Morgunblaðið - 01.06.2011, Síða 36
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 152. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Svona fór Katrín að því að ...
2. Lýst eftir 15 ára stúlku
3. Risi í Reykjavík
4. Milljónatjón á 30 sekúndum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Weird Girls-verkefni Kitty von
Sometime heldur áfram. Nú hafa
stúlkurnar gert myndband við lagið
Love the Earth með hljómsveitinni
Imogen Heap en það er tekið upp í
Þórsmörk. Hljómsveitin lét Kitty hafa
tvö lög svo að myndbandið er í tveim-
ur pörtum og verður birt í júní.
Uppstrílaðar stúlkur
í Þórsmörkinni
Systurnar knáu
í Pascal Pinon og
framsækna rokk-
hljómsveitin Eld-
berg, sem kemur
nú sterk til baka
eftir breytta
mannaskipan,
spila á fjórðu
„rafmagnslausu“
tónleikum Norðurpólsins. Tónleikarn-
ir eru haldnir annað kvöld, 2. júní,
klukkan 20:30 og kostar 1.500 krón-
ur við hurð.
Rafmagnslaust
á Norðurpólnum
Skjaldborg, hátíð íslenskra heim-
ildarmynda, verður haldin í fimmta
sinn á Patreksfirði um
hvítasunnuhelgina, 10.-
12. júní. Þá verða yfir
tuttugu nýjar íslenskar
heimildarmyndir
frumsýndar á hátíð-
inni og verður heið-
ursgestur í ár hinn
eini sanni Ómar
Ragnarsson. Nán-
ari upplýsingar á
skaldborg.com.
Skjaldborg í fimmta
sinn á Patreksfirði
Á fimmtudag (uppstigningardagur) Suðvestlæg átt, 3-10 m/s.
Skúrir V-lands og með norðurströndinni. Hiti 5 til 12 stig.
Á föstudag Vestan 5-13, hvassast norðvestantil. Skúrir vestantil
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 5-13, hvassast á annesjum
norðanlands og rigning, en lægir og styttir upp sunnan- og vest-
anlands. Hiti 5 til 15 stig, svalast á Vestfjörðum.
VEÐUR
„Þetta var mjög erfitt val og
meira að segja vaknaði ég
síðastliðna nótt og hugsaði
hvort við værum með alla
þá sem ættu að vera í hópn-
um. Það er leiðinlegt að
þurfa að skilja góða leik-
menn eftir heima en við því
er ekkert að gera,“ sagði
Tómas Ingi Tómasson, að-
stoðarþjálfari U21 árs
landsliðsins þegar keppnis-
liðið fyrir EM í Danmörku
var kynnt í gær. »3
Vaknaði og hugs-
aði um valið
Íslandsmeistarar Vals tylltu sér á
topp Pepsi-deildar kvenna í knatt-
spyrnu í gærkvöld með því að leggja
Stjörnuna að velli, 2:1, í toppslag
deildarinnar á Vodafone-vellinum á
Hlíðarenda. Valur hefur eins stigs
forskot á Stjörnuna og ÍBV, sem á leik
til góða. Afturelding vann öruggan
sigur á Grindavík, 3:0, og Þróttur og
KR skildu jöfn, 1:1. »2
Íslandsmeistarar Vals
tylltu sér í toppsætið
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Janus Arn Guðmundsson
janus@mbl.is
Elsti barnaskóli landsins, Barnaskól-
inn á Eyrarbakka og Stokkseyri,
sem stofnaður var árið 1852 er um
þessar mundir að ljúka sínum starfs-
vetri með stofnun fríríkis sem ákveð-
ið hefur verið að nefna Barnabæ.
Verkefnið stendur yfir í þrjá daga og
lýkur í dag með mikilli hátíð. Þá
verður foreldrum og Sunnlendingum
öllum boðið að kaupa Besóa, gjald-
miðil Barnabæjar, fyrir íslenskar
krónur. Þá verður gestum og gang-
andi gert kleift að kaupa vörur og
þjónustu sem fyrirtæki nemendanna
hafa framleitt.
„Tilgangur verkefnisins er að
kenna nemendum á samfélagið, auk
þess að veita þeim yfirgripsmikla
þekkingu á lífinu sjálfu. Það sem
gerir þessa hugmynd óvenjulega í
skólastarfi er tvímælalaust þetta
tækifæri sem nemendur fá, að kynn-
ast þversniði þjóðfélagsins. Þeir
kynnast ferli verslunar allt frá hug-
mynd út í hönnun, framleiðslu,
markaðssetningu og yfir í sölu. Á
sama tíma fá þeir að kynnast neyslu-
þjóðfélaginu af eigin raun. Með því
að gefa krökkunum tækifæri til að
byggja upp hagkerfi frá grunni erum
við um leið að dýpka skilning nem-
enda frá 1.-10. bekkjar á þjóðfélag-
inu svo um munar,“ segir Ragnar
Gestsson, kennari og verkefnastjóri
fríríkisins Barnabæjar. Ragnar segir
hugmyndina að danskri fyrirmynd.
Eitt foreldrið, Málfríður Garð-
arsdóttir, kom auga á verkefnið þeg-
ar hún var búsett í Danmörku.
„Framkvæmd verkefnisins er á þá
leið að nemendur hjálpa til við mótun
og stofnun fyrirtækjanna, því næst
er gefið út fréttabréf þar sem birtar
eru atvinnuauglýsingar og sækja
nemendur svo sjálfir um þau störf
sem í boði eru. Störfin eru mjög fjöl-
breytt og geta nemendur sótt um í
blaðamennska, bankageiranum,
snyrtibransanum, viðgerðabrans-
anum og fleira,“ segir Ragnar og
bætir við að markmiðið sé að allir
geti fundið eitthvað við sitt hæfi.
Mikill áhugi nemenda
á verkefninu
Ekki skortir áhugann hjá nem-
endum skólans. „Þetta er það
skemmtilegasta sem ég hef gert og
hefur kennt mér ótrúlega mikið í
föndri,“ segir yngsti viðmælandi
blaðamanns, Erika Ósk Júlíusdóttir.
Vilhelm Freyr Steindórsson, nem-
andi í 3. bekk skólans, segist staðráð-
inn í að verða bóndi og blaðamaður,
en hann fékk starf á fjölmiðlinum
sem starfræktur er af nemendum
skólans.
„Nemendur sleppa pásum og vilja
lengja viðverutíma sinn í skólanum.
Það að fá tækifæri til að sýna krökk-
unum hvernig skattar, hagkerfi, pen-
ingar, vinna og hið daglega amstur
virkar í raunveruleikanum er frá-
bært. Grunnskóli er undirbúnings-
stofnun fyrir lífið og ætlunin með
verkefninu er að gera þau hæfari til
að skilja og vera virkir þátttakendur
í lýðræðislegu samfélagi,“ segir
Ragnar og vill um leið hvetja aðra
grunnskóla til að takast á við verk-
efni sem þessi.
Nýtt fríríki rís á Suðurlandi
Veitir nemend-
um yfirgripsmikla
þekkingu á lífinu
Morgunblaðið/Ernir
BES Leikarar Hér má sjá leiklistarhópinn æfa sig fyrir stóra daginn, þegar foreldrum og Sunnlendingum er boðið.
Blaðamenn Vilhelm Freyr Steindórsson og Valdimar Sveinsson að störfum.
Dirk Nowitzki og samherjar hans í
Dallas eru taldir eiga á brattann að
sækja í úrslitaeinvíginu
við Miami Heat um
NBA-titilinn í
körfuknattleik
karla. Þó ekki
væri nema fyrir
það að leik-
menn Miami
eiga heima-
leikjaréttinn í
rimmunni. Gunn-
ar Valgeirsson fer
yfir stöðu mála
nú þegar keppnin
er að hefjast á milli
þessara liða. »4
Heimaleikjarétturinn
skiptir miklu máli