Morgunblaðið - 01.06.2011, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 1. J Ú N Í 2 0 1 1
Stofnað 1913 127. tölublað 99. árgangur
EDDA FAGNAR
ÞRJÁTÍU ÁRA
TÓNLISTARAFMÆLI
SKÁKIN ER VINSÆL
MEÐAL KRAKKA
MIKIÐ VATN,
DJAMM OG DAÐUR
Í DANSSTUTTMYND
SUMARNÁMSKEIÐ 10 SÝND Í AUSTRI Í KVÖLD 32Í ANDA VÍNARSKÓLANNA 29
Húsleit var gerð í höfuðstöðvum Vátrygg-
ingafélags Íslands í gær vegna rannsóknar
sérstaks saksóknara á lánveitingum félags-
ins. Þá var hópur manna, innan við tugur, yf-
irheyrður, ýmist sem vitni eða grunaðir í
málinu. Stóðu yfirheyrslur fram á kvöld.
Sérstakur saksóknari rannsakar meðal
annars fjölda
lánveitinga VÍS
til ýmissa félaga
og aðila á ár-
unum 2007 til
2009. Fjármála-
eftirlitið kærði
málið til sak-
sóknara að lok-
inni eigin athug-
un. Fram hefur
komið að lánveit-
ingarnar voru
meðal annars til
eigenda og
starfsmanna
VÍS. Guðmundur
Örn Gunnarsson,
sem var forstjóri VÍS frá 2008, lét af störfum
í síðustu viku í kjölfar úttektar Fjármálaeft-
irlitsins.
Grunur er um brot á auðgunarbrotakafla
hegningarlaga við ráðstöfun á fjármunum
tryggingafélagsins og brot á lögum um vá-
tryggingastarfsemi. Ólafur Þór Hauksson,
sérstakur saksóknari, segir að um verulega
fjárhagslega hagsmuni sé að tefla, þeir hlaupi
á milljörðum, og fjölda tilvika.
Húsleitir voru gerðar í höfuðstöðvum VÍS
og á öðrum stað á höfuðborgarsvæðinu. Með-
al þeirra sem voru handteknir og yfirheyrðir
í gær eru, samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins, Lýður Guðmundsson, fyrrverandi
stjórnarformaður og einn af aðaleigendum
Exista, móðurfélags VÍS, Erlendur Hjalta-
son, fyrrverandi forstjóri Exista, sem einnig
sat í stjórn VÍS, og Guðmundur Örn Gunn-
arsson, fyrrverandi forstjóri fyrirtækisins.
Ólafur Þór Hauksson sagði að áfram yrði
unnið að rannsókninni í dag.
Leitað
á skrif-
stofu VÍS
Sérstakur saksóknari
rannsakar lánveitingar
Rannsókn
» Aðgerðir sérstaks
saksóknara hjá VÍS
eru opnun á rann-
sókn sem hefur verið
í undirbúningi í
nokkurn tíma.
» Um 30 starfs-
menn saksóknara og
lögreglumenn tóku
þátt í aðgerðinni.
Samkvæmt tillögum Lækna-
félagsins verða skilyrði þess að fá
að kaupa tóbak að viðkomandi
hafi sannanlega farið tvisvar í
meðferð við tóbaksfíkn og hann
vilji hætta en geti það ekki.
Þegar svo er komið getur
viðkomandi fengið uppá-
skrifaða ávísun til kaupa á
tóbaki sem einungis
yrði selt í apótekum.
Tóbaksfíklar verði að
leita til lækna, eða
annarra heilbrigðis-
starfsmanna, sem
hlotið hafi sérmenntun
í meðhöndlun fíkla.
Þeir einir verða til þess bærir að
geta ávísað á tóbak, samkvæmt til-
lögum Læknafélagsins.
„Tóbak er ávanabindandi fíkni-
efni og krabbameinsvaldandi og
hvers vegna á að vera að dreifa
slíkum efnum um allar
grundir í óvörðu um-
hverfi? Reynum að halda
þessum efnum frá sam-
félaginu,“ segir Birna
Jónsdóttir, formaður
Læknafélags Ís-
lands. Hún er
bjartsýn á nýtt
frumvarp um tób-
aksvarnir. »6
Einungis sérmenntaðir heilbrigðisstarfs-
menn skrifi upp á tóbak fyrir tóbaksfíkla
Stór hluti tekna viðskiptabank-
anna í fyrra er tilkominn vegna
uppfærslu á virði útlána og á sama
tíma hefur endurskipulagning út-
lána gengið hægt, m.a. vegna
óvissu um aðgerðir yfirvalda. Þetta
kemur fram í skýrslu Seðlabankans
um fjármálastöðugleikann.
Í skýrslunni kemur fram að sam-
anlagðar tekjur viðskiptabankanna
af virðishækkun lánasafna sinna í
fyrra námu 78 milljörðum. Einnig
segir að þar sem útlán voru færð til
þeirra frá gömlu bönkunum með
ríflegum afslætti þá hafi þeir enn
töluvert svigrúm til endur-
skipulagningar útlána. »16
Bankarnir hafa enn
töluvert svigrúm
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra telur ekki ástæðu til að
hverfa frá áformum um algjört bann
við áfengisauglýsingum þótt Svíar
séu á undanhaldi með sína stefnu í
þeim málum.
„Þótt við viljum lifa í góðri sátt við
alla sem eiga hlut að máli er þetta
spurning um val. Ætlarðu að hlusta á
foreldrasamtökin, sem fagna þessu
frumvarpi, og á þá sem halda fram
lýðheilsusjónarmiðum, eða ætlarðu
að hlusta á framleiðendur?“ spyr Ög-
mundur. „Þú verður að velja aðra
hvora stefnuna.“
Í Morgunblaðinu í gær var rætt við
sænskan áfengiseftirlitsmann sem
segir þarlenda málamiðlun virka og
auka samstarfsvilja áfengisframleið-
enda og innflytjenda.
„Svíar eru þarna að reyna að finna
hinn gullna meðalveg. Í mínum huga
liggur sá vegur á milli þess, annars
vegar, að banna áróðursauglýsingar
fyrir áfengi og, hins vegar, að heimila
eðlilega umræðu í fjölmiðlum, sem er
til upplýsingar og snertir allar hliðar
áfengisneyslu,“ segir hann. »8
Heldur sínu striki gegn
áfengisauglýsingum
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Enginn samhugur er í ríkisstjórn
um hvort Ísland eigi að styðja
áframhaldandi aðgerðir Atlants-
hafsbandalagsins í Líbíu. Þetta seg-
ir Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra. Eru ráðherrar og
þingmenn VG þeim mótfallnir en
Össur Skarphéðinsson og fulltrúar
Samfylkingar í utanríkismálanefnd
fylgjandi. Formaður Sjálfstæðis-
flokksins líkir VG við gólfmottu
Samfylkingarinnar.
Fastaráð Nató fundar í dag og
verður þar tekin ákvörðun um
hvort hernaðarbandalagið eigi að
halda áfram að fara með yfirstjórn
hernaðaraðgerða í Líbíu. Kynnti ut-
anríkisráðherra málið í ríkisstjórn
og utanríkismálanefnd í gær en
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er afstaða hans sú að hann
vilji ekki að Ísland standi í vegi fyrir
frekari aðgerðum.
Segist Ögmundur hafa þurft að
fara af ríkisstjórnarfundi í gær-
morgun en hann hafi náð að hlýða á
skýrslu utanríkisráðherra. „Ég
lýsti andstöðu minni við þessi áform
og ég hygg að samsvarandi afstaða
hafi komið fram hjá öðrum ráðherr-
um VG á fundinum,“ segir hann.
Þá létu fulltrúar flokksins í utan-
ríkismálanefnd bóka á fundi í gær-
kvöldi andstöðu sína við að Ísland
styddi áframhaldandi hernaðarað-
gerðir Nató og ætti þess í stað að
knýja á um vopnahlé og pólitíska
lausn á ástandinu þar.
„Stjórnlaust land“
„Það getur enginn tekið mark á
Vinstri-grænum sem þykjast hafa
hina og þessa stefnu í ýmsum mál-
um en gera ekkert af þeim að úr-
slitaatriði í ríkisstjórnarsamstarfi.
Þeir eru eins og gólfmottur sem
Samfylkingin gengur yfir og þurrk-
ar sér á þegar henni sýnist. Þetta er
prinsipplaus flokkur,“ segir Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins og fulltrúi í utanríkis-
málanefnd, um afstöðu Vinstri-
grænna.
Svo virðist sem í landinu sé rík-
isstjórn sem geti ekki komið sér
saman um nein alvörumál, að sögn
Bjarna. Þetta sé einn eitt dæmið
um að hún leiki tveimur skjöldum í
hverju málinu á fætur öðru. „Hún
getur ekki látið sem hún hafi tvær
stefnur í þessu máli. Það er orðið
tímabært að flokkarnir samræmi
stefnu sína í þessu og öðrum mál-
um. Þetta er stjórnlaust land,“ seg-
ir Bjarni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Að fundi loknum Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra bregður á leik með nefndarmönnum í utanríkismálanefnd eftir fundinn um Líbíu.
„VG eins og gólfmotta“
Óeining innan ríkisstjórnarinnar um stuðning við aðgerðir Nató í Líbíu
Ákvörðun tekin í fastaráði Nató í dag um áframhaldandi aðgerðir í landinu