Morgunblaðið - 14.06.2011, Page 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2011
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Einn af þekktustu hagfræðingum
heims, Nouriel Roubini, segir í
grein í Financial Times í gær að
mistekist hafi að leysa vandann
vegna mismunandi efnahagsgetu og
samkeppnishæfni aðildarríkja evru-
svæðisins. Að óbreyttu stefni nú í
að að evrusamstarfið leysist upp.
Roubini, sem er hagfræðiprófess-
or í New York, er m.a. frægur fyrir
að hafa spáð rétt um fjármála-
kreppuna 2008. Hann segir rætt um
þrjár leiðir út úr evruvandanum.
Í fyrsta lagi að láta gengi evr-
unnar falla til að auka samkeppn-
ishæfnina í jaðarríkjunum en harð-
línustefna evrópska seðlabankans
bendi ekki til að það sé raunhæf
leið. Í öðru lagi að auka framleiðni
og halda launum niðri en það verði
of seinlegt, hafi t.d. tekið Þjóðverja
heilan áratug. Loks sé nefnd verð-
hjöðnun en hún valdi samdrætti.
Argentínumenn hafi reynt þessa
aðferð í þrjú ár en loks gefist upp
og hætt að borga af skuldum sín-
um.
„Ef við gefum okkur því að þess-
ar þrjár lausnir séu ólíklegar er í
raun aðeins eftir ein leið til að auka
samkeppnishæfni og hagvöxt í jað-
arríkjunum: yfirgefa evruna, taka
aftur upp þjóðargjaldmiðilinn og ná
þannig fram geysimikilli gengisfell-
ingu, bæði á nafnverði og í reynd,“
segir Roubini.
Núna álitið óhugsandi en …
„Þegar öllu er á botninn hvolft
reyndist nauðsynlegt að taka upp
sveigjanlegt gengi í öllum nýmark-
aðsríkjunum sem höfnuðu í fjár-
málakreppu en tókst að koma aftur
af stað vexti, þetta var óhjákvæmi-
legt ásamt því að auka peninga-
magn í umferð, draga úr opinberum
útgjöldum og koma á umbótum,
sums staðar varð líka að endur-
skipuleggja skuldir og fella þær
niður. Að sjálfsögðu er núna litið á
hugmyndina um að yfirgefa evru-
svæðið sem óhugsandi, jafnvel í
Aþenu og Lissabon. Slík brottför
myndi valda miklum peningalegum
áföllum í öðrum hlutum evrusvæð-
isins, vegna þess að fjármagnstapið
og verðfallið yrði svo mikið hjá lán-
ardrottnunum í öflugustu ríkjum
þess, eins og gerðist þegar Argent-
ínumenn breyttu dollaraskuldum
sínum í pesoskuldir þegar þeir
lentu síðast í kreppu.“
Hann segir að það sem þyki
óhugsandi núna þurfi ekki að vera
svo fjarlæg hugmynd eftir fimm ár,
einkum ef stöðnun verði í efnahag
jaðarríkjanna áðurnefndu. Lágir
vextir, sem hafi haldið uppi vext-
inum, vonin um að umbætur myndu
í senn auka samræmið milli evru-
ríkjanna og horfurnar á að smám
saman yrði komið á sameiginlegum
ríkisfjármálum, allt þetta hafi límt
saman evrusvæðið.
„En nú er samræmingin horfin,
umbætur hafa strandað og einingin
í ríkisfjármálum og sambandsríkið
orðin að fjarlægum draumi,“ segir
Nouriel Roubini.
Spáir hruni evrusamstarfsins
Roubini segir það sem menn álíti nú
óhugsandi geta orðið innan fárra ára
Reuters
Búsáhöld Þátttakandi í mótmælum gegn niðurskurði og spillingu í Grikk-
landi lemur pott á Syntagma-torgi í Aþenu um helgina.
Ríki heims hafa á fundi í London
heitið því að verja samtals um 4,3
milljörðum dala til að bólusetja börn
gegn ýmsum sjúkdómum, m.a.
lungnabólgu, kíghósta og niður-
gangspest. Samtökin GAVI, sem
berjast fyrir bólusetningum, höfðu
farið fram á aðeins 3,7 milljarða doll-
ara, þau segja árangurinn á fund-
inum mikil tímamót. Fjármagnið
muni bjarga um fjórum milljónum
mannslífa á næstu fjórum árum.
„Við þá sem segja að við ættum að
bíða með þessi loforð þar til síðar
vegna þess að núna höfum við ekki
efni á að hjálpa segi ég: Við höfum
ekki efni á að bíða,“ sagði David
Cameron, forsætisráðherra Bret-
lands. Framlag Breta verður 1,3
milljarðar og Bandaríkjamaðurinn
Bill Gates leggur fram milljarð.
kjon@mbl.is
Reuters
Leiðtogi Forseti Líberíu, Ellen
Johnson-Sirleaf, talar á fundinum.
Lofa stór-
átaki í bólu-
setningum
Ríki heita alls 4,3
milljörðum dollara
Stuðningsmenn AK, stjórnarflokksins í Tyrk-
landi, fagna sigri við aðalstöðvar flokksins í höf-
uðborginni Ankara um helgina. Recep Tayyip
Erdogan forsætisráðherra hét því að vinna með
stjórnarandstöðuflokkum, fræðimönnum og öðr-
um að samkomulagi um breytingar á stjórnar-
skránni. AK bætti við sig nokkru fylgi, hlaut rétt
um 50% atkvæða í kosningunum á sunnudag og
325 af 550 þingsætum. Um 50 milljónir manna
voru á kjörskrá, þátttaka var um 84,5%. Að
þessu sinni náðu 78 konur kjöri en voru 50 á síð-
asta þingi. Vonir Erdogans um tvo þriðju hluta
þingsæta, nógu mörg til að geta gert breytingar
á stjórnarskrá landsins án aðstoðar annarra
flokka, brustu þótt sigurinn væri stór. Flokkar
þurfa minnst 10% fylgi á landsvísu til að koma að
manni og náðu tveir því auk AK, einnig buðu
margir sig fram utan flokka og náðu 36 fram-
bjóðendur inn á þing með þeim hætti. „Fólkið
sendi okkur skilaboð um að setja saman nýja
stjórnarskrá í samráði við aðra,“ sagði Erdogan.
Reuters
Liðsmenn Erdogans fagna sigri í Ankara
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Ítalir veittu forsætisráðherra sínum, Silvio Berlus-
coni, löðrung í þjóðaratkvæði um nokkur mál í gær
og benti allt til þess að þeir hefðu fellt með yfir 90%
greiddra atkvæða allar tillögur stjórnar hans,
þ.á m. tillögu um ný kjarnorkuver.
Stjórnvöld höfðu ákveðið að hefja á ný fram-
leiðslu á rafmagni með kjarnorku en frestað um
sinn áformunum eftir kjarnorkuslysið í Fukushima
í öðru jarðskjálftalandi, Japan. Verum Ítala var
lokað 1987 en ákveðið 2008 að taka þráðinn upp á
ný. „Í kjölfar ákvörðunar ítölsku þjóðarinnar mun
Ítalía líklega þurfa að kveðja
hugmyndina um kjarnorkuver-
in,“ sagði Berlusconi í gær. „Við
verðum að einbeita okkur að
endurnýjanlegri orku.“
Einnig var kosið um einka-
væðingu vatnsveitna og lög um
friðhelgi ráðherra gagnvart lög-
sókn. Forsætisráðherrann hafði
hvatt stuðningsmenn sína til
þess að taka ekki þátt í atkvæðagreiðslunni svo að
niðurstaðan yrði ekki bindandi en yfir helming at-
kvæðisbærra þarf til að úrslit verði bindandi. En
kjörsóknin mun hafa verið um 57%.
Ítalir höfnuðu kjarnorku-
verum í þjóðaratkvæði
Tillaga Berlusconis um friðhelgi ráðherra gagnvart dómstólum einnig felld
Áfallið í Fukushima hræðir
» Andstaða ítalsks almennings við kjarnorku
hefur aukist í kjölfar Fukushima-kjarn-
orkuslyssins. Þjóðverjar ákváðu nýlega að
leggja niður kjarnorkuver sín.
» Hinn 74 ára gamli Berlusconi á nú aðild að
þremur dómsmálum vegna fjármálasvindls
og einu vegna meintra kynmaka með stúlku
undir lögaldri. Flokkur hans tapaði stórt í
sveitarstjórnarkosningum í lok maí.
Silvio Berlusconi
Matsfyrirtækið Standard&Poor’s
lækkaði í gær lánshæfismat Grikk-
lands um þrjá punkta niður í CCC
og njóta Grikkir nú þess vafasama
heiðurs að vera með lélegasta mat í
heimi.
S&P segir ástæðuna þá að aukn-
ar líkur séu á að gríska ríkið geti
ekki staðið við skuldbindingar sín-
ar. Álagið á 10 ára ríkisskuldabréf-
um Grikkja hækkaði um 17% á
mörkuðum við tíðindin.
Með lélegasta
lánsmat í heimi