Morgunblaðið - 01.06.2011, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2011
Efnt var til vorhátíðar á skólalóð Fellaskóla í
gærdag en um var að ræða síðasta skóladag. Eft-
ir hefðbundið skólahald frá 8.20-9.40 hófust leik-
irnir. Meðal annars sýndu nemendur leikþátt í
útileikhúsinu á skólalóðinni byggðan á ævintýr-
inu um Nýju fötin keisarans. Guðni Franzson sá
um tónlistarflutning og Sigríður Björk Baldurs-
dóttir leikstýrði.
Að leikritinu loknu tóku viðstaddir lagið, síðan
var farið í leiki og að endingu lauk vorhátíðinni
á því að allir fengu grillaðar pylsur eins og þeir
gátu í sig látið.
Efnt til vorhátíðar á skólalóð Fellaskóla
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Leikþáttur byggður á Nýju fötum keisarans
Hjalti Geir Erlendsson
hjaltigeir@mbl.is
Tóbaksneytendur þurfa að ávísa lyf-
seðli til að kaupa tóbak ef þings-
ályktunartillaga níu þingmanna úr
öllum flokkum nær fram að ganga.
Tillagan er byggð á vinnu Lækna-
félags Íslands og miðar aðallega að
því að koma í veg fyrir að börn byrji
að reykja. Þannig megi komast hjá
ótímabærum dauðsföllum vegna tób-
aksnotkunar í framtíðinni.
„Tóbak er ávanabindandi fíkniefni
og krabbameinsvaldandi og hvers
vegna á að vera að dreifa slíkum efn-
um um allar grundir í óvörðu um-
hverfi? Reynum að halda þessum
efnum frá samfélaginu,“ segir Birna
Jónsdóttir, formaður Læknafélags
Íslands. Hún er bjartsýn á að þings-
ályktunartillagan nái fram að ganga.
Samkvæmt tillögum Læknafélags-
ins verða skilyrði þess að fá að kaupa
tóbak að viðkomandi hafi sannanlega
farið tvisvar í meðferð við tóbaksfíkn
og hann vilji hætta en geti það ekki.
Tóbaksfíklar leiti til lækna
Þegar svo er komið getur viðkom-
andi fengið uppáskrifaða ávísun til
kaupa á tóbaki sem einungis yrði selt
í apótekum. Tóbaksfíklar verði að
leita til lækna, eða annarra heil-
brigðisstarfsmanna, sem hlotið hafi
sérmenntun í meðhöndlun fíkla.
Þeir einir verða þess bærir að geta
ávísað á tóbak samkvæmt tillögum
Læknafélagsins.
Álögur á tóbak myndu þó snar-
minnka því tóbaksfíklarnir fengju
efnin á kostnaðarverði í apótekunum
sem verða jafnframt einu sölustað-
irnir. Gert er ráð fyrir algjöru banni
við tóbakssölu annars staðar. Þar
með talið í fríhöfninni og í flugvélum.
Þegar mest lét á 20. öld reyktu um
40 prósent landsmanna. Nú eru
reykingamenn innan við 20 prósent.
Sala á neftóbaki hefur þó stóraukist
síðustu ár og er þingsályktunartil-
lögunni og tillögum Læknafélagsins
ekki síður beint gegn þeirri tegund
tóbaks.
Fíklum ekki vísað á glæpamenn
Birna segir að ströng tóbakslög-
gjöf hafi skilað góðum árangri víða
um heim. Hún nefnir Kaliforníuríki í
Bandaríkjunum sem dæmi þar sem
reykingar hafi snarminnkað í kjölfar
hertra reglna. Hún segist ekki hafa
miklar áhyggjur af því að sala á tób-
aki færist yfir á svarta markaðinn
því með fyrrgreindum tillögum
myndi samfélagið sjá fíklum fyrir
tóbakinu með löglegum leiðum svo
þeim yrði ekki vísað á glæpamenn.
Takmarkað aðgengi að tóbaki myndi
þá smám saman minnka sýnileika og
koma í veg fyrir nýliðun meðal tób-
aksfíkla.
Vilji til að hætta er það sem þarf
Læknafélagið vill að tóbak verði gert lyfseðilsskylt og aðeins ávísað á fíkla sem sannanlega hafi reynt
að hætta og farið í meðferð Aðeins sérmenntaðir læknar í meðhöndlun fíkla geti ávísað á tóbak
Reykingar Takmarka á aðgengi að
sígarettum og vindlum.
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
„Við höfum fulla trú á að það náist
saman í þessum viðræðum og ekki
komi til truflana á flugi, enda hafa
flugvirkjum verið boðnir samningar
á svipuðum nótum og samið hefur
verið um á almennum markaði,“ seg-
ir Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair.
Sem kunnugt er hafa flugvirkjar
hjá félaginu boðað fjögurra klukku-
stunda vinnustöðvanir á morgnana
8.-10. júní næstkomandi og tveggja
daga verkfall ef það dugir ekki til.
Verkfallið myndi þá hefjast á mið-
nætti 20. júní. Nú er ferðamannatím-
inn að hefjast fyrir alvöru og verk-
fallsvopnið því beittast um þessar
mundir. Hafa flugvirkjar sagst von-
ast til að þetta glæði viðræðurnar
lífi. Vinnustöðvun frá klukkan sex til
tíu á morgnana kemur til með að
seinka Evrópuflugi félagsins umtals-
vert, ef af verður. Samkvæmt heim-
ildum ber enn nokkuð mikið á milli,
en á undanförnum árum hafa vinnu-
deilur í flugrekstri þó sjaldnast leitt
til raskana á flugi.
Fimm ára kjarasamningur
Flugumferðarstjórar undirrituðu
kjarasamning sinn við Isavia á sjötta
tímanum í gærmorgun. Að sögn Ott-
ós G. Eiríkssonar, formanns Félags
flugumferðarstjóra, er samningur-
inn til fimm ára. Hann verður kynnt-
ur félagsmönnum í þessari viku og
borinn undir atkvæði þeirra eftir
helgina.
Hafa fulla trú á að samn-
ingar náist við flugvirkja
Samið við flug-
umferðarstjóra
Morgunblaðið/Þorkell
Eins og smurt Mikilvægt er að flug-
virkjar sinni skoðunum eftir flug.
Fjórir karlmenn
voru í gær úr-
skurðaðir í
áframhaldandi
gæsluvarðhald
til 28. júní að
kröfu lögregl-
unnar á höfuð-
borgarsvæðinu
en þeir eru grun-
aðir um aðild að
innflutningi á
tæplega 60 kg af fíkniefninu khat.
Mennirnir, sem voru handteknir
á gistiheimili í Reykjavík um miðj-
an mánuðinn, eru allir erlendir rík-
isborgarar. Tveir þeirra eru um
fertugt, einn um fimmtugt og sá
fjórði er hálfsextugur.
Rannsókn málsins hefur gengið
vel og ekki er talið útilokað að dóm-
ur falli í málinu áður en fram-
lengdur gæsluvarðhaldsúrskurður
rennur út.
Áfram í haldi vegna
innflutnings á khat
Fíkniefnið khat.
Karlmaður í mikilli fíkniefnaneyslu
og án atvinnu hefur verið hnepptur í
gæsluvarðhald til 22. júní nk. Hann á
að baki samfelldan brotaferil, að-
allega þjófnaði og húsbrot, sem
færst hafa í vöxt á síðustu dögum.
Maðurinn á að baki sakarferil sem
nær aftur til ársins 1990. Á þeim
tíma hefur hann hlotið 31 refsidóm
sem tengist fíkniefnaneyslu hans.
Síðast hlaut hann 12 mánaða fang-
elsisdóm í desember 2008 vegna til-
raunar til ráns og árásar á opinber-
an starfsmann.
Síbrotamaður í
gæsluvarðhald
„Ef Alþingi felur apótekum að
selja tóbak þá að sjálfsögðu
gerum við það,“ segir Sigur-
björn Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Lyfju. Tóbak hef-
ur ekki verið til sölu í apótekum
hingað til en ýmiss konar nikó-
tínlyf hafa fengist þar lengi.
Sigurbjörn segir söluna á nikó-
tínvörum töluverða og að marg-
ir nýti sér slíkt til að hætta.
Tóbakið
í apótekin
SELJA MIKIÐ NIKÓTÍN
IRVING
...svo allt gangi smurt
Verslun Tunguhálsi 10
Mán-fim. 8:00 - 17:30
Föstud. 8:00 - 17:00
www.kemi.is
Opið:
SMUROLÍUR