Morgunblaðið - 31.05.2011, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 31.05.2011, Blaðsíða 33
Ferill fyrrum fjöllistahóps-ins GusGus hefur veriðæði fjölskrúðugur. Eftiraðra breiðskífu hópsins (This Is Normal, 1999) kvarnaðist hressilega úr honum og GusGus varð að teknósveit þar sem í stafni hafa lengstum verið þeir Biggi Veira og Presi- dent Bongo. Þessi stríp- aða útgáfa færði sig nær hrein- ræktuðu teknói en yf- ir taktföstu flæðinu mátti heyra melódíska söngrödd Urðar „Earth“ Hákonardóttur og Daníel Ágúst Haraldsson skaut ennfremur upp kolli áfram. Síðustu plötur GusGus hafa verið miklir gæðagripir og ein- hvern veginn hefur maður getað treyst á hið óvænta; Bongo og Veir- unni tekst jafnan að koma aftan að manni með einhverjum hlutum sem virðast út úr kú en ganga full- komlega upp í veröld GusGus. Hvort sem það er í umslagshönnun, tón- leikaframkomu, fatahönnun (For- ever-gallinn góði) eða lagatitlum „If You Don’t Jump (You’re English)“ af sömu plötu. Sterk listræn sýn þeirra félaga þriggja (Daníel Ágúst varð fastur meðlimur í hópnum á ný 2007) og heilnæmt skeytingarleysi gagnvart því hvað má og hvað ekki í heimi raftónlistar eða bara heimi tónlistar almennt hefur borið ríku- legan ávöxt, en aldrei eins og nú. 24/7 (2009) var sex laga teknó- plata, með löngum og tiltölulega naumhyggjulegum smíðum, frábært stöff, en nú er eitthvað allt annað (þannig lagað) upp á teningnum. Það er eins og allir þeir kraftar sem hafa stýrt GusGus-urum í gegnum tíðina hafi nú mæst í einhverjum skurð- punkti sem veldur því að hér er á ferðinni hnökralaust verk. Í plötunni er gríðarlegt „mojo“, einhver óræð, heillandi orka sem skilur mann eftir dasaðan. Teknóið er geirneglt, melódíuhliðin sömu- leiðis og hin óvæntu uppbrot öll binda þetta svo glæsilega saman. Upphafslagið, „Selfoss“ (sjáiði!?), er t.a.m. eitt flottasta upphafslag á plötu sem ég hef lengi vel heyrt. Þegar það opnast á u.þ.b. 1.15 er eins og maður sé kominn í himna- ríki. Einn svakalegasti það-er- eitthvað-rosalegt-að-fara-að-gerast- inngangur sem ég hef heyrt. Lagið er svo leitt til lykta með fjörugum harmonikkuleik Davíðs Þórs Jóns- sonar. Fáránlegt? Já! Eðlilegt? Al- gerlega. Raddir Urðar, Daníels og Högna Egilssonar, kennds við Hjaltalín, gefa plötunni dýpt og dramatík. Þegar Högni kemur inn í „Deep In- side“, sem er leitt af Daníel, sprett- ur gæsahúðin upp. Antony Hegarty hvað! Högni og Daníel saman í einu lagi, það er næstum of mikið. Hið harmræna „Within You“ er í senn ægifagurt og dansvænt, bassavænn takturinn og himnastrengir liggja undir magnaðri rödd Högna en það lag er svo nánast toppað með tit- illaginu þar sem Daníel og Urður fara algerlega á kostum í glæsi- legum samsöng. Annað er eftir þessu. Eitt orð: Meistaraverk. GusGus – Arabian Horse bbbbb ARNAR EGGERT THORODDSEN TÓNLIST Áfram Það er engu upp á þá GusGus-bræður logið. Arabian Horse, nýjasta smíð þeirra, er meistaraverk. Á teknóvængjum þöndum (sem aldrei fyrr) MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2011 Mildred Baena var ekki eini starfsmaðurinn hjá Arnold Schwarzenegger og Mariu Shriver. Á þeim 20 árum sem hún starfaði fyrir þau voru margar stúlkur í vinnu hjá þeim við að gæta barna. Nú hefur TMZ.com náð tali af einni af barnfóstrunum sem segir að Arnold hafi aldrei snert sig. Hún játar þó að hann hafi daðrað lítil- lega við sig en það hafi ekki verið neitt til að tala um. Hún segir hins vegar að það hafi öllum verið ljóst, sem störfuðu fyrir hjónin, að það væri eitthvað á milli Baena og vöðvatröllsins og að fólki hafi fundist sonur hennar aðeins of líkur herra Schwarzenegger. Reuters Í þá gömlu góðu Arnold og Maria þegar allt virtist leika í lyndi. Önnur barnfóstra talar Æstir aðdáendur kvennagullsins Justins Biebers eru ekki par sátt- ir við að drengur- inn sé genginn út. Kærustu hans, Disney-stjörnunni Selenu Gomez, hafa borist sví- virðilegar morð- hótanir þar sem aðdáendur Bie- bers hóta því að murka úr henni líftóruna með öll- um tiltækum ráð- um. Að sögn heim- ildarmanna rigndi hótun- unum inn eftir að myndir birtust af parinu fáklæddu á ströndinni þar sem þau létu einstaklega vel hvort að öðru. Nota aðdáendurnir bæði Twitter og Facebook til að koma hótunum sínum á framfæri. Yfir níu milljónir manns fylgja Bieber á Twitter. Gomez fær morðhótanir Par Bieber og Gomez eru ánægð saman. RÓMANTÍSK GAMANMYND EINS OG ÞÆR GERAST BESTAR. ÓTRÚLEGA FYNDIN MYND SEM ÞÚ MUNT ELSKA! - IN TOUCH HHH „MYNDIN ER FRÁBÆR: KYNÞOKKAFULL OG FYNDIN“ - P.H. BOXOFFICE MAGAZINE HHHH STÆRSTA OPNUN ÁRSINS Í USA! "Brjáluð afþreyingarmynd sem mun gefa þér nákvæmlega það sem þú sækist eftir, hvort sem þú ert aðdáandi seríunnar eða hasarfíkill almennt." JACK SPARROW ER MÆTTUR Í STÆRSTU MYND SUMARSINS! STÓRKOSTLEG ÞRÍVÍDDAR ÆVINTÝRAMYND MEÐ JOHNNY DEPP, PENÉLOPE CRUZ, IAN MCSHANE OG GEOFFRY RUSH HHHH “SANNKALLAÐUR GIMSTEINN! HIN FULLKOMNA SUMARMYND Í ALLA STAÐI. JACK SPARROW ER SANNARLEGA KVIKMYN- DAFJÁRSJÓÐUR” - P.H. BOXOFFICE MAGAZINE “STÓRKOSTLEG! BESTA MYNDIN Í SERÍUNNI” - L.S - CBS “BESTA ‘PIRATES’ MYNDIN” - M.P FOX TV “FRÁBÆR SKEMMTUN! JOHNNY DEPP OG PENÉLOPE CRUZ ERU TÖFRUM LÍKUST. EINSTAKLEGA ÞOKKAFULL” - D.S HOLLYWOOD CLOSE-UPS HHHH “SJÓNRÆN VEISLA” “STÓR SKAMMTUR AF HASAR” - K.H.K. - MORGUNBLAÐIÐ SÝND Í ÞRÍVÍDD MEÐ ÍSLENSKU TA LI DÝRAFJÖ R FRÁBÆR TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI HHHH “IT ACTUALLY IMPROVES ON THE JOKES” - TIME OUT NEW YORK “BANGKOK ADVENTURE IS NOT WITHOUT ITS SHOCKING, LAUGH-OUT-LOUD MOMENTS.” - HOLLYWOOD REPORTER 80/100 SÝND Í EGILSHÖLL SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA „THOR ER KLÁRLEGA EIN ÓVÆNTASTA MYND ÁRSINS… HASAR, HÚMOR OG STUÐ ALLA LEIÐ. SKOTTASTU Í BÍÓ!“ - T.V. – KVIKMYNDIR.IS HHHHH 750 kr. Tilboðil 750 kr. Tilboðil á 3D sýning ar1000 kr. á 3D sýning ar1000 kr. 750 kr. Tilboðil750 kr. Tilboðil 750 kr. Tilboðil á 3D sýning ar1000 kr. 750 kr. Tilboðil MIÐASALA Á WWW.SAMBIO.ISÞRIÐJUDAGSBÍÓ Í DAG - 2D 750kr. - 3D 1.000kr. GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR OG VIP MYNDIR THE HANGOVER 2 kl. 5:40-8-9:10-10:20 12 THE HANGOVER 2 kl. 5:40 - 8 - 10:20 VIP PIRATES OF THE CARRIBEAN 3D kl. 5 - 8 10 PIRATES OF THE CARRIBEAN kl. 7 - 10 10 DÝRAFJÖR ísl. tal kl. 6 L SOMETHING BORROWED kl. 5:50 - 8 L FAST FIVE kl. 10:20 12 / ÁLFABAKKA THE HANGOVER 2 kl. 3:20-4-5:40-6:20-8-9-10:20-11:20 12 PIRATES OF THE CARRIBEAN 3D kl. 4:30 - 5 - 8 - 10 10 DÝRAFJÖR 3D ísl. tal kl. 7:30 L THOR 3D kl. 11 12 THE HANGOVER 2 kl. 5:50-6:50-8-9-10:20 12 PIRATES OF THE CARRIBEAN 3D kl. 6 - 9 10 THE HANGOVER 2 kl. 8 - 10:20 12 PIRATES OF THE CARRIBEAN 3D kl. 6 - 9 10 DÝRAFJÖR 3D ísl. tal kl. 6 L THE HANGOVER 2 kl. 5:50 - 8 - 10:20 12 PIRATES OF THE CARRIBEAN kl. 8 - 10:50 10 DÝRAFJÖR ísl. tal kl. 5:50 L / EGILSHÖLL / KRINGLUNNI / AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI THE HANGOVER 2 kl. 5:50 - 8 - 10:20 12 PIRATES OF THE CARRIBEAN kl. 8 - 10:50 10 DÝRAFJÖR ísl. tal kl. 6 L Munntóbak er ekki ávanabindandi Fáðu aðstoð við að hætta að nota tóbak í 800 60 30 eða á reyklaus.is RANGT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.