Morgunblaðið - 14.06.2011, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2011
TÓNLIST
Hallur Már
hallurmar@mbl.is
Nákvæm vélræn hrynjandi með
flóknum stærðfræðilega hönnuðum
lúppum og bjöguðum melódíum sem
ferðast á sporbaug hver um aðra.
Amerískt afbrigði af útpældu og
þungu kraut-rokki og því sem eng-
inn dirfist að viðurkenna að fíla,
prog-rokki. Þannig væri hægt að
lýsa tónlist New York-sveitarinnar
The Battles. Einstaka lög eru sungin
og á köflum minna þeir félagar á
Trans Am í Futureworld-gírnum
eða jafnvel kraftmikla keyrslu !!!
(Chk Chk Chk). Á stundum má jafn-
vel finna suðræna latín-stemningu í
vandlega samsettum hljóðveggnum.
Mirrored
Sveitin var stofnuð árið 2002 af
þeim Dave Konopka, Ian Williams,
Tyondai Braxton og John Stanier
(trommarinn úr Helmet sem margir
rokkhundar ættu að muna eftir).
Hljómsveitin gaf út þrjár EP-plötur
árið 2004. Skífurnar vöktu áhuga
Warp-útgáfunnar sem gerði samn-
ing við fjórmenningana. Árið 2007
Orrustan er hafin á ný
Ný plata frá Battles er komin út Amerísk útgáfa af kraut-rokki Gary
Numan og Kazu Makino koma að verkinu Leoncie í miklu uppáhaldi
Flottir Battles stillir sér upp. „Amerískt afbrigði af útpældu og þungu kraut-rokki og því sem enginn dirfist að viðurkenna að fíla, prog-rokki.“
kom svo út platan Mirrored sem
sveitin hlaut mikið lof fyrir. Sér-
staklega hið magnaða Atlas sem
m.a. var valið besta smáskífa vik-
unnar í hinu breska NME. Í fyrra
sagði svo gítarleikarinn og söngv-
arinn Braxton skilið við sveitina. Að
sögn var hann orðinn þreyttur á
ferðalögunum sem fylgdu spila-
mennskunni og trufluðu önnur verk-
efni hans í tónsmíðum.
Gloss Drop
Þremenningarnir héldu ótrauðir
áfram og gáfu út plötuna Gloss Drop
á dögunum sem þykir vera aðgengi-
legri og jafnvel poppaðri en Mirro-
red. Til
þess að
fylla í skarð
Braxtons
fengu sveit-
armenn
nokkra
gesta-
söngvara til
þess að
koma fram
á Gloss
Drop. Indí-
gyðjan
Kazu Mak-
ino úr Blonde Redhead syngur í einu
lagi og sömu sögu er að segja af
Gary Numan sem líklega er þekkt-
astur fyrir smellinn Cars frá árinu
1979. Þá kemur japanski tónlistar-
og myndlistarmaðurinn Yamantaka
Eye fram. Platan hefur fengið góða
dóma, er t.d. með 79 af hundrað
mögulegum á metacritic.com. Ýmsir
poppspekúlantar hafa gengið svo
langt að tala um kandídat í plötu árs-
ins. Hvort eitthvað sé til í því skal
ósagt látið en óhætt er að mæla með
gripnum. Spilagleði sveitarinnar er
smitandi, eiginlega má finna svita-
lykt af hverri nótu. Öllu er svo haldið
saman af mannlega róbótnum Stan-
ier sem fer hamförum á settinu.
Fíla IcySpicy Leoncie
Miðað við það sem finna má á net-
inu er þetta kynngimögnuð tónleika-
sveit sem væri gaman að fá á klak-
ann. Líklega væri auðsótt að fá þá til
að ferðast til landsins en þeir félagar
eru yfirlýstir aðdáendur hinnar einu
sönnu Leoncie. Á Youtube-síðu
sveitarinnar er að finna lista yfir
áhugaverð myndskeið sem þeir
mæla með. Þar á meðal er hið stór-
brotna lag IcySpicy Leoncie „Tee-
nage Boy In Town“.
Nýrómantíkur-stjarnan Gary
Numan leggur Battles lið í
laginu My Machines. Ásamt
hljómsveit sinni Tubeway
Army gerði hann hið frábæra
Are Friends Electric sem
komst á topp breska vin-
sældalistans árið 1979 og
sömu sögu er að
segja af laginu Cars
sem hann gaf út
undir eigin nafni.
Vinsældirnar voru
merkilegar fyrir þær
sakir að vera fyrstu
syntha-smellirnir í
kjölfar þess að pönk-
ið hafði bylt tónlist-
arlandslaginu.
Hljóð-
gervlapönk
GARY NUMAN
The Pleasure Prin-
ciple frá árinu 1979
Óbyggðapopparinn Justin Vernon
eða Bon Iver er enginn venjulegur
maður. Eftir að hafa slitið ást-
arsambandi og hætt í hljómsveit-
inni DeYarmond Edison ásamt því
að berjast við erfið veikindi hafði
hann vetursetu í óbyggðum Wis-
consin. Þar tók hann upp For
Emma, Forever Ago. Platan naut
mikilla vinsælda og var ein af plöt-
um ársins 2008. Á dögunum kom
svo út platan Bon Iver. Athygli
vakti þegar iTunes-búðin þjóf-
startað sölunni á dularfullan hátt í
maí, fróðlegt verður að sjá hvort
platan nái að standa undir þeim
miklu væntingum sem til hennar
eru gerðar.
Ný plata frá Bon
Iver komin út
Í því flóði af nýrri tónlist sem kem-
ur út í hverri viku getur verið erfitt
að átta á sig á því hvað er gott og
hvað er froða. Ein af þeim frábæru
plötum sem komu út í fyrra án þess
að mikið væri með hana látið var
platan Innerspeaker með áströlsku
sýrurokkurunum í Tame Impala. Á
plötunni er að finna vel samin mel-
ódísk lög skreytt smekklegum
spilaköflum. Útkoman hljómar svo-
lítið eins og að sýrutrippið hans
Johns Lennons hafi aldrei klárast.
Allt er svo hljóðblandað af snill-
ingnum Dave Fridmann (Flaming
Lips, Mercury Rev ofl.). Skotheld
plata.
Áleitin, áströlsk
sækadelía
JACK SPARROW ER MÆTTUR Í
STÆRSTU MYND SUMARSINS!
STÓRKOSTLEG ÞRÍVÍDDAR ÆVINTÝRAMYND MEÐ JOHN-
NY DEPP, PENÉLOPE CRUZ, IAN MCSHANE OG GEOFFRY
HHHH
“SANNKALLAÐUR GIMSTEINN!
HIN FULLKOMNA SUMARMYND
Í ALLA STAÐI. JACK SPARROW
ER SANNARLEGA KVIKMYN-
DAFJÁRSJÓÐUR”
- P.H. BOXOFFICE MAGAZINE
“STÓRKOSTLEG! BESTA
MYNDIN Í SERÍUNNI”
- L.S - CBS
“BESTA ‘PIRATES’
MYNDIN”
- M.P FOX TV
“FRÁBÆR SKEMMTUN! JOHNNY
DEPP OG PENÉLOPE CRUZ ERU
TÖFRUM LÍKUST. EINSTAKLEGA
ÞOKKAFULL”
- D.S HOLLYWOOD CLOSE-UPS
HHHH
“SJÓNRÆN VEISLA”
“STÓR SKAMMTUR AF HASAR”
- K.H.K. - MORGUNBLAÐIÐ
HHHH
“IT ACTUALLY IMPROVES
ON THE JOKES”
- TIME OUT NEW YORK
“BANGKOK ADVENTURE IS NOT
WITHOUT ITS SHOCKING,
LAUGH-OUT-LOUD MOMENTS.”
- HOLLYWOOD REPORTER
80/100 HHHH
„Djarfasta og best skrifaða
X-Men-myndin til þessa.”
-T.V., Kvikmyndir.is/Séð & Heyrt
HHHH
„Þetta er sannarlega fyrsta
flokks ofurhetjumynd!“
-Þ.Þ., Fréttatíminn
JACK BLACK,
ANGELINA JOLIE,
DUSTIN HOFFMAN,
JACKIE CHAN,
SETH ROGEN,
LUCY LIU,
JEAN-CLAUDE
VAN DAMME OG
GARY OLDMAN
ÞRÍVÍDD EINS OG
HÚN GERIST BEST
FRÁBÆR FJÖLSKYLDUSKEMMTUN
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
HHHH
- BOX OFFICE MAGAZINE
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
HHHH
"KUNG FU PANDA 2 ER
SKOTHELD SKEMMTUN."
- Þ.Þ. FRÉTTATÍMINN
MIÐASALA Á WWW.SAMBIO.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI,
AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í EGILSHÖLL
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI,
AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA
THE HANGOVER 2 kl. 6-8-9-10:20-11:10 12
THE HANGOVER 2 kl. 5:40 - 8 - 10:20 VIP
PIRATES OF THE CARRIBEAN kl. 6 - 8 3D - 10 10
KUNG FU PANDA 2 3D ísl. tal kl. 6 L
KUNG FU PANDA ísl. tal kl. 6 L
KUNG FU PANDA 3D enskt tal kl. 10:50 (ótextuð) L
KUNG FU PANDA enskt tal kl. 6 - 10:20 (textuð) L
SOMETHING BORROWED kl. 8 L
/ ÁLFABAKKA
THE HANGOVER 2 kl. 5:30-8-8:20-10:25-11 12
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3D kl. 5 - 8 - 10:40 10
X-MEN: FIRST CLASS kl. 5 - 8 - 10:45 14
KUNG FU PANDA 3D ísl. tal kl. 4 - 6 L
KUNG FU PANDA 2 3D ísl. tal kl. 6 L
KUNG FU PANDA 2 3D enskt tal kl. 8:10-10:20(ótextuð) L
THE HANGOVER 2 kl. 6-8-10:20 12
PIRATES OF THE CARRIBEAN kl. 6 - 9 10
THE HANGOVER 2 kl. 8 - 10:20 12
PIRATES OF THE CARRIBEAN kl. 6 - 9 10
KUNG FU PANDA 2 3D ísl. tal kl. 6 L
KUNG FU PANDA 2 3D ísl. tal kl. 5:50 L
BRIDESMAIDS kl. 8 - 10:30 12
THE HANGOVER 2 kl. 8 - 10:20 12
DÝRAFJÖR ísl. tal kl. 5:50 L
/ EGILSHÖLL
/ KRINGLUNNI
/ AKUREYRI
/ KEFLAVÍK
/ SELFOSSI
X-MEN: FIRST CLASS kl. 8 - 10:40 14
THE HANGOVER 2 kl. 8 - 10:20 12
KUNG FU PANDA 2 ísl. tal kl. 6 L
PIRATES OF THE CARRIBEAN kl. 5:20 10
RÓMANTÍSK GAMANMYND EINS OG ÞÆR GERAST BESTAR.
ÓTRÚLEGA FYNDIN MYND SEM ÞÚ MUNT ELSKA!
„MYNDIN ER FRÁBÆR:
KYNÞOKKAFULL OG FYNDIN“
- P.H. BOXOFFICE MAGAZINE
HHHH
- IN TOUCH
HHHH