Morgunblaðið - 16.06.2011, Side 25
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2011
Listvinafélag Hallgríms-kirkju stendur fyrir röðsýninga undir yfirskrift-inni „Kristin minni“ – og
að þessu sinni sýnir Þóra Þórisdóttir í
anddyri kirkjunnar í tilefni af hátíð
kirkjunnar, hvítasunnu. Hvítasunnan
hverfist um heilagan anda sem einnig
hefur verið nefndur „andi sannleik-
ans“ og „annar hjálpari“ (á eftir
Kristi), samanber Jóhannesarguð-
spjallið. Túlka má heilagan anda sem
uppsprettu orku sem getur komið
hinu góða til leiðar, og hvítasunnuhá-
tíðin gefur því tilefni til íhugunar, líkt
og sýning Þóru gefur til kynna. Þar
má m.a. sjá eintak af Biblíunni; bók
sem þvegin hefur verið með salti og
blóði í þeim tilgangi að opna hana á
táknrænan hátt fyrir íhugun, endur-
skoðun og túlkun sem lýtur einkum
að konum en höfðar jafnframt til allra
sem áhuga hafa á trú og trúmálum.
Yfirskrift sýningarinnar er „Ru-
brica“ sem merkir m.a. rauð krít sem
notuð er til að merkingar (þar sem á
að skera í flöt). Og Þóra vísar með
rauða litnum á þá staði í heilagri ritn-
ingu, aðallega Ljóðaljóðin og Jóhann-
esarguðspjallið, þar sem textinn
þarfnast sérstakrar „krufningar“.
Notkun Þóru á blóði – ef til vill tíða-
blóði – virðist skírskota til líkamans
og hins jarðneska sem tengist áhuga
hennar á að færa boðskap bókarinnar
nær fólki. Efnislegur veruleiki bók-
arinnar er jafnframt undirstrikaður
með þvottinum: á bylgjóttum síð-
unum stirnir á saltkristalla, eða salt
jarðar. Á sama tíma hefur bókin þan-
ist út og áferð hennar orðið mjúk,
loftkennd og blæbrigðarík; það er
sem ferskir vindar hafi leikið um síð-
urnar, nú eða andi verið leystur þar
úr læðingi. Þóra „opnar“ þannig rými
bókarinnar fyrir persónulegri túlkun
þar sem heilagur andi er kvenkyns
kraftur eða lífgjafi; kraftbirting hans
þýðir textann í kvenlægu ljósi í þeim
tilgangi að „rétta við kynjað táknmál
Biblíunnar“, eins og segir í frétta-
tilkynningu. Í fróðlegu samtali Þóru,
Ólafs Gíslasonar listfræðings og Sól-
veigar Önnu Bóasdóttur guðfræðings
(sem heyra má á vef Listvinafélags-
ins) kemur fram að hugmyndir Þóru
eiga sér samsvörun í sjónarmiðum
kvennaguðfræði og umhverf-
isguðfræði.
Á veggjum anddyrisins hanga boll-
ar með dreggjum rauðs jurta-
drykkjar, og verk unnin m.a. með
jurtalitum og blóði á vatnslitapappír.
„Rubrica“ vísar hér til þess sem kall-
ast yfirskriftir og greinirósir í helgum
ritum. Í sjónrænum og hug-
myndalega skemmtilegum leik, þar
sem gengið er út frá sköpunarsög-
unni, leiðir Þóra grunnform í nátt-
úrunni og form í kristnu táknmáli af
hringnum, eða eggi konunnar. Mynd-
irnar hafa dulspekilegt yfirbragð,
ekki síst vegna þess að handskrifaður
textinn er á (latínuskotinni) ensku og
minnir öðrum þræði á Tarot-spil.
Nokkuð er þó um villur í textanum.
Hér eru á ferðinni verk sem unnin
eru af einlægni og brennandi áhuga.
Þóra íhugar spurningar um náttúru
og trú, kirkju, hugmyndakerfi, tilveru
kvenna og jafnvel erfðafræði. Þjóð-
kirkjan stendur um þessar mundir á
vissum tímamótum og framundan
kann að vera sjálfsgagnrýnin siðbót.
Hugvekja Þóru kemur sem ferskur
vindur inn í þá orðræðu – í góðri trú.
Blóðhreinsun andans
Hallgrímskirkja
Þóra Þórisdóttir – Rubrica
bbbmn
Sýning stendur fram eftir sumri 2011.
Opið alla daga kl. 9-20. Aðgangur
ókeypis. Sýningarstjóri: Ólöf Nordal.
ANNA JÓA
MYNDLIST
Hugvekja Þóra Þórisdóttir þvær eintak af Biblíunni með salti og blóði til að
opna hana á táknrænan hátt fyrir íhugun, endurskoðun og túlkun.
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Hagþenkir, félag höfunda fræðirita
og kennslugagna veitir árlega
starfsstyrki til ritstarfa og til gerðar
handrita fræðslu- og heim-
ildamynda. Á fimmtudag var til-
kynnt um hverjir fengju styrki fé-
lagsins að þessu sinni og alls
úthlutað fjórtán milljónum króna.
Að sögn Friðbjargar Ingimars-
dóttur, framkvæmdastýru Hag-
þenkis, bárust félaginu umsóknir um
72 starfsstyrki til ritstarfa og nam
heildarupphæðin sem sótt var um
rúmum 37 milljónum kr. Alls úthlut-
aði félagið styrkjum til 31 verkefnis,
en þar af hlutu 16 höfundar hæsta
styrk, 600.000 kr. hver. Þrjár um-
sóknir til handritsgerðar voru líka
styrktar, samtals um 650.000 kr.
Í úthlutanaráði voru Hrefna Ró-
bertsson sagnfræðingur, Snorri
Baldursson náttúrufræðingur og
Hulda Þórisdóttir stjórnmálasál-
fræðingur.
Hæstu styrki hlutu Anna Ingólfs-
dóttir, Bjarni Reynarsson, Björn
Vilhjálmsson, Gréta Elín Sörensen,
Guðjón Friðriksson, Guðmundur
Páll Ólafsson, Ingunn Þóra Magn-
úsdóttir, Jóhann Sigurðsson, Jónas
Knútsson, Margrét Elísabet Ólafs-
dóttir, Margrét Gunnarsdóttir, Sig-
urður Gylfi Magnússon, Stefán Páls-
son, Sumarliði R. Ísleifsson, Viðar
Hreinsson og Þórunn Sigurð-
ardóttir.
Starfsstyrki, 200-300 þúsund,
hlutu Aðalheiður Guðmundsdóttir,
Arna Björk Stefánsdóttir, Ásdís ósk
Jóelsdóttir, Birna Lárusdóttir, Erla
Hulda Halldórsdóttir, Guja Dögg
Hauksdóttir, Gunnar Örn Hann-
esson, Harpa Björnsdóttir, Kristján
Guðmundsson, Magnús Einarsson,
Paolo M. Turchi, Páll Baldvin Bald-
vinsson, Sigrún Helgadóttir, Sig-
urþór Sigurðsson og Trausti Ólafs-
son.
Styrki til gerðar fræðslu- og heim-
ildamynda hlutu Ásta Kristjáns-
dóttir og Berghildur Erla, Ari
Trausti Guðmundsson og Pétur
Gunnarsson.
Hagþenkir úthlutar starfsstyrkjum
Fræðastarf Starfsstyrkþegar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna.
Styrkir til ritstarfa og gerðar handrita fræðslu- og heimildamynda Leikarinn, hesta-maðurinn og
kvikmyndagerð-
armaðurinn
Benedikt Erl-
ingsson fjallar
um samskipti
manna og hesta,
manninn í hest-
inum og hestinn í
manninum, á
Kjarvalsstöðum
kl. 15 á laugardag í tilefni af sýn-
ingunni Jór! sem þar stendur yfir.
Benedikt er með í smíðum kvik-
mynd sem hefur vinnuheitið Hross
um oss og hefjast tökur á henni
næsta sumar, en myndinni er ætlað
að vera óður til hestsins.
Fyrirlestur Benedikts er einnig
hugsaður sem upptaktur fyrir
Landsmót hestamanna sem hefst á
Vindheimamelum í Skagafirði 26.
júní. Á sýningunni Jór! Hestar í ís-
lenskri myndlist er að finna verk
sem fjalla með ýmsum hætti um það
hvernig íslenskir listamenn hafa
túlkað tengsl manns og hests í
rúma öld, eða frá 1900 til 2010.
Sýningunni er skipt í þrjú þemu:
Þarfasti þjónninn; um hversdagsleg
samskipti manns og hests, Holdg-
aður stormur; um hestinn sem nátt-
úru, og Hestar með vængi; hinn
goðsagnalegi hestur.
Benedikt um
Hross um oss
Benedikt
Erlingsson
Græni Hatturinn Akureyri
sími 461 4646 / 864-5758
Forsala á alla viðburðina hafin í Eymundsson
Fimmtudagur 16. júní
Andrea og Blúsmenn
Tónleikar kl. 22.00
Laugardagur 18. júní
Eivör
Tónleikar kl. 21.00
Sunnudaginn 19. júní
Eivör
Tónleikar kl. 21.00
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Húsmóðirin (Nýja sviðið)
Mið 22/6 kl. 20:00 aukasýn Fim 23/6 kl. 20:00 aukasýn
Sýningum lýkur í júní. Ósóttar pantanir seldar daglega
Grímuhátíðin í Borgarleikhúsinu í kvöld
Leikhúsin í landinu
www.mbl.is/leikhus
Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F
Tjarnarbíó
5272100 | tjarnarbio@leikhopar.is
Ferðasaga Guðríðar / The saga of Gudridur
Sun 19/6 á íslensku kl. 20:00
Fös 24/6 á íslensku kl. 20:00
Lau 25/6 á íslensku kl. 16:00
Sun 26/6 kl. 20:00
sýnd á ensku / in english
Sýnd á ensku 26.júní / In english 26.june
Hetja / Hero
Sun 19/6 kl. 16:00
sýnd á ensku / in english
Fös 24/6 á íslensku kl. 18:00
Lau 25/6 á íslensku kl. 20:00
Sun 26/6 kl. 16:00
sýnd á ensku / in english
Sýnd á ensku 19. og 26.júní / In english 19. and 26.june
Sirkus Íslands:Ö faktor
Fös 1/7 kl. 19:30
Lau 2/7 kl. 14:00
Lau 2/7 kl. 18:00
Sun 3/7 kl. 14:00
Sun 3/7 kl. 18:00