Morgunblaðið - 01.06.2011, Síða 28
28 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
Í KVÖLD KYNNUM VIÐ
NÝJUNG, HRYLLINGSMYND
FYRIR FÓLK MEÐ ÁRÁTTUR OG
ÞRÁHYGGJUR
OOPS!
FYRIRGEFÐU
AÐ ÉG MISSTI
SERVÍETTU-
SAFNIÐ ÞITT
EN SÁ
HRYLLINGUR
ÞJÓFUR!
HRÓLFUR? JÁ? EKKI
HAFA NEINAR
ÁHYGGJUR EDDI
MINN
ÞAÐ ER
ÖRUGGLEGA
EINHVER TIL Í AÐ
VÖKVA BLÓMIN Á
MEÐAN ÞÚ VERÐUR
Í BURTU
ÉG ER SVO
SVANGUR. HVAÐ
VAR ÞETTA SEM ÞÚ
HENTIR Í RUSLIÐ?
VARSTU
AÐ HENDA
MAT?!
MIG LANGAÐI
BARA AÐ
BRAGÐBÆTA
HANA
FYRIRGEFÐU HVAÐ ALLT ER
Í DRASLI, ÉG ÁTTI BARA
EKKI VON Á GESTUM
ÉG ER KOMINN MEÐ
NIÐURSTÖÐURNAR ÚR SVEFNPRÓFINU
ÞAÐ ER EKKERT
ALVARLEGT SEM VELDUR
HROTUNUM MÍNUM
ÞAÐ ERU
GÓÐAR
FRÉTTIR
EN
HVAÐ GERUM
VIÐ NÚNA? ZZNAV!
LÖGREGLAN GETUR EKKI KOMIÐ Í
VEG FYRIR AÐ VIÐ KOMUMST Í
BÍLINN OKKAR
ÉG GET EKKI OPNAÐ,
HÚNNINN ER ALLUR
KLÍSTRAÐUR?!
ÞETTA
VAR
PYLSA
ÞAÐ
VAR
ÆTLUNIN!
Týndir skór
Síðastliðinn fimmtu-
dag, 26. maí, týndust
hvítir Vagabond-
spariskór (flatbotna) í
strætisvagni númer 3
á leiðinni úr Selja-
hverfi í Mjódd eða
gætu hafa týnst í
Mjóddinni.
Finnandi vinsam-
lega hafi samband við
Álfdísi í síma 567-4991
eða Huldu í síma 847-
2611.
Það er hundur í
mér - og það ekki
að ástæðulausu
Oft er það svo að ef maður lætur
skoðanir sínar í ljós og kemur við
kaunin á fólki er eins og við manninn
mælt að maður fær gusurnar yfir sig
eins og: „Þú ert svo neikvæður að
það er ekki hægt að vera nálægt
þér“ eða eitthvað í þessa veruna.
Ég bý í Keflavík í rólegu hverfi. Á
góðviðrisdögum um helgar sest ég út
á pall og læt líða úr mér erfiði vik-
unnar um leið og ég sleiki sólina og
næ mér í örlitla brúnku. Nær hefði
kannski verið að segja: „Ég bjó í ró-
legu hverfi“ því nú
tröllríður sú tíska hús-
um að eiga hund og nú
er svo komið að oftar
en ekki hrökklast mað-
ur inn eftir skamma
stund á pallinum. Ekki
þarf annað að gerast
en að einn þeirra reki
upp bofs þá tekur öll
hjörðin undir. Það má
kannski segja að mað-
ur eigi að þakka fyrir
að þetta eru meira og
minna kjölturakkar
eða mjög stórir hundar
og virðist sem hvorugt
kynið kunni að span-
góla – guði sé lof.
En svona í alvöru talað þá er þessi
hundaeign landsmanna í þéttbýli að
verða ein allsherjar plága sem erfitt
verður að vinda ofan af. Ég er mikill
dýravinur og vildi helst hafa hund og
kött og íslenskar hænur í mínum
ranni, en ég tel að það sé bara ekki í
boði.
Kær kveðja, ágætu landsmenn –
eða voff voff.
Keflvíkingur.
Ást er…
… fyrsti yndislegi
kossinn
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Árskógar 4 | Handavinna/smíði/
útskurður kl. 9. Heilsugæsla kl. 10/
11.30. Opinn púttvöllur.
Dalbraut 27 | Opin handavinnustofa kl.
8-16.
Eftirlaunadeild símamanna | Sum-
arferð eftirlaunadeildarinar verður 13.-
17. ágúst. 1.d. Ekið um Sprengisand til
Goðafoss, gist á Stöng í Mývatnssveit.
2.d. Mývatn, Dettifoss, Hljóðaklettar, Ás-
byrgi, Húsavík, Akureyri (2 nætur). 3.d.
Hringferð um Eyjafjarðarsveit, könn-
unarferð um Akureyri. 4.d. Svarf-
aðardalur, Dalvík, Ólafsfjörður, Héðins-
fjörður, Siglufjörður, Skagafjörður, gist á
Bakkaflöt í Tungusveit. 5.d. Ekið til
Reykjavíkur. Nánari uppl. gefur Ragn-
hildur í síma 551-1137 eða 898-4437.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Gönguhrólfar ganga frá Reynisvatni kl.
10.
Félagsheimilið Boðinn | Skemmtun í
Boðanum, Ásta og vinkonur spila á
hljóðfæri og stjórna söng.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin, botsía kl. 10.30, fé-
lagsvist kl. 13 og viðtalstími FEBK milli
kl. 15 og 16.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Lokað
vegna sumarleyfa frá 1. júní, opnað aftur
4. júlí.
Félagsmiðstöðin Bólstaðarhlíð | Opin
handavinnustofa, leiðbeinandi á staðn-
um, brids/vist, hárgreiðsla, fótsnyrting,
18 holu púttvöllur á staðnum.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vinnustofur opnar, brids kl. 13.
Félagsstarf eldri borgara í Mos-
fellsbæ | Mánudaginn 6. júní verður far-
ið um Kjósina með leiðsögn. Lagt verður
af stað kl. 13 frá Hlaðhömrum. Skráning
í síma 586-8014 kl. 13-16.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
opnar kl. 9-16. Vatnsleikfimi í Breiðholts-
laug kl. 9.20. Spilasalur opinn frá há-
degi. Uppl. á staðnum og í s. 575-7720.
Háteigskirkja - starf eldri borgara |
Kaffi og rabb kl. 10. Fyrirbænaguðsþjón-
usta kl. 11. Brids kl. 13, kaffi og samvera.
Hraunbær 105 | Opin handavinna kl. 9-
14. Helga fótafræðingur er á staðnum,
tímapantanir í síma 698-4938.
Hraunsel | Vorsýning á handverki fé-
lagsmanna opnuð í dag kl. 13. Lokað á
uppstigningardag.
Hvassaleiti 56-58 | Félagsmiðstöðin er
opin kl. 8-16 virka daga. Hádegisverður
kl. 11.30 og miðdagskaffi kl. 14.30. Fóta-
aðgerðir, hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl.
8.50. Listsýningin opin alla virka daga
kl. 9-16 til og með 3. júní. Uppl. 411-
2790.
Norðurbrún 1 | Útskurður, opin vinnu-
stofa kl. 9-12. Félagsvist kl. 14-16.
Vesturgata 7 | Sund, spænska kl. 10.
Myndmennt kl. 13. Verslunarferð í Bónus
kl. 12.10. Tréskurður kl. 13.
Fréttablaðið sagði frá því ámánudag að vegna eldgossins
væru hátt í 20 heimalningar á einum
bæ í grennd við Kirkjubæjar-
klaustur. Gefa þurfi lömbunum 4-5
sinnum á dag og endar fréttin þann-
ig: „Bændur þurfa því að metta sjö-
tíu til níutíu munna á dag.“ Davíð
Hjálmar Haraldsson velti fyrir sér
þessum reikningskúnstum:
Öskuhríðin ógurlega dimm
ekki dregur hót úr mjólkurþambi;
svanga munna fjóra eða fimm
Fréttablaðið taldi á hverju lambi.
Sigrún Haraldsdóttir vekur máls
á því, að það sé óskemmtilegt hjá
mörgum á þessu harðindavori:
Vont er heimsins þras og þref
og þraut er lengi dregst,
en verst er þó í veröld ef
vorsins yndi bregst.
Nú bregður nýrra við. Kerlingin á
Skólavörðuholtinu er komin með
fésbókarsíðu og segir í færslu 21.
maí: „Eins og ævinlega las ég Vísna-
hornið í Morgunblaðinu í morgun,
sá að karlskepnan af Laugaveginum
er enn einu sinni að gefa í skyn að
hann hafi verið að hitta mig. Hann
er alveg óþolandi:
Eitt það veit og sannfærð sver
við sálu mína bága,
að Laugavegskarlinn leiði er
landsins mesta plága.“
Eitthvað er kerlingunni uppsigað
við veikara kynið, því hún lætur
karl í Skuggahverfi einnig heyra
það, sem hún kannast við frá fornu
fari:
Slompaður og slefandi,
slæpingi og þrjótur,
mikið ertu mannfjandi
merkilega ljótur.
Loks skrifar hún: „Mér finnst
aumingjalegt að tala um Skóla-
vörðuholt, eðlilegra er að kalla
þetta Skólavörðufjall, alla vega eins
og veðráttan er þar núna. Sem er,
by the way, varla boðleg kvenlega
búnum konum. Ja, svei.
Nepjan ertir náragjá,
nuggar varir salli,
skelfilega er skítkalt á
Skólavörðufjalli.“
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af munnum og kerlingu