Morgunblaðið - 07.06.2011, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2011
Stór mótorhjólaaksturskeppni,
„Off-Road Challenge“, verður hald-
in á Klaustri á sunnudag nk.
Keppnin hefst kl. 12 og er aðgang-
ur ókeypis.
Keppnin verður með sama sniði
og undanfarin níu ár. Rúmlega 400
keppendur munu leiða saman vél-
fáka sína í sex klukkustunda þol-
akstri innan landamerkja Ásgarðs.
Keppt er í mörgum mismunandi
flokkum. Vinsælastur er tvímenn-
ingsflokkur, þar sem tveir liðs-
félagar skiptast á að keyra. Aðrir
flokkar eru t.d. Járnkarlinn, þar
sem sami keppandi keyrir allan
tímann, og svo 90+ flokkurinn þar
sem samanlagður aldur tveggja
keppenda þarf að hafa ná 90 árum.
Keppni Mótorhjólamenn keppa um hvíta-
sunnuna á Kirkjubæjarklaustri.
Mótorhjólakeppni á
Kirkjubæjarklaustri
Nú eru ungar víða að skríða úr
eggjum og oft má sjá fullorðna
fugla silast hægt um vegi með
ungahópinn á eftir sér. Umferðar-
stofa vill því hvetja ökumenn til að
taka tillit til allra vegfarenda og
ekki síst þeirra fiðruðu sem kunna
ekki skil á umferðarreglum og
munu seint nýta sér gangbrautir
eða undirgöng. Þetta á sérstaklega
við þar sem vegir liggja nálægt sjó,
tjörnum eða vötnum en við þær að-
stæður má búast við fullorðnum
fuglum á gangi með unga sína.
Fiðraðir vegfarendur
Í dag, þriðjudag,
verður farið í
fuglaskoðunar-
ferð í Viðey.
Leiðsögumaður
er Jóhann Óli
Hilmarsson,
fuglafræðingur
og ljósmyndari,
en hann hefur
gefið út fræðandi bækur um fugla
Íslands. Fuglalíf í Viðey er í miklum
blóma. Yfir 30 fuglategundir verpa
í eynni og því margt að sjá fyrir
fuglaskoðara. Leiðsögnin er ókeyp-
is og öllum opin.
Siglt er frá Skarfabakka kl. 18:15
og 19:15 og hefst leiðsögnin við
Viðeyjarstofu kl. 19:30. Gjald í ferj-
una er 1.000 kr. fyrir fullorðna og
500 kr. fyrir börn 7-18 ára. Frítt er
fyrir sex ára og yngri.
Fuglaskoðunarferð
í Viðey í kvöld
STUTT
KVARTBUXUR
hvítar,
svartar,
drapplitar
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Str. 36-56
Fullar búðir
Ljós bláar, dökk bláar og svartar.
- Háar í mittið -
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Sendum í
póstkröfu
af buxum
Kvenfatnaður
Hæðasmára 4 · 201 Kópavogur
Sími 555 7355 - www.selena.is
Patti Húsgögn
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18
Basel
Aspen
Þú velur
og drauma sófinn þinn er klár
GERÐ (fleiri en 90 mismunandi útfærslur)
STÆRÐ (engin takmörk)
ÁKLÆÐI (fleiri en 2000 tegundir)
Sófinn þinn útfærður eftir þínum óskum
Landsins mesta úrval af sófasettum
Íslensk
framleiðsla
Torino
Rín
Roma
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn | Keldunes hét gamalt,
reisulegt timburhús sem stóð við
fjöruborðið á Þórshöfn fyrir tæpum
50 árum. Húsið var í daglegu tali
nefnt Keldan og ýmsir eldri Þórs-
hafnarbúar eiga þaðan minningar um
góðan kaffibolla hjá húsráðendum.
Keldan varð að víkja árið 1965 fyrir
byggingu söluskála og þvottaplans á
vegum Kaupfélags Langnesinga og
var húsið þá rifið. Nú er kominn vísir
að nýrri Keldu í fjöruborðinu, þar
sem bæði er hægt að fá góðan kaffi-
sopa og fjölbreyttari veigar en það er
innsti hluti Grillskálans við fjöruna.
Núverandi rekstraraðilar skálans
tóku nýverið í notkun góða viðbót við
húsnæðið, sem stendur á svipuðum
stað og Keldan forðum daga og ríkir
þar notalegur andblær frá liðinni tíð,
með myndum frá gömlu Þórshöfn á
veggjunum og gluggi er við fjöruna.
Margir muna eftir gömlu Keldunni
og menn eru sammála um það að
Kelda eða Kaffi Kelda sé kjörið nafn
á nýja hlutann.
Í króknum er lítið barnahorn og
sjónvarpsskjár, þar sem hægt verður
m.a. að fylgjast með enska boltanum,
einnig tölva með netsambandi sem
kemur sér vel fyrir ferðafólk. Kaffi-
krókurinn hentar líka vel fyrir minni
samkvæmi en Grillskálinn er nú kom-
inn með léttvínsleyfi.
Hjónin Sóley Örvarsdóttir og Örv-
ar Guðmundsson reka Grillskálann
og þau eru bjartsýn á framtíðina
enda enginn barlómur í Þórshafnar-
búum, sem væntanlega verða tíðir
gestir í Keldunni.
Keldan komin aftur
Vísir að nýrri Keldu Hjónin Sóley og Örvar ásamt börnum sínum Arnari og
Freyju við opnun nýja kaffikróksins við fjöruborðið á Þórshöfn.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Guðbjartur Hannesson, velferðar-
ráðherra, kynnti í gær hækkanir á
bótum almanna- og atvinnuleysis-
trygginga í samræmi við yfirlýs-
ingu ríkisstjórnarinnar í tengslum
við kjarasamninga. Hækkun bóta
almannatrygginga og atvinnu-
leysistrygginga miðast við 1. júní.
Bætur almannatrygginga hækka
um 8,1% og segir ráðuneytið, að
þar með sé tryggt að lífeyrisþegar
með óskertar bætur njóti 12.000
kr. hækkunar kjarasamninga á al-
mennum vinnumarkaði. Þannig
muni lífeyrisþegar njóta hækk-
unarinnar og þá einnig þeir sem
hafa aðrar tekjur, til dæmis frá
lífeyrissjóðum eða atvinnutekjur.
Þá er viðmiðið á útreikningum
framfærsluuppbótar hækkað um
12.000 krónur þannig að lág-
markstrygging einstaklinga verð-
ur 196.140 krónur og 169.030
krónur hjá hjónum eða sambýlis-
fólki.
Bætur hækka í samræmi við launin.
8,1% hækkun bóta
almannatrygginga