Morgunblaðið - 31.05.2011, Blaðsíða 29
»Það að ganga eftir glergang-inum er mögnuð upplifun því
litir glersins koma gestum í sjón-
rænt ójafnvægi, rugla litaskynið.
AF LITUM
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Álaugardag var opnað í Árósum nýttlistaverk Ólafs Elíassonar sem hannkallar Your Rainbow Panorama. Það er
á efstu hæð ARoS-litstasafnins, tíundu hæð,
gríðarstór marglitur hringur. Verkið er um-
deilt þar í borg, það tók lengri tíma að byggja
það en ætlað var og kostaði meira, en öllum
finnst það glæsilegt þegar það er loks opið fyrir
almenning – nýtt kennileiti borgarinnar.
Your Rainbow Panorama er reist á þakiARoS, í þakgarði sem smíðaður var í
tengslum við verkið. Á þakinu komu menn síð-
an fyrir tólf stálsúlum og á þeim súlum stendur
hringlaga gangur sem er 52 metrar að þver-
máli, þrír metrar á breidd og þrír metrar á
hæð, klæddur með gleri í öllum regnbogans lit-
um. Verkið er til þess ætlað að skoða að utan og
innan, en gangvegurinn inni í því er 150 metrar
og gefur 360 gráðu sjónarhorn yfir borgina.
Ólafur hefur áður komið við sögu í ARoS,því fyrsta stóra sýning hans var í lista-
safninu þar 2004, skömmu eftir að listasafnið
var opnað. Það er merkileg bygging í sjálfu sér,
arkitektúrinn eftirminnilegur og djúp pæling á
bak við hann því það er byggt á Guðdómlegum
gleðileik Dante Alighieri þar sem birtan sem
berst niður um glugga á efstu hæðinni og niður
í stigarýmið í miðju húsinu er ljósið frá himna-
ríki. Og svo er kominn geislabaugur á efstu
hæðina.
Byggingu ARoS lauk 2007 og þá hófstsamkeppni um hvað ætti að vera á efstu
Gengið um geislabaug
Litbrigði Myndir af mismunandi sjónarhorni í listaverki Ólafs Elíassonar, Your Rainbow Panorama, á þaki ARoS í Árósum.
hæðinni og hugmynd Ólafs varð hlutskörpust.
Upphafleg kostnaðaráætlun var um milljarður
króna, en hann átti eftir að hækka talsvert,
ekki síst í ljósi þess að fljótlega kom í ljós að
húsið myndi ekki bera verkið – 150 tonn af stáli
og 60 tonn af gleri og svo einhver tonn af gest-
um (pláss er fyrir 290 á þakinu hverju sinni, en
ekki er fleiri en 150 hleypt inn í listaverkið í
einu).
Fyrir vikið þurfti að leggjast í fram-kvæmdir við að styrkja húsið til að það
gæti borið þungann og einnig þurfti að styrkja
það á þverveginn. Mér skilst að kostnaðurinn
sé nálægt hálfum öðrum milljarði í dag, en
verki er ekki alveg fullbúið. Getur nærri að
menn hafi rifist um það og rífast enn, í Árósum
kýta menn núna þannig um það að verkamenn-
irnir sem vinna við uppsetningu verksins séu
þýskir og undirbjóði danska (áróska) verka-
menn. (Ekki má svo gleyma því að viðurinn
sem keyptur var í pallinn á þakgarðinum var
víst ekki ætlaður til utandyrabrúks og því
þurfti að kaupa nýtt pallaefni).
Verk Ólafs er stórbrotin viðbót við annarsmjög forvitnilegt listasafn. Það að ganga
eftir glerganginum er mögnuð upplifun því litir
glersins koma gestum í sjónrænt ójafnvægi,
rugla litaskynið. Fyrst eftir að gestir koma upp
eru allir að tala um það sem þeir sjá út um gler-
ið, enda er framúrskarandi útsýni yfir borgina,
„sjáðu húsið okkar“ gellur við en síðan þagna
raddirnar og fólk fer líka að horfa á sjálft sig og
félaga sína, skoða hvernig allt fær annan lit og
þá ekki bara borgin heldur líka þeir sem horfa
á borgina.
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2011
Koluppselt var á fyrstu Eld-borgartónleikunum meðAshkenazy 4.5. og Kauf-mann 21.5. Því var ekki
að heilsa sl. laugardag þar sem sáust
þónokkur auð sæti, flest á svölum.
Að nánari upplýsingum ófengnum
hefði aðsóknin þó eflaust náð að stút-
fylla þriðjungi smærri sal Háskóla-
bíós. Þarf því vonandi ekki að hafa
áhyggjur af svörtustu nýtingarspám
eftir að nýjabrumsáran dofnar og
þegar stórstjörnur eru ekki í boði.
En óneitanlega verður forvitnilegt
að kanna að vetri liðnum hvort t.a.m.
fjölgun erlendra ferðamanna nægi til
að mæta þessu stóraukna sætafram-
boði, líkt og margir gera sér vonir
um.
Enn vegur þó spurningin um gæði
hljómburðar þyngst á metunum,
enda langt í fulla reynslu og viðbúið
að sitthvað komi í ljós þrátt fyrir full-
yrðingar um að allstaðar hljómi eins í
salnum. Alltjent kom mér verulega á
óvart munurinn á skásettu „stúku“-
sætunum meðfram hliðarveggjum
gólfhæðar, þar sem ég sat fyrir hlé
með vitin 45° frá hljómsveitinni, og
því sem heyrðist uppi á næstaftasta
bekk 3. [efstu] svala í seinni hálfleik,
þar sem öll sveitin blasti við án þess
að neinn skyggði á annan.
Þar, efst undir súð, heyrði maður í
fyrsta skipti á ævinni hljómsveit
allra landsmanna í innbyrðis fyrir-
myndarjafnvægi! Að vísu eitthvað á
kostnað nálægðar – en samt til ótví-
ræðs ágóða fyrir þær hljóðfæra-
deildir er mest vilja dofna í sjón-
hvarfi neðan af gólfi, þ.e. tréblásara
og víólur. Gilti sumsé tölvuhugtakið
WYSIWYG („What You See Is What
You Get“). Mætti því annaðhvort
fjölga leikpöllum eða lækka allt
hljómsveitarsviðið um helming – og
kannski raða strengjum meira í blæ-
væng svo hljómurinn beinist betur út
í sal. Svo maður vogi sér upp á sér-
fræðingadekk …
Tónleikarnir voru helgaðir síðasta
stórmeistara miðevrópskrar róman-
tíkur á 150. afmælisári Gustavs Ma-
hlers (1860-1911), og sat hljómsveitin
í afbrigði af svokallaðri „Vínarupp-
stillingu“ með 2. fiðlu fremst til
hægri. Tónlist Mahlers var lengi að
ná verðskuldaðri hylli, og varla fyrr
en með brautryðjandaupptökum
Leonards Bernsteins snemma á 7.
áratug. Vegur hennar hefur hins
vegar aukizt æ síðan, og veitti þjóð-
lega innblásið tónmál Mahlers í
frumlegri orkestrun afar kærkomna
viðmiðun fyrir Eldborgarsalinn.
Líkt og fyrri reynsla hefur sýnt
hyglaði ómvistin ekki sízt veikustu
og fíngerðustu atriðum – t.a.m. dýr-
legri „himnamúsík“ III. þáttar 4. sin-
fóníu (1900) þar sem dempaðar víól-
ur, selló og kontrabassar voru ein um
hituna í upphafi og niðurlagi, svo að-
eins sé tiltekinn einn af hápunktum
verksins. Fjölmargt fleira gladdi
eyrað svo sem horneinleikur Jósefs
Ognibene og sjaldheyrður fjórfaldur
flautuleikur unisono, svo fátt eitt sé
nefnt.
Fyrir öllu var þó hvað allt komst
undratært til skila þar efra – og jafn-
vel til vanza þegar örsmæstu sam-
leiksörður í viðkvæmustu innkomum
birtust sem stafir á bók. Engu að síð-
ur var sönn uplifun að stílhreinum
stjörnuleik SÍ undir hagvanri hand-
leiðslu Markusar Poschners, jafnt í
sinfóníunni sem í lögunum úr Des
Knaben Wunderhorn fyrir hlé. Með-
ferðin var fáguð fram í fingurgóma,
og þótt einsöngur sænska sópransins
í DKW og lokaþætti 4. sinfóníu hefði
mátt vera kraftmeiri á neðsta tón-
sviði, naut fersk og einlæg tjáningin
sín dável í kristalstærum lögum Ma-
hlers við þessa ástsælu „Vísnabók“
Þjóðverja.
Kristalstær síðrómantík
Morgunblaðið/Kristinn
Fáguð Sænska söngkonan Camilla Tilling; fersk og einlæg tjáningin naut
sín dável í kristalstærum lögum Mahlers.
Eldborg í Hörpu
Sinfóníutónleikarbbbbn
Mahler: Söngvar úr Des Knaben Wun-
derhorn; Sinfónía nr. 4. Camilla Tilling
sópran; Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Stjórnandi: Markus Poschner. Laugar-
daginn 28. maí kl. 17.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið)
Fös 3/6 kl. 20:00 Fös 10/6 kl. 20:00
Lau 4/6 kl. 20:00 Lau 11/6 kl. 20:00
Tveggja tíma hláturskast...með hléi
Húsmóðirin (Nýja sviðið)
Þri 31/5 kl. 20:00 18.k Lau 4/6 kl. 20:00 22.k Lau 11/6 kl. 20:00
Mið 1/6 kl. 20:00 19.k Þri 7/6 kl. 20:00 Mið 15/6 kl. 20:00
Fim 2/6 kl. 20:00 20.k Mið 8/6 kl. 20:00
Fös 3/6 kl. 20:00 21.k Fös 10/6 kl. 20:00
Nýr íslenskur gleðileikur eftir Vesturport. Ósóttar pantanir seldar daglega
Faust (Stóra svið)
Sun 5/6 kl. 20:00 Fim 9/6 kl. 20:00
Örfár aukasýningar í maí og júní
Klúbburinn (Litla sviðið)
Fös 3/6 kl. 20:00 frumsýn Sun 5/6 kl. 18:00 3.k Mið 8/6 kl. 20:00 5.k
Lau 4/6 kl. 20:00 2.k Þri 7/6 kl. 20:00 4.k
Á Listahátíð - Leikhús, dans og tónlist renna saman í eina órjúfanlega heild
Eldfærin (Stóra sviðið)
Sun 5/6 kl. 13:00
Sögustund með öllum töfrum leikhússins
NEI RÁÐHERRA! – HHHH IB, Mbl