Morgunblaðið - 16.06.2011, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2011
Eitt lítið steingert bein hefur fengið blóð forn-
leifa- og risaeðlufræðinga heimsins til að ólga í
æðum þeirra. Fimm sentimetra langur stein-
gerður hryggjarliður, sem fannst nýverið í Ástr-
alíu hefur mikla sögu að segja um útbreiðslu
risaeðla á jörðinni á sínum tíma. Hryggjarlið-
urinn, sem talinn er vera 125 milljóna ára gam-
all, er úr skepnu sem kölluð er spinosaurid. Eðl-
an sú var ekki ósvipuð krókódíl, með langa
trjónu og veiddi líklega fisk til að éta.
Steingervingurinn er sá fyrsti af þessari eðlu-
tegund sem finnst í Ástralíu en mjög sambæri-
legur hryggjarliður hefur fundist á Bretlands-
eyjum. Fundurinn í Ástralíu bendir því til þess
að heimkynni risaeðla hafi ekki verið bundið við
norðurhvel annars vegar og suðurhvel hins veg-
ar, líkt og áður hefur verið talið.
„Þessi litli hryggjarliður grefur undan við-
teknum viðhorfum um útbreiðslu risaeðla,“ segir
Paul Barrett, hjá Náttúrugripasafni Lundúna
við BBC. Hann segir að í kjölfar fundarins í
Ástralíu hafi aðrar risaeðlutegundir verið teknar
til endurskoðunar. „Að teknu tilliti til allra rann-
sóknargagna, þá hefur það runnið upp fyrir okk-
ur að margar risaeðlutegundir sem við töldum
áður aðeins hafa tilheyrt öðru hvoru jarðarhveli,
voru mun útbreiddari,“ segir Barrett. Hann
ítrekar þó að gögnin sem til eru um skepnurnar
tvær séu nokkuð takmörkuð. Engu að síður seg-
ir hann vísindamennina nokkuð vissa í sinni sök:
Dýrin voru náskyld. sunna@mbl.is
Tvífari breskrar risaeðlu fundinn
Steingerður hryggjarliður risaeðlu finnst í Ástralíu Ekki áður fundist í álfunni en átti
náskyldan frænda á Bretlandseyjum Umbyltir fyrri kenningum um útbreiðslu risaeðlanna
Reuters
Ættingi Krókódílar eru fornar skepnur og áströlsk risaeðla var frænka þeirra.
Frændur sinn í
hvorri heimsálfu
» Hryggjarliðurinn ástralski
fannst Victoriu-ríki þar í landi.
» Hryggjarliður af breskum
frænda hafði áður fundist á
Suður-Englandi en á þeim tíma
sem risaeðlan sem liðurinn er
úr var uppi var mun hlýrra á
Englandi og mikil vötn víða.
» Eðlan var með trjónu líkt og
krókódíll og tennur sem hent-
að hafa vel til fiskveiða í
grunnu vatni.
» Talið er líklegt að sú ástr-
alska hafi haldið til í sigdal
sem myndaðist er Suð-
urskautslandið rak frá Ástralíu.
SVIÐSLJÓS
Sunna Ósk Logadóttir
sunna@mbl.is
Útbreiðsla Facebook á sér engin for-
dæmi. Notendur skipta hundruðum
milljóna en nú eru blikur á lofti. Í síð-
asta mánuði fækkaði notendum í
Bretlandi og Bandaríkjunum og á
öðrum helstu útbreiðslusvæðum hef-
ur fjöldinn staðið í stað. Því er ekki að
furða að einhverjir velti fyrir sér
hvort Facebook hafi náð hátindinum.
Þegar Facebook leit dagsins ljós
voru fáir sem gagnrýndu þennan nýja
samskiptamáta. Nú má hins vegar
reglulega lesa fréttir um að öryggi
persónuupplýsinga sé þar ábótavant.
Að auki er nú ítrekað rætt um þann
tímaþjóf sem Facebook er. Mörg stór
fyrirtæki hafa lokað fyrir aðgang að
síðunni, enda telja þau vafasamt að
dýrmætum vinnustundum sé eitt í að
„pota“ í vinina, uppfæra „statusa“ og
henda stafrænum kindum í félagana í
leikjum á borð við Farmville.
En tölurnar tala sínu máli. Í byrjun
maí síðastliðins voru notendur í
Bandaríkjunum 155,2 milljónir en í
enda mánaðarins voru þeir orðnir
149,4 milljónir. Á sama tíma fækkaði
notendum um 100 þúsund í Bretlandi.
Tölurnar eru gefnar út af Facebook.
Stofnandinn lærir kínversku
Þó að hér sé aðeins um einn mánuð
að ræða gefa tölurnar vísbendingar
um að hugsanlega hafi útbreiðsla Fa-
cebook náð hámarki. En ekki má
gleyma að á ákveðnum svæðum
heimsins eru ónumin lönd, enn er Fa-
cebook ekki komin til Kína og vissu-
lega er sá markaður gríðarlega stór.
Komist Facebook inn fyrir Kína-
múrana er víst að notendurnir kom-
ast ekki aðeins í 700 milljónir, eins og
nú er stefnt að, heldur jafnvel helm-
ingi betur. Þess má geta að stofnandi
Facebook, Mark Zuckerberger, er nú
að læra mandarín, þá tungu sem flest-
ir Kínverjar tala.
Hefur Facebook náð hátindinum?
Reuters
Forstjórinn Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, er að læra kínversku.
Vísbendingar eru um að samskiptasíðan Facebook hafi náð hátindinum Notendur týna tölunni og
deilur um öryggi upplýsinga magnast Kína er enn óplægður akur og gæti tvöfaldað notendafjöldann
Háskólanemar í Níkaragva komu saman á götum úti í borginni Managva í
gær til að mótmæla morði á ungum manni, Evans Ponce í síðasta mánuði.
Hópur unglinga réðist að Ponce, og myrtu er þeir reyndu að stela far-
símanum hans.
Unglingarnir, sem voru allir undir 18 ára aldri, fengu að mati há-
skólanemanna of vægan dóm en samkvæmt lögum í landinu er hámarks-
refsing barna og ungmenna sex ár.
Háskólanemarnir vilja að refsingar verði þyngdar yfir þeim ungmenn-
um sem fremja alvarlega glæpi. Morðið á Ponce hefur vakið mikla athygli í
Níkaragva og hörð viðbrögð.
Reuters
Vilja þyngri refsingar yfir unglingum
Ein af þeim skýringum sem
kann að vera á því að not-
endafjöldi Facebook stendur í
stað er sú að snjallsímar eru
orðnir vinsælir. Vissulega er
hægt að komast á Facebook í
gegnum þá en þúsundir annarra
forrita eru í boði. Einnig má
leiða að því líkum að á helstu
útbreiðslusvæðunum sé mark-
aðurinn einfaldlega mettaður
enda a.m.k. hálf breska þjóðin
skráð á Facebook. Það sama á
við í Bandaríkjunum.
Snjallir símar
SAMKEPPNIN
Fyrrverandi
stjórnarformað-
ur barnasjóðs
Nelsons Mandela
hefur verið sýkn-
aður af suðurafr-
ískum dómstól af
ákæru fyrir ólög-
lega vörslu blóð-
demanta. Mað-
urinn hafði tekið
við demöntunum úr hendi bresku
fyrirsætunnar Naomi Campbell.
Demantarnir umdeildu voru gjöf
fyrrum Líberíuforseta, Charles
Taylors, til Campbell, en í ljós kom
síðar að þeir voru ólöglegir, svo-
kallaðir blóðdemantar.
sunna@mbl.is
SUÐUR-AFRÍKA
Sýknaður í „blóð-
demanta“-máli
Naomi Campbell
Afganistan er versti staður á jarð-
ríki fyrir konur að búa á. Lönd á
borð við Indland, Kongó, Pakistan
og Sómalíu eru ekki mikið skárri að
teknu tilliti til ofbeldis gegn kon-
um, fjölda nauðgana, gæða heil-
brigðisþjónustu og fátæktar. Þetta
sýnir ný rannsókn sem gerð var af
Thomson Reuters-stofnuninni í til-
efni þess að vefsíðan TrustLaw
Woman er komin í loftið.
AFGANISTAN
Hvergi í heiminum
verra að vera