Morgunblaðið - 31.05.2011, Blaðsíða 28
28 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
HORFUM Á ÞESSA
HRYLLINGSMYND
Í KVÖLD!
ENDI-
LEGA!
ÉG HELD AÐ ÞAÐ SÉ FÍNT AÐ HORFA
Á HANA ÚR SMÁ FJARLÆGÐ
JÁ, ÉG HELD
ÞAÐ
SAFNIÐ
HELDUR AÐ ÞÚ
HAFIR STOLIÐ
BÓKINNI
ÉG
MYNDI
ALDREI GERA
ÞAÐ!
ÞAU
VITA ÞAÐ
EKKI!
ALVEG
ÓTRÚLEGT
VIÐ
HVERJU
BJÓSTU?
BÓKASÖFN
ERU LÍKA
MANNLEG!
HELGA SAGÐI AÐ ÉG
VÆRI ÓFÁGAÐUR,
ÓKURTEIS VILLIMAÐUR!
HVERJU
SVARAÐIR ÞÚ?
ÉG SAGÐI: „VIÐ
VERÐUM ÖLL AÐ VERA
EITTHVAД
VÁ, ÞÚ SVARAR
SKO HARKALEGA
FYRIR ÞIG
VIÐ
ERUM TÝNDIR
NIÐRI Í BÆ Á
JÓLUNUM. ÉG
TRÚI ÞESSU
EKKI!
MIKIÐ
ER ÉG
SVANGUR
SJÁÐU,
ÞAÐ ER
BJALLA Á
HURÐINNI!
ÞÚ VEIST
HVAÐ GERIST Í
HVERT SKIPTI
SEM BJÖLLU ER
HRINGT?
JÁ,
HUNDAR
BYRJA AÐ
SLEFA
LÖGREGLAN
GETUR EKKI
STÖÐVAÐ OKKUR!
ÉG ER BÚINN AÐ STILLA
MYNDAVÉLINA
TÍMI TIL AÐ
TAKA TIL HENDINNI!
HVERNIG VAR
Í SVEFN-
RANNSÓKNINNI?
ÁGÆTLEGA,
ÉG FÆ NIÐUR-
STÖÐURNAR EFTIR
NOKKRA DAGA
HVERNIG
SVAFSTU?
MJÖG
VEL. ÞAÐ ER
LANGT SÍÐAN ÉG
SVAF SVONA VEL
SÍÐAST
EN
ÞURFTIRÐU
EKKI AÐ VERA
MEÐ ALLSKONAR
TÆKI Á ÞÉR?
JÚ, EN
ÞAÐ VAR ENGINN
AÐ VEKJA MIG
ÞÓTT ÉG VÆRI AÐ
HRJÓTA
Ódýr og mjög
góð þjónusta
Mig langar til að
koma á framfæri
þakklæti og hrósi til
starfsmanna Nes-
dekks við Fiskislóð.
Þannig er mál með
vexti að það sprakk á
bílnum hjá mér, seinni
part á föstudegi á
Hofsvallagötu rétt við
Hringbraut. Ég
reyndi að skipta sjálf
um dekk en gat engan
veginn hreyft rærnar.
Þá datt mér í hug að
hringja í Nesdekk og
biðja um aðstoð. Þar svaraði ungur
maður og sagðist strax myndu senda
mann á staðinn til að hjálpa mér sem
hann og gerði. Ég fór síðan með
dekkið í viðgerð til þeirra og þeir
gerðu við og settu það undir. Fyrir
alla þessa þjónustu og viðgerð borg-
aði ég 2.650 kr. Ég trúði ekki hvað
þetta kostaði lítið og vil koma á
framfæri innilegu þakklæti fyrir
skjót og góð viðbrögð og einstaklega
jákvæða og skemmtilega þjónustu.
Guðrún Kristín.
Argentína -
besta þjónustan
Dóttir mín ákvað að
bjóða unnusta sínum
út að borða í tilefni 17
ára afmælis hans og
varð veitingastaður-
inn Argentína fyrir
valinu. Er þau mættu
á staðinn tók á móti
þeim þjónn að nafni
Kristján og kom svo
vel fram við þau að
þegar heim var komið
sá maður næstum
bleika skýið sem þau
svifu um á. Vil ég
þakka Kristjáni sem
er yfirþjónn á Argentínu hjartan-
lega fyrir faglega og frábæra fram-
komu í garð dóttur minnar og
tengdasonar. Það er ekki á mörgum
stöðum sem ungum krökkum er
svona vel tekið. Kristján á hrós skil-
ið sem og aðrir starfsmenn Argent-
ínu.
Ragnheiður Edda Viðarsdóttir.
Ást er…
… fyrsta feimnislega
stefnumótið
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Árskógar 4 | Smíði/útskurður kl. 9.
Botsía kl. 9.45. Handavinna kl. 13.
Dalbraut 18-20 | Handavinna kl. 9, fé-
lagsvist kl. 14.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8, víd-
eó kl. 14. Listamaður mánaðarins.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Fundur
fararstjóra með farþegum í Austfjarðaferð
í dag kl. 11.
Félagsheimilið Boðinn | Þann 1. júní
skemmtun í Boðanum, Ásta og vinkonur
spila á hljóðfæri og stjórna söng.
Félagsheimilið Boðinn | Handavinna m/
leiðbeinanda kl. 9, ganga kl. 13. kínversk
leikfimi kl. 13.30 í sal sjúkraþjálfunar.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin, leikfimi kl. 9.15 og jóga
kl. 10.50.
Félagsmiðstöðin Bólstaðarhlíð | Opin
handavinnustofa, myndvefnaður, út-
skurður, línudans. Þingvallaferð fimmtu-
daginn 9. júní, uppl. og skráning í síma
535-2760.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Vefn-
aður kl. 9, jóga kl. 9.15, ganga kl. 10, ka-
nasta kl. 13, Jazz- og blúshátíð kl. 14,
Björn Thoroddsen gítarleikari, Jón Rafns-
son bassaleikari og Dagur Sigurðsson
söngvari, jóga kl. 18.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Qi-gong kl. 8.10, spila- og vinnustofur
opnar, opið hús í kirkjunni kl. 13, Bón-
usrúta kl. 14.45, síðasti dagur þátt-
tökuskráningar í vorferðalag kirkjunnar
með eldri borgurum á uppstigningardag
2. júní.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
opnar kl. 9-16, m.a. perlusaumur og gler-
skurður. Stafganga kl. 10.30. Miðvikudag-
inn 15. júní ferðalag um „draumalandið“,
umsjón Jóhann Davíðsson, lagt af stað kl.
10, skráning hafin á staðnum og í s. 575-
7720.
Grensáskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Hraunbær 105 | Opin handavinna kl. 9-
14. Leikfimi kl. 9.30-10.30. Botsía kl.
10.30-11.30. Bónusbíll kl. 12.15.
Hraunsel | Vorsýning á handverki fé-
lagsmanna opnuð í dag kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30 og
9.30. Bútasaumur kl. 9. Helgistund kl. 14,
sr. Ólafur Jóhannsson. Létt stólaleikfimi
kl. 15.
Íþróttafélagið Glóð | Línudans í Kópa-
vogsskóla, hópur I kl. 14.40, hópur II kl.
16.10, hópur III kl. 17.40. Uppl. í síma 554-
2780 og á www.glod.is.
Norðurbrún 1 | Postulínsmálun, myndlist,
vefnaður o.fl. kl. 9-12. Útskurður kl. 9-16.
Vesturgata 7 | Aðstoð v/böðun, handa-
vinna kl. 9.15. Spurt og spjallað/leshópur/
spil kl. 13.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Bútasaumur
og glerbræðsla kl. 9, morgunstund kl.
9.30. Framhaldssaga kl. 12.30. Handa-
vinnustofa kl. 13. Félagsvist kl. 14.
Sonja Schmidt sem er 97 ára ogfædd frostaveturinn mikla
1918 sendi Vísnahorninu kveðju
með vísu, sem ort er til minningar
um tíkina Pílu. Hún segist vera
mikill dýravinur og að hún sjái mik-
ið eftir henni:
Tík við áttum trygga
tókum við ástfóstri.
Falleg var á feldi
frá á fæti nettum.
Gefin fyrir gælur
gæfust allra dýra
Píla.
Guðjón Jóhannesson á Syðri-
Knarrartungu fór á kostum í brúð-
kaupi á Snæfellsnesi um helgina,
þar sem hann skemmti með bak-
raddatríóinu Durgunum. Í veisl-
unni kom upp úr dúrnum, að hann
er prýðilega hagmæltur, og til
marks um það er þessi vísa:
Elítan stefndi á stjórnlagaþing,
stolti hins rauðgræna dregils,
hvar sitja þeir munu saman í hring
silfraðir vinir Egils.
Einnig barst í tal vísa Guðjóns,
sem ort var að gefnu tilefni:
Samfylking hefur eðli eitt
ekkert virðist fá því breytt,
artin sama yfirleitt
– öllu breyta í ekki neitt.
Brúðhjónin eru ung og falleg,
Óskar og Renata, og ekki fór á
milli mála í kirkjunni hvernig
hugur þeirra lá. Sólskríkjan
söng:
Dásamlegast umfram allt
er það svei mér þá
að heyra svona hátt og snjallt
hljóma í kirkju: Já!
Í boðskortinu var ljóð eftir
Halldór Blöndal til brúðhjónanna
og var það flutt í veislunni við lag
Atla Heimis Sveinssonar:
Það opnast ótal víddir
við orð í tryggðum sagt
þegar hugir hverfast saman
og hjörtu slá í takt.
Hvort sem gatan verður greiðfær
eða grýtt og upp á við
verður ævigangan léttari
með annan sér við hlið.
Og það er þytur í lofti
og það er vor í bæ
því að boðið er til brúðkaups
á Búðir í maí.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af Pílu og brúðkaupi