Morgunblaðið - 02.06.2011, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2011
Það var snemma
árið 1984 þegar leiðir okkar lágu
fyrst saman. Ég get því miður
ekki sagt að ég muni eftir því þar
sem þú varst bara 8 mánaða og
ég aðeins eldri. En því sem átti
eftir að verða seinna meir verður
ekki lýst með orðum hérna. Þetta
var byrjunin á vinskap sem átti
eftir að verða það verðmætasta
sem nokkur maður getur hugsað
sér. Að skrifa minningargrein um
vin sem var engum öðrum líkur
og sá besti vinur sem hugsast
getur er erfiðara en nokkur orð
fá lýst. Þegar ég settist niður og
fór að reyna að hugsa þetta til
enda, var ekki annað hægt en að
rifja upp allar þær óteljandi
minningar sem við eigum ég og
þú. Það eru náttúrlega ekki
margir sem geta státað af sama
vinskap og trausti og við gerðum,
enda vorum við miklu meira en
bara góðir vinir og félagar. Þú ert
búinn að vera vinur minn lengur
en nokkur annar og það var sama
hvað bjátaði á, þú varst alltaf til
staðar. Það var svo auðvelt að
tala við þig, þú sýndir manni allt-
af svo mikinn skilning og varst
með stórt hjarta.
Ég hreinlega veit ekki hvað ég
á að gera núna þegar þú ert far-
inn. Það er svo margt sem er að
Eggert Örn
Helgason
✝ Eggert ÖrnHelgason var
fæddur í Reykjavík
13. maí 1983. Hann
varð bráðkvaddur
á heimili sínu 6.
maí 2011.
Eggert Örn var
jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju
16. maí 2011.
ske í mínu lífi og ég
var farinn að hlakka
svo til að segja þér
frá því. Ég sendi þér
skilaboð um daginn
og sagðist ætla að
hringja í þig fljót-
lega … ég var of
seinn. Eftir 4 ára
fjarveru í öðru landi
var ég á leiðinni
heim aftur og hugs-
aði mikið til þín. Var
alltaf á leiðinni að hringja í þig …
það var hreinlega bara svo gam-
an að tala við þig í símann. Þú
ljómaðir allur loksins þegar ég
hringdi og við gátum spjallað
tímunum saman í símann. En
þegar ég hugsa til baka þá langar
mig bara að hugsa um allar þær
frábæru minningar sem við átt-
um. Reyndar þegar ég pæli í því
þá er hreinlega ekki til sú slæma
minning sem ég á um þig. Við rif-
umst aldrei né þrættum, fórum
aldrei í fýlu hvor út í annan né
vorum ósammála um nokkurn
skapaðan hlut heldur einkenndist
vinátta okkar af kærleik og vænt-
umþykju, með góðu húmorísku
ívafi inn á milli.
Ég gæti haldið áfram í allan
dag að skrifa um minningar okk-
ar, þær spanna jú 27 ár. En
veistu, mig langar bara að halda
þeim út af fyrir mig og okkar vini.
Ég á eftir að sakna þín meira en
orð fá lýst og þú ert með stóran
stað í mínu hjarta, kæri vinur. Ég
mun bíða eftir að sá tími komi að
við verðum sameinaðir á ný þar
sem ég fæ að taka utan um þig
aftur. Megi Guð geyma þig, kæri
vinur.
Þinn vinur,
Andri Daði.
Á bernskuheimili mínu var
frá miðri 20. öld fjölskyldu-
mynd ofan á stofuskáp. Yngri
bræður sátu í sófa milli föður
og stjúpu og að baki stóðu tveir
eldri bræður, en á milli þeirra
systir. Hún vakti fyrst athygli
þeirra, sem sáu myndina. Upp-
stillingin var listrænt meistara-
verk ljósmyndara; hann skynj-
aði bjartan svip og útgeislun
stúlkunnar í ramma bræðr-
anna. Myndin reyndist hins
vegar í sex átatugi lýsa stöðu
Hólmfríður
Björnsdóttir
✝ HólmfríðurBjörnsdóttir
fæddist í Grænu-
borg í Reykjavík
16. mars 1934. Hún
andaðist á Landa-
kotsspítala 16. maí
2011.
Útför Hólm-
fríðar fór fram frá
Grafarvogskirkju
25. maí 2011.
stúlkunnar í þess-
um hópi og þeirra
sem honum síðar
tengdust; trygg-
lyndis hennar og
gjöfullar ræktar-
semi nutu bræður
og börn í vanda,
föður- og móður-
systir, vinkonur
og tengdafólk
barna hennar,
venslafólk nær og
fjær og ekki síður alls
ókunnugir. Hún var öllum
næmari. „Það þarf eitthvað að
gera fyrir hann“ en von bráðar
sagði hún að það þyrfti „ekki
að hafa áhyggjur af honum.
Hann sér um sig“. Slíkur var
skilningur hennar á hjálpinni.
Hughreystandi gamansemi
hennar stóðst enginn.
„Ég sem hélt hún gæti ekki
dáið,“ sagði náfrændi við mig
og mér varð ljóst að hún lifir.
Helgi.
Ég kveð þig, hugann heillar
minning blíð
hjartans þakkir fyrir liðna tíð.
Lifðu sæl á ljóssins friðarströnd
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(GJ)
Þegar leiðir skiljast leitar hug-
urinn heim til æskuáranna.
Þú varst mér alltaf svo kær og
góð við mig þegar þú varst hjá
foreldrum mínum á Aðalgötunni
og þú kenndir mér að lesa.
Guðrún Guðbjörg
Guðmundsdóttir
✝ Guðrún Guð-björg Guð-
mundsdóttir fædd-
ist á Suðureyri við
Súgandafjörð 16.
ágúst 1918. Hún
lést hinn 1. maí
2011 á Heilbrigð-
isstofnun Vest-
fjarða, Ísafirði.
Útför Guðrúnar
fór fram frá Suður-
eyrarkirkju 14. maí
2011.
Nú ert þú horfin,
bærinn þinn á
Laugum líka farinn
og ferðum mínum
heim til Súganda-
fjarðar fækkar líka.
En alltaf minnist ég
þín þegar ég horfi
yfir að Laugum frá
bústaðnum okkar í
Selárdal.
Ég þakka þér all-
ar kveðjurnar á
liðnum árum, þær tengdu okkur
saman.
Styðji guð og gleðji
góða förunauta,
sem að saman áttu
sorg og gleði löngum.
Mun ei mást né gleymast
minning góðrar konu.
Fylgja þúsund þakkir
þessum liðnu árum.
(ÞS)
Samúðarkveðjur til barna
þinna.
Sigrún Sturludóttir.
Ég kynntist Steina fljótlega eft-
ir að ég fór að fara á Færeyska
sjómannaheimilið í Brautarholti,
en Steini var maðurinn hennar
Myrtley sem er frá Færeyjum.
Færeyska sjómannaheimilið er
byggt upp af sjálfboðaliðum og
var Steini með í þeim hópi. Myrt-
ley, kona hans, er ein af konunum í
kvinnuringnum sem sá um fjáröfl-
un fyrir byggingu sjómannaheim-
ilisins, m.a. með árlegri kaffisölu
og myndarlegum basar. Eigin-
menn kvennanna tóku mikinn þátt
í starfi kvinnuringsins og studdu
þær dyggilega og var Steini einn
af þeim. Síðar var ég í forstöðu
fyrir Sjómannaheimilið og þá
kynntist ég trúfesti Steina og
konu hans, en þau studdu vel við
allt samkomuhald á Sjómanna-
heimilinu og alltaf var gott að leita
til þeirra.
Þorsteinn Helgi
Helgason
✝ ÞorsteinnHelgi Helgason
fæddist á Ísafirði
hinn 14. júlí 1925.
Hann lést á hjúkr-
unarheimilinu
Skógarbæ hinn 19.
maí 2011.
Útför Þorsteins
fór fram frá Breið-
holtskirkju 30. júní
2011.
Þegar ég kynnist
Steina er hann orð-
inn fullorðinn maður
og hefur lent í veik-
indum. Hann var
ekki margmáll mað-
ur, en hafði notalega
nærveru. Steini
hafði verið sjómaður
á strandferðaskipum
hér áður fyrr og þeg-
ar talið barst að
þeim tíma lifnaði yfir
Steina og hann sagði margar
skemmtilegar sögur af samskipt-
um sínum við erlenda ferðamenn
sem tóku sér far með strandferða-
skipunum og sumir þeirra komu
aftur og aftur. Af sögunum að
dæma hefur Steini átt góðar sam-
ræður við þessa erlendu ferða-
menn.
Ég fékk einnig tækifæri til að
fara með Steina og nokkrum vin-
um í ferð til Ísafjarðar en það voru
æskustöðvar Steina. Þetta var
yndisleg ferð sem við áttum sam-
an í vikutíma og veðrið lék við okk-
ur. Það var greinilegt að Steina
þótti gaman að koma á æskuslóðir
og sagði okkur sögur frá fyrri
tíma um menn og málefni.
Ég vil að lokum þakka Steina
samfylgdina og bið Drottin að
blessa fjölskyldu hans.
Eirný Ásgeirsdóttir.
Elsku Óla frænka er dáin,
hún var hvíldinni fegin. Hún var
85 ára og hefur verið með alz-
heimer í mörg ár. Óla var mjög
skemmtileg og góð og við vorum
mjög góðar vinkonur en hún var
jafnframt móðursystir mín. Ég
var hjá henni í sveit á Krossi, ég
lærði mikið af henni, hún var
mjög þrifin, hún var alltaf með
tuskuna á lofti. Ég þurfti dag-
lega að þvo eggin frá hænunum
og þurfti sko að pússa þau og
fékk ég þau í hausinn ef þau
voru ekki nógu vel þvegin hjá
mér. Ekki get ég nú ekki sagt
að það hafi verið skemmtilegt
að þrífa helvítis eggin, en við
höfum hlegið mikið að þessu í
Ólöf Ragnhildur
Guðmundsdóttir
✝ Ólöf Ragnhild-ur Guðmunds-
dóttir fæddist á
Streiti í Breiðdal
31. ágúst 1926. Hún
lést á Hrafnistu í
Reykjavík föstu-
daginn 20. maí sl.
Útför Ólafar fór
fram frá Árbæj-
arkirkju mánudag-
inn 30. maí 2011.
seinni tíð. Það var
alltaf fjör í kring-
um Ólu, það gust-
aði af henni hvar
sem hún var.
Óla fór á Hrafn-
istu þegar hún
greindist með alz-
heimer, og harmon-
ikkan fylgdi auðvit-
að með því Óla var
mjög músíkölsk og
þar spilaði hún fyr-
ir vistmenn. Þegar hún var
komin með harmónikkuna í
hendurnar þá mundi hún og
söng alla texta, þó sjúkdómur-
inn væri farinn að setja meira
mark sitt á hana og hún farin að
gleyma. Elsku Óla mín, ég veit
þér líður vel núna og þú ert búin
að hitta Gústa þinn, mömmu
mína og allt þitt fólk. Ég veit að
þú kíkir á okkur af og til. Ég vil
votta börnum hennar og fjöl-
skyldum þeirra samúð mína.
Elsku Óla, nú er komið að
kveðjustund við hittumst þegar
minn tími er kominn, gæskan.
Minning þín er perla.
Þín frænka,
Soffía Ragnars.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
ÞORSTEINN SIGURÐSSON,
Hjarðarhaga 26,
lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn
27. maí.
Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni föstu-
daginn 3. júní kl. 13.00.
Þórhildur Ragna Karlsdóttir,
Karl Þorsteinsson, Margrét Geirrún Kristjánsdóttir,
Guðbjörg Þorsteinsdóttir, Halldór Bjarnason,
Baldur Þorsteinsson, Guðbjörg Linda Udengaard,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÞÓRHILDUR HALLDÓRSDÓTTIR
kennari,
Skeiðavogi 125,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítala Landakoti
mánudaginn 30. maí.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju miðvikudaginn 8. júní
kl. 15.00.
Börn, tengdabörn og fjölskyldur þeirra.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
AÐALSTEINN SIGFÚS ÁRELÍUSSON
frá Geldingsá á Svalbarðsströnd,
lést laugardaginn 28. maí.
Útför hans fer fram frá Svalbarðskirkju
mánudaginn 6. júní kl. 13.30.
Lára Kristín Sigfúsdóttir, Hallgrímur Haraldsson,
Hafsteinn Sigfússon, Eygló Kristjánsdóttir,
Halldór Heiðberg Sigfússon, María Guðrún Jónsdóttir,
Sigrún Heiðdís Sigfúsdóttir, Valbjörn Óskar Þorsteinsson,
Sólveig Sigfúsdóttir, Reynir Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
KONRÁÐ PÁLL ÓLAFSSON,
Asparási 2,
Garðabæ,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
miðvikudaginn 25. maí.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju föstudaginn 3. júní kl. 15.00.
Ingigerður St. Óskarsdóttir,
Guðjón Árni Konráðsson, Teresita Ragmat,
Jóna Ósk Konráðsdóttir, August Håkansson,
Guðmundur Kr. Konráðsson, Krittiya Huadchai,
barnabörn og langafabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát föður okkar,
tengdaföður og afa,
JÓNS G. GUÐMUNDSSONAR,
Austurströnd 8.
Helga Jónsdóttir, Birgir Thoroddsen,
Einar S. Jónsson
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir til ykkar allra sem auðsýnduð
okkur samúð og vinarhug við fráfall og útför
eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
ERLINGS EDWALD
lyfjafræðings.
Jóhanna Edwald,
Tryggvi Edwald, Erla Erlingsdóttir,
Sigrún Edwald, Sigurður Egill Guttormsson,
Ari Edwald, Þórunn Pálsdóttir,
Þórdís Edwald, Ármann H. Þorvaldsson
og afabörnin.