Morgunblaðið - 01.06.2011, Page 11
Morgunblaðið/KristinnGóður hópur Stefán, fyrir miðju, með (f.v) Hrund, Veroniku, Nansy, Guðmundi, Tinnu Sif, Leifi, Vigni Vatnari, Heimi, Birki, Ásdísi, Donicu og Elínu.
húsum og það eru hæg heimatökin
þar sem Skákakademían er í mið-
bænum.“
Stelpurnar sækja í sig veðrið
Á námskeiðunum er mikið lagt
upp úr taflmennsku og þjálfun og
einvalalið er í kennarahópnum. Stef-
án er sjálfur meðal kennara en hann
hefur verið að kenna hjá Skákaka-
demíunni frá stofnun hennar árið
2008. Auk hans eru Hjörvar Steinn
Grétarsson landsliðsmaður, Róbert
Lagerman, Björn Ívar Karlsson,
Bragi Þorfinnsson landsliðsmaður
og Guðmundur Kjartansson meðal
kennaranna. Stefán tók við sem
framkvæmdastjóri Skákakademí-
unnar í mars síðastliðnum og hann
segir skákina klárlega vera í mikilli
sókn. „Hún er orðin vinsæl meðal
krakka og það er orðið töff að vera í
skák. Skákin hefur eflst bæði með
tilkomu Skákakademíunnar og fleiri
aðila sem eru að kenna skák. Næsta
vetur mun Skákakademían kenna
skák í nánast öllum skólum Reykja-
víkur. Við höfum verið að kenna í
nokkrum skólum hingað til en und-
anfarið hef ég verið að funda með
skólastjórnendum og það er nánast
frágengið að skák verði kennd á
stundatöflu í næstum öllum þriðju
bekkjum borgarinnar á næsta skóla-
ári. Því fyrr því betra er að byrja að
kynna og kenna skák. Við höfum líka
verið að kenna elsta árgangi í leik-
skólum, fimm ára börnum, en þau
eru móttækilegust fyrir þessu þegar
þau eru 7-8 ára. Strákar eru vissu-
lega í meirihluta í skákinni en stelp-
urnar eru í mikilli sókn, það var til
dæmis heill stelpuhópur í fyrra hjá
okkur á sumarnámskeiðinu. Við er-
um með úrvalshópa fyrir mjög efni-
lega krakka en ég get stoltur sagt
frá því að meðal krakkanna hjá okk-
ar eru algjörir snillingar.“
Skáklistaverk, blindskák og
fleira skemmtilegt
Stefán segir starfið í Skákaka-
demíunni vera margþætt. Í
tengslum við Reykjavík Open-
skákmótið sem var í mars í Ráðhúsi
Reykjavíkur voru til dæmis ýmsir
skáktengdir viðburðir. „Við sýndum
þar skáklistaverk sem börnin í leik-
skólanum Njálsborg höfðu búið til,
en Róbert Lagerman hefur stjórnað
því verkefni og þess má geta að
Skákakademían og Njálsborg voru
tilnefnd til foreldraverðlauna Heim-
ilis og skóla fyrir þetta starf.
Í tengslum við mótið kom líka
úkraínskur stórmeistari og tefldi
blindandi við okkar helstu krakka og
nokkra þjóðkunna einstaklinga, við
höfum verið með skák-pöbbkvis, og
um daginn fórum við með skákdeild
Fjölnis í skáksumarbúðir í Vatna-
skógi. Við erum semsagt bæði með
áherslu á kennslu og að halda hefð-
bundin skákmót, eins og til dæmis
Íslandsmót barnaskólasveita í Vetr-
argarðinum í Smáralind í fyrra. Við
vekjum líka athygli á skákinni með
hliðarviðburðum eins og skák-
listasýningunni, blindskákfjöltefli og
fleiri skemmtilegum viðburðum.
Þetta snýst ekki bara um kennslu,
heldur viljum við vekja athygli á
skákinni og sýna hvað þetta er lif-
andi og skemmtilegt sport.“
Vanda sig Þau Guðmundur Kristinn Lee (lengst t.v), Tinna Sif og Heimir Páll voru djúpt hugsi við taflið.
Allir byrja með hreint
borð í upphafi hverrar
skákar og ráða hvað
þeir gera. Krakkarnir
læra að taka frum-
kvæðið og vera sjálf-
stæðir.
Námskeiðin hefjast 6. júní og
skráning fer fram á www.skak.is.
Upplýsingar á
www.skakakademia.is.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2011
of Health sem segja að þráðlaus bún-
aður hafi litla eða enga hættu í för
með sér fyrir heilsu almennings.
Rannsóknir hafa ekki sýnt aukna
tíðni krabbameins frá því farsímar
komust í almenna notkun og lítil
sönnunargögn um skaðleg áhrif hafa
komið fram.
Prófessor Paul Elliot, sem stjórnar
alþjóðlegri rannsókn á langtíma-
áhrifum farsímanotkunar á heilsu
fólks, segir að þörf sé á að gera nán-
ari rannsóknir á áhrifum þráðlausra
tækja á börn. Svo ráðleggingin þang-
að til það sé gert sé að forðast of-
notkun.
Reuters
Áhyggjur eru uppi um
það að þráðlaus
tækni geti haft slæm
áhrif á heilsu barna.
Við fögnum
10 ára afmæli
Bjóðum í dag upp á kaffi og ilmandi
bakkelsi í tilefni 10 ára afmælis okkar.
Komdu við og kíktu á nýjustu tæknina
í heyrnartækjum og fáðu að prófa
einstakan tæknibúnað fyrir heyrnarskerta.
Öll sala á rafhlöðum í dag rennur óskipt til
KRAFTS, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem
greinst hefur með krabbamein. Jafnframt mun
ákveðin upphæð af hverju seldu heyrnartæki í
sumar renna sem styrkur til KRAFTS.