Morgunblaðið - 22.06.2011, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
Norðmaðurinn Per Christiansen tók
sæti í EFTA-dómstólnum fyrr á þessu
ári en hann var áður prófessor í lögum
við Háskólann í Tromsø í Noregi. Sem
slíkur tjáði hann sig opinberlega um
Icesave-málið að minnsta kosti í tveim-
ur tilfellum en eins og kunnugt er þá er
hugsanlegt að málið eigi eftir að koma
til kasta dómstólsins.
Fordæmi eru fyrir því að dómarar
við EFTA-dómstólinn hafi sagt sig frá
málum vegna þess að þeir hafi áður
fjallað opinberlega um efni þeim tengt.
Þannig sagði núverandi forseti dóms-
ins, Carl Baudenbacher, sig frá máli
árið 2008 þar eð hann hafði áður en
hann varð dómari ritað fræðilegar
greinar sem tengdust efni þess.
Í blaðagrein í
norska dagblaðinu
Aftenposten 12.
janúar 2010, í að-
draganda fyrsta
þjóðaratkvæðisins
um Icesave-málið,
sagði Christiansen
meðal annars að
það fjárhagslega
tap sem orðið hefði
vegna Icesave
væri fyrst og fremst afleiðing íslenskra
ákvarðana, að hluta til af hálfu ís-
lenskra stjórnvalda og að hluta til ís-
lenskra banka. „Ef menn eru þeirrar
skoðunar að íslenska ríkið eigi ekki að
greiða fyrir tapið verður samhliða því
að svara þeirri spurningu hver eigi þá
að greiða fyrir það.“
Í samtali við norska vefmiðilinn
Abcnyheter.no í desember sl. vildi
Christiansen ekki svara því hvort hann
væri vanhæfur í ljósi ummæla sinna í
blaðagreininni til þess að fjalla um Ice-
save-málið kæmi það fyrir EFTA-
dómstólinn.
Íslendingar eigi að greiða
Haft er eftir Christiansen í frétt á ís-
lenska vefmiðlinum Pressan.is 13.
febrúar 2010 að það eina sem virðist
ljóst sé að Íslendingum beri lagaleg
skylda til þess að greiða innistæðu-
tryggingar vegna Icesave-reikning-
anna. Þá spyr hann hver tilgangurinn
sé með íslenska innistæðutrygginga-
kerfinu ef það eigi ekki að greiða út
tryggingar þegar þess þurfi. Þar sem
það sé í lögum að slíkar tryggingar
skuli greiddar hljóti það að þýða að ríki
fari ekki eftir tilskipun Evrópusam-
bandsins um innistæðutryggingar sé
ekki hægt að greiða þær út.
Ennfremur er haft eftir Christian-
sen að það hafi verið mismunun á
grundvelli þjóðernis að íslenskir inni-
stæðueigendur fengu sitt bætt í kjölfar
bankahrunsins en ekki Bretar og Hol-
lendingar sem áttu innistæður á Ice-
save-reikningum. Þá sé erfitt að taka
alvarlega það sjónarmið að Evrópu-
sambandið beri ábyrgð í málinu vegna
gallaðrar tilskipunar.
Samkvæmt þeim reglum sem gilda
um EFTA-dómstólinn er dómari van-
hæfur til þess að fjalla um mál hafi
hann á einhvern hátt komið að því.
Þess utan getur dómari lýst sig sjálfan
vanhæfan telji hann ástæðu til og þá
getur forseti dómsins tilkynnt dómara
að hann telji að hann ætti ekki að fjalla
um ákveðið mál.
Mögulegt vanhæfi dómara
Nýr dómari við EFTA-dómstólinn kann að vera vanhæfur til þess að fjalla um
Icesave-málið komi það til kasta dómsins vegna ummæla um það í fjölmiðlum
Per
Christiansen
Golfíþróttin verður stöðugt vinsælli og eins gott
að læra réttu handtökin strax í upphafi. Vel hef-
ur viðrað til golfiðkunar á Suður- og Vesturlandi
að undanförnu og ekki væsti um kylfingana
ungu á námskeiði hjá Golfklúbbi Kópavogs og
Garðabæjar í gær.
Kylfingar framtíðar læra réttu handtökin
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Furðudýr kom nýlega í troll
togarans Múlabergs SI 22 frá
Siglufirði, að því er greint var
frá á fréttavefnum siglfirding-
ur.is. Togarinn var við veiðar á
rækjumiðunum á Strandagrunni,
norðvestan við Hornbanka, þeg-
ar tvö eintök af þessu sérkenni-
lega krabbadýri komu í trollið.
Eftir skoðun á myndum af dýr-
inu segir Karl Gunnarsson, sér-
fræðingur hjá Hafrann-
sóknastofnun, að krabbadýrið sé
af ættbálki jafnfætlu. Dýrið hafi
áður komið inn á borð hjá
Hafrannsóknastofnun og það
komi aðallega úr botnsleðum,
rækjutrollum og jafnvel fisk-
mögum, til dæmis grálúðu. Þó
eru dæmi um að það hafi fundist
í maga þorsks sem og fuðryskils
en það er fiskur af marhnútaætt.
Afkvæmin hanga á
fálmurum dýrsins
Lítið er vitað um umrætt
krabbadýr annað en að það hef-
ur hingað til fundist á norð-
urhveli jarðar, einkum í köldum
sjó á um 900 til 1.146 metra
dýpi. Að sögn Karls er hins veg-
ar sérstakt og eftirtektarvert við
krabbadýrið að þegar afkvæmi
þess eru klakin hanga þau á
fálmurum dýrsins og þroskast
þar.
Að því er fram kemur á sigl-
firdingur.is ber þetta athyglis-
verða furðudýr heitið Arcturus
baffini á latínu. Krabbadýrið hef-
ur hins vegar ekki enn hlotið ís-
lenskt heiti. kristel@mbl.is
Furðudýr
finnst við
veiðar
Krabbadýr í kulda
Ljósmynd/Kristján Elís Bjarnason
Kristel Finnbogadóttir
Halldór Armand Ásgeirsson
Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík, nýtur langmests trausts borg-
arbúa af oddvitum flokkanna í Reykjavík. Þetta er nið-
urstaða könnunar sem unnin var af Capacent 26. maí til
21. júní. Í könnuninni var spurt: „Hvaða oddvita í borg-
arstjórn treystir þú best?“ og skiptust svörin þannig að
50,5% borgarbúa treysta Hönnu Birnu, oddvita Sjálf-
stæðisflokksins, best en það er meira en allir hinir odd-
vitarnir til samans.
25,4% sögðust treysta Degi B. Eggertssyni, oddvita
Samfylkingarinnar, best en 17% sögðust treysta Jóni
Gnarr, oddvita Besta flokksins og borgarstjóra, best. Þá
treysti 7,1% svarenda Sóleyju Tómasdóttur, oddvita
Vinstri grænna, best.
Hanna Birna Kristjánsdóttir var ánægð með niður-
stöður könnunar Capacent. „Þetta er ánægjuleg stað-
festing á að fólk sé sátt við okkar störf. Við höfum lagt
mikla áherslu á að vera í uppbyggilegri og málefnalegri
stjórnarandstöðu og það er greinilegt að íbúar kunna að
meta það,“ sagði Hanna Birna.
Jafnframt voru þátttakendur könnunarinnar spurðir
um fylgi við flokkana. Spurt var: „Ef kosið yrði til borg-
arstjórnar í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa/
líklegast kjósa?“ og skiptust svörin á þann hátt að Sjálf-
stæðisflokkurinn er með mest fylgi eða 44,5%, Samfylk-
ingin fær 21,7% fylgi en Besti Flokkurinn 17,1%. Vinstri
grænir fá 8,7%, Framsókn 4,1% en 3,8% svarenda myndu
vilja kjósa annan flokk.
Samkvæmt upplýsingum frá Capacent voru 1444 í úr-
takinu og náðist í 871 þeirra. 75% svarenda tóku afstöðu
til spurningar um traust til oddvita og um 68% svarenda
tóku afstöðu til spurningar um fylgi flokkanna. Könnunin
var gerð fyrir borgarstjórnarflokk Sjálfstæðisflokksins.
Yfirburðir Hönnu Birnu
Nýtur langmests trausts oddvita flokkanna í Reykjavík
Vinsældir Jóns Gnarr dvína Fylgi Sjálfstæðisflokks eykst
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Jón
Gnarr
Dagur B.
Eggertsson