Morgunblaðið - 14.06.2011, Blaðsíða 25
Þórunn Erlu Valdimarsdóttir rithöfundur.
Hvaða íslensku plötu þykir þér vænst um?
Á bleikum náttkjólum. Það var eina íslenska tónlistin sem
ég hafði heilt ár í Mexíkó 1977-1978.
Fékk hana senda á spólu. Sem texta-
maður er ég veik fyrir töfrum texta með
músik. Í upphafi voru tónlist og orð eitt.
Texti þenur tónlist í mikilfenglegar vídd-
ir.
Hvaða tónlistarmaður værir þú mest til í
að vera?
Joni Mitchell, Vala Gestsdóttir, Sigríð-
ur Thorlacius … mér finnst epli betra en
appelsína, en mangó er líka svo gott. Mozart og Mingus vil ég
vera líka og trymbill í Gíneu. Ég er ekki sá sem getur sagt
hvað er best þegar heimurinn er fullur af gæðum.
Hvað syngur þú í sturtunni?
Ég syng ekki í baði, bara í eldhúsinu og stofunni, sing-along
jazz sem ég kaupi í Tónastöðinni.
Hvað fær að hljóma villt og galið á föstudagskvöldum?
Ringa, ringa, ringa úr kvikmyndinni Slumdog millionaire.
Annars er ég oft of þreytt á föstudagskvöldum fyrir læti, spila
frekar sjálf á píanóið. Lögin mín eru úttroðinn ipod með allt
frá Silfurplötum Iðunnar til þungrar klassíkur til jazzverka til
pungarokks … alæta sem sagt. Hamingjan vex mjög inn úr
eyrunum og er tré með kirsuberjum.
En hvað yljar þér svo á sunnudagsmorgnum?
Samtímatónlist Dantes, fléttuð inn í Inferno, sem er lesin
af Heathcote Williams, lestur hans er músik líka. Það er rúm-
tónlist mín þessa dagana. Svo er oft hunang á Gufunni.
Í mínum eyrum Þórunn Erla Valdimarsdóttir
Svo er oft hun-
ang á Gufunni
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2011
» Listhópar Hins húss-ins eru starfræktir á
sumrin og þar gefst
ungu fólki færi á að sýna
hvað í því býr. Verk-
efnin eru fjölbreytt og
skapandi og eru sýnileg
vegfarendum Reykja-
víkurborgar á föstudög-
um, en fyrsta Föstu-
dagsfiðrildi sumarsins
var fyrir helgi.
Föstudagsfiðrildi Hins Hússins
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
„Aðferðir við að láta tímann líða“ kallast innsetning sem Brogan og Ellen voru með í Mæðragarðinum.
Listatvíeykið Pínulítið skárra ritar ljóðabrot og tilvitnanir
eftir íslensk skáld á gangstétt í miðborginni. Samaris spilar lifandi tónlist þar sem fortíð mætir nútíð.
Dansarar taka sporið á Lækjartorgi.
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Húsmóðirin (Nýja sviðið)
Mið 15/6 kl. 20:00 Mið 22/6 kl. 20:00 aukasýn Fim 23/6 kl. 20:00 aukasýn
Sýningum lýkur í júní. Ósóttar pantanir seldar daglega
Húsmóðirin – sýningum líkur í júní