Morgunblaðið - 31.05.2011, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 31.05.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2011 BAKSVIÐ Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Fleiri þúsundir íslenskra vefsíðna hafa verið sýktar af erlendum tölvu- þrjótum sem notfæra sér öryggis- galla í þeim til þess að auglýsa síður sem selja stinningarlyf eins og Vi- agra og Cialis. Þannig hafa heima- síður ýmissa fyrirtækja, Háskóla Íslands og jafnvel grunnskóla orðið þrjótunum að bráð og auglýsa stinningarlyf óafvitandi. Kristján Már Hauksson, eigandi Nordic eMarketing, segir að hakk- ararnir nýti sér öryggisgalla í vef- kerfum til þess að dæla hlekkjum á sölusíður inn í gagnabanka síðn- anna. Eru síðurnar notaðar sem nokkurs konar hýslar fyrir tengla á vefi með óæskilegu efni af þessu tagi. Á þann hátt sé Google-leitar- vélin blekkt til þess að halda að sýkti vefurinn styðji stinningarlyf- sauglýsinguna og birtast þær þá í leitarniðurstöðunum. Sem dæmi um þetta skilar Go- ogle-leit að orðinu „Viagra“ um 15.500 niðurstöðum þegar leitað er á vef HÍ. Þegar leitað er á landslén- inu „.is“ gefur sama orð hátt í 17 þúsund niðurstöður þó að hluti þeirra sé réttmæt umfjöllun um lyf- ið eins og á fréttasíðum eða heima- síðum apóteka. Hefur ekki áhrif á síðurnar Fyrirtæki Kristján Más var að vinna úttekt á Íslandi sem hagkerfi á vefnum þegar menn ráku sig á að töluvert margar íslenskar síður hefðu verið sýktar, sérstaklega á síðustu tveimur mánuðum. „Í gamla daga voru vefir hakk- aðir þannig að það kom kannski höfuðkúpa á vefnum þínum og skilaboðin „Þú hefur verið hakkað- ur“. Núna gera menn þetta allt öðruvísi. Þeir læða inn textabútum hér og þar svo það er miklu meiri leynd yfir því og erfiðara að finna,“ segir hann. Algengt sé að þeir sem standa fyrir vefárásum af þessu tagi séu óprúttnir söluaðilar frá löndum eins og Búlgaríu, Rússlandi, Nígeríu og Kína. Þeir séu stanslaust að leita að vefjum með öryggisgalla. Ein af ástæðunum fyrir að erf- iðara er að átta sig á að síða hafi verið sýkt er að það hefur yfirleitt ekki áhrif á hana. „Því fleiri tengla sem vefur hefur á netinu, því meira vægi hefur hann á Google. Þeir vilja ekki að þetta uppgötvist. Því lengur sem þeir fá að vera þarna inni, því meira gildi fær tengillinn þeirra.“ Vandi valið á vefkerfum Til að komast að því hvort síða hafi verið sýkt er meðal annars hægt að leita að orðum eins og „Vi- agra“ á síðunni í gegnum Google. Ef menn verða varir við óvenju- mikla umferð um síður sínar eða ef bera fer á óvenjulegum lykilorðum gætu það verið merki um að síðan hafi verið sýkt. Ef fyrirtæki vilja forðast að lenda í klóm tölvuþrjóta segir Kristján Már þrennt mikilvægast. Í fyrsta lagi að vanda valið á vefkerfum og stökkva ekki á ódýrustu lausnina bara því hún sé ódýr. Í öðru lagi að uppfæra þau reglulega og í þriðja lagi að láta fagmenn um að sjá um forritun fyrir þau. Fyrirtæki sem lendi í tölvuþrjótum verði oft fyrir gríðarlegu tjóni. Dæmi séu um að erlendir háskólar hafi þurft að láta endurbyggja vefkerfi sín frá grunni eftir árásir af þessum toga. Grunnskóli auglýsir stinningarlyf  Tölvuþrjótar dæla óæskilegum tengl- um á síður íslenskra skóla og fyrirtækja Hakkaður Vefur Grandaskóla er á meðal þeirra sem tölvuþrjótar hafa ráð- ist á og auglýsir óbeint stinningarlyfið Viagra eins og sést á skjáskotinu. Sóttvarnalæknir sendi í gær frá sér tilkynningu þar sem ferðamenn í eða á leið til Norður-Þýskalands eru hvattir til að forðast neyslu á hráu grænmeti vegna alvarlegrar sýkingar sem talin er eiga uppruna í grænmeti. Í Þýskalandi hafa um 330 manns greinst með sýkinguna, og vitað er um þrjú dauðsföll af völdum henn- ar. Sýkingin greinist frekar í full- orðnum og er algengari í konum. Tilvikin lýsa sér sem blóðugur nið- urgangur og/eða nýrnabilun af völdum saurgerils sem myndar eit- urefni og nefnist E. coli af sermis- gerð. Einn stærsti faraldurinn Alls hafa fimmtán einstaklingar greinst í öðrum Evrópulöndum og höfðu þeir allir ferðast til Norður- Þýskalands. Enn greinast ný tilfelli, sem bendir til þess að matvæli menguð með bakteríunni séu enn í dreifingu. Uppruna sýkingarinnar er ákaft leitað og rannsóknir bein- ast nú aðallega að hráu grænmeti, en faraldsfræðirannsóknir hafa fundið marktæk tengsl sjúkdómsins við neyslu á hráum tómötum, agúrkum og salati. Um er að ræða einn stærsta far- aldur sem um getur af völdum STEC og stafar af óvenjulegum stofni saurgerla, E. coli af sermis- gerð 0104. Aldursdreifingin í þess- um faraldri er óvenjuleg að því leyti að það er einkum fullorðið fólk sem sýkist, en venjulega greinast sambærilega sýkingar helst í börn- um. Morgunblaðið/Ernir Grænmeti Þeir sem ferðast til N-Þýskalands skulu hafa varan á. Varað við að neyta hrás grænmetis Beint til ferðamanna í Norður-Þýskalandi Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi, af- henti í gær Jóni Gnarr, borgarstjóra Reykjavík- ur, undirskriftir tæplega 11.000 einstaklinga þar sem skorað er á yfirvöld að tryggja börnum, sem verða vitni að heimilisofbeldi, tilhlýðilegan stuðning. Talið er að a.m.k. 2.000 börn verði á ári hverju vitni að ofbeldi gegn móður eða ofbeldi á milli foreldra á heimilum sínum, en þær tölur eru ekki áreiðanlegar og að mati Barnaheilla er um falið vandamál að ræða. Rannsókn samtakanna sem kynnt var í febrúar leiddi í ljós að þessum börn- um standa ekki nægileg úrræði til boða af hálfu félagslega kerfisins í Reykjavík. Morgunblaðið/Sigurgeir S Um ellefu þúsund undirskriftir afhentar Stórefla þarf eftirlit með eftirritunarskyldum lyfj- um og nýta betur þá rafrænu gagnagrunna sem nú þegar eru til staðar. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í yfirlýsingu frá Lyfjafræðingafélagi Íslands vegna umræðu um misnotkun lyfseðils- skyldra lyfja í kjölfar umfjöllunar Kastljóss. Þannig ættu allir læknar að hafa aðgang að raf- rænum sjúkraskrám. Með því að samtengja lyfja- gagnagrunna allra apótekanna væri svo hægt að fylgjast með lyfjanotkun einstaklinga á milli apó- teka og þannig koma í veg fyrir að hægt sé að leysa út samskonar lyf í mörgum apótekum. Einn- ig mætti huga að því að minnka magn eftirrit- unarskyldra lyfja á hverja lyfjaávísun og með því takmarka enn frekar aðgang að þessum lyfjum. Þá leggja lyfjafræðingar til að skömmtunar- þjónustu apóteka verði betur nýtt og hugað verði að því að koma á fyrirkomulagi þar sem fíkill fær dagskammt afgreiddan í apóteki og tæki lyfið inn undir eftirliti lyfjafræðings. Allsherjarnefnd fundi um málið Heilbrigðisnefnd Alþingis fjallar um misnotkun á ávanabindandi lyfjum á fundi á miðvikudags- kvöld og munu meðal annars fulltrúar frá land- lækni, læknafélaginu og heilbrigðisráðuneytinu verða gestir nefndarinnar. Þá hafa fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í allsherj- arnefnd farið fram á að haldinn verði fundur í nefndinni um sama mál eins fljótt og auðið verður. Vilja stórauka eftirlit og sam- ræma gagnagrunna apóteka  Sjálfstæðismenn vilja fund í allsherjarnefnd um eftirritunarskyld lyf í umferð Eftirritunarskyld lyf » Lyf eru eftirritunarskyld þegar mikil hætta er á ávana og fíkn af langri og mikilli notkun. » Þeir sem sækja eftirritunarskyld lyf í apó- tek þurfa að kvitta fyrir þau með nafni og kennitölu sinni. Eru lyfseðlarnir síðan afhent- ir Lyfjaeftirliti ríkisins. » Það eru einkum mjög sterk verkjalyf (mor- fín og petidín) auk örvandi lyfja (amfetamín og rítalín) sem eru eftirritunarskyld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.