gengu þau
reglulega til rjúpna og skutu
aldrei sitjandi fugl. Þarna voru
þau mæðginin Alice Sigurðsson
og Sigurður sonur hennar sögu-
persónur.
Seinna lágu leiðir okkar
Alice saman á Sjúkrahúsinu á
Akureyri, hún að ná sér eftir
smá aðgerð, ég eftir full harka-
leg kynni við fósturjörðina eftir
fallhlífastökk. Þar með upphóf-
ust kynni milli fjölskyldna okk-
ar, sem hafa varað í yfir 30 ár.
Þá upplýstist að á meðan ég var
á timbursverða-tímabilinu var
hún jafngömul að skjóta dádýr
með riffli af stærri gerðinni í
heimkynnum sínum við Lake
Tahoe í Kaliforníu, uppeldisstað
sínum, og drösla þeim ein til
byggða.
Urðu Alice og eiginmaður
hennar Aðalsteinn Sigurðsson
fastir gestir í öllum skírnum,
fermingum og útskriftum á
heimili mínu eftir það og ár eft-
ir ár eyddum við gamlaárs-
kvöldinu hjá þeim.
Saman fórum við í ferðalög
og stangveiðiferðir vítt og
breitt um Norðurland, skutum
leirdúfur uppi á Hesjuvöllum og
fórum í fuglaskoðun. Alice og
Aðalsteinn héldu hesta og var
hámark sumarsins heyskapur-
inn og baggatínslan á túninu við
Naust. Alltaf var þeim léttir, ef
vel hafði tekist til með þurrk og
hirðingu. Ennfremur fór það
aldrei framhjá manni, þegar
fella þurfti hross, hversu nærri
sér þau tóku það, fóru gjarna í
burt þann dag.
Fuglaskoðunin var gjarnan
farin út á Gáseyri. Stundum
taldi Aðalsteinn sig hafa séð
eitthvað merkilegt, en allar
hans tillögur voru afgreiddar af
eiginkonunni með sama afger-
andi hætti: „Þetta er bara
venjulegur stelkur.“
Þegar faðir minn lést langt
um aldur fram, fjölgaði heim-
sóknum til þeirra hjóna. Þá var
gott að eiga þau að, sérstaklega
var Aðalsteini annt um þá ný-
fædda dóttur okkar hjóna og
tók miklu ástfóstri við hana.
Eftir Alice liggja mörg lista-
verk, vatnslitamyndir og út-
skurðarverk enda menntuð á
því sviði. Þau hjón áttu víða
hauka í horni, sem réttu þeim
hjálparhönd á ýmsum sviðum
sérstaklega tengt hrossaút-
gerðinni sem var Alice hjartans
mál. Síðast liðið vor ferðuðumst
við hjónin um Kalíforníu og var
hugmyndin að heimsækja
æskustöðvar Alice við Lake
Tahoe, það reyndist ekki unnt
vegna snjóalaga.
Við fjölskyldan færum Aðal-
steini og aðstendendum Alice
okkar innilegustu samúðar-
kveðjur. Sjálfur þakka ég Alice
fyrir þá dýrmætustu umsögn,
sem ég hef fengið um ævina, er
hún sagði að ég hefði reynst
henni eins og besti sonur. Hvíl í
friði, ógleymanlega kona.
Guðmundur Brynjarsson.
Bryndís Reynisdóttir.
Brynja Vala og Katrín.
Alice Julia
Sigurðsson
✝
Elskulegur sambýlismaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN TRAUSTI JÓNSSON,
Njarðargötu 7,
Reykjanesbæ,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans sunnu-
daginn 29. maí.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 6. júní kl. 14.00.
Hrefna Steinunn Kristjánsdóttir,
Páll Janus Jónsson,
Jón Kristbjörn Jónsson, Elísabet Stefánsdóttir,
Katrín Líney Jónsdóttir, Ólafur Halldórsson,
Halldór Traustason, Eydís Þórsdóttir,
Eiríkur K. Þorbjörnsson, Svanhildur Þengilsdóttir,
Hulda María Þorbjörnsdóttir, Bergþór Sigfússon,
Kristbjörn Þór Þorbjörnsson, Guðríður Ingvarsdóttir,
Birna Rut Þorbjörnsdóttir, Sverrir Þorgeirsson,
Ágúst Þ. Þorbjörnsson, Ragnhildur Geirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
STEFÁN FRÍMANN JÓNSSON
múrarameistari,
Kirkjuvegi 11,
Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstu-
daginn 27. maí.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 3. júní kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vildu
minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Þráinn Stefánsson,
Jón Kalman Stefánsson, María Karen Sigurðardóttir,
Bergljót Sif Stefánsdóttir,
Kristvin Stefánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR,
Skólabrekku 7,
Fáskrúðsfirði,
andaðist á dvalar-og hjúkrunarheimilinu
Uppsölum, Fáskrúðsfirði, fimmtudaginn
26. maí.
Útförin fer fram frá Fáskrúðsfjarðarkirkju föstudaginn 3. júní
kl. 14.00.
Jón B. Kárason, Þórunn Linda Beck,
Friðrik Svanur Kárason, Bryndís Gunnlaugsdóttir,
Unnsteinn Rúnar Kárason, Jóhanna M. Agnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
SIGURÐUR MAGNÚSSON
stýrimaður,
Bessahrauni 4,
Vestmannaeyjum,
lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja þriðjudaginn
24. maí.
Útför hans fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugar-
daginn 4. júní kl. 14.00.
Erna Sigurjónsdóttir,
Ingi Sigurðsson, Fjóla Björk Jónsdóttir,
Magnús Sigurðsson, Ester Sigríður Helgadóttir,
Sigurjón Pálsson, Gunnhildur Jónasdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi,
LEIFUR ÖLVER GUÐJÓNSSON
frá Stafnesi,
lést fimmtudaginn 26. maí.
Útförin fer fram frá Hvalsneskirkju föstu-
daginn 3. júní kl. 13.00.
Jón Ben Guðjónsson,
Þorbjörg Aldís Guðjónsdóttir,
Margrét Lóa Guðjónsdóttir, Gísli Hermannsson,
Guðjón Gísli Gíslason, Guðmunda Þórisdóttir,
Stefanía Rós Gísladóttir,
Björk Ína Gísladóttir, Gísli Kr. Ísleifsson,
Árni Snær Gíslason,
Hermann Fannar Gíslason, Guðrún S. Magnúsdóttir,
Ívar Örn Gíslason,
Allen Jón Gunnarsson,
Katheryn Stefanía Gunnarsdóttir
og systurbarnabörn.