Morgunblaðið - 31.05.2011, Blaðsíða 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2011
Sudoku
Frumstig
1 6
6 9 4 5 2
8 7 4
2 8 7
2 1
5 2 7 9 1
1 9 4
4 8 5
5 2
8 4 7 9 3
8
6 7
6 8 9
2 5 3
9 2
2 3 4
8 7 6
1 9
8 3
2
8 4 2 1
7 9
5 4
3 4 6
5 7 3 9
7 1 6
5 2 6 7 9 4 1 8 3
3 4 8 2 5 1 7 9 6
1 9 7 3 8 6 4 5 2
9 5 3 1 2 8 6 7 4
8 1 2 6 4 7 9 3 5
6 7 4 5 3 9 2 1 8
4 6 9 8 7 5 3 2 1
2 8 1 9 6 3 5 4 7
7 3 5 4 1 2 8 6 9
3 5 2 9 7 6 8 1 4
8 1 6 3 4 5 9 7 2
4 9 7 1 8 2 5 3 6
6 7 3 5 9 4 2 8 1
1 8 4 2 3 7 6 5 9
5 2 9 6 1 8 7 4 3
2 6 8 4 5 3 1 9 7
9 4 5 7 2 1 3 6 8
7 3 1 8 6 9 4 2 5
3 1 9 8 7 2 6 5 4
5 7 2 4 6 1 9 8 3
6 8 4 5 3 9 7 1 2
7 9 6 2 4 8 5 3 1
1 4 8 9 5 3 2 7 6
2 5 3 6 1 7 4 9 8
8 6 5 3 9 4 1 2 7
9 3 1 7 2 6 8 4 5
4 2 7 1 8 5 3 6 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 31. maí, 151. dag-
ur ársins 2011
Orð dagsins: Já, gæfa og náð fylgja
mér alla ævidaga mína, og í húsi
Drottins bý ég langa ævi. (Sálm. 23, 6.)
Víkverji fagnar tilkomu nýrrarmatvöruverslunar, Víðis, á
markaðinn og vonar að hún geti veitt
„hinum stóru“ verðuga samkeppni.
Það gæti reynst þrautinni þyngri að
ná sama verðlagi og lágverðsversl-
anir eins og Krónan, Bónus og Nettó
en fróðlegt verður að sjá Víði taka
þátt í verðkönnunum sem allra fyrst.
x x x
Kostur í Kópavogi boðaði á sínumtíma harða samkeppni við
stóru keðjurnar og bentu fyrstu
kannanir til þess að sú yrði raunin.
En nú hefur Kostur að undanförnu
neitað að taka þátt í verðkönnun
ASÍ og því hafa neytendur ekki sam-
anburðinn lengur frá óháðum aðila.
Hafa Kostsmenn lýst óánægju sinni
með vinnulag ASÍ og vöruval í þess-
um könnunum, þar hafi t.d. ekki ver-
ið tekið mið að fjölbreyttara úrvali í
Kosti. Vonandi munu Víðismenn
taka þátt í verðkönnunum, því þær
eru eitt besta aðhaldið sem verslanir
geta fengið, fyrir utan haukfrán
augu neytenda sem nú á tímum leita
uppi hagstæðasta verðið hverju
sinni.
x x x
Að öðru. Víkverji rak augun í at-hyglisverða auglýsingu í
Morgunblaðinu í gær frá nokkrum
tækni- og iðnfyrirtækjum í landinu,
er bar yfirskriftina „Hugaðu að
framtíðinni“. Þar var ungu fólki bent
á þá möguleika sem felast í tækni-
menntun, áhugaverð störf væru þar
í boði og mikilvægt að fjárfesta í
framtíðinni með frekari menntun.
Jákvætt framtak hjá þessum fyrir-
tækjum, sem voru 27 að tölu. Með
fylgdi undirskrift forstjóra þessara
fyrirtækja og merki þeirra. Af und-
irskriftinni að dæma voru sex konur
í þessum hópi þannig að auglýsingin
er enn frekari hvatning til ungra
kvenna að láta meira að sér kveða í
tæknigeiranum.
Annað kom óvart upp í huga Vík-
verja (sem annars er löghlýðinn og
samviskusamur borgari) við að sjá
auglýsinguna. Eins gott að engum
óprúttnum aðila detti í hug að nýta
sér þessar undirskriftir á leið sinni í
bankann! víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 jafnlyndur, 8 út-
limur, 9 beygur, 10 elska, 11
snótin, 13 líffærið, 15 gljái,
18 drepur, 21 álít, 22 súta,
23 vesælum, 24 móðga.
Lóðrétt | 2 gleður, 3 ávöxt-
urinn, 4 ekki þekkt, 5 kurr, 6
iðkum, 7 uppstökk, 12 grein-
ir, 14 fiskur, 15 nytsemi, 16
hetjudáð, 17 bala, 18 bærast,
19 auðlindin, 20 sterk.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 bauja, 4 strit, 7 regin, 8 árnum, 9 agn, 11 ilma, 13
hrum, 14 nemur, 15 vagn, 17 ólma, 20 sló, 22 lotan, 23 dugir, 24
Ránar, 25 lúnar.
Lóðrétt: 1 barði, 2 ungum, 3 asna, 4 skán, 5 rænir, 6 tímum, 10
gömul, 12 ann, 13 hró, 15 volar, 16 gátan, 18 lögun, 19 akrar, 20
snar, 21 ódæl.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
NL í Svíþjóð.
Norður
♠Á4
♥D8732
♦8543
♣ÁK
Vestur Austur
♠D762 ♠1085
♥104 ♥96
♦ÁK74 ♦DG102
♣743 ♣10652
Suður
♠KG93
♥ÁKG5
♦9
♣DG98
Suður spilar 6♥.
Það hefði einhvern tíma þótt saga
til næsta bæjar að 16.9 stig úr leik
dygði til sigurs á Norðurlandamóti.
En svo fór í þetta sinn: Norðmenn
unnu opna flokkinn á 169 stigum (10
leikir), Svíar urðu í öðru sæti með 168
stig og Íslendingar þriðju með 167.
Skrýtið mót.
Aðalsteinn Jörgensen og Bjarni
Hólmar Einarsson náðu góðri slemmu
í spilinu að ofan. Þetta var í fyrstu um-
ferð gegn Finnum. Aðalsteinn vakti á
„hálf-eðlilegu“ laufi í suður, Bjarni yf-
irfærði í hjarta með 1♦ (eins og nú er
alsiða hjá elítunni) og Aðalsteinn
stökk sterkt í 3♥. Bjarni sýndi
slemmuáhuga með „alvöruþrungnum
3G“, en sögnin var jafnframt spurning
um stuttlit hjá opnara. Aðalsteinn
sagði frá einspilinu í tígli og eftir það
var leiðin í slemmu greið.
31. maí 1735
Maður gekk upp á stærri
Lóndrangann á Snæfellsnesi, í
fyrsta sinn svo vitað sé, og
mældi hæð hans sem reyndist
vera 44 faðmar (um 75 metr-
ar). Þótti þetta glæfraför.
Drangurinn var ekki klifinn
aftur með vissu fyrr en 1938.
31. maí 1851
Jón Sigurðsson, þá 39 ára, var
kosinn forseti Kaupmanna-
hafnardeildar Hins íslenska
bókmenntafélags. Forsetatitil-
linn festist við Jón, enda
gegndi hann þessari stöðu til
dánardags. Hann var einnig
forseti Alþingis um skeið.
31. maí 1973
Richard Nixon Bandaríkja-
forseti og Georges Pompidou
Frakklandsforseti hittust í
Reykjavík, héldu fundi á Kjar-
valsstöðum og ræddu um
heimsmálin. Með í för voru
m.a. Henry Kissinger og Gisc-
ard D’Estaing.
31. maí 1991
Alþingi kom saman í fyrsta
sinn eftir að deildaskipting
var afnumin. Það hafði starfað
í tveimur málstofum, efri og
neðri deild, í 116 ár.
31. maí 2009
Dalai Lama, trúarleiðtogi Tíb-
eta, kom til landsins. Hann tók
þátt í friðarsamkomu í Hall-
grímskirkju og hélt fyrirlestur
í Laugardalshöll.
Þetta gerðist…
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
„Á afmælisdeginum mun ég bjóða fjölskyldunni til
morgunverðar en svo mun ég keyra af stað vestur
á Ísafjörð“ segir Erla Bragadóttir lífeindafræð-
ingur sem er ekki vön að halda upp á afmælið sitt
þó að hún geri það stundum. „Þetta er annað
skiptið sem ég fer að leysa af í Fjórðungssjúkra-
húsinu á Ísafirði. Ég fór síðastliðið haust en ferð-
aðist ekki neitt þá en nú langar mig að heimsækja
Hesteyri á Jökulfirði. Þar er rekin ferðaþjónusta á
sumrin í gamla Læknishúsinu en þangað er ekki
hægt að komast nema með bát frá Ísafirði yfir
sumartímann.“ Erla fór seint í nám og útskrifaðist
sem lífeindafræðingur frá Tækniskólanum árið 2003 og hefur starfað
á Blóðmeinafræðideild Landspítalans síðan.
„Rannsóknarstörf hafa heillað mig alla tíð og ég er mjög ánægð í
dag, þetta er mjög fjölbreytt og skemmtileg vinna. Áður var ég
heimavinnandi með syni mína fjóra, Sigurð Ívar, Jón Trausta, Sölva
Freyr og Sæþór Braga en ég kláraði stúdentspróf árið 1996. „Líf-
eindafræðingar vinna á almennum rannsóknardeildum spítalanna,
við erfðarrannsóknir og sýklarannsóknir þannig að starfið er mjög
víðtækt. mep@mbl.is
Erla Bragadóttir er 50 ára í dag
„Keyrir vestur á Ísafjörð“
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Flóðogfjara
31. maí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 5.29 3,3 11.34 0,7 17.47 3,6 3.26 23.26
Ísafjörður 1.37 0,5 7.30 1,7 13.39 0,4 19.48 2,0 2.46 24.15
Siglufjörður 3.34 0,2 9.56 1,1 15.41 0,3 21.59 1,2 2.27 24.00
Djúpivogur 2.39 1,8 8.40 0,6 15.03 2,1 21.18 0,6 2.45 23.05
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Einbeittu þér að því sem er mikilvægt
svo þú eyðir ekki allri orkunni í það sem virð-
ist brýnt. Veltu fyrir þér gæðum lífsins og
sjáðu hversu verðmæti hluta og verðgildi
þeirra eru afstæð.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Fólk er æst í að eiga við þig samskipti.
Hvort sem þú velur í aðstæðum dagsins, mun
það enda með hlátri. Gakktu til verks af opn-
um huga.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Gáfur þínar nýtast þér vel bæði í
starfi og einkalífi. Kynntu þér alla málavöxtu
áður en þú grípur til aðgerða.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Vertu á verði gagnvart viðsjálu fólki
og taktu ekki þátt í neinum skrípaleikjum að-
eins til að þóknast því. Hvernig áttu að fara
að því að bæta þig á þessu sviði? Það er
spurningin.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú þarft að leggja þig alla/n fram í sam-
skiptum þínum við samstarfsfólk þitt í dag.
Sjálfstætt val er alltaf best.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Stundum gerast hlutirnir þegar maður
á síst von á þeim. Reyndu að ná jarðtenging-
unni sem þú ert þekkt/ur fyrir.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þér finnst einhvernveginn allt rekast á
annars horn. Hún á nóg af dóti sem ekki væri
vitlaust að losa sig við.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú hefur tilhneigingu til þess að
hafa of miklar áhyggjur. Mikið er undir lausn
þess komið svo þú skalt leggja þig fram.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Stundum felst jákvæðnin í því að
vera sér meðvitandi um hugsanleg vandræði
svo maður geti sneitt hjá þeim. Að hefta
skapandi hvatir þínar rænir þig bara orku.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það er ekki auðvelt að sýna sam-
starfsmönnum þolinmæði í dag. Einföld hug-
mynd tekst á loft eins og eldflaug.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Reyndu að ná sjónar á einhverju
takmarki sem þú getur síðan stefnt hiklaust
að. Vondu fréttirnar eru þær að þú þarft að
viðurkenna gallana fyrst - að minnsta kosti
fyrir sjálfum þér.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú átt auðvelt með að fá aðra á þitt
band þessa dagana. Deildu ásetningi þínum
og fáðu aðstoð við að gera hann að veruleika.
Stjörnuspá
1. c4 Rf6 2. Rc3 e5 3. Rf3 Rc6 4. g3 Rd4 5.
Bg2 Rxf3+ 6. Bxf3 Bb4 7. Db3 Bc5 8. 0-0
0-0 9. Ra4 Be7 10. d4 exd4 11. Hd1 c5 12.
e3 dxe3 13. Bxe3 Dc7 14. Rc3 a6 15. g4 h6
16. h4 d6 17. g5 hxg5 18. hxg5 Rh7 19.
Rd5 Dd8 20. Rb6 Hb8 21. Bxc5 Rxg5 22.
Bg2 Bg4 23. Hd2 Re6 24. Ba3 Rf4 25. c5
Bh4 26. Rd5 Be6 27. De3 Bxd5 28. Dxf4
Bg5 29. Dxg5 Dxg5 30. Hxd5 Dg4 31.
cxd6 Hfd8 32. He1 Hbc8 33. He4 Hc1+
34. Kh2 Dg6 35. d7 Dh6+ 36. Kg3 Hg1 37.
He8+ Kh7 38. Hxd8 Dg6+ 39. Kf4 Df6+
40. Ke3 Dxd8 41. Be4+ g6 42. f3 Hg5
Staðan kom upp í blindskákarhluta
Amber-mótsins sem lauk fyrir nokkru í
Mónakó. Sigurvegari mótsins, Levon Ar-
onjan (2.808), hafði hvítt gegn Anish Giri
(2.690). 43. Be7! Db6+ 44. Hd4 Da5 45.
Bxg5 Dxg5+ 46. Kf2 Dd8 47. Bxb7 a5
48. a3 Kg7 49. b4 og hvítur innbyrti vinn-
inginn skömmu síðar.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.