Morgunblaðið - 01.06.2011, Blaðsíða 12
Þuríður Backman segir Íslend-
inga þurfa að læra af reynslu
Finna í umræðu um tilfærslu
kostnaðar í tengslum við niður-
skurð í þjálfun og virkri endur-
hæfingu. „Til að ná sparnaði
þarf ekki í öllum tilfellum að
skerða þjónustu. Við þurfum að
nota tækifærið í kreppunni og
hugsa upp á nýtt.“ Þuríður
nefndi dæmi um mikilvægi þess
að koma á kerfisbreytingum og
tók sem dæmi samtengingu á
lyfjagagnagrunni.
Um langtímastefnu í heil-
brigðiskerfinu sagði Guðlaugur
Þór að „til þess að allir njóti
heilbrigðisþjónustu á heims-
mælikvarða þarf að forgangs-
hraða og fólk þarf að hafa
þrek í það“. Hann telur mjög
varhugavert að ákvarða
upphæðir til heilbrigðis-
mála sem fast hlutfall
af vergri landsfram-
leiðslu og að flatur
niðurskurður sé
slæmur kostur.
Þrek þarf
til að for-
gangsraða
LANGTÍMASTEFNA
Í HEILBRIGÐISMÁLUM
í d
við
Gríptu tækifærið
og græjaðu þig
upp fyrir bústaðinn.
Magnaðir miðvikudagar!
4GB minnislykill
fylgir öllum
netlyklaáskriftum
í dag
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2011
FRÉTTASKÝRING
María Elísabet Pallé
mep@mbl.is
„Í minni tíð sem heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra skipaði ég
nefnd til þess að gera tillögur um
réttlátari, einfaldari og gagnsærri
þátttöku einstaklinga í kostnaði
vegna lyfja og annarrar heilbrigðis-
þjónustu,“ sagði Guðlaugur Þór
Þórðarson á þingflokkafundi SÍBS í
gær.
Fulltrúar allra þingflokka svöruðu
spurningum sem fulltrúar SÍBS, Sig-
mar B. Haukson frá Astma- og of-
næmisfélaginu, Birgir Gunnarsson,
forstjóri Reykjalundar, og Ásgeir
Þór Árnason, framkvæmdastjóri
Hjartaheilla, höfðu sent til þing-
manna. Ein spurninganna var hvort
hagræðing í heilbrigðiskerfinu ætti
að koma niður á lífsgæðum sjúklinga
og hvort núgildandi reglugerðir um
skerðingu og takmarkanir á greiðslu-
þátttöku sjúklinga yrðu teknar til
endurskoðunar.
Þak á hámarksgreiðslur
Siv Friðleifsdóttir, þingmaður
Framsóknarflokksins, sagði mikilla
tíðinda að vænta við endurskoðun á
lyfjakostnaði og hugmyndir væru
uppi um að allir sjúklingar færu í
sama pott.
Sérstakt þak yrði sett á há-
marksgreiðslur, sem byggðist á
réttlætiskerfi að danskri fyrir-
mynd. „Framsóknarmenn styðja
að farið verði yfir reglur um
greiðsluþátttöku á lyfjum með
heilsuhagfræðileg rök að leiðar-
ljósi.“
Jónína Rós Guðmundsdóttir,
þingmaður Samfylkingar, benti á
að frumvarp væri nú í nefnd þar
sem tekið væri á leiðum til einföld-
unar á kerfinu og verið væri að skoða
greiðsludreifingu vegna lyfja.
Þuríður Backman, þingmaður
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, sagði að markmiðið með
frumvarpinu væri að koma á nýju
greiðsluþátttökukerfi að danskri fyr-
irmynd þar sem greiðsluþátttaka
sjúkratrygginga væri óháð sjúk-
dómsgreiningu.
Reykjalundur á þriðja
ári í niðurskurði
Forsvarsmenn stjórnarflokkanna
voru beðnir að svara til um áform rík-
isstjórnarinnar varðandi sparnað í
heilbrigðisþjónustu á árunum 2012
og 2013 og þá sérstaklega í því ljósi
að Reykjalundur er á þriðja ári í
niðurskurði. Búið væri að skera niður
um tæplega 300 milljónir og fækka
um þrjátíu stöðugildi sem næmi um
16% mannafla. Í upphafi hefði verið
boðaður niðurskurður í fjárlögum í
fimm ár sem þýddi að enn væru tvö
ár eftir.
Jónína Rós Guðmundsdóttir við-
urkenndi að óviðunandi væri að taka
ákvarðanir um fjárlög í desember á
ári hverju og að mikill áhugi væri hjá
mörgum þingmönnum á að breyta
verkferlum í fjárlagagerð. „Það er
verið að skoða hvaða áhrif kjara-
samningar hafa,“ sagði Jónína.
Þuríður Backman tók í sama
streng og sagði að unnið væri að
breytingum á öllum verkferlum í fjár-
lagakerfinu. „Verkferlar um tilfærslu
á tímasetningu á framkvæmd fjár-
laga eru í vinnslu,“ sagði hún en tók
fram að engu væri hægt að lofa í
þessum efnum.
Þvinga þarf
fjárlagavinnuna framar
Þingmenn stjórnarandstöðu tóku
þátt í umræðunni. Guðlaugur Þór
sagði mikilvægt að vanda fjárlaga-
gerð og skilgreina þyrfti fyrst og
fremst þá þjónustu sem ætti að veita.
Síðan þyrfti að vanda til samninga við
stofnanir. Guðlaugur sagði að hlut-
verk Sjúkratrygginga Íslands hefði
ekki verið eins og lagt hefði verið upp
með í upphafi og vísaði í reglugerð
um hlutverk Sjúkratrygginga Ís-
lands.
Siv Friðleifsdóttir sagði að
hægt hefði verið að hagræða
án skerðingar á þjónustu.
„Mjög erfitt er að hagræða
þegar fjárlögin koma svona
seint fram þar sem 70% af
útgjöldum eru laun.
Þvinga þarf fjárlaga-
vinnuna framar og
taka ákvörðun um
að sameina stofn-
anir,“ sagði Siv.
Nýtt kerfi og þak á greiðslur
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Fulltrúar Þuríður Backman, Margrét Tryggvadóttir, Siv Friðleifsdóttir, Jónína Rós
Guðmundsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson svöruðu spurningum á fundinum í gær.
Nefnd með fulltrúum allra flokka var lögð niður í núverandi ríkisstjórn Taka Norðurlöndin sem
fyrirmyndir Líta þarf til heilsuhagfræðinnar segja þingmenn Á hagræðing að bitna á lífsgæðum?
Kostnaður sjúklinga
» Mikilla tíðinda að vænta um
endurskoðun á lyfjakostnaði
en frumvarp er í nefnd.
» Hugmyndir um mögulega
greiðsludreifingu á stórum
upphæðum vegna lyfja.
» Markmiðið er að setja þak á
lyfjakostnað landsmanna.
» Lyfjapakkningar eru háðar
alþjóðlegum stöðlum og erfitt
er að breyta þeim í sparnaðar-
skyni.
» Erfitt er að hagræða þegar
fjárlög eru afgreidd svo seint
sem raun ber vitni.
Hjalti Geir Erlendsson
hjaltigeir@mbl.is
Heimild til að fullnusta refsingu með
ólaunaðri samfélagsþjónustu verður
rýmkuð nái frumvarp innanrík-
isráðherra um breytingu á lögum
um fullnustu refsinga fram að
ganga. Samkvæmt frumvarpinu
munu einstaklingar sem hlotið hafa
allt að 9 mánaða fangelsisdóm átt
möguleika á að fullnusta refsinguna
með samfélagsþjónustu. Núgildandi
lög miða við allt að 6 mánaða dóm
svo samfélagsþjónusta komi til
greina.
metur hvort einstaklingar fái að af-
plána dóm með samfélagsþjónustu.
Ströngu einstaklingsbundnu mati er
fylgt og því eiga þeir sem eiga að
baki brot sem er svívirðilegt að al-
menningsáliti ekki kost á samfélags-
þjónustu. Undir slík brot flokkast
meðal annars kynferðisbrot gegn
börnum, gróf ofbeldisbrot og stór-
felldur fíkniefnainnflutningur. Sam-
norræn rannsókn sem sýnir að end-
urkomutíðni þeirra sem
hófu afplánun með samfélags-
þjónustu hér á landi er 16% en
þeirra sem ljúka afplánun fangels-
isrefsinga 27%.
Allsherjarnefnd afgreiddi frum-
varpið síðastliðinn mánudag en upp-
haflega var gert ráð fyrir 12 mán-
uðum í stað 9. Frumvarpið gerir
einnig ráð fyrir fullnustu refsinga
með rafrænu eftirliti líkt og
Morgunblaðið hefur áður greint frá.
Birgir Ármannsson, fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í allsherjarnefnd,
segir að nefndarmenn hafi verið
nokkuð samstiga í málinu.
„Í breytingunum felst útvíkkun á
reglum um samfélagsþjónustu.
Verði frumvarpið að lögum munu
ívið fleiri eiga möguleika á að sækja
um samfélagsþjónustu sem er já-
kvætt að mínu mati.“ Birgir segir
rökin að baki breytingunni annars
vegar praktísk því fangelsispláss séu
af skornum skammti og hins vegar
henti samfélagsþjónusta oft betur en
hefðbundin öryggisfangelsi. Með því
að nota samfélagsþjónustu og raf-
rænt eftirlit í auknum mæli losnar
um ákveðinn fjölda fangarýma sem
þá er hægt að nota til að stytta þá
biðlista sem nú eru fyrir hendi. Birg-
ir segir þó afar brýnt að fara í fyrir-
hugaðar framkvæmdir á sviði fang-
elsismála sem allra fyrst.
Breytingarnar nú hjálpi til en leysi
ekki vandann. Fangelsismálastofnun
Fleiri eigi kost á samfélagsþjónustu
Frumvarp innanríkisráðherra gerir ráð fyrir útvíkkun á reglum um samfélagsþjónustu Miðað
verður við allt að 9 mánaða dóma í stað 6 „Hjálpar til en leysir ekki vandann,“ segir þingmaður
Morgunblaðið/Júlíus
Fangelsisvist Margir klefar á fang-
elsinu á Litla-Hrauni eru tvísetnir.
Guðlaugur Þór
Þórðarson