Morgunblaðið - 14.06.2011, Page 17
17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2011
Körfubolti Veðurblíðan í Reykjavík um helgina var kærkomin enda héldu margir sig utandyra. Þessir krakkar létu sitt ekki eftir liggja og léku körfubolta af miklum ákafa á Klambratúni.
Ernir
Argentína var á
fyrstu árum tuttugustu
aldar eitt auðugasta
ríki heims. Síðan tók
landið upp vinstri-
stefnu og þá snar-
breyttust aðstæður á
verri veg, þannig að
hið auðuga ríki bættist
í hóp fátækustu ríkja
heims.
Það var vegna þess
m.a. að takmarkalaus fjáraustur í of-
þanið velferðarkerfi, ásamt minnkandi
áherslu á tekjuöflun, leiddi til þess að
svo fór sem fór.
Þeir sem kynnt hafa sér vinstri-
stefnuna eru ekki hissa á því, að
Spánn, Grikkland og Portúgal hafi
stjórnast af vinstristefnu, en fram-
angreind ríki eru í gjörgæslu AGS og
ESB eins og allir vita.
Hæstvirtur fjármálaráðherra,
Steingrímur J. Sigfússon, leitast við að
telja sjálfum sér og öðrum trú um, að
hann hafi tekið við afskaplega slæmu
búi og kennir þá gjarna hinni meintu
„nýfrjálshyggju“ um, sem er þó óskil-
greint fyrirbæri í stjórnmálafræðum.
Ef ríkisfjármálin eru tekin fyrir ein
og sér, þá tók núverandi ríkisstjórn við
afskaplega góðu búi og það hefur gert
það að verkum, að staða þjóðarbúsins
er eins góð og raun ber vitni.
Nú kunna margir að staldra við og
spyrja, hvort greinarhöfundur hafi
endanlega tapað glórunni, en leitast
skal við að rökstyðja ofangreinda ful-
yrðingu aðeins betur.
Fyrri ríkisstjórn greiddi niður er-
lendar skuldir, ásamt því að stemma
stigu við takmarkalausri eyðslugleði
stjórnarandstöðunnar. Ef hugmyndir
vinstriflokkanna hefðu náð fram að
ganga, þá er hætt við að þjóðin væri í
mjög erfiðri stöðu. Þá hefði hæstvirtur
fjármálaráðherra ekki getað glaðst yf-
ir aukinni kortanotkun, hækkun á
íbúðarverði o.s.frv., eins og hann gerði
í eldhúsdagsumræðunum.
Minna má á, að í ræðu á landsfundi
Vinstri hreyfingarinnar - græns fram-
boðs árið 2007, vildi hæstvirtur fjár-
málaráðherra hafa gjaldfrjálst skóla-
kerfi upp allan stigann, fríar
tannlækningar o.s.frv., hans tillögur
gengu út á tugi, jafnvel hundruð millj-
arða í útgjöld. Sem betur fór, þá var
hann í stjórnarandstöðu á
þessum árum.
Til þess að efnahags-
stjórn ríkisins skili við-
unandi árangri, þá þarf að
gæta aðhalds í öllum út-
gjöldum. Þess vegna er
skynsamlegt að láta þá
einstaklinga fá bætur sem
á þurfa að halda, en hinir
sem geta séð fyrir sér
sjálfir eiga að sjálfsögðu
engar bætur að fá. Barna-
bætur og fleiri greiðslur
frá hinu opinbera til sjálfbjarga ein-
staklinga eru vitanlega út í hött.
Velferðarkerfið á eingöngu að vera
handa þeim sem á þurfa að halda, ann-
ars verður minna til skiptanna fyrir þá
sem á þurfa að halda.
Þessar staðreyndir hafa vinstri-
menn aldrei skilið. Vinstristefnan
gengur út á andstöðu við fjármálaöflin,
þess vegna er erfitt að stunda atvinnu-
rekstur þegar vinstristefnan er við
völd. Vinstrimenn vilja eingöngu at-
vinnuvegi sem þeim eru að skapi, en
slík afstaða heftir vitanlega athafna-
frelsi fólks.
Saga síðustu tveggja ára sýnir með
óyggjandi hætti að vinstristefnan virk-
ar alls ekki til þess að stjórna efna-
hagsmálum þjóðarinnar.
Ekki þarf að efast um það, að Geir
H. Haarde var bænheyrður, þess
vegna hefur vinstristjórninni ekki tek-
ist að eyðileggja efnahag þjóðarinnar.
Það er sama hvert litið er, hvergi
hefur vinstristefnan náð að byggja upp
þjóðfélög, en henni hefur ágætlega
tekist að eyða þeim peningum sem afl-
að hefur verið, það getur þó varla talist
merkilegt afrek.
Gömlu sannindin um að það sé erf-
iðara að afla fjárins en eyða því eru
ávallt í fullu gildi.
Eftir Jón
Ríkarðsson
» Velferðarkerfið á ein-
göngu að vera handa
þeim sem á þurfa að
halda, annars verður
minna til skiptanna fyrir
þá sem á þurfa að halda.
Jón Ríkarðsson
Höfundur er sjómaður.
Vinstristefnan
virkar ekki
Í eina tíð var miðbær
Reykjavíkur miðstöð
mannlífs og viðskipta
en nú er hann lítið ann-
að en minjagripa-
sjoppa sem selur frost-
bitnum túristum
lopapeysur á upp-
sprengdu verði. Sól-
skinsparadísin,
Reykjavík sem borg-
arstjórn samþykkti
fyrir stuttu, lætur bíða eftir sér,
enda án samráðs við veðurguðina.
Homo islandicus sem eitt sinn rak
erindi sín í miðbænum sinnir þeim
nú í Kringlunni eða Kópavogi.
Góðviðrisákvörðun Besta flokks-
ins er ein af mörgum ákvörðunum
sem nú fylla athyglisverða afreka-
skrá.
Ef litið er snöggt yfir listann
stöðvast augað fyrst við vinavæð-
ingu Orkuveitunnar. Henni fylgdi
ný gjaldskrá í anda vinstri-
velferðar, þ.e. 28,5% tafarlaus
hækkun á orkureikningum borg-
arbúa og þegar himnarnir hrundu
ekki með það sama bættu þeir 8%
við. Þegjandi borgum við trakter-
inguna. Gamla holræsagjald R-
listans var svo endurreist undir
nýju nafni. Það heitir nú frá-
rennslisgjald og hækkaði um 45%
þótt engar séu frárennslis-
framkvæmdirnar. R-listadreifin
sendi svo Bjarni Ben aftur á háa-
loftið. Borgarstjórinn skarar
framúr á tveimur sviðum. Hann
stendur undir loforðum um að
svíkja allt sem svíkja má en mest
gleðjast aðdáendur þegar hann
sprangar um í kjól með blóm í
hári. Þykir það bæði djarft og
fyndið. Djarft? Nei, varla. Engin
áhætta er tekin því listirnar leikur
hann vel innan ramma pólitískrar
rétthugsunar. Samkynhneigð og
sýniþörf eru „in“ og virka vel enda
streyma nú um göturnar útburðir
og druslur. Brandarinn er hins
vegar orðinn pínlega þreyttur, því
mæti Gnarr í hefðbundnum karl-
mannsklæðum halda börnin að
hann sé klæðskiptingur með
borgarstjóragrímu. Litlu greyin
gera ekki greinarmun á sýnd og
reynd og fatta því ekki að strák-
urinn með lokkaflóðið og loðmull-
una er hinn raunverulegi borg-
arstjóri.
berinn. Og þykir það vel við hæfi.
Hækkun almenningsbekkja um 5
sentímetra hefur einnig verið sett
í forgang enda velmegunarvöxtur
hlaupinn í landsmenn vegna góð-
æris „norrænu velferðarstjórn-
arinnar“. Fegrunarnefnd borg-
arinnar hefur hins vegar verið
svæfð og niðurníðsla og sóðaskap-
ur í miðbænum verið sett á stall.
Hönnunarslysið við sunnanvert
Lækjartorg, þar sem hvert stíl-
formið treðst um annað, fram-
kallar ómæld gleðióp borgarfull-
trúa. Hvað þessi hörmung hefur
kostað er ekki gefið upp og því síð-
ur rekstrarkostnaðurinn sem
einnig mun að mestu leggjast á
borgarbúa. Enn er verið að hanna
þarna og breyta og allt mun það
lenda á herðum skattgreiðenda.
Upplýst hefur verið að tjörusk-
úrinn og ristabrauðssneiðin að
Laugavegi 4 og 6 hafi kostað einn
milljarð. Þessi milljarður er í boði
stærðfræðisnillingsins Dags B
sem vegna kjarkleysis flutti hann
á herðar borgarbúa. Rök hans fól-
ust í að kostnaður við ákvörðunina
hefði enginn orðið ef ríkið hefði
tekið hann á sig. Þessa snilld í
hugarreikningi opinberaði hann
aftur á dögunum þegar hann hélt
því fram að hagræðing í rekstri í
tíð Sjálfstæðiflokksins, sem skilaði
1,5 milljarði króna, væri bara
vaxtamunur. Jón Gnarr hefði ekki
getað toppað þetta; slík er for-
áttuheimskan sem tröllríður gáfu-
mannasamfélaginu.
Fyrir nokkrum árum ætlaði hér
allt um koll að keyra vegna kostn-
aðar við virkjun á Austurlandi
sem þó er greiddur af orkukaup-
endum. Harpan, sem við eigum að
borga, slagar í 40% þeirrar upp-
hæðar en nú segir enginn múkk.
Er allt í lagi með þetta fólk?
Hugmyndauðgi
spútnikanna í
Besta flokknum er
viðbrugðið. Fimm-
tán metra boð-
hlaup sorphreins-
isveitanna hefur
verið ræst og verð-
ur hlaupið til enda
þótt ávinningurinn
verði enginn. Má
búast við að 1½
milljarðurinn sem
fannst undir regn-
boganum verði að
hluta nýttur til að greiða niður
ruslið. Þessar eitt þúsund og fimm
hundruð milljónir komu til vegna
hagræðingar í rekstri, en meiri-
hlutinn lítur á þær sem vasapen-
ing sem „gera má eitthvað
skemmtilegt við“. Besti ætlar ekki
að láta heimtufreka útsvarsgreið-
endur varpa skugga á „sköp-
unargleði“ sína.
Og það er svo óendanlega
margt skemmtilegt í farvatninu og
gnægð bráðnauðsynlegra verk-
efna úr að velja. Umferðargötum
má alltaf breyta í hjólastíga og ef
enginn vill hjóla á þeim er til-
raunin endurtekin annars staðar.
Í fyrra var það Hverfisgatan. Þar
mun einn maður hafa sést hjóla og
kom það umferðardeild borg-
arinnar á óvart að hann valdi að
hjóla sólarmegin á götunni í stað
áhættulauss unaðar í forsælu
hinnar sérhönnuðu akreinar. Í ár
fá hjólreiðamenn að endurtaka
áhugaleysi sitt í Suðurgötunni og
njóta til þess fulltingis lög-
reglusveita sem sekta bílaumferð
á hjólhestalausri akreininni. Hann
var sko ekkert að grínast formað-
ur skipulagsráðs þegar hann hót-
aði að gera bíleigendum í borginni
erfitt fyrir. Götum er lokað og
bílastæðasjóður fitnar. Bílaeig-
endur í miðbænum þurfa að
greiða gjald fyrir bílastæði við hús
sín. Til að hámarka óþægindi
þeirra var afgreiðsla íbúakorta
færð úr Borgartúni í Vonarstræti
þar sem stöðumælar fylgja hæstu
gjaldskrá. Starfsfólkið nýtur hins
vegar nálægðar gleðigjafanna í
ráðhúsinu enda þjónustan við
kúnnann aukaatriði.
Önnur brýn verkefni dúkka svo
reglulega upp hjá skipulags-
gúrúum borgarinnar. Banka-
stræti 0 hefur nú fengið nýtt nafn
og mun í framtíðinni heita Vatns-
Eftir Ragnhildi
Kolka » „Við viljum eitt-
hvað annað,“
sögðu kjósendur í
Reykjavík fyrir ári,
kusu Besta flokkinn
og fengu skattahækk-
anir og tittlingaskít.
Ragnhildur Kolka
Höfundur er lífeindafræð-
ingur.
Húsgögnin færð til í stofunni