Morgunblaðið - 14.06.2011, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2011
✝ Jóhanna Sig-fríður Guðjóns-
dóttir fæddist í
Reykjavík 26. nóv-
ember 1954. Hún
lést á líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi 1. júní
2011.
Foreldrar Jó-
hönnu voru Guðjón
Guðjónsson, f. 30.
ágúst 1898 á Dal-
vík, d. 30. janúar 1992 og María
Valgerður Jónsdóttir, f. 5. ágúst
1916 í Efstalandskoti í Eyja-
fjarðarsýslu, d. 1. júní 2011.
Bróðir Jóhönnu er Guðjón
Steingrímur Guðjónsson, f.
10.9. 1951. Systir Jóhönnu sam-
mæðra er Svala Mambert, f. 4.
nóvember 1939, búsett í Banda-
Grétar, f. 24. júní 1974, maki
Kristín María Stefánsdóttir, f.
10. desember 1974, börn þeirra
eru Jóhanna Rut, f. 8. apríl
1997 og Arnór Pétur, f. 7. mars
2002. 3) Guðjón Davíð, f. 8.
október 1978, maki Jóhanna
Þórey Sveinþórsdóttir, f. 18.
janúar 1984.
Jóhanna ólst upp á Eiríks-
götu 25 og þar bjó hún allt sitt
líf. Hún gekk í Austurbæj-
arskóla og að loknu námi vann
hún við ýmis verslunarstörf. Jó-
hanna og Pétur voru aðeins 16
ára þegar þau hófu sambúð og
fyrsta barnið leit dagsins ljós.
Jóhanna helgaði líf sitt börnum
sínum og fjölskyldu og þeim gaf
hún ómælda ást og umhyggju.
Hún annaðist móður sína eins
lengi og heilsa hennar leyfði.
Síðustu 14 ár reyndust Jóhönnu
erfið vegna baráttu við illvígan
sjúkdóm.
Útför Jóhönnu og móður
hennar fer fram frá Guðríð-
arkirkju í dag, 14. júní 2011, og
hefst athöfnin kl. 13.
ríkjunum. Systkini
Jóhönnu samfeðra
eru Ingibjörg, f.
1925, búsett í
Bandaríkjunum,
Ólafur Þórir, f.
1926, Nína Sig-
urbjörg, f. 1928, d.
1961, Guðlaug, f.
1930, d. 1997, Matt-
hías Geir, f. 1933
og Fjóla, f. 1933.
Þann 26. janúar
1974 giftist Jóhanna Pétri
Rönning Jónssyni, f. 8. nóv-
ember 1954. Börn þeirra eru: 1)
Anna María, f. 2. nóvember
1971, maki Arnar Sigurbjörns-
son, f. 24. ágúst 1973, börn
þeirra eru Jason Nói, f. 29. des-
ember 1998 og Bryndís María,
f. 21. janúar 2009. 2) Róbert
Ég sit hér með brostið hjarta
og skrifa kveðjuorð til elskulegr-
ar móður minnar sem er látin
langt fyrir aldur fram. Nú er hún
laus við þjáningar sínar eftir
margra ára erfið veikindi. Hún
tók veikindunum með miklu
æðruleysi, stundum slíku að
maður var agndofa.
Alla sína ævi bjó hún á Eiríks-
götu 25, í húsi sem faðir hennar
byggði fyrir fjölskyldu sína.
Þetta var sannkallað fjölskyldu-
hús og á ég óendanlega margar
og góðar minningar þaðan. Á Ei-
ríksgötunni hófu mamma og
pabbi búskap, stofnuðu fjöl-
skyldu og tókust á við foreldra-
hlutverkið þótt þau væru ung að
árum og þar var mikið líf og fjör.
Fyrir 14 árum veiktist hún af
krabbameini og var það mikið
áfall. Aldrei heyrði ég hana blóta
eða reiðast yfir þessum örlögum
sínum, slíkt var æðruleysið. Á
meðan á þessum veikindum stóð
var pabbi við hliðina á henni eins
og klettur. Orð geta ekki lýst því
hversu duglegur hann er búinn
að vera. Gaui bróðir hennar var
henni einnig ómetanlegur fé-
lagsskapur og stuðningur.
Nú eru mæðgurnar saman í
friði og ró og ég veit að amma
náði í hana því nú var komið nóg.
Elsku mamma, ég á eftir að
sakna þín óendanlega.
Hvíl í friði.
Þín dóttir,
Anna María.
Í dag verður elskuleg tengda-
móðir mín borin til grafar. Það
er þyngra en tárum taki að
kveðja hana svo langt fyrir aldur
fram. Það var árið 1993 sem ég
kom fyrst inn á heimili tengda-
foreldra minna á Eiríksgötunni.
Það fyrsta sem maður tók eftir
var hversu hlýlegt og yfirvegað
andrúmsloftið var. Fallegt heim-
ilið bar þess merki að þar byggi
manneskja sem hefði auga fyrir
fallegum hlutum. Tengda-
mamma mín, eða Didda eins og
hún var ávallt kölluð, var ein
þægilegasta manneskja sem ég
hef kynnst. Manni leið alltaf vel í
návist hennar og það var ein-
staklega gott að leita til hennar.
Didda las mikið og fékk ég oft
ábendingar frá henni um góðar
bækur. Hún var mikið náttúru-
barn og naut þess að fara út að
ganga, þannig safnaði hún orku.
Það eru óteljandi minningar sem
koma upp í hugann þegar ég
hugsa um hana og allar stundir
fjölskyldunnar á Eiríksgötunni.
Þar hefur alla tíð verið sá staður
sem sameinaði fjölskylduna. Þar
hefur alla jafna verið mikið líf og
fjör, mikið spjallað og mikið
hlegið. Didda naut þess að fylgj-
ast með barnabörnunum og þótti
þeim líka afar vænt um ömmu
sína. Börnin hafa alltaf sótt mik-
ið til afa og ömmu á Eiríksgöt-
unni og þar hefur þeim líka verið
tekið opnum örmum.
Fyrir fjórtán árum greindist
Didda með illvígan sjúkdóm og
hafa árin síðan verið henni mjög
erfið, þótt ágætir tímar hafi
komið inn á milli. Síðustu fjögur
ár hafa verið sérstaklega erfið og
er með ólíkindum hversu mikið
æðruleysi hún hefur sýnt í gegn-
um allt saman. Maður hefur oft
spurt sig hvort það séu engin
takmörk fyrir því hversu mikið
er hægt að leggja á eina mann-
eskju. Það sýndi best hversu
baráttuþrek hennar var mikið
þegar hún gekk til altaris við
fermingu elsta barnabarnsins
hinn 9. apríl síðastliðinn, en það
hafði verið henni ofarlega í huga
í allan vetur að ná því. Í gegnum
þetta allt hefur Pétur tengdafað-
ir minn staðið eins og klettur við
hlið hennar svo aðdáunarvert
hefur verið á að horfa. Þá hefur
Guðjón bróðir Diddu einnig veitt
henni ómetanlegan stuðning.
Missir fjölskyldunnar er mikill
en eftir sitja þakklæti og minn-
ingar um einstaka manneskju
sem eiga eftir að ylja okkur um
ókomna tíð.
Kristín María Stefánsdóttir.
Í dag kveðjum við elskulega
Diddu ömmu okkar. Við erum
þakklát fyrir allar yndislegar
stundir sem við höfum átt sam-
an. Nú vitum við að hún er laus
við alla verki og líður vel.
Drottinn er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta.
Á grænum grundum
lætur hann mig hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman
dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér.
(23. Davíðssálmur)
Hvíl í friði elsku amma,
Jóhanna Rut, Jason Nói,
Arnór Pétur
og Bryndís María.
Jóhanna Sigfríður
Guðjónsdóttir
✝ María Val-gerður Jóns-
dóttir fæddist í
Efstalandskoti í
Eyjarfjarðarsýslu
5. ágúst 1916. Hún
lést á hjúkr-
unarheimilinu
Skjóli 1. júní 2011.
Foreldrar Maríu
voru Jón Jónsson,
f. 25. apríl 1866 í
Brita á Þelamörk,
d. 14. maí 1939, og Jóhanna
Sigfríður Sigurðardóttir, f. 2.
febrúar 1885 í Hallfríð-
arstaðakoti í Hörgárdal, d. 24.
janúar 1973. Systkini Maríu
voru Sigríður, f. 1909, d. 1979,
Gísli, f. 1914, d. 1990, Halldór,
f. 1919, d. 1987, Aðalheiður, f.
1919, d. 2005, Hermann, f.
1924. Hálfbróðir Maríu sam-
feðra var Jónas Rósant, f. 1893,
d. 1973.
fyrri eiginkonu hans eru Ingi-
björg, f. 1925, Ólafur Þórir, f.
1926, Nína Sigurbjörg, f. 1928,
d. 1961, Guðlaug, f. 1930, d.
1997, Matthías Geir, f. 1933, og
Fjóla, f. 1933.
María ólst upp í Öxnadal og
gekk í skóla á Þverá. Hún
gerðist kaupakona á Hálsi í
Öxnadal og einnig í Bakkaseli.
Hún fluttist til Reykjavíkur í
kringum 1950 og vann sem
húshjálp hjá Guðjóni sem þá
hafði misst eiginkonu sína frá
sex börnum. María og Guðjón
giftust síðar og var hún mest-
megnis heimavinnandi eftir
það. Þau bjuggu öll sín hjú-
skaparár á Eiríksgötunni í húsi
sem Guðjón byggði. Þar hefur
alla tíð verið helsti griðastaður
fjölskyldunnar og ættingjar og
vinir fengið húsaskjól bæði um
langan og skamman tíma.
María var heilsuhraust fram
eftir aldri og flutti á hjúkr-
unarheimilið Skjól haustið
2009.
Útför Maríu og Jóhönnu
dóttur hennar fer fram frá
Guðríðarkirkju í dag, 14. júní
2011, og hefst athöfnin kl. 13.
María var gift
Guðjóni Guðjóns-
syni, f. 30. ágúst
1898 á Dalvík, d.
30. janúar 1992.
Hann var tré-
smíðameistari í
Reykjavík. Börn
þeirra eru: 1) Guð-
jón Steingrímur, f.
10. september
1951. 2) Jóhanna
Sigfríður, f. 26.
nóvember 1954, d. 1. júní 2011,
maki Pétur Rönning Jónsson, f.
8. nóvember 1954, þau eiga
þrjú börn og fjögur barnabörn.
Fyrir átti María eina dóttur,
Svölu Mambert, f. 4. nóvember
1939, búsett í Bandaríkjunum,
maki Daniel Mambert, f. 7.
febrúar 1943. Þau eiga eina
dóttur og eitt barnabarn. Fyrir
átti Svala fjögur börn og sjö
barnabörn. Börn Guðjóns og
Elsku amma, ég kveð þig nú og
minnist þín með gleði í hjarta. Þú
varst stór hluti af mínu lífi og ég á
þér margt að þakka. Þú varst
drottningin á Eiríksgötunni og
hélst stórfjölskyldunni saman.
Ég man vel eftir öllum þorrablót-
unum og öðrum veislum sem
haldnar voru þar sem húsið fyllt-
ist af ættingjum og vinum. Þetta
þótti þér gaman þar sem þú varst
mikil félagsvera. Kleinur, ástar-
pungar, pönnsur, jólasmákökur,
laufabrauð og ýmislegt annað í
þessum dúr er mér ofarlega í
huga. Alltaf allir skápar fullir af
góðgæti sem ég læddi mér í.
Ég veit að þú átt eftir að passa
vel upp á hana mömmu og ég bið
að heilsa afa.
Þín á eftir að verða sárt sakn-
að.
Hvíl í friði elsku amma.
Anna María.
Endar nú dagur, en nótt er nær,
náð þinni lof ég segi,
að þú hefur mér, Herra kær,
hjálp veitt á þessum degi.
Þó augun sofni aftur hér
í þér mín sálin vaki.
Guðs son, Jesús, haf gát á mér,
geym mín svo ekkert saki.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Hvíl í friði elsku langamma.
Jóhanna Rut, Jason Nói, Arn-
ór Pétur og Bryndís María.
María Valgerður
Jónsdóttir
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 – www.utforin.is – Allan sólarhringinn
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Jón G. BjarnasonHermann Jónasson
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÁSLAUG SIGURÐARDÓTTIR,
Lindasmára 39,
áður Laufbrekku 27,
Kópavogi,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
þriðjudaginn 7. júní.
Útför hennar verður gerð frá Kópavogskirkju miðvikudaginn
15. júní kl. 13.00.
Erlendur Guðjónsson,
Sigríður Guðjónsdóttir, Ingólfur Arnarsson,
Karl Guðjónsson,
Bára Guðjónsdóttir,
Jóna Guðjónsdóttir, Ásgeir Ásgeirsson,
Óskar Guðjónsson, Ásta S. Guðnadóttir,
Sigurður Guðjónsson,
Katrín S. Guðjónsdóttir, Vilhjálmur Á. Ásgeirsson,
Sigrún Guðjónsdóttir, Jón Davíð Hreinsson,
Guðlaug Guðjónsdóttir, Guðni Þór Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæri
SIGURÐUR HEIÐAR JÓNSSON
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri þriðjudaginn
7. júní.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtu-
daginn 16. júní kl. 13.30.
Ingibjörg Linda Sigurðardóttir, Stefán Alfreðsson,
Einar Sigurðsson, Þóra Soffía Gylfadóttir,
Arna Ýrr Sigurðardóttir, Elvar Árni Lund,
Bjarni Heiðar Sigurðsson, Malin Waldefeldt,
Baldur Heiðar Sigurðsson,
Bárður Heiðar Sigurðsson,
Börkur Heiðar Sigurðsson, Eva Einarsdóttir,
barnabörn, systkini hins látna og aðrir ástvinir.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
RAFN KRISTJÁNSSON,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
sunnudaginn 5. júní, verður jarðsunginn frá
Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn
15. júní kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á
hjúkrunarheimilið Skógarbæ.
Ingibjörg Rafnsdóttir,
Magnús Rafnsson, Arnlín Óladóttir,
Sigríður Rafnsdóttir, Rafn Jónsson,
Auður Rafnsdóttir, James Bett,
Hjördís Rafnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og bróðir,
ÁSGEIR AXELSSON,
Litla-Felli,
Skagaströnd,
lést miðvikudaginn 8. júní.
Útförin fer fram frá Hólaneskirkju laugar-
daginn 18. júní kl. 14.00.
Sigrún Guðmundsdóttir,
Axel Gígjar Ásgeirsson, Bryndís Þ. Heiðarsdóttir,
Hrönn Ásgeirsdóttir, Sigurjón Ragnarsson,
Einar Þór Ásgeirsson, Monika Jónasdóttir,
Ólafur Sveinn Ásgeirsson, Elva Þórisdóttir,
Sigríður Ólína Ásgeirsdóttir, Ágúst Óðinn Ómarsson,
Jóhann Ingi Ásgeirsson, Erla Jónsdóttir,
Gunnar Þröstur Ásgeirsson,
Anna Guðrún Ásgeirsdóttir,
Ása Ósk Ásgeirsdóttir, Jóhann G. Sigurjónsson,
Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir, Stefán Sveinsson,
Þóra Dögg Ásgeirsdóttir, Birgir Þór Ingason,
Ásta Ýr Ásgeirsdóttir, Gunnar Tryggvi Ómarsson,
barnabörn og systkini þess látna.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi
HANS PLODER
fagottleikari
lést á Landspítalanum Fossvogi
hvítasunnudag 12. júní.
Jarðarför auglýst síðar.
Jóhanna Kristín Jónmundsdóttir,
Franz Ploder, Aðalheiður Ploder,
Bryndís Ploder, Björgvin Ploder,
Jóhanna Ploder, tengdabörn, barnabörn,
og barnabarnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför eiginkonu minnar, móður og
tengdamóður
ALICE JULIU SIGURÐSSON
Sérstakar þakkir til allra þeirra, sem
önnuðust hana á Sjúkrahúsinu á Akureyri,
Landspítalanum og Heimahlynningunni á
Akureyri.
Aðalsteinn Sigurðsson,
Sigurður Aðalsteinsson, Helena Dejak.