Morgunblaðið - 16.06.2011, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2011
Sex nemendur sem útskrifast hafa úr grunnnámi í
eðlisfræði og efnafræði við Háskóla Íslands á síð-
ustu þremur árum hlutu verðlaun úr Verðlauna-
sjóði Guðmundar P. Bjarnasonar frá Akranesi
vorið 2011. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega at-
höfn á Háskólatorgi í gær. Nemendurnir, fimm
konur og einn karl, eiga það sameiginlegt að hafa
náð þeim afburðaárangri að hljóta ágætiseinkunn
í BS-námi sínu við raunvísindadeild.
Verðlaunaféð nemur 750 þúsund krónum fyrir
hvern verðlaunahafa og því er heildarupphæðin
4,5 milljónir króna. Þetta er með veglegustu verð-
launum sem háskólanemum eru veitt hér á landi.
Verðlaunum var úthlutað fyrir námsárangur
við brautskráningu árið 2009 og komu þau í hlut
Þóreyjar Maríu Maríusdóttur fyrir eðlisfræði. Þá
voru veitt tvenn verðlaun fyrir námsárangur við
brautskráningu árið 2010. Þau hlutu Inga Rún
Helgadóttir fyrir eðlisfræði og Katla Kristjáns-
dóttir fyrir efnafræði. Loks voru veitt þrenn verð-
laun fyrir námsárangur við brautskráningu nú í
vor. Þau hlutu Elvar Karl Bjarkason og Kristín
Björg Arnardóttir fyrir eðlisfræði og Katrín Lilja
Sigurðardóttir fyrir efnafræði.
Átti ekki kost á að stunda háskólanám
Verðlaunasjóður Guðmundar P. Bjarnasonar
frá Akranesi var stofnaður árið 2000 með rausn-
arlegri gjöf Guðmundar. Hann fæddist á Sýru-
parti á Akranesi 1909 og bjó um árabil á Höfða,
dvalarheimili aldraðra á Akranesi. Hann lést í
febrúarmánuði 2006 í hárri elli. Guðmundur átti
þess ekki kost að stunda háskólanám en starfaði
sem netagerðamaður og fiskmatsmaður á Akra-
nesi auk þess að stunda útgerð í félagi við bróður
sinn. Guðmundur var einn af stofnendum Knatt-
spyrnufélagsins Kára árið 1922 og Taflfélags
Akraness árið 1933.
Ljóst er að hlutfallslega færri nemendur sækja
háskólanám í eðlis- og efnafræði á Íslandi en í
samanburðarlöndum okkar. Stuðningur Guð-
mundar við háskólanemendur í eðlis- og efna-
fræði er því mikilvægur, segir í frétt frá Háskóla
Íslands.
Stjórn Verðlaunasjóðs Guðmundar P. Bjarna-
sonar frá Akranesi skipa Guðmundur G. Haralds-
son, prófessor í efnafræði, sem er formaður, Haf-
liði Pétur Gíslason, prófessor í eðlisfræði, og
Eiríkur Dór Jónsson, fulltrúi Arion banka sem er
vörsluaðili sjóðsins samkvæmt skipulagsskrá.
sunna@mbl.is
Sex nemendur hljóta verðlaun fyrir afburðanámsárangur í eðlisfræði og efnafræði
Morgunblaðið/Kristinn
Fimm konur og einn karl báru af
4,5 milljónum úthlutað til háskólanema Netagerðarmaður stofnaði sjóðinn
Gömul mynd
Mistök urðu til þess að mynd frá
kirkjuþingi sl. haust var birt með
frétt á bls. 2 í Morgunblaðinu í gær
þar sem fjallað var um kirkjuþing er
kom saman á þriðjudag. Beðist er
velvirðingar á þessu.
LEIÐRÉTT
Bíladagar Bílaklúbbs Akureyrar
verða haldnir um helgina en þeir
hafa verið árlegur viðburður síðan
1996. Að þessu sinni verður hátíðin
með nokkuð öðru sniði en verið hef-
ur því tvær keppnisgreinar verða
fluttar úr miðbæ Akureyrar á nýtt
akstursíþróttasvæði bílaklúbbsins
við Rangárvelli ofan bæjarins.
Þó verður áfram götuspyrna á
Tryggvabraut líkt og verið hefur.
Ennfremur hefur Bílaklúbbur
Akureyrar samþykkt sérstakar
siðareglur þar sem gestir hátíð-
arinnar eru hvattir til þess að
ganga vel um og sýna íbúum og
öðrum gestum fyllstu tillitssemi.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Siðareglur fyrir Bíla-
daga á Akureyri
- nýr auglýsingamiðill
569-1100
finnur@mbl.is
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Fegurðin
byrjar innst
Laugavegi 53, s. 552 1555
TÍSKUVAL
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 11-16
Útsalan
hefst í dag
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið: mán.-fös. kl. 11-18 | lau. 10-16
Nýtt kortatímabil
Hæ, hó, jibbí jei
17% afsláttur af
öllum vörum
fimmtudag og laugardag
í tilefni af 17. júní
ATH! Lokað 17. júní
Laugavegi 63 • S: 551 4422
KÁPURNAR,
EINSTÖK GÆÐI OG GLÆSILEIKI
Skoðið
fleiri v
örur á
www.l
axdal.i
s