Morgunblaðið - 16.06.2011, Blaðsíða 23
Vinkonurnar Anna Rakel
Gunnarsdóttir, Ragnhildur
Sól Guðmundsdóttir og
Berglind Líf Jóhann-
esdóttir stóðu fyrir hluta-
veltu í hverfinu sínu og
söfnuðu 6.261 krónu, sem
þær styrktu Rauða kross-
inn með.
DAGBÓK 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2011
Sudoku
Frumstig
4 3 2
2 9
4 7 6
5 4 1
9 3 7 4
7 2 1
6 2 1
3 5
3 2 9
8 7 3 2 6
1 2
5 3 1 8
5
1 2
8 7
7 3
3 5 1 8
1 9 2 6
1 3
3 5 7 4
5 9 6 7
9 1 7
4 7 9
3 5
1 3 9
4 1
8
1 9 6 7 8 5 4 3 2
4 2 3 1 9 6 5 8 7
7 5 8 4 3 2 9 6 1
6 3 7 9 1 8 2 5 4
9 4 2 5 6 7 3 1 8
8 1 5 2 4 3 7 9 6
3 7 4 6 5 1 8 2 9
2 8 1 3 7 9 6 4 5
5 6 9 8 2 4 1 7 3
9 5 1 7 4 3 8 6 2
3 4 8 6 2 9 7 1 5
2 7 6 1 8 5 9 3 4
5 2 7 9 6 1 4 8 3
8 1 3 4 5 2 6 9 7
4 6 9 8 3 7 5 2 1
6 3 4 5 1 8 2 7 9
1 9 5 2 7 6 3 4 8
7 8 2 3 9 4 1 5 6
9 5 2 4 7 1 6 8 3
7 8 1 3 5 6 2 9 4
3 4 6 2 9 8 5 1 7
2 9 7 6 1 4 8 3 5
8 3 4 9 2 5 7 6 1
6 1 5 7 8 3 9 4 2
4 2 3 5 6 9 1 7 8
1 7 9 8 3 2 4 5 6
5 6 8 1 4 7 3 2 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 16. júní,
167. dagur ársins 2011
Orð dagsins: En hann frelsar hinn
bágstadda með bágindum hans og
opnar eyru þeirra með þrengingunni.
(Jobsbók 36, 15.)
Víkverji er hrifinn af skyrtertumMjólku og þá sérstaklega sól-
berjakökunni. Hann hefur hins veg-
ar í tvígang rekið sig á að myndin ut-
an á öskjunni utan um kökuna er
ekki í neinu samræmi við kökuna
sjálfa. Á öskjunni getur að líta skyr-
tertu með þykku lagi af dökku sól-
berjahlaupi og gnótt sólberja. Þegar
askjan var opnuð blasti hin vegar við
örþunnt lag af hlaupi og þrjú, fjögur
ber í hnapp á jaðrinum. Kakan var
vissulega ljúffeng, en Víkverji gat
ekki að því gert að honum fannst
hann hafa verið svikinn. Myndin á
umbúðunum gaf fyrirheit um annað
en upp úr þeim kom.
x x x
Fyrir margt löngu fáraðist Vík-verji yfir stútum á lítrafernum
af G-mjólk. Stútar þessir virðast sér-
hannaðir til að niðurlægja neytand-
ann. Þeir eru nefnilega þannig úr
garði gerðir að þegar fernan er stút-
full er ógerningur að hella úr henni
án þess að mjólkin sullist út um allt.
Víkverja hefur í það minnsta liðið
eins og einhvers staðar hlyti að vera
falin myndavél þegar hann hefur
glímt við að hella úr fernum með
þessum stútum og veltir því fyrir sér
hvort engum hafi dottið í hug að at-
huga hvort stúturinn virkaði áður en
farið var að fjöldaframleiða hann.
Þus Víkverja um stútinn á G-
mjólkurfernunum hafði engin áhrif á
Mjólkursamsöluna – í það minnsta
eru þeir enn notaðir. Finnur Víkverji
því til áhrifaleysis síns. Á vinnustað
Víkverja hefur hins vegar verið
brugðist við. Nú eru ekki lengur
lítrafernur í kaffikrókum, heldur
pelar, sem eru öllu viðráðanlegri
þegar hellt skal úr þeim.
x x x
Nú þarf Víkverji ekki lengur aðvaka yfir körfubolta sum-
arnætur langar. Ellibelgirnir í Dall-
as Mavericks urðu um helgina meist-
arar í NBA eftir frækinn sigur á
stjörnuliði Miami Heat. Dirk No-
witzki, burðarás Dallas, hefur nú
rekið af sér slyðruorðið. Hann er
ekki lengur kallaður Nowinski, held-
ur hefur fengið viðurnefnið Dirkúles.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 karp, 4 stilltur, 7
ryskingar, 8 þakin ryki, 9
væn, 11 numið, 13 kvenfugl,
14 sammála, 15 þríhyrna, 17
handleggja, 20 títt, 22 mis-
teygir, 23 bætt, 24 þreyttar,
25 hinn.
Lóðrétt | 1 þægilegur við-
ureignar, 2 fiskar, 3 lítið
skip, 4 ómjúk, 5 byssubógs, 6
staðfest venja, 10 margt, 12
blekking, 13 saurga, 15 af-
drep, 16 ilmur, 18 auðugan,
19 nabbinn, 20 eirðarlaus, 21
hey.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 auðsveipt, 8 lagin, 9 doppa, 10 nei, 11 narra, 13 róaði,
15 hvarf, 18 gassi, 21 lóu, 22 rugga, 23 leiti, 24 ónytjungs.
Lóðrétt: 2 uggur, 3 senna, 4 endir, 5 pipra, 6 flón, 7 bali, 12 rýr,
14 ósa, 15 hóra, 16 augun, 17 flatt, 18 guldu, 19 sting, 20 iðin.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sögulegir punktar. S-Allir.
Norður
♠K83
♥KG
♦K76
♣DG1095
Vestur Austur
♠72 ♠ÁDG5
♥9764 ♥8532
♦G54 ♦10832
♣Á872 ♣K
Suður
♠10964
♥ÁD10
♦ÁD9
♣643
Suður spilar 3G.
Punktatalningin 4-3-2-1 er kennd við
Milton Cooper Work (1864-1934), sem
var áhrifamikill fræðimaður á hinum
gróskumiklu tímum þegar vistin var að
umbreytast í „samningsbrids“. Sam-
kvæmt Milton á suður 12 punkta og þar
með opnun. Hvort hann opnar á tígli eða
útspilsfælandi laufi er önnur saga, en
leiðin í 3G er mörkuð: Norður svarar á
2♣, suður segir 2G og norður hækkar í
þrjú. En hvernig fara 3G með hjarta út?
Niður, með bestu vörn. Sagnhafi spil-
ar laufi í öðrum slag og austur lendir
inni á stökum ♣K. Austur verður þá að
skipta yfir í ♠5! Þegar vestur kemst síð-
ar inn á ♣Á mun hann spila spaða í
gegnum kónginn og þá er austur örugg-
ur með þrjá spaðaslagi. Auðveld vörn á
yfirborðinu, en í hita leiksins við borðið
er hætt við að margir myndu spila ♠D.
16. júní 1909
Vatnsveita Reykjavíkur tók til
starfa, þegar vatni úr Elliða-
ánum var hleypt „í pípurnar
til og frá um bæinn,“ eins og
það var orðað í Lögréttu. Í
byrjun október fór Gvend-
arbrunnavatn að renna um
dreifikerfið.
16. júní 1940
Togarinn Skallagrímur bjarg-
aði 353 mönnum af breska
hjálparbeitiskipinu Andania,
sem þýskur kafbátur sökkti
um 85 sjómílum suður af Ing-
ólfshöfða. Enginn fórst.
„Mesta björgunarafrek Íslend-
inga á sjó,“ sagði Alþýðublað-
ið.
16. júní 1946
Hátíðahöld voru í tilefni af
hundrað ára afmæli Mennta-
skólans í Reykjavík. Skrúð-
ganga var að leiði Svein-
bjarnar Egilssonar, fyrsta
rektors skólans, í Hólavalla-
garði.
16. júní 2007
Ekið var á fornbílum niður Al-
mannagjá til að minnast þess
að hundrað ár voru síðan
Kristján áttundi Danakon-
ungur kom í opinbera heim-
sókn til Íslands.
16. júní 2008
Hvítabjörn sást við Hraun á
Skaga. Hann var felldur dag-
inn eftir og er nú á Hafíssetr-
inu á Blönduósi. Þrettán dög-
um áður hafði annar björn
verið felldur í Laxárdal ytri á
Skaga.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Björn Þór Ólafsson íþróttakennari er 70 ára í dag.
„Ég ætla ásamt bræðrum mínum, fjölskyldu og
vinum að vera með söngskemmtun,“ segir Björn
Þór aðspurður hvort hann ætli að gera eitthvað í
tilefni afmælisins. Söngkemmtunin verður haldin í
félagsheimilinu Tjarnarborg á Ólafsfirði en þar er
Björn Þór fæddur og uppalinn. Öllum er velkomið
að koma og hlusta en bæði einsöngur og kór-
söngur er á dagskránni. Sjálfur segist Björn Þór
hafa gaman af söng og syngur gjarnan með
bræðrum sínum þegar færi gefst.
Björn Þór er kvæntur Margréti Toft og eiga þau
þrjú börn og sjö barnabörn. Hann kenndi bæði íþróttir og smíði en
stundaði jafnframt skíði af miklu kappi og gat sér gott orð í íþrótt-
inni. „Ég fer mikið á skíði enn þann dag í dag, á hverjum degi ef vel
viðrar og það er snjór,“ segir Björn Þór. Hann reynir að stunda hreyf-
ingu á hverjum degi, á veturna fer hann á skíði en á sumrin hjólar
hann mikið. Í sumar ætlar hann að reyna að ferðast um Ísland, fara í
útilegur og göngur. „Fjölskyldan er mikið fyrir útivist og við reynum
að gera sem mest af að ferðast um landið okkar á sumrin,“ segir
Björn Þór. kristel@mbl.is
Björn Þór Ólafsson er 70 ára í dag
Syngjandi á afmælinu
Hlutavelta
Flóðogfjara
16. júní Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 0.28 0,3 6.30 3,7 12.37 0,3 18.55 4,1 2.57 24.01
Ísafjörður 2.36 0,2 8.24 2,0 14.38 0,3 20.49 2,4 1.34 25.34
Siglufjörður 4.39 0,1 11.09 1,2 16.51 0,3 23.07 1,4 1.17 25.17
Djúpivogur 3.29 2,0 9.37 0,4 16.04 2,4 22.21 0,5 2.12 23.45
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Virtu árstíðirnar í sjálfum þér, nátt-
úrlega hringrás orkunnar. Kynntu þér gang
mála og þú munt sjá margt sem nýtist þér
núna.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Samskipti þín við fólk eru svo nákvæm
og næm að þú þarft næstum aldrei að hækka
röddina til að leggja áherslu á mál þitt. Þú ert
í stuði til þess að horfa, hlusta og nema.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Bilanir á heimilinu og erfiðleikar í
einkalífinu reyna á styrk þinn og staðfestu.
Rósemi og einbeiting eru lykilatriði til þess að
ná árangri. Taktu það til alvarlegrar athug-
unar.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þér finnst þú eiga erfitt með að setja
þér markmið í lífinu. Stundum borgar það sig
að hafa fyrir hlutunum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Sköpunarmáttur þinn er mikill um þess-
ar mundir. Þú ert til í að prófa að henda þér
út í óvissuna.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú ert eilífðarstúdent, viðukenndu það
bara. Ný sambönd eru skref fram á við.
Gerðu ráð fyrir mikilli velgengni á þessu ári.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er argasta vitleysa að deila vegna
barna í dag. Láttu það þó ekki eyðileggja fyrir
þér daginn.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Taktu til hendinni og losaðu þig
við það sem þú telur þig ekki hafa þörf á. Oft-
ast heldur þú þig vita hvað framtíðin ber í
skauti sér, en nú veistu það ekki.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú þarft enga formlega viðhöfn
til að skilja við hluta af lífi þínu sem er úr sér
genginn. Hvort ertu að koma eða fara?
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Fjölskyldusamkomur og umræður
um gömlu góðu dagana eru á döfinni. Láttu
bara sem þú sjáir ekki og þá færðu örugglega
þinn frið.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það er ekki allt fengið með útlit-
inu. Leyfðu léttleikanum að vera með í för og
þá muntu komast létt í gengum þetta tímabil.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú færð tækifæri til að hefja samn-
ingaviðræður að nýju svo gerðu það upp við
þig hvort þú átt að hrökkva eða stökkva. Að
semja frið við einhvern veitist þér auðvelt.
Stjörnuspá
1. e4 c6 2. d4 d5 3. e5 Bf5 4. Rd2 e6
5. Rb3 Rd7 6. Rf3 h6 7. Be2 a5 8. a4
g5 9. 0-0 Bg7 10. Re1 Db6 11. Rd3
Re7 12. Bd2 Dc7 13. f4 Rg6 14. fxg5
hxg5 15. Bg4 c5 16. Bxf5 exf5 17.
Rbxc5 Rxc5 18. Rxc5 Bxe5 19. De2 0-
0-0 20. dxe5 Dxc5+ 21. Be3 Rf4
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir skömmu í Kaupmanna-
höfn í Danmörku. Íslenski stórmeist-
arinn Þröstur Þórhallsson (2.392)
hafði hvítt gegn Dananum Tommy
Schmidt (2.143). 22. Hxf4! d4 23.
Hxf5 dxe3 24. He1 Kb8 25. Dxe3
Dxc2 26. Hxf7 Dc6 27. e6 Dc4 28.
De5+ Kc8 29. e7 Dxf7 30. Hc1+ og
svartur gafst upp. Þröstur fékk 5½
vinning á mótinu af 9 mögulegum og
lenti í 12.-21. sæti.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
160611
Hvítur á leik