Morgunblaðið - 31.05.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.05.2011, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 3 1. M A Í 2 0 1 1  Stofnað 1913  126. tölublað  99. árgangur  EDDA BORG SPILAR LJÚFA DJASSTÓNA SENJORÍTUR OG SUÐRÆNIR TAKTAR ALDA SEM FLÆÐIR Í GEGNUM LÍKAMANN OJOS DE BRUJO 31 RYTMADANS 10TÓNLEIKAR Í KVÖLD 32 Morgunblaðið/Árni Sæberg Næring Grænmeti er hollt og vegur æ meira í matarvenjum landsmanna.  Næturfrost hefur tafið plöntun garðyrkjubænda á Flúðum og plönturnar taka ekki eins vel við sér og venjulega vegna kulda. Gos- ið í Grímsvötnum virðist hafa haft þau einu áhrif að þrífa þarf geymslukassa fyrir haustið vegna öskunnar. Þröstur Jónsson, sem rekur Garðyrkjustöð Sigrúnar á Flúðum ásamt konu sinni Sigrúnu H. Páls- dóttur, segir að útlitið í ræktuninni sé nokkuð gott þrátt fyrir kalt vor en plöntunin sé seinna á ferðinni en venjulega. Norðanátt með kulda og næturfrosti hafi verið ríkjandi og áfram sé spáð næturfrosti. Svona tíð sé ekki óþekkt en næturfrost eftir 20. maí hafi ekki komið síðan 1996 eða 1997 eða í um 15 ár. »14 Næturfrostið og kalt vor seinka grænmetinu Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fulltrúar stjórnar og stjórnarand- stöðu sammæltust um það á fundi í gærkvöldi að flytja frumvarp um til- tekin brýn atriði varðandi Trygg- ingasjóð innistæðueigenda en að frumvarp um lögfestingu tilskipunar ESB um nýtt kerfi yrði lagt til hlið- ar. Unnið er að samkomulagi þing- flokka um störf þingsins. Harðar deilur urðu í gær, þegar frumvörp ríkisstjórnarinnar um stjórn fiskveiða voru sett á dagskrá í andstöðu við fulltrúa úr minnihlut- anum. Sjálfstæðismenn töldu að frumvörpin kynnu að ganga gegn stjórnarskránni og vísuðu í því efni til umsagnar fjárlagaskrifstofu fjár- málaráðuneytisins. Jón Bjarnason sjávarútvegsráð- herra mælti fyrir minna kvótafrum- varpinu sem snýst um breytingar sem hann telur brýnt að gera á nú- gildandi lögum. Samþykkt var naumlega að halda kvöldfund og var enn verið að ræða frumvarpið seint í gærkvöldi og margir þingmenn stjórnarandstöðunnar á mælenda- skrá. Frumvarpið verður rætt áfram í dag. Forseti Alþingis átti fundi með formönnum þingflokkanna í gær til að reyna að ná samkomulagi um störf þingsins. Allmörg mál sem stjórnin leggur áherslu á eru óaf- greidd, þar á meðal sjávarútvegs- málin, en fáir fundardagar eftir. Ekki er búið að ganga frá samkomu- lagi en vonast er til að það takist síð- ar í vikunni. Mestu hættunni aflýst Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra kom á fund við- skiptanefndar í morgun og lagði til að sá hluti stjórnarfrumvarps um lögfestingu nýs innistæðukerfis sem allir nefndarmenn eru sammála um yrði lögfestur, það er að hækka gjald fjármálastofnana í sjóðinn en það lagt í sérstaka deild sem myndi nýt- ast í nýju tryggingakerfi. Afgreiða þarf þessar breytingar í dag. Sam- komulagið felur í sér að lögfestingu tilskipunar ESB um nýtt innistæðu- tryggingakerfi er frestað til nýs þings í október. „Með þessu er mestu hættunni af frumvarpinu aflétt,“ segir Guðlaug- ur Þór Þórðarson, fulltrúi Sjálfstæð- isflokksins í viðskiptanefnd, en hann hefur varað mjög við frumvarpinu, meðal annars ákvæðum um ríkis- ábyrgð. MGagnrýna framlagningu » 6 Tilskipunin lögð til hliðar  Viðskiptanefnd stendur að brýnustu breytingum á innistæðutryggingum  Harðar deilur um kvótafrumvarp ríkisstjórnarinnar  Unnið að samkomulagi Skorður Skilyrt og mjög takmörk- uð áfengisauglýsing. Sænskur eftirlitsmaður með áfeng- isauglýsingum, Mattias Grund- ström, segir mikilvægt að þegar menn setji lög um áfengismál sé hlustað á raddir framleiðenda og annarra hagsmunaaðila. Menn reyni að fara fram hjá reglunum ef þeim finnist þær ósanngjarnar. Grundström er starfsmaður fram- leiðenda og segir flesta fara strax að fyrirmælum sínum þegar hann segi þá túlka reglur of frjálslega. Slakað hafi verið á banni við auglýsingum í Svíþjóð árið 2003 enda hafi lögin frá 1979 verið barn síns tíma. Þá hafi t.d. netið ekki verið komið til sögunnar, ekki heldur kapalsjónvarp. Farinn sé millivegur núna, leyfðar auglýs- ingar með skilyrðum í prentmiðlum en hvergi annars staðar. „Lærdóm- urinn er að setji menn reglur sem at- vinnugreinin hefur samþykkt er far- ið eftir þeim, ef þær koma að ofan og án samráðs reyna menn að fara fram hjá þeim,“ segir Grundström. „Innra eftirlitið, sjálfsagi innan greinar- innar, virkar líka vegna þess að sér- hver framleiðandi hefur auga með hinum; hann vill ekki að hinir komist upp með að svindla.“ »15 Reglur séu sanngjarnar  Sænski áfengisiðnaðurinn býr við innra eftirlit sem virkar Framkvæmdir við snjóflóðavarnargarð í Bol- ungarvík, sem hófust í júní 2008, eru í fullum gangi en garðurinn rís í Traðarhyrnu ofan við byggðina. Verkefnið felst í byggingu á annars vegar 710 metra löngum varnargarði og hins vegar svonefndum keilum. Ósafl, dótturfyrirtæki Íslenskra aðalverktaka (ÍAV) og svissneska verktakafyrirtækisins Marti Contractors, sér um verkið. Framkvæmdir við snjóflóðavarnargarð á fullu Morgunblaðið/Árni Sæberg  „Þeir geta ekki mótmælt því að þeir undirrituðu og féllust á að leit- að yrði leiða til að lífeyrissjóðir og bankar fjármögnuðu sérstöku vaxtaniðurgreiðsluna, sem er hluti af sértæku skuldaaðgerðunum,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra. Landssamtök lífeyr- issjóða segja í umsögn sinni um frumvarp um aðgerðir í ríkisfjár- málum að ekkert samkomulag sé til um eignaskatt á sjóðina til að fjár- magna vaxtaniðurgreiðsluna, enda myndu stjórnendur sjóðanna aldrei vera tilbúnir að semja um slíka skattlagningu. Annað séu alvar- legar rangfærslur. »15 Geta ekki neitað til- vist samkomulags Stefán Már Stefánsson, prófessor í Evrópurétti við lagadeild Háskóla Ís- lands, segir það í raun engu skipta hver afstaða ríkisstjórnarinnar sé til Evrópusambandsins þegar komi að lögfestingu ESB-gerða. Atli Gíslason, óháður þingmaður Vinstri grænna, hefur sagt að mögu- lega sé verið að innleiða fleiri ESB- reglugerðir en þörf sé á vegna EES- samningsins. Þannig sé smám saman verið að laga Ísland að regluverki Evrópusambandsins. „Það fer bara eftir því hve margar gerðir eru á ferðinni og hverju er verið að breyta,“ segir Stefán Már. Hann segist ekki vita til þess að Ís- lendingar hafi tekið upp fleiri gerðir en nauðsynlegt sé til að uppfylla EES-samninginn en hugsanlega sé stundum of rúm túlkun lögð til grundvallar því hvað falli innan samningsins. „Ég tel athugunar þörf á því hve margar gerðir eru felldar undir EES- samninginn sem mögulega eiga þar ekki heima. Til dæmis alls konar gerðir á sviði umhverfismála.“ Stefán segir að ef ESB-gerð sé ranglega felld undir EES-samning- inn fylgi allt eftirlitskerfi Evrópusam- bandsins sem annars væri ekki. »18 Íslandi ber skylda til að innleiða ESB-gerðir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.