Morgunblaðið - 02.06.2011, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2011
Laugavegi 53, s. 552 1555
TÍSKUVAL
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 11-16
20% afsláttur af
öllum vörum
Laugavegi 47, sími 552 9122 Laugavegi 47, sími 551 7575
M
b
l1
26
70
25
föstudag og langan laugardag
Sumar-
sprengja
25% afsláttur
af buxum, pólóbolum
og hálferma skyrtum
Verð á mann m.v. tvo í 2m klefa með fólksbíl kr. 45.000.
Verð á mann m.v. tvo í 2m klefa, fólksbíl og 6 nætur í 2m
herbergi með morgunmat í Hótel Færeyum kr. 99.000.
Verð m.v. 2 fullorðna og 2 börn í 4m klefa með bíl
kr. 31.000 á mann. Fólksbíll má vera allt að 4.9 m. á lengd.
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
AUSTFAR - Fjarðargötu 8 ·710 Seyðisfirði · Sími: 472 1111
NORRÆNA FERÐASKRIFSTOFAN - Stangarhyl 1 · 110 Reykjavik · Sími: 570 8600
WWW.SMYRIL-LINE.IS
SÉRTILBOÐ
TIL DANMERKUR
Smyril Line býður nú frábært tilboð með
Norrænu til Danmerkur þann 8. júní eða
16. júní og heim 28. júní
94.750
45.000
Verð pr. mann m.v. tvo í tveggja manna klefa ásamt fólksbíl
Samt kr. 189.500
Fullt verð m.v. tvo er kr. 336.200. Þú sparar kr. 146.700
Verð m.v. tvo fullorðna og tvö börn í fjögurra manna klefa
inn án glugga ásamt fólksbíl kr. 229.900
Fullt verð kr. 374.300. Þú sparar kr.144.400
Fólksbíll má vera allt að 4.9 m. á lengd.
Takmarkaðpláss
SÉRTILBOÐ TIL FÆREYJA
Brottför 21. júli og heim 27. júlí
Sumarjakki
með hettu
Yfirhafnir, bolir og peysur í miklu úrvali.
Nýjar vörur
Toppvö
rur
toppþj
ónusta
Sumarjakkar
verð frá
19.900
Opið
mán - föst 10-18
laugardaga 10-16
Mörkinni 6 - Sími 568 5518
Dagana 2.-6. júní nk. fara Hálanda-
leikarnir fram á Patreksfirði. Leik-
arnir kallast á ensku „Iceland High-
land Games“. Leikarnir verða
haldnir í hjarta bæjarins á knatt-
spyrnuvellinum. Leikarnir verða
hluti hátíðarhalda sjómannadags-
ins sem árlega er haldinn hátíðleg-
ur á Patreksfirði. Það er stjórn sjó-
mannadagsráðs sem sér um að
halda leikana.
Mörgum þekktum erlendum
keppendum hefur verið boðið á
leikana og er áætlað að 18 þeirra
taki þátt í leikunum, 6 karlar, 6
konur og 6 öldungar. Með þessum
útlendingum keppa svo tveir bestu
Íslendingarnir í hverjum flokki og
verður sigurvegarinn krýndur Ís-
landsmeistari. Fulltrúar íslenskra
og erlendra sjónvarpsstöðva verða
á leikunum og með keppnisfólkinu.
Hálandaleikarnir
á Patreksfirði
Sundlaugar Kópavogs verða opnar
lengur frá og með 1. júní og verður
opið mánudaga til föstudaga frá kl.
6:30-22:00 og um helgar frá kl.
8:00-20:00. Með þessu er verið að
koma til móts við óskir bæjarbúa en
þjónustutíminn var styttur í fyrra.
Í Kópavogi eru tvær sundlaugar,
Sundlaug Kópavogs við Borgar-
holtsbraut og Sundlaugin Versölum
við Versali.
Þjónustutíminn gildir til loka
september en þá verður endur-
skoðað hvort frekari breytingar
verða gerðar á honum.
Opið lengur í sund-
laugum í Kópavogi
Ísland trónir
á toppi ár-
legrar friðar-
vísitölu,
Global Peace
Index, á
þessu ári en
hún er gerð
af Institute
for Econo-
mics and
Peace.
Í skýrsl-
unni segir að íslenskt samfélag ein-
kennist af samstöðu og öryggi, þar
sem innbyrðis átök og glæpatíðni
er lág. Sérstök athygli er vakin á
því að fjöldi fanga er með því
lægsta sem þekkist.
Ísland endurvinnur nú efsta sæt-
ið sem það hélt árið 2008 en féll svo
niður í fjórða sæti. Í öðru sæti í ár
er Nýja-Sjáland, Japan í þriðja,
Danmörk í fjórða og Tékkland í
fimmta.
Ísland friðsælasta
land í heimi
STUTT
„Þetta er óútfært og meðan svo er
eigum við að hverfa frá þessu,“
segir Gísli Marteinn Baldursson,
borgarfulltrúi sjálfstæðismanna. Á
fundi umhverfis- og samgönguráðs
í vikunni lögðu sjálfstæðismenn í
borginni fram bókun um að horfið
yrði frá 15 metra reglunni svoköll-
uðu í sorphirðumálum Reykvík-
inga.
„Ástæðan fyrir því að við lögð-
um þetta fram er sú að það er
ekki búið að sýna fram á að það sé
hægt að gera þetta með nógu
sanngjörnum hætti. Meðan svo er
er vont að vera að halda allri
borginni í óvissu með það hvort
þetta taki gildi og hvenær. Þá er
best að gefa það út að menn séu
ekki tilbúnir til að fara af stað
með þessa gjaldtöku og þeir setj-
ist aftur við teikniborðið og reyni
að finna aðrar leiðir til að láta
sorphirðuna standa undir sér á
sanngjarnan hátt,“ segir Gísli
Marteinn. Hann greiddi atkvæði
með því upphaflega að leitað yrði
leiða til að útfæra gjaldtöku fyrir
sorphirðuna.
„Hugmyndafræðin á bak við
regluna er skiljanleg og það er já-
kvætt að leitað skuli leiða til að
sorphirðan standi undir sér á
sanngjarnan hátt. Það er eðlilegt
að menn hafi val og því meiri
þjónustu sem þeir fá því meira
þurfi þeir að borga. En þessi leið
sem stóð til að fara gengur ein-
faldlega ekki upp miðað við núver-
andi aðstæður, það þarf að fara
betur yfir þetta í sátt við borg-
arbúa.“
Gísli Marteinn segir aðstæður
út um alla borg sýna það glöggt
að núverandi útfærsla sé verulega
ósanngjörn gagnvart fjölda
manns. „Ég get nefnt sem dæmi
að á Melunum er nýbúið að af-
greiða deiliskipulag þar sem sér-
staklega er kveðið á um að sorpí-
lát skuli vera fyrir aftan hús.
Hugmyndin gekk út á það að
menn hefðu það val að borga, að
rúlla tunnunum fram á sorphirðu-
deginum eða færa skýlin var-
anlega sem er það sem borgin vill
helst en getur ekki verið að biðja
um það á sama tíma og hún skipu-
leggur að hafa það fyrir aftan hús.
Það er betra að meirihlutinn horf-
ist í augu við það að 15 metra
reglan er ekki tilbúin,“ segir Gísli
Marteinn.
ingveldur@mbl.is
Vilja hverfa frá
15 metra reglunni
Vont að halda borgarbúum í óvissu
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Sorphirða Sjálfstæðismenn eru
ósáttir við útfærslu skrefagjaldsins.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt tvítugan karlmann, Eggert
Kára Kristjánsson, í tveggja ára
fangelsi fyrir að nauðga konu, sem
ekki gat spornað gegn verknaðin-
um vegna ölvunar og fíkniefna-
áhrifa. Hann var einnig dæmdur til
að greiða konunni eina milljón
króna í bætur.
Konan kærði manninn fyrir
nauðgun í maí í fyrra. Maðurinn
viðurkenndi að hafa haft mök við
konuna en sagði að það hefði verið
með samþykki hennar.
Í niðurstöðu dómsins segir að
konan hafi verið einörð í framburði
sínum fyrir dóminum og frásögn
hennar afar trúverðug. Hún hafi
gefið greinargóða lýsingu á atvik-
um og framburður hennar verið í
öllum meginatriðum í samræmi við
skýrslu hennar hjá lögreglu og lýs-
ingu við réttarlæknisfræðilega
skoðun á Neyðarmóttöku. Þá fái
frásögn konunnar stoð í læknis-
fræðilegum gögnum en hún var
með áverka á kynfærum og enda-
þarmi.
Á hinn bóginn segir dómurinn,
að framburður mannsins hafi verið
óljós og misvísandi. Var því niður-
staða dómsins að taka frásögn kon-
unnar til grundvallar en hafna frá-
sögn mannsins.
Fram kemur í dómnum, að kon-
an hafi í kjölfarið leitað aðstoðar
sérfræðings í fíknifræðum til að
vinna bug á vímuefnafíkn og til að
takast á við afleiðingar þess brots
sem hún varð fyrir.
Tvítugur í tveggja ára
fangelsi fyrir nauðgun
Ferðamálastofa segir að 37.212
ferðamenn hafi farið frá landinu
um Leifsstöð í maí sl. Um er að
ræða 31,5% fjölgun ferðamanna frá
því í maí á síðasta ári og er þetta
einn af fjölmennustu maímánuðum
frá upphafi talningar.
Fjöldi ferðamanna hafi þrívegis
áður verið um og yfir 35 þúsund í
maí eða árin 2007, 2008 og 2009.
Mikil fjölgun ferða-
manna í maímánuði