Morgunblaðið - 07.06.2011, Blaðsíða 23
Karólína, konan hans til 66 ára,
flúðu kylfur hvítliðanna á
hlaupum þveran Austurvöllinn
’49 með tvö börn, annað fjög-
urra ára og hitt í barnavagni.
Blessuð sé minning Karólínu
líka.
Júlíus var leigubílstjóri hjá
Hreyfli í marga áratugi, og auð-
vitað runnu uppúr honum sögur
af viðskiptum hans við menn
eins og Kjarval og Stein Stein-
ar. – Ógleymanlegar sögur.
En þó sögurnar sjálfar væru
magnaðar, skipti frásagnargleð-
in sko ekki minna máli, Júlíus
var leiftrandi skemmtilegur
sögumaður.
Myndin af Júlla og Línu við
eldhúsborðið á Þinghólsbraut-
inni á sunnudögum mun aldrei
hverfa. Við æskuvinir Trausta
eigum sumar okkar ljúfustu
minningar þaðan.
Ég gleymi ekki heimsókn
okkar Júlla í kastalann í Dover
þegar þau Karólína komu til
okkar Þóru og strákanna okkar
í Canterbury, þá voru sagðar
sögur af Winston Churchill og
skoðuð leynigöngin sem lágu úr
kastalanum og niður í fjöruna
og voru notuð í seinna stríðinu
til að verjast nasistunum.
Júlíus var af þeirri kynslóð
sem fannst það sjálfsagt að
byggja húsin sín sjálf, og eftir
því sem börnunum fjölgaði,
varð að stækka við sig. Þau
Lína byggðu sér hús á Hrísa-
teig, Kópavogsbraut og síðast á
Þinghólsbrautinni í Kópavogi.
Börnin þeirra Júlíusar og
Karólínu eru einstaklega sam-
heldinn og hjálpsamur systk-
inahópur, og ég sendi þeim öll-
um dýpstu samúðarkveðjur
mínar með þessum línum –
Trausti, Hörður, Jón, Jóhanna,
Sigrún, Stefanía – samheldni
ykkar er einstök, og það hafið
þið án efa frá Júlíusi og Karól-
ínu.
Takk fyrir allt, Júlíus.
Þinn
Halldór.
var yndislegur drengur, allra hug-
ljúfi. Við fylgdumst með honum
vaxa úr grasi á Freyjugötunni í
faðmi foreldra sinna. Sambandið
milli þeirra var einstakt. Þeir
feðgar voru eins og samlokur,
miklir áhugamenn um bíla og
íþróttir. Hákon fylgdi reyndar
Skagamönnum en Magnús var
Valsari. Þeir höfðu báðir sama
ljúfa geðið, þennan einstaka ljúfa
húmor. Þegar foreldrar hans féllu
frá þá hittumst við sjaldnar en
alltaf var jafn gaman og þægilegt
að hitta Magnús. Frá honum staf-
aði einstök hlýja og velvilji sem
einkenndu öll hans störf. Við
heimsóttum hann eins oft og við
gátum á vinnustað hans á Hjól-
barðaverkstæði Vesturbæjar, nú
N1. En þar var hann eins og kóng-
ur í eigin ríki. Tók á móti við-
skiptavinum af einstakri ljúf-
mennsku, eins og hann ætti í þeim
hvert bein. Hann naut sín greini-
lega ákaflega vel á vinnustaðnum
innan um vini sína og kunningja,
ávallt tilbúinn að rétta öllum
hjálparhönd.
Kæru Helga og Hildur og fjöl-
skyldur. Allt virðist nú svart og
enga ljósglætu að sjá í myrkrinu.
En eftir lifir minning um góðan
dreng. Skáldið Tómas Guðmunds-
son segir:
Nú veit ég, að sumarið sefur
í sál hvers einasta manns.
Eitt einasta augnablik getur
brætt ísinn frá brjósti hans,
svo fjötrar af huganum hrökkva
sem hismi sé feykt á bál,
unz sérhver sorg öðlast vængi
og sérhver gleði fær mál.
Guð blessi ykkur öll.
Guðmundur H. Sigurðs-
son , Páll V. Sigurðsson
og fjölskyldur.
Fleiri minningargreinar
um Magnús Hákonarson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2011
✝ Maríus Guð-mundsson
fæddist á Rauf-
arhöfn 1. júlí 1935.
Hann andaðist á
dvalarheimilinu
Grund 30. maí.
Foreldrar hans
voru hjónin Guð-
mundur Jónasson
f. 5.7 1886, d. 10.4.
1970 og Fanney
Jóhannesdóttir, f.
28.9. 1895, d. 21.12. 1963.
Systkini Maríusar eru Þor-
björg, f. 10.10. 1923, d. 24.4.
2004, Karl Hermann, f. 13.3.
1926, d. 16.12. 2006, Halldóra,
f. 26.9. 1927, búsett á Akureyri,
Haraldur, f. 24.4. 1930, d. 19.7.
2007, Vilborg Andrea, f. 11.6.
1937, d. 26.4. 1993. Eiginkona
Maríusar var Þórey Rósa Stef-
21.10. 1995 og Hrund, f.10.3.
2001. Fyrir átti Guðný Vil-
borgu Einarsdóttur, f. 5.7.
1984. 3) Guðrún Rós, f. 10.6.
1970. Unnusti hennar er Helgi
Leifur Þrastarson, f. 1.6. 1971.
Börn þeirra eru Sunna Dís, f.
3.12. 2002, Birta Sól, f. 19.8.
2005. Fyrir átti Guðrún Þór-
eyju Lovísu Sigmundsdóttur, f.
21.12. 1997. Fyrir átti Helgi
Steinþór, f. 4.11. 1989, og Mar-
íu Björk, f. 12.10. 1994.
Maríus ólst upp á Barði á
Raufarhöfn en fluttist ungur að
heiman til að stunda sjó-
mennsku. Lengst af var hann
háseti og vélstjóri á síldarskip-
unum Guðmundi Þórðarsyni
RE og Reykjaborg RE eða í 12
ár. Maríus hóf störf hjá Olíufé-
laginu Skeljungi 1971 og starf-
aði þar til ársins 2004. Hjá
Skeljungi gegndi Maríus ýms-
um störfum en lengst af var
hann skipstjóri á olíubátnum
Skeljungi 1.
Útför Maríusar fer fram frá
Neskirkju í dag, 7. júní 2011,
og hefst athöfnin klukkan 15.
ánsdóttir, f. 3.11.
1933, d. 9.10. 2003.
Foreldrar hennar
voru hjónin Guð-
munda Eirný Sig-
urjónsdóttir f. 20.6.
1907, d. 9.4. 1991,
og Stefán Frið-
riksson f. 15.6.
1893, d. 8.1. 1967.
Maríus og Þórey
eiga þrjú börn.
Þau eru: 1) Ingi-
björg Sigrún Eyfjörð, f. 5.5.
1960, gift Haraldi Benedikts-
syni, f. 28.3. 1959. Börn þeirra
eru Hjördís Anna, f. 12.7. 1981,
Maríus Þór, f. 5.3. 1985 og
Harpa Sif, f. 17.12. 1986. 2)
Guðmundur Stefán Maríusson,
f. 9.9. 1962, kvæntur Guðnýju
Pétursdóttur, f. 28.6. 1961.
Börn þeirra eru Hlynur Rafn, f.
Í dag verður jarðsunginn
tengdafaðir og vinur minn, Mar-
íus. Hvernig á að minnast manns í
fáum orðum, sem hefur verið sam-
ofinn lífi mínu í rúm 33 ár?
Ef lýsa ætti Massa með einu
orði þá yrði það traustur. Fjöl-
skyldan skipti hann miklu máli og
hafði hann alltaf á orði „hvort allir
hefðu nóg“. Þetta kom sérstak-
lega fram eftir að Tóta, eiginkona
hans, féll frá 2003. Hvort væri nóg
af bensíni á bílnum, hvort við ætt-
um að koma við í verslun að kaupa
í matinn, alltaf vildi hann gera eitt-
hvað fyrir aðra, en bað um ekkert
fyrir sig.
Massi hafði verið sjómaður á
yngri árum og starfaði í landi á ol-
íubátnum Skeljungi II í Reykja-
vík, þannig að hann var alla ævina
tengdur sjónum og hafði mikinn
áhuga á sjómennsku, veiðarfær-
um og verkþáttum tengdum nót,
trolli, línunetum. Þar áttum við
mikla samleið og gátum spjallað
og rökrætt um kosti og galla hinna
ýmsu veiðarfæra.
Massi hafði verið á síldarbátum
í Norðursjó og verið lengi að
heiman frá fjölskyldu. Þannig
vissi hann að samverustundir með
fjölskyldunni þegar verið var í
landi voru dýrmætar. Sumarbú-
staðarferðir, sólarlandaferðir með
börnum og barnabörnum voru
honum kærar í minningunni.
Massi vildi alltaf hjálpa til ef
eitthvað þurfti að gera, hvort sem
það var heima fyrir eða hjá öðrum.
Hann var einstaklega bóngóður
en vildi ekki láta tala um það, það
var eðlilegt að hjálpa hver öðrum.
Einnig var hann spjallsamur við
barnabörnin á sinn hægláta hátt,
þó stutt hafi verið í stríðni og gam-
ansemi.
Ekki var stríðni hans einskorð-
uð við börn, fullorðnir fengu líka
sinn skerf. Það voru oft miklar
umræður og rökræður í skúrnum
niðri á Granda þar sem hann hafði
aðstöðu vegna olíubátsins. Menn
fengu sér kaffi og ræddu um fisk-
irí, þjóðmálin og allt var tekið fyr-
ir, það fundust ýmsar lausnir á
þjóðfélagsmálum líðandi stundar.
Oft var þröng á þingi enda leið
fólki vel í návist hans.
Maríusar verður sárt saknað af
mér og barnabörnum hans. Minn-
ingarnar munu lifa í huga mínum
og fjölskyldu um góðan, traustan
og hæglátan mann sem gott var að
umgangast í leik og starfi.
Þökk fyrir allt, hvíl í friði.
Haraldur Benediktsson.
Hafa allir nóg?
Þetta var alltaf efst í huga
tengdapabba, alltaf að færa björg
í bú. Eftir að hann hætti að vinna
var hann daglegur gestur á höfn-
inni og kom svo færandi hendi
með allskonar fisk sem hann fékk
gefins frá félögum sínum sem
voru að landa. Ekki má gleyma ís-
blómunum sem hann kom alltaf
með handa smáfólkinu.
Tengdapabbi var hæglátur
maður, alþýðumaður með sína
hluti á hreinu, skuldaði aldrei
neinum neitt. Eftir að tengda-
mamma dó fór að bera á þeim
sjúkdóm sem hafði að lokum bet-
ur. Börnin hans mynduðu skjald-
borg um hann svo hann gæti verið
heima þar til fyrir átta mánuðum
að hann fór á deild V-4 á Grund.
Þar var einstaklega vel hugsað um
hann og þökkum við fyrir það.
Jú, kæri tengdapabbi, við höf-
um nóg. Við höfum hvort annað.
Góða ferð og góða heimkomu, bið
að heilsa Tótu og Rabba.
Guðný Pétursdóttir.
Elsku afi Maríus.
Það er ávallt erfitt að kveðja
ástvini og þó svo að ég vissi í hvað
stefndi, þá var ég búinn að búa
mig undir það að kveðja afa minn.
En það sem ég hafði ekki hugsað
út í og var ekki búin að búa mig
undir var það að ég væri líka að
kveðja nafna minn. Ég hafði aldrei
gert mér almennilega grein fyrir
því hvað það þýddi að eiga nafna
fyrr en ég var búin að kveðja afa
upp á Grund. Þá helltist það yfir
mig að ég væri ekki eingöngu að
missa afa Maríus heldur var nafni
minn að deyja, sem þýðir að ég
þarf að halda Maríusar-nafninu á
lofti með sama heiðri og afi gerði.
Þessi góði maður sem vildi allt fyr-
ir alla gera og var ávallt til staðar
fyrir alla.
Fyrirmynd sem lítill drengur
leit upp til og heyrði sögur af
þrekvirkjum afa og nafna síns er
nú fallinn frá. Hvernig heiðrar
maður minningu slíks manns.
Hvernig heldur maður nafninu á
lofti svo afi Maríus yrði stoltur af.
Ég mun gera mitt besta til að
halda Maríusar-nafninu við, enda
hafði ég góða fyrirmynd um
hvernig á að fara að. Ég mun sjá
til þess að fjölskylda mín geti allt-
af leitað til mín, sama hvað sem
amar að. Ég mun reyna að vera
glaður, hress og jákvæður. Ég
mun vera góður vinur vina minna.
Heiðarlegur og réttlátur og vera
til staðar fyrir þá sem þurfa án
þess að vera beðinn um það. Á
meðan ég held í minninguna um
hver Maríus Guðmundsson var þá
þarf ég ekki að hafa áhyggjur af
því að sverta nafn hans. Er ég
stoltur af því að hafa þekkt og alist
upp í kringum þann mann. Meðan
ég tek afa Maríus til fyrirmyndar
þá mun ég stoltur geta borið Marí-
usar-nafnið.
Þó svo að afi sé fallinn frá þá lif-
ir minning hans áfram með okkur
öllum. Takk fyrir að vera góð fyr-
irmynd og takk fyrir allt saman.
Þín verður sárt saknað en nú er
kominn tími á að skötuhjúin sam-
einist að nýju ásamt öðrum ástvin-
um og ættingjum sem hafa horfið
á braut í tímanna rás.
Þinn nafni,
Maríus Þór.
Maríus
Guðmundsson
Fleiri minningargreinar
um Maríus Guðmunds-
son bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
✝
Mæðgurnar,
MARÍA VALGERÐUR JÓNSDÓTTIR
OG
JÓHANNA SIGFRÍÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR,
Eiríksgötu 25,
Reykjavík,
létust á hjúkrunarheimilinu Skjóli og líknardeild Landspítalans í
Kópavogi miðvikudaginn 1. júní.
Útför þeirra fer fram frá Guðríðarkirkju þriðjudaginn 14. júní
kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast þeirra er bent á Ljósið, endurhæfingu krabbameins-
greindra og Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðjón St. Guðjónsson, Pétur Rönning Jónsson.
✝
Móðir okkar,
RAGNHILDUR SIGURÐARDÓTTIR
frá Sólheimakoti
í Mýrdal,
lést á dvalarheimilinu Lundi á Hellu að
morgni sunnudagsins 5. júní.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Ragnhildur Guðrún Bogadóttir,
Sigrún Gerður Bogadóttir,
Ragnheiður Bogadóttir,
Geirþrúður Fanney Bogadóttir.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SIGURLAUG JÓNSDÓTTIR,
Grundargötu 10,
Siglufirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar
föstudaginn 27. maí.
Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 11. júní
kl. 11.00.
Njörður Jóhannsson, Björg Einarsdóttir,
Kristján Jóhannsson,
Viðar Jóhannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ANNA RÓSAMUNDA JÓHANNSDÓTTIR,
Hlíðarlundi 2,
Akureyri,
lést á sjúkrahúsinu á Akureyri laugardaginn
4. júní.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 14. júní
kl. 13.30.
Magnús Þorsteinsson, Roxanna Björg Morales,
Sigurlína Þorsteinsdóttir, Gunnlaugur H. Jónsson,
Jóhanna Sigrún Þorsteinsdóttir, Björn Jósef Arnviðarson,
Viðar Þorsteinsson, Kolbrún Ólafsdóttir,
Björgvin Þorsteinsson, Jóna Dóra Kristinsdóttir,
Gunnar Þorsteinsson,
Björn Axelsson, Birna Bessadóttir,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Okkar elskulegi bróðir, mágur, frændi og kæri
vinur,
REYNIR ARNAR EIRÍKSSON,
Hjaltabakka 8,
lést á líknardeild Landspítalans föstudaginn
3. júní.
Útför hans fer fram frá Seljakirkju í Breiðholti
föstudaginn 10. júní kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta líknarfélög njóta
þess.
Ágúst G. Eiríksson, Ingveldur Valdimarsdóttir,
Guðmundur I. Eiríksson,
Þorgerður Arnórsdóttir,
bræðrabörn,
Linda S. Birgisdóttir,
Brynja B. Birgisdóttir,
Birgir F. Birgisson.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGURFLJÓÐ JÓNSDÓTTIR
frá Litla-Langadal
á Skógarströnd,
Sóltúni 2,
lést á bráðamóttöku Landspítalans sunnu-
daginn 5. júní.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Halldóra Guðmundsdóttir,
Sigrún Ögmundsdóttir, Þórarinn Böðvarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur bróðir okkar,
PÁLL GÍSLASON,
lengst af til heimilis að Miðtúni 9,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund laugardaginn 4. júní.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 10. júní
kl. 15.00.
Ásgeir Gíslason,
Alexía M. Gísladóttir,
Kolbeinn Gíslason.