Morgunblaðið - 16.06.2011, Side 11
Ljósmynd/Náttúruskóli Reykjavíkur
Útikennsla Leikskólabörn í Reykjavík fræðast um gróðurinn í útikennslu. Það er margt að læra um náttúruna.
því að fara út með börn og vinna ut-
andyra. Bæði í útikennslu í öllum
mögulegum námsgreinum og dýpka
skilning þeirra á umhverfismálum og
gera þá betur í stakk búna að fjalla
um umhverfismál með nemendum
sínum,“ segir Helena og bætir við að
allir séu mjög jákvæðir og áhuga-
samir um útikennslu og umhverf-
ismennt.
Mikill áhugi á útikennslu
Náttúruskólinn hefur náð til
91% grunnskóla borgarinnar með
einhverjum hætti og 60% leikskóla
fengið einhverja fræðslu. Árið 2010
sóttu 308 kennarar námskeið hjá
Náttúruskólanum.
Helena segist sjá miklar fram-
farir síðan skólinn var stofnaður
2005.
„Já, ég get sagt það óhikað. Það
er búinn að vera mjög mikill áhugi á
útikennslu. Það hefur líka skilað sér
inn til Kennaraháskólans, þar eru
mjög margir nemendur sem hafa
áhuga á útikennslu. Fyrir tveimur ár-
um gerðum við könnun á því hversu
útbreitt þetta væri orðið og miðað við
þá skilgreiningu sem við styðjumst
við á útikennslu svöruðu 70% grunn-
skóla í Reykjavík því til að nemendur
væri í útikennslu.“
Ekkert annað sveitarfélag á Ís-
landi rekur náttúruskóla en fyr-
irmyndin að skólanum er sótt til
Skandinavíu að sögn Helenu. „Þar
eru náttúruskólar reyndar það vel
búnir að þeir taka gjarnan á móti
nemendahópum. Ég hef ekki tök á
því en hins vegar hef ég starfað með
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og
Grasagarðinum Reykjavíkur í því að
byggja upp fræðsludagskrá þar. Það
eru mjög margir áhugasamir um að
opna sína starfsemi fyrir skólunum.“
Helena segist viss um að það
verði meiri vakning í framtíðinni í
þessum málum innan skólakerfisins.
„Ég held að við komumst ekki hjá
því. Í nýrri aðalnámskrá sem kom í
vor er sjálfbærni einn af sex grunn-
þáttum sem eiga að vera í námi á
leik-, grunn- og framhaldsskólastigi.
Umhverfismennt og útikennsla eru
svo ofboðslega stórir þættir í sjálf-
bærni þannig að þetta kemur bara til
með að aukast og þörf kennara fyrir
stuðning á þessu sviði kemur bara til
með að aukast.“
www.natturuskoli.is
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2011
Eftir að hafa grandskoðað málið í 33
ár ákvað Bandaríska alríkisfæðu- og
lyfjaeftirlitinu (U.S. Food and Drug
Administration (FDA)) að taka skref-
ið á þriðjudaginn og setti nýjar reglur
um sólarvörn. Reglurnar tilgreina
hvaða sólarvörn veitir besta vörn
gegn útfjólubláum geislum og tekur
fyrir fullyrðingar um að sólarvörn sé
vatnsheld. FDA segir að sólarvörn
verði að veita jafna vörn gegn tveim-
ur tegundum af útfjólubláum
geislum, UVB og UVA, til að geta
sagst bjóða breiða vernd. UVB-
geislar valda bruna, UVA-geislar
valda hrukkum, báðir valda krabba-
meini.
Reglurnar banna einnig framleið-
endum sólarvarna að fullyrða að vara
þeirra sé vatnsheld eða svitaheld því
slíkar fullyrðingar standast ekki. Í
staðinn mega þeir segja í hversu
langan tíma vörnin er vatnsþolin,
samkvæmt prófunum.
Aðeins á sólarvörn með SPF-stuðul
15 eða hærra má segja að hún hjálpi
til við að koma í veg fyrir sólbruna og
draga úr hættu á húðkrabbameini og
ótímabærri öldrun húðarinnar.
Enn er ekki búið að ákveða hvort
binda eigi enda á framleiðslu SPF
númer 70, 80 og 100 því þær sól-
arvarnir veita ekki mikið meiri vernd
en sólarvarnir með SPF 50. En
læknar sem komu að reglusetning-
unni eru sammála um að sólarvarnir
með SPF yfir 50 geri ekkert meira en
vörn með SPF 50. Allar vörur sem
veita ekki tilhlýðilega vernd eða eru
með SPF 2 til 14 verða að bera við-
vörun sem sýnir að varan hjálpi ekki
til við að koma í veg fyrir húð-
krabbamein eða ótímabæra öldrun.
Í Bandaríkjunum fá yfir tvær millj-
ónir manna meðferð ár hvert við
tveimur algengustu gerðunum af
húðkrabbameini. 68.000 þúsund fá
greiningu á sortuæxli ár hvert.
Nýju reglurnar koma þó ekki í veg
fyrir algengasta vandamálið varðandi
sólarvörn, að fólk muni eftir að nota
hana og nóg af henni.
Heilsa
Reuters
Sólbað Það er mikilvægt að bera á sig góða sólarvörn á sólardögum.
Má ekki fullyrða að
sólarvörn sé vatnsheld
FERÐ ELDRI
FÉLAGA
SPENNU-
GOLF
Hin árlega ferð Rafiðnaðarsambands Íslands árið
2011 fyrir eldri félaga sambandsins verður farin
þann 29. júní. kl. 13 frá Stórhöfða 27,
Grafarvogsmegin.
Að þessu sinni verður farið í Árbæjarsafn og safnið
skoðað og svo verður haldið í nýjan sal Rafiðnaðar-
skólans að Stórhöfða 27 þar sem kaffiveitingar
bíða þátttakenda.
Nánari upplýsingar og skráning hjá Svövu í síma
580-5226 eða með rafpósti á svava@rafis.is.
Spennugolfi 2011 verður haldið þann 24. júní á
Strandarvelli á Hellu. Þátttökugjald er kr. 5.000.-
Innifalið í gjaldinu er golf, matur og rúta.
Rúta fer frá Stórhöfða 31, stundvíslega kl. 10:00.
Áætlað er að hefja leik kl. 12:00.
Þátttakendur vinsamlega skráið:
Nafn, kennitölu, GSM, grunnforgjöf og hvort komið
verði með rútunni.
Sendið á: stefan@rafis.is eða í síma 580-5253
Nánari upplýsingar á www.rafis.is/golfrsi/
RAFIÐANAÐARSAMBAND ÍSLANDS